Lesbók Morgunblaðsins - 31.08.1996, Blaðsíða 9
»#$ÍK*4Í
pouce. rr
Á HVERJUM degi fæst fjöldi sérfræðinga á safninu við að skilgreina hvað er list og hvað
ekki. Myndin er tekin í Orangerie safninu í París.
um flokkunaraðferðir og forvörslu listaverka
var gefið út í byrjun aldarinnar, Museographia,
eftir þýska listaverkasalann N.C. Neickel.
Á átjándu öld voru verk höfunda þannig
ekki aðeins bergmál af orði og táknum guðs
heldur urðu þau eftirsótt eign, þau urðu mark-
aðsvara. Menn voru ekki fyrst og fremst að
mála guði til dýrðar, eins og á miðöldum, held-
ur fékk listin veraidlegt gildi, hún öðlaðist verð-
gildi í hinu kapítalíska hlutakerfi sem var í
hraðri þróun, í kerfi þar sem sjálfsmynd manns-
ins mótast fyrst og fremst af hlutunum sem
hann safnar í kringum sig, hlutunum í eigu
hans.
Dauói listamannsins
Listasöfn hafa gegnt margvíslegum hlut-
verkum í gegnum tíðina. Mikilvægustu og göf-
ugustu hlutverk þeirra eru ef til vill að varð-
veita listina og fræða almenning um hana.
Listasafnið hefur þannig átt að vera eins konar
þjónustustofnun. Það hefur hins vegar orðið
mun fyrirferðarmeira en svo; listasafnið hefur
orðið möndull listheimsins, ekki listamaðurinn
eða listin sjálf eins og flestir myndu ætla. Lista-
safnið er voldugasta valdastofnunin í heimi list-
anna; það velur og hafnar, það ákveður hvað
skal teljast list, hver skal teijast listamaður,
það mótar hugmyndir okkar um listasöguna
og hefur töiuvert um framtíð listarinnar að
segja einnig.
Eitt umfangsmesta listasafn heims er vafalít-
ið Metropolitan safnið í New York, stofnað
árið 1870. Rúmlega tvær milljónir listaverka
eru varðveittar þar á 660.000 fermetra svæði.
List frá öllum heimsálfum er í safninu og hún
spannar sögu síðustu 5000 ára. Safnið skiptist
í 17 deildir og eru margar þeirra einstakar í
sinni röð; egypska deildin inniheldur 36.000
verk og er sú stærsta sinnar tegundar utan
Kairó, islamska deildin á sér engan lika í heim-
inum og leitun er á öðru eins safni evrópskra
málverka sem eru ríflega 3.000 talsins í Metro-
politan safninu. Vitanlega þarf mikið starfslið
til að annast þetta gríðarstóra safn en í því
vinna um 1.700 fastráðnir starfsmenn og um
500 sjálfboðaliðar. Vinsældir safnsins eru líka
miklar en það sækja rúmlega 4,5 milljónir
manna á ári. Sérstök fræðslunámskeið í safn-
inu sækja um 350.000 manns á ári, bæði al-
mennir safngestir, nemendur úr grunn-, fram-
halds- og háskólum og kennarar.
Sá sem ætlar að heimsækja Metropolitan
safnið i fyrsta sinn hlýtur að vera fullur eftir-
væntingar, en eftirvæntingin kann að breytast
í vonbrigði eða hreina örvæntingu fari hann
ekki með réttu hugarfari og vel búinn undir
fáránlega ofgnótt safnsins. Þannig getur það
aðeins verið ijarstæðukenndur draumur að
ætla sér að fá einhverja yfirsýn yfir safnið í
fyrstu heimsókninni. Skynsamlegast er að
kynna sér vel skipulag þess og setja sér eitt-
hvert markmið áður en haldið er inn í það, svo
sem eins og að skoða málverk eftir Monet eða
Van Gogh, persnesk teppi eða nígeríska brons-
skúlptúra, vopn frá fimmtándu öld, fatnað frá
sextándu öld, japanska veflist frá sautjándu
öld, frönsk húsgögn frá átjándu öld, orgel frá
þeirri nítjándu eða bandarísk samtímamálverk.
Allar tilraunir til þess að skoða allt safnið í
fyrstu ferð hljóta að mistakast; skynfærin of-
mettast fyrr en varir og verkin taka að renna
hjá eins og auglýsingaskilti á hraðbraut í ör-
vona leit manns að útgangi. Metropolitan safn-
ið getur hæglega breyst í skrímsli við slíkar
aðstæður þótt það sé allajafna fallegt og vin-
gjarnlegt á að líta.
Það er í heimsókn á safn eins og þetta sem
maður gerir sér grein fyrir valdinu sem lista-
söfn búa yfir. Umfangið er svo gríðarlegt að
eftir hálfan dag í safninu gæti maður enn ver-
ið að skoða sverð frá þrettándu öld. Tölur geta
gefið betri mynd af umfangi og valdastöðu lista-
stofnunar af þessu tagi. Samkvæmt ársreikn-
ingi Metropolitan safnsins starfsárið júlí 1994
til júní 1995 námu eignir þess um 57,9 milljörð-
um ísl. kr. en inni í þeirri tölu eru listaverka-
eign og aðalbygging safnsins ekki falin. Rekstr-
arkostnaður þetta ár var 6,9 milljarðar ísl. kr.
en þar af var um 726 miiljónum ísl. kr. varið
til listaverkakaupa. Rekstur safnsins þetta
starfsár skilaði 36 miiljóna króna hagnaði.
Og það, er augljóst að safnið kaupir aðeins
það sem er „þess vert“ að vera geymt í sölum
þess; það er ekkert í safninu sem „á ekki skil-
ið“ að vera þar. Til að koma í veg fyrir að
„mistök" séu gerð í vali á listaverkum til kaupa
hefur safnið á að skipa miklum frjölda vel mennt-
aðra og hæfra listfræðinga og sérfræðinga. Á
deild evrópskra málverka starfa til dæmis 25
manns, þar af fimm sem bera titilinn kúrator,
eða safnstjóri, og sex sem fást við rannsóknir,
hinir sjá um stjórnun deildarinnar, eru forverð-
ir eða aðrir tæknimenn og aðstoðarfólk á ýms-
um sviðum. Til merkis um rannsóknarstarfsemi
í Metropolitan safninu má geta þess að um
þijú hundruð bókatitlar eru gefnir út þar á
hveiju ári.
Á hveijum degi fæst því fjöldi manns á safn-
inu við að skilgreina hvað er list og hvað ekki.
ntOMTHfi
SIWMRI FAMHV
COU.W'ÍION
Wmslow
■ . ■
m
EITT umfangsmesta listasafn heims er vafalítið Metropolitan safnið í New York. Rúmlega tvær milljónir listaverka eru varðveittar þar á 660.000 fermetra svæði. Umfangið er svo
gríðarlegt að eftir hálfan dag í safninu gæti maður enn verið að skoða sverð frá þrettándu öld.
TILURÐ LISTASAFNSINS,
HLUTVERK OG VALD
Listasafnió eins og við þekkjum það í dag varð
til ó átjándu öld í k jölfar mikilla hugsunarsögulegra
og samfélagslegra breytinga. ÞRÖSTUR HELGASON
heimsótti nýlega Metropolitan safnió í New York
borg og varó um og ó vegna stæróar þess og
ofgnóttar. Hann fjallar hér um hlutverk og vald-
astöóu slíkra safna í listheiminum og óhrif
þeirra ó listskilning okkar og sjólfsskilning.
EINAR FALUR INGÓLFSSON tók myndirnar.
VAFALAUST hefur maðurinn
verið haldinn söfnunaráráttu
frá upphafi vega en fróðir
menn eru sammála um að hún
hafi orðið ríkari þáttur í hegðun
hans á átjándu og nítjándu öld.
Segja má að þijár meginástæð-
ur liggi að baki þessari breyt-
ingu. í fyrsta lagi tók maðurinn að skynja og
skipuleggja heiminn á nýjan hátt, hann tók að
flokka hlutina í kringum sig eftir nýju kerfi,
kerfi samsemdar og mismunar. Með tilkomu
raunvísindaiegrai aðferðar var farið að sundur-
greina alla hluti; reynt var að koma auga á það
sem skildi hlutina hvern frá öðrum, fínna sér-
kenni þeirra, mæla þá, bera saman og flokka.
Áður höfðu menn skynjað heiminn sem eina iíf-
ræna og órofa heild. í öðru lagi verður eignar-
rétturinn til á þessum tíma; maðurinn sem eig-
andi, sem hagfræðileg stærð verður tii. Þessu
tengist svo þriðja ástæðan fyrir þvi að mönnum
þótti meiri ástæða en áður til að safna að sér
ýmsum hlutum; á þessu tímabili varð höfundur-
inn (listamaðurinn) til, höfundurinn sem miðstöð
sköpunarinnar og merkingarinnar, sem miðja
sköpunarverks síns og ekki síst eigandi. Hug-
myndir um höfundarrétt tóku að mótast. Áður
hafði einungis verið litið á menn, sem fengust
til dæmis við að skrifa eða mála, sem skrá-
setjara eða túlkendur á upphaflegri texta, á
heilagri ritningu eða guðlegum táknum. Á átj-
ándu öld fóru menn að tengja saman verk og
einstakling, listin var ekki lengur höfundarlaus
eða nafnlaus gjörð heldur mátti rekja hvert
verk tii ákveðinnar persónu. Þannig var farið
að flokka verk eftir höfundum þeirra. Um leið
var farið að skoða inntak verks í ljósi höfundar-
ins og persóna listamannsins varð forvitnileg.
Tilurd listasaf nsins
Þessar breytingar, sem að einhveiju leyti
má rekja aftur til sautjándu aldarinnar, komu
meðal annars fram i því að opinber listasöfn
voru stofnuð víða í Evrópu og í Bandaríkjun-
um. Fyrsta opinbera listasafnið var stofnað
eftir frönsku byltinguna í París árið 1793.
Þetta var Louvre safnið sem var upphaflega
einkasafn franskra konunga. Það var Francois
I sem hóf söfnunina á 16. öld með því að kaupa
12 málverk frá Ítaiíu, þeirra á meðal hina frægu
Monu Lisu eftir Leonardo da Vinci. Þetta safn
stækkaði stöðugt ogýnnihélt 200 verk á veidis-
tíma Loðvíks XIII. í tíð Loðvíks XIV fjölgaði
verkunum í 2.500 og það var svo Loðvík XVI
sem neyddist til að láta safnið af hendi til
uppreisnaraflanna í byltingunni 1789 og kon-
ungshöllinni, Louvre, var breytt í listasafn fjór-
um árum síðar. Fyrir stofnun Louvre safnsins
hafði almenningur lítinn aðgang haft að lista-
safni konungs og raunar engan til ársins 1750.
Tilurð hinna opinberu listasafna tengist því
einnig lýðræðisþróuninni á átjándu öld.
Um flest söfn sem stofnuð voru á átjándu
og nítjándu öld gildir það sama og Louvre, þau
voru upphaflega í einkaeigu aðalsins. Þannig
er því til að mynda einnig farið um Hermitage
safnið í Pétursborg í Rússlandi sem upphaflega
var stofnað sem hirðsafn árið 1764 af Katrínu
miklu keisaraynju. Hermitage safnið var opnað
almenningi árið 1852. Hið sama á við um Ríkis-
listasafnið í Amsterdam, sem stofnað var árið
1798, og Prado safnið í Madrid sem opnað var
1819.
Eins og Gunnar Kvaran, listfræðingur, rekur
í grein sem hann nefnir Listin að safna ... og
birtist í riti gefnu út í tilefni af sýningu á verk-
um úr safni Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar
Guðmundsdóttur, þekktust listaverkasöfn kon-
unga og höfðingja ýmiss konar löngu áður en
Frökkum og öðrum Evrópumönnum datt í hug
að sanka að sér fallegum hlutum. Af hinum
konunglegu fjársjóðum í Kína má sjá hvernig
höfðingjar þar til forna söfnuðu listaverkum.
Af öðrum fornum einkasöfnurum má nefna
Attalus II konung af Pergamum í Grikklandi,
sem lést 138 f.Kr., en hann átti mikið safn
málverka. Þessi iðja varð síðar vinsæl í Róma-
veldi þar sem höfðingjar og auðmenn kepptust
um að eignast sem mest af grískri list en að
sögn Gunnars skipti á þessum tíma engu máli
hvort um frummyndir var að ræða eða eftir-
myndir.
Á miðöldum var kirkjan stórtækust í söfnun
listmuna og reyndar ýmiss konar annarra hluta
einnig, að sögn Gunnars. Munirnir sem kirkjan
hafði mestan áhuga á tengdust á einhvern
hátt kristinni trú. Á endurreisnartíma segir
Gunnar að menn hafi hins vegar byijað að
safna fornklassískum verkum enda voru þau
ímyndir fullkomleika listaverksins en einnig
tóku menn að kaupa verk eftir þekkta samtíma-
listamenn. Á endurreisnartíma voru höfundarn-
ir enda farnir að koma fram í dagsljósið og
árita verk sín, merkja þau með höfundarnafni.
Þetta breytta viðhorf til höfundarins varð til
þess að menn fóru að vilja eignast söfn eða
flokka verka eftir einstaka höfunda; þannig
varð höfundurinn ástæða til frekari söfnunar
um leið og hann varð flokkunarlegt viðmið. Á
átjándu öld varð raunar sú breyting á í Iista-
söfnum að menn tóku að skrá og flokka söfnin
samkvæmt faglegum vinnureglum. Fyrsta ritið
FYRSTA opinbera listasafniö var stofnað eftir frönsku byltinguna í París árið 1793. Þetta
var Louvre safnið sem var upphaflega einkasafn franskra konunga.
SKYNFÆRIN ofmettast fyrr en varir og verkin taka að renna hjá eins og auglýsingaskilti
á hraðbraut i örvona leit manns að útgangi. Myndin var tekin í Metropolitan safninu nýlega.
Þeirri skiigreiningu verða listamenn svo að lúta,
bæði fyrri tíma og samtímans. Vald iistamanns-
ins er í raun ekki svo mikið að hann geti bent
á verk sitt og sagt: Þetta er list. Hann verður
að bíða viðurkenningar, verk hans verður ekki
list fyrr en það hefur verið keypt, fyrr en það
er orðið eign einhvers safnsins eða safnarans.
Þannig má segja að hin rómantíska hugmynd
um listamanninn sem upphaf og skapara listar-
innar eigi ekki lengur við í hinu kapítalíska
kerfi hlutanna. Listamaðurinn eins og við
þekktum hann er dauður. Það er ekki hann sem
„skapar“ listina heldur safnið, kúratorinn, list-
fræðingarnir, safnararnir.
Það er með öðrum orðum ekki listamaðurinn
sem skilgreinir hvað er mikilvægt, hvað er
merkilegt eða fallegt og áhugavert heldur safn-
ið. Hér er um ákveðna útilokun að ræða; sá
sem ekki feliur undir skilgreininguna á hvetjum
tíma er ekki aðeins útilokaður frá safninu held-
ur einnig frá því sem talist getur gott og rétt
í listinni á hverjum tíma. Oft hefur verið sagt
að hér gegni einkasafnið miklu hlutverki sem
mótvægi við hið opinbera safn og hinn viður-
kennda og staðlaða smekk þess. Og það er
rétt að í gegnum tíðina hafa einkasöfnin oft
verið á undan hinum opinberu söfnum að viður-
kenna og kaupa framsækna, eða óviðurkennda,
list. Þannig var því til að mynda farið með
verk impressjónistanna, expressjónistanna og
kúbistanna fyrir og um síðustu aldamót, eins
og Gunnar Kvaran bendir á í fyrrnefndri grein
sinni. Vafalaust gegna einkasöfn svipuðu hlut-
verki nú þótt áhrif þeirra kunni að hafa farið
minnkandi vegna sífellt aukinna umsvifa hinna
opinberu listasafna; þau eru ekki aðeins stærstu
einstöku kaupendurnir á samtímalist heldur
stunda þau einnig mestar rannsóknir á því sviði.
i miðju heimsins
Hér hefur verið talað um vald safnsins til
að skilgreina listina og móta viðhorf okkar til
hennar. Safnið hefur hins vegar haft mun víð-
tækari áhrif en það; það hefur átt þátt í því
að móta sjálfsskilning okkar, hvernig hið vest-
ræna sjálf skynjar sig í miðju heimsins.
Allt fram á þennan dag hefur það þótt eðli-
legt að listmunir frá ríkjum utan hins vestræna
heims væru geymdir í evrópskum eða banda-
rískum söfnum þegar góð sýnishorn af þeim
eru jafnvel ekki til í löndunum sem þeir eru
upprunnir í. Listasöfn í vesturheimi líta svo á
að þau séu að bjarga þessum munum frá
gleymsku þegar þau taka þá úr upprunalegu,
eða réttu, samhengi sínu og koma þeim fyrir
á safninu. En hverjum yrðu þeir gleymdir?
Varla þjóðunum sem áttu þá í upphafi; þær
myndu að minnsta kosti ekki gleyma þeim á
meðan þeir væru enn í eigu þeirra. Sennilega
er átt við að vesturlandabúar myndu gleyma
þeim. En þeir vissu hvort eð er fæstir af tilvist
þessara hluta. Og enn færri vissu hver tilgang-
ur eða merking þeirra var. Sú mynd sem vest-
rænir safnagestir fá af hlutnum getur heldur
ekki verið sönn; hún er miklu frekar tálsýn því
að samhengið er ekki rétt. Þess vegna eru það
í raun og veru ekki göfug varðveislusjónarmið
sem liggja að baki því þegar vestræn söfn sanka
að sér framandi listmunum. Þar ræður fremur
yfirgengileg og stundum jafnvel rángjörn þörf
til að eignast og hitt að með því staðfesta þau
að þau eru í miðju heimsins.
Listamadurinn eins og viö þekktum hann er dauö-
ur. Þaö er ekki hann sem „skapar“ listina heldur
safniöy kúratorinny listfræöingamiry safnaramir.
Þaö er meö öörum oröum ekki listamaöurinn sem
skilgreinir hvaö er mikilvægty hvaö er merkilegt
eöa fallegt og áhugavert heldur safniö. Hér er
um ákveöna útilokun aö ræöa.
4-
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. ÁGÚST 1996
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. ÁGÚST 1996 9