Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1996, Blaðsíða 19
ANNA JÓASÝNIRÍ HÖFÐABORG
SÖGUR AF FÓLKI
Morgunblaðið/Arni Sæberg
„í ÖLLUM myndunum mála ég útlínur fólks
í óræðri náttúrustemmningu því að líkam-
leg nærvera eða líkamstjáning er mér mjög
mikilvæg — ég er fyrst og fremst að segja
sögur af fólki,“ segir Anna Jóa sem sýnir
nú t Höfðaborginni.
ANNA JÓA heldur sýningu á olíu-
málverkum og teikningum í
Höfðaborginni í Hafnarhúsinu.
í samtali við Morgunblaðið sagði hún
að verkin fjölluðu um tilfinningar,
kraft náttúruaflanna og tengsl þarna
á milli. „í myndunum færi ég náttúru-
hamfarir og eins konar tilfinninga-
hamfarir í sjónrænan búning á minn
persónulega hátt. Þær eru allar unnar
í París þar sem ég hef verið við fram-
haldsnám undanfarin tvö ár.
í París sá ég hvernig náttúran kemur
fyrir augu stórborgarbúans í formi
bakgrunns fyrir vatnsauglýsingar í
sjónvarpinu. Þá skildi ég betur hvað
ég er heppin að vera íslensk og búa í
svona kraftmiklu og óútreiknanlegu
landi. Til að túlka kröftugar og óút-
reiknanlegar tilfinningar í sjálfri mér
geri ég til dæmis þannig, að líkja mann-
eskjunni á myndinni við einfaldaða
mynd af eldsumbrotum og lýsi þannig
hádramatísku augnabliki sem er pínu-
lítið húmorískt um leið. í öllum mynd-
unum mála ég útlínur fólks í óræðri
náttúrustemningu því að líkamleg nær-
vera eða líkamstjáning er mér mjög
mikilvæg — ég er fyrst og fremst að
segja sögur af fólki.“
Anna Jóa er með vinnustofu í Hafnar-
húsinu og býðst fólki að skoða hana og
kynnast þeirri hlið á list hennar. Þetta
er síðasta sýningarhelgi Önnu Jóu.
Á ÆFINGU
Morgunbloóió/Jón Svovarsson
Tónleikar til styrktar
alzheimersjúklingum
CARITAS á íslandi efnir til tónleika
til styrktar alzheimersjúklingum í
Kristskirkju, Landakoti, á morgun,
sunnudag, kl. 17. Flytjendur verða Alina
Dubik messósópransöngkona, Bernardel-
kvartettinn, Gunnar Kvaran sellóleikari,
Ólöf Kolbrún Harðardóttir ásamt félögum
úr Kammerkór Langholtskirkju, Jón Stef-
ánsson orgelleikari, Sigurður I. Snorrason
klarinettleikari og Úlrik Ólason orgelleik-
ari, en á efnisskrá eru verk eftir J.S. Bach,
Beethoven, Verdi, Franck, Mozart og fleiri.
Tónleikarnir eru liður í hinni árlegu fjár-
söfnun Caritas á íslandi sem að þessu sinni
er varið til að efla fræðslu í þágu alzhei-
mersjúklinga. í kynningu segir: „Fræðsla
í þágu alzheimersjúklinga hefur verið lítil.
Hætt er því við að þessir aðilar og aðstand-
endur þeirra fari á mis við grundvallarþarf-
ir eins og umhyggju, skilning og öryggi.
Það er því ósk Caritas á íslandi að stofnað-
ur verði sjóður til að efla fræðslu í þeirrg*
þágu.“
Caritas-sunnudagurinn verður 1. desem-
ber næstkomandi og fer söfnunin fram í
öllum kaþólskum kirkjum landsins.
MESTA ISLANDSKYNNING 1 FRAKKLANDI UM ARABIL
NORRÆN MENNINGAR-
HÁTÍÐ í NORMANDÍ
Norræna menningarhátíðin Borealis í Normandí
er mesta Islandskynning um árabil í Frakklandi.
ÞÖRUNN ÞÖRSDÖTTIR rekur hér dagskrána sem
hefst meó bókmenntafundi 19. nóvember og lýkur
eftir rithöfundamót, sýningar og tónleika þann
5. desember.
INORMANDÍ hefst nú á þriðjudsag
öflugasta kynning á íslenskri menn-
ingu sem Frökkum hefur boðist um
langt skeið. Borealis-hátíðin er fyrst
og fremst bókmenntaþing en aðrar
greinar lista og fræða fá einnig sinn
skerf. Aðsetur hátíðarinar er í Caen
og nokkrir viðburðir fá inni í ná-
grannabæjum. Á fimmta ári þessarar nor-
rænu hátíðar beinist ljósið að íslandi og
forseti hennar, Eric Eydoux, segir í inn-
gangi sýningarskrár að náð sé uppsprettu
hinnar öldnu norrænu menningar. Frá landi
fornra guða, sögueyju og þjóð sem varð-
veitt hafi mál sitt, komi líka líflegar sam-
tímabókmenntir.
Mólþing um íflenskar bókmenntir
Borealis hefst með tveggja daga málþingi
í Caen-háskóla um íslenskar bókmenntir nú
og til forna. Þarna tala helstu sérfræðingar
í Frakklandi, en fyrsta erindið heldur Sveinn
Einarsson um íslenskar leikbókmenntir. Síð-
an talar Frédéric Durand um 13. öldina á
Islandi, Francois-Xavier Dillmann.fjallar um
Snorra Sturluson, Jean Renaud um norræna
goðafræði og Steinunn Le Breton ræðir um
evrópsk áhgrif á íslendingasögur. Seinni
þingdaginn segir Régis Boyer frá fombók-
menntum á íslandi og Einar Már Jónsson
talar að svo búnu um myrkar miðaldir. Þá
kemur aftur að Régis Boyer, í þetta sinn
til að tala um Halldór Laxness. Áður en
málþinginu lýkur með umræðunm fj'alla
Torfi Tulinius og Friðrik Rafnsson um ís-
lenskar samtímabókmenntir.
íslenskunemar í Frakklandi hugsa sér
gott til glóðarinnar, að sögn Steinunnar Le
Breton, sem kennir við norrænudeild háskól-
ans í Caen í Normandí. Nemendur hennar
hafa þegar tryggt sér sæti, og námsfólk
kemur eflaust víðar að, því einnig er hægt
að læra íslensku við Sorbonne í París og
suður í Lyon. Gert er ráð fyrir þátttöku um
100 manns; nemenda, fræðimanna, bóka-
safnsvarða og áhugafólks.
önnur Noróurlönd og islensk mólverk
Valgerður Hauksdóttir er fulltrúi ís-
lenskra myndlistarmanna á Borealis í ár og
sýning hennar í Caen verður opnuð á þriðja
degi hátíðarinnar, 21. nóvember. Samdæg-
urs verða nokkrir skandinavískir höfundar
kynntir og leikurinn endurtekinn annars
staðar daginn eftir. Þá, á föstudeginum,
verða Steinunn Sigurðardóttir og Thor Vil-
hjálmsson í bænum Bayeux og á laugardeg-
inum í Saint-Malo.
Laugardagurinn er líka andartak annarra
Norðurlanda en íslands, samankominna á
höfundakynningu í Caen. Frá Danmörku
koma Jacques Berg og Peter Madsen, frá
Finnlandi Annika Idström og Johan Bargum,
frá Noregi Thorvald Steen og Karsten Alnæs
og frá Svíþjóð Mats Berggren.
Ingveldur Ýr, Áshildur og
Kammersveitin
Á opnunartónleikum hátíðarinnar, föstu-
dagskvöldið 22. nóvember, verða Ingveldur
Ýr Jónsdóttir mezzosópran og Áshildur Har-
aldsdóttir flautuleikan ásamt hljóðfæraleik-
urum frá Normandí. Á efnisskránni eru verk
eftir Mozart, Arvö Part, Jón Leifs og Mahler.
Áður, þriðjudagskvöldið 19. nóvember,
gefst djassunnendum færi á að heyra norska
saxófónleikarann Jan Garbarek leika með
félögum sínum.
Þriðji tónlistarþáttur hátíðarinnar verða
tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur 3. og
4. desember í Caen. Kammersveitin, undir
forystu Rutar Ingólfsdóttur, heldur lokatón-
leika 5. desember í Vincennes. Flutt verða
verk eftir Mozart, Jón Leifs, Atla Heimi
Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson og
Brahms.
Íslenskir höfundar til funda vió
franska
Sex íslenskum rithöfundum er boðið til
hátíðarinnar og móts við þekkta franska
höfunda sem eiga með þeim nokkra sam-
leið í skrifunum. Þessi stefnumót má kalla
hápunkta hátíðarinnar. Þau verða helgina
23. og 24. nóvember. Á laugardeginum
hittir Álfrún Gunnlaugsdóttir Agötu Kristof
og Guðbergur Bergsson á orð við Paule
Constant. Á sunnudeginum mætast þær
Vigdís Grímsdóttir og Marie Ndiaye, Stein-
unn Sigurðardóttir og Emmanuele Bern-
heim. Þá hittast líka Thor Vilhjálmsson og
Edouard Glissant og frá Kanada kemur
Kristjana Gunnars til fundar við Pierre
Bergounioux.
í veglegri dagskrá Borealis birtast grein-
ar um hvern þessara höfunda og stuttir
kaflar úr verkum þeirra. Tvær íslenskar
bækur eru meðal þeirra sem háskólaútgáfan
í Caen gefur út í franskri þýðingu í tilefni
hátíðarinnar: Ég heiti ísbjörg, ég er ljón
eftir Vigdísi Grímsdóttur og Hringsól eftfr
Álfrúnu Gunnlaugsdóttur.
Leikhús og bió
Kvikmyndir Friðriks Þórs Friðrikssonar
rúlla í Lux-bíóinu í Caen frá 13. til 26.
nóvember. Eflaust gleður marga að geta séð
Bíódaga, Cold Fever, Skytturnar og Börn
náttúrunnar. Annað hátíðarbíó verður
danska teiknimyndin Valhöll og finnska
myndin Héri Vatanens, sem Risto Jarva
gerði eftir sögu Aro Paasilinna.
Leiklestur Meistarans eftir Hrafnhildi
Hagalín Guðmundsdóttur fer fram mánud-
asginn 25. nóvember. Önnur leikskáld á
Borealis skrifa á sænsku og eru mörgum
ísiendingum kunn: Johan Bargum frá Finn-
landi og Svíarnir Stig Dagerman og Pef
Olov Enquist.
Vikingar, torfbæir og steinsteypa
Ýmsar sýningar á ljósmyndum og mynd-
list verða í tengslum við hátíðina. Þar á
meðal íslensk sögusýning sem stendur til
13. janúar. Þar eru meðal annars ljósmynd-
ir Björns Rúrikssonar og fjallað er sérstak-
lega um arkitektúr. Fjórir fyrirlestrar verða
haldnir á þessari sýningu. Régis Boyer talar
um víkingakonur 20. nóvember. Frédéric
Durand ræðir um víkinga og sjóinn 26.
nóvember. Jean-Yves Marin íjallar 5. desem-
ber um víkinga í Frakklandi og 17. desem-
ber talar Jean Renaud um trúariðkun vík-
inga.
islandsútvarp
ísland verður í frönskum fjölmiðlum á næst-
unni vegna Boreanlis-hátíðarinnar. Svæð-
issjónvarp á Normandí sýnir þætti um hátíðina
en meiru varðar athygli útvarpsins France
Culture, sem er virt og vinsæl stöð. Hún hef-
ur þegar sent út tvo þætti um ísland og ís-
lenskar bókmenntir, á þriðjudag og föstudag.
Þá eru tvær útsendingar eftir: föstudaginn
22. nóvember á hádegi (kl. 11 á íslandi) og
laugardaginn 30. nóvember klukkan 14 að
frönskum tíma.
Allt hefst þetta fyrir tilstyrk margra, sam-
vinnu, góð ráð og gríðarskipulag. íslenski
sendiherrann í París, Sverrir Haukur Gunii-
laugsson, hefur tekið mikinn þátt í undirbún-
ingi hátíðarinnar og fjölmargir aðrir komið
við sögu. Menntamálaráðherra, Björn Bjarna-
son, verður viðstaddur opnun Borealis.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 16. NÓVEMBER 1996 1 9