Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1997, Blaðsíða 4
Ljósmynd: Jens Erik Larsen
BOLSHOJ-LEIKHÚSIÐ í Moskvu hefur staðið af sér bæði bruna og sprengjuárásir Hitlers og verið mestan hluta þessarar aldar tákn um styrk Sovétríkjanna. í nýju og sára-
fátæku Rússlandi er þetta stolta leikhús háð alþjóðlegri hjálp eigi það ekki að hrynja til grunna. Aðstæðurnar eru auðmýkjandi.
BOLSHOJ
BERST FYRIR
LÍFISÍNU
I Moskvu halda menn nú upp á 850 ára afmæli
borgarinnar og í 221 ár hefur Bolshoj-leikhúsió
verió eitt helsta listræna aödráttaraflið þar á bæ.
I því leikhúsi ríkir þó engin hátíóarstemmning, segir
JENS ERIK LARSEN . Þessi risi rióar til falls eftir aó
hafa í áratug gengió erinda stjórnarherranna í
Kreml og búiö viö listræna stöónun og vaxandi
efnahagsvandræói. En nú er unnió höróum höndum
aö því aö bjarga Bolshoj.
Iþá tíð sem Moskva var höfuðborg Sov-
étríkjanna var Bolshoj-leikhúsið, og
þá sérstaklega baliett þess, táknmynd
fyrir listrænt stórveldi. Nú er þetta
musteri klassíska ballettsins nánast í
andarslitrunum. Útlitið er mjög tvísýnt
og þá fyrst og fremst hvað varðar
leikhúsbygginguna sjálfa. Hún reis á
rústum hins upprunalega Petrovisk-leikhúss
eftir brunann 1825 og nú er ástand hennar
svo slæmt að UNESCO hefur komið til skjal-
anna sem höfuðstuðningsaðili umfangsmikill-
ar áætlunar um viðgerð hússins. Markmiðið
er að bjarga einu þekktasta leikhúsi heimsins
áður en það hrynur vegna þess að undirstaðan
er að gefa sig, eða veggirnir molna vegna
lélegs viðhalds, sérstaklega öll eftirstríðsárin.
Bolshoj til vegs og virðingar á ný. Hér dansar hún Svanaprinsessuna í Svanavatninu.
Fyrir nokkru opinberaði stjórn Bolshoj neyð
sína:
„Bolshoj er á heljarþröminni," sagði Vlad-
imir Kokonin, forstjóri, í samtali við rússnesku
Interfax-fréttastofuna. Fréttin barst um allan
heim og það með, að rússneska ríkið ætti
ekki lengur rúblur handa leikhúsinu og enginn
ríkisstuðningur borist í næstum hálft ár. Ko-
konin hótaði að loka leikhúsinu af „öryggisá-
stæðum". Ríkisstjórnin, Kokonin og listrænn
stjórnandi Bolshoj, Vladimir Vassiliev, höfðu
áður viðrað hugmyndina um lokun leikhússins
vegna umfangsmikilla endurbóta, jafnvel í
mörg ár. En enginn þorði að taka af skarið.
Nú eru aðstæðurnar hins vegar ekki bara
aðkallandi heldur einnig niðurlægjandi. Eng-
inn veit, hvað það mun kosta að endurbæta
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. JÚLÍ 1997