Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1997, Síða 12
Mynd: Guðný Svava Strandberg
AFMÆLIÐ
SMÁSAGA EFTIR FINN SÖEBORG
ONA Schmidts skrifstofu-
stjóra hafði mikla þörf fyrir
að gera eitthvað fyrir aðra.
- Ég get ekki lifað án
þess að gera eitthvað fyrir
aðra, sagði hún alltaf.
Flestir aðrir höfðu það
reyndar best, þegar hún
gerði ekkert fyrir þá, en það hafði hún ekki
hugmynd um.
Nú hafði um hríð verið heldur dauflegt
hjá henni, enginn sem hún gat hjálpað nema
veikur nágranni, sem hún hafði hjálpað svo
mikið að það endaði með því að hann seldi
húsið sitt og flutti út á land. Þess vegna
þóttist hún hafa himin höndum tekið þegar
hún uppgötvaði einn daginn að amma henn-
ar væri að verða hundrað ára.
- Ég má til að gera eitthvað fyrir hana
ömmu á afmælisdaginn hennar, sagði hún
við manninn sinn. Það myndi örugglega
gleðja hana, að fjölskyldan kæmi saman
henni til heiðurs.
- Heldurðu það? sagði maðurinn hennar,
sem þekkti marga í fjölskyldunni.
- Hún verður mjög ánægð, sagði frú
Schmidt fullviss.
Þegar frú Schmidt hafði fengið hugmynd,
hikaði hún ekki við að koma henni í fram-
kvæmd. Strax sama kvöldið byijaði hún að
hringja í ættingjana til að segja þeim frá
áætlun sinni. Þau skyldu öll hittast heima
hjá gömlu frú Madsen síðdegis á afmælis-
daginn. Frú Schmidt skyldi útvega vín og
kransaköku, og svo myndu þau sameiginlega
gefa henni fína gjöf, útvarpstæki, hafði frú
Schmidt hugsað sér.
- Svona gömul kona verður örugglega
glöð að fá almennilegt útvarpstæki, sagði
hún.
Og Egon frændi rekur útvarpstækjaversl-
un, hann getur útvegað tækið ódýrt.
Flestir í fjölskyldunni vildu gjarnan vera
með.
- Ef þú tekur að þér undirbúninginn,
sögðu þau.
- Alveg sjálfsagt, sagði frú Schmidt. Þið
vitið að ég elska að fá að gera eitthvað fyr-
ir aðra.
Það vissu þau öll.
Frú Schmidt hélt undirbúningnum áfram
næstu dagana. Frú Madsen átti stóra fjöl-
skyldu, börn, barnabörn, barnabarnabörn
og meira að segja eitt barna-barna-barna-
barn, sem reyndar var ekki orðið eins árs,
en frú Schmidt lagði samt mikla áherslu á
að það kæmi líka.
- Hugsið ykkur bara hvað það verður
æðislega gaman að hafa fulltrúa frá öllum
ættliðunum.
Móðir barna-barna-barna-barnsins hugs-
aði um hvað það yrði æðislega gaman, og
lofaði að taka barnið með.
Frú Schmidt fór líka til Egons, frænda
síns, til þess að skoða útvarpstæki. Egon
sýndi henni nýjustu gerð af tækjum,
stærðarferlíki með alls konar tækninýjung-
um.
- Þið fáið það auðvitað á innkaupsverði,
sagði hann og gladdist yfir því að enginn
vissi innkaupsverðið nema hann. Og ég kem
með það sjálfur og set það upp, ókeypis.
Frú Schmidt sagði að það væri fallegt
af honum.
Eina manneskjan sem ekkert vissi um
þennan mikla undirbúning, var sú sem allt
snerist um, frú Madsen sjálf. Dag nokkurn
fór frú Schmidt til hennar til að segja henni
þessi ánægjulegu tíðindi. Olga, hin aldur-
hnigna ráðskona gömlu konunnar, varð mjög
undrandi þegar hún sá hana.
- Það er orðið langt síðan þú hefur sést,
sagði _hún.
- Ég er svo upptekin, sagði frú Schmidt
og rétti henni höndina. Þekkirðu mig ekki,
þetta er Edit.
- Hver þá? frú Madsen hélt höndinni bak
við eyrað og hallaði sér fram.
- Edit, hrópaði frú Schmidt. Dóttir hans
Karls.
- Já einmitt! Frú Madsen kinkaði kolli.
Hvernig hefur Karl það?
- Já en pabbi dó fyrir mörgum árum,
manstu það ekki?
- Nei, frú Madsen mundi ekki eftir að
hafa heyrt það fyrr, en fréttin virtist ekki
hafa nein áhrif á hana. Hún var svo vön að
fá fréttir af því að hinir og þessir væru
„GEGGJAÐUR
OG FÁRÁNLEGUR
SKÚLPTÚR"
Sýning ó verkum Kioko Mwitiki frá Kenya hefur
vakiö mikla athygli skrifar JOHANNA KRISTJONS-
DOTTIR og bætir viö aö menn velti því fyrir sér
hvort sýningin fari víöar en um Afríku.
AÐ er kunnara en frá þurfi
að segja að mörg ríki í Afríku
berjast við jarðsprengjuplágu
ekki síður en sjúkdóma og
örbirgð. Listamaðurinn Ki-
oko Mwitiki frá Kenya hélt
nýlega sýningu á „geggjuð-
um og fáránlegum" skúlptúr-
um langt inni í Maasilandi og var markmið
hans að styðja alheimsbann við notkun jarð-
sprengja.
Kioko er að líkindum þekktastur kenyskra
myndhöggvara utan heimalands síns. Hann
hefur haldið sýningar í Bandaríkjunum, en
hampar því ekki síður að verk hans hafi
verið sýnd í Danmörku.
KIOKI Mwitiki
Kioko útskrifaðist úr myndhöggvaradeild
Kenyattaháskólans í Nairóbí. Hann hefur
síðustu átta árin einkum unnið í jám - rétt-
ara sagt brotajám og breytt því í fugla,
dýr, pöddur og fólk og verk hans bera vitni
gráglettnum og á stundum grimmum húmor.
Komst í kynni vió logsuóu 09 þar
kviknaói áhuginn
Hann hefur efnt til sýninga til að afla
fjár til stuðnings börnum með alnæmi og
nú síðast hefur hann snúið sér að því að
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. JÚLÍ 1997