Lesbók Morgunblaðsins - 13.12.1997, Qupperneq 10
\ 4 KRISTINN ÞÓR INGVASON HJARTAÐ TALAR Getur verið að ég hafi aldrei sagt að ég virði þig og hafi alltaf gert? Getur verið að ég hafi aldrei sagt að ég treysti þér og hafi alltaf gert? Getur verið að ég hafí aldrei sagt að ég elski þig og hafi alltaf gert? Líklegast ekki, en hjartað talar þó orðin vanti. Höfundur er kerfisfræðingur.
GUÐMUNDUR HERMANNSSON BIÐJA OG VONA Söknuður og harmur - horft á eftir bátnum Hljótt er þá beðið vonað og þráð Sárar oft grátið yfír lifandi en látnum í lífíð og starfíð fá ástvinir spáð Hafíð er ógn og harðsótt út á miðin Hríðin og myrkrið auka sáran kvíða Einvera heima - erfíð reynist biðin Andvökunótt er þrálát við að stríða Vonir og bænir - bærist innri kraftur Beðið til Guðs alla daga og nætur Margfóld gleðin þá komið heim er aftur Og alltaf á sjómannslífíð sterkar rætur.
Höfundurinn er fyrrverandi yfidögregluþjónn í Reykjavík.
KRISTJANA EMILÍA GUÐMUNDSDÓTTIR VIÐ HÖLDUM JÓL Þegar sumars þrýtur hlýja sólin þá er von að komi blessuðjólin kaupmannanna koma bestu dagar keypt er allt ogmeir en um vanhagar. Jólagjafa langur reynist listinn líka þarf að kaupa mat í frystinn ótrúlega erafmörgu að taka allt þarf líka að skreyta, þvo og baka. Eftil vill við ættum nú að slaka á okkar kröfum, það ætti ekki að saka. Lávarður heimsins lagður var íjötu það liggja snauðir menn við okkar götu. Guð megi öllum gefa frið um jól og gleði manna börnum heims um ból. Höfundur er bókavörður í Kópavogi.
FARVEGIR ÞEIRRA SEM ERU ÖÐRUVÍSI 10
MENNING
EFTIR
ÞORSTEIN ANTONSSON
Fróðleiksmenn hafa giskað
á að Einstein hafi verið
einhverfuafbrigði.
Undrabarnið í skák, Bobby
Fischer, ber skýr einkenni
Asperger-einhverfu og úr
bókmenntunum má benda á
þann ofvirka Don Quixote og
Mishin prins í Fávitanum eftir
Dostojevski, sem er mis|Droska
auk þess að vera ofvirkur.
SAMSKIPTI afbrigðilegra og
venjulegra manna, samkvæmt
undanfömum greinum, hafa ráð-
ið mestu um söguþróun hvar-
vetna þar sem hennar hefur gætt
á annað borð, en ekki stéttaátök
né uppeldisskilyrði til þess betra
eða verra eins og menn vildu vera
láta um skeið. A hverjum stað og tíma hefur
skipt mestu um einkenni samfélags hveraig
ráðið er fram úr skiptum þeirra sem öðruvísi
eru frá fæðingu svo að um munar og hinna
venjulegu.
Meðal kyrrstæðra samfélaga, - þeirra sem
ekki hafa notið trúar gyðinga og kristinna á
sögulegan tilgang z,- hafa orðið til goðsagna-
kenndar skýringar á mannlífsafbrigðum sem
sett hafa svip á þessi samfélög. Ofvirkni var
talinn guðmóður fram til þess að Cervantes
skrifaði um þann ofvirka Don Quixote. Eftir
viðurkenningu þeirrar sögu hefur ofvii-kum
heimilast að láta móðan mása í skáldsögum á
nútímavísu án þess að telja þurfi opinberanir
sem gert var fyrir þessi umskipti.
Geðríki og örlæti hefur orðið til þess að of-
virkum hefúr verið ætlað hlutverks þeirra góðu
meðal manna, sumir taldir guðdómlegir, aðrir
eru bara skáld. Mishin prins í sögu
Dostojevskis um Fávitann er auk ofvirkninnar
misþroska sem oft fylgir. Öll menning er
blekking sem þjónar þrá manna eftir frelsi frá
náttúrlegum kvöðum. Fyrirferð ofvirks manns,
hispursleysi hans og hreinskilni, getur lyft öðr-
um yfir þvílíkar náttúrlegar hindranir og þar
með orðið til þess að hann sjálfur er hafinn upp
til skýjanna og það jafnvel í lifanda lífi. Að
sama skapi magnast áhrifamáttur orða hans og
gerða.
Áreiðanlega getur ekki svo frumstæðs þjóð-
félags frá fyrri tíð að ekki hafi verið flóknara
að byggingu en nútímaþjóðfélög eru, þau sem
sniðin hafa verið til samræmis yið vísindalegar
niðurstöður á upplýsingartíð. í stað goðsagna
til að friða mótsagnir mannlífsins hefur tekið
við fræðileg skynsemi sem á alræðislega vísu
tekur til alls sem mannlegt telst. Til samræmis
hafa hugmyndir manna um hvað sé heilbrigt
og hvað sjúklegt breyst. Allt leggst undir að-
ferðir verkmenningar sem grundvallast á
skynsamlegum niðurstöðum vísinda sem öll
lesa tilveruna á sama veg. En það var einmitt
fortíðareinkennið að gera það ekki heldur ætla
a.mk. tvennskonar leshátt á mannlífið jafn
gildan. í sem stystu máli sagt þá er nútíminn
ómannlegri en fyrri tímar fyrir það hve illa er
haldið á mannskilningi við nútímalegar félags-
gerðir. Öllu er steypt í sama mót. Það mannlíf
sem ekki þrífst við slík skilyrði telst einfald-
lega óheilbrigt og eru þá atferlislýsingar ætl-
aðar til marks um óheilbrigðið þótt hegðunin
kunni að stafa af því einu að viðkomandi getur
ekki vaknað til vitundar um sjálfan sig. Sökum
þess þá að samfélag hans viðurkennir ekki
upplag hans heldur aðeins viðbrögð hans. Aft-
an í greiningu skólasálfræðings á ofvirkni er
alltaf hnýtt: Með athyglisbresti. Líkt og fyrir
fýlukast yfir að sá ofvirki hirti ekki um að taka
þátt í leikjum rannsakandans.
Fíklar hafa heldur en ekki útþynnst frá því
sem var þegar mönnum leyfðist að eigna fíknir
djöflum, Það er ólíkt mergjaðra að vísa þeim
forherta á Sæmund fróða í Odda en Óttar Guð-
mundsson á Teigi. Þorsti í þekkingu var sann-
kristnum manni litlu skárra ámæli en í brenni-
vín. Djöfullinn er því alltaf nærri þeim þekk-
ingarþyrsta samkvæmt þjóðtrúnni. Sá sann-
leikur er í sem stystu máli saga 20. aldar. Púk-
inn kemur þegar blístrað er á hann, það þekkj-
um við nútímamenn jafn vel og Sæmundur
prestur, og þá skiptir öllu, ef hann á ekki að
gleypa mann með húð og hári, að láta púkann
hafa verkefni við sitt hæfi, nógu helvíti fánýtt
auðvitað eins og það að telja hár á hrosshaus-
um, fiður í sæng, bera vatn í hripi, fullkomna
hljómflutningstæki, tölvur eða bílategundir.
Enn má læra af séra Sæmundi ekki síður en
meðferðarfulltrúa á Teigi sem býður að lækna
eigi fíkn með fortölum.
Engin skynsnmleg leið
Ofvirkir skapa viðstöðulaust að hætti Lax-
ness, þeir geta ekki þegið neitt af öðrum svo að
þeir þurfi ekki að gefa aftur tvöfalt. Hefðin tel-
ur þá því góða og finnur þeim og iðju þeirra há-
leit heiti, innblástur, hugsjónir, guðmóður.
Eins og orðið kveður á um á ofvirkur maður
erfitt með að láta nóg nægja og hemst því illa
við form og reglu, hann er óðar og að henni
kemur farinn að forvitnast um tilfinningar þær
sem reglan vekur. Hann er því manna líkleg-
astur til að hafa áhuga á öðrum mönnum, er
viljugastur að setja sig í annarra spor og hefur
litlar áhyggjur af eigin ímynd. Einkennin eru
guðsmanna og skálda en þó ekki allra skálda;
ekki þeirra sem nútímaleg teljast, ekki Guð-
bergs eða Kafka sem samkvæmt dagbókum
hans var áreiðanlega náskyldur afbrigðinu mr.
Bean sem margir þekkja af myndum.
Undrabaraið í skák, Bobby Fischer, ber
einnig skýr einkenni asperger-einhverfu, ekk-
ert kemst að annað en það sem viðkomandi
fæst við hverju sinni. Sérfræðingar benda á
Þórberg Þórðarson sem kunnan íslending sem
svari til einkennanna.
Þess ber að gæta að sundurhlutun í gott og
illt á hér ekki við. Þótt hefðbundnar skýringar
greini að svartálfa og ljósálfa erum við ekki á
þeim buxunum flest. En einhverfir verka
óraunverulegir samanborið við þá ofvirku.
Enginn veit á þeim full deili. Þeir koma út úr
menningarkimum þar sem þeím var boðið að
vera í upphafi sögunnar, óhreinu börnin henn-
ar Evu. Hún faldi þau fýrir guði og hann þau
fyrir mönnum, gerði að álfum; jarðarverum
sem sá afbrigðilegi Eiríkur Laxdal gerði í
Ólafssögu Þórhallasonar, fyrstu íslensku
skáldsögunni, að fulltrúum upplýsingarstefn-
unnar enda engir jafn vélrænt þurfandi fyrir
rök og einhverfir.
Orsakasamhengi er jafnan í óþökk guðanna,
sú kenning er jafngömul Biblíunni. Þeir sem
hafa haft afskipti af ódæmigerðum einhverfum
vita hversu næmt rökskynið er. Þar með verða
kennsl um tilbrigði hversdagslífsins, sem
standa í vegi fyrir venjulegu fólki, hvað þá of-
virkum, ekki til að trufla heldur getur sá ein-
hverfuættar komist að kjarna máls á auga-
bragði. Jafnvel eins og Einstein sem fróðleiks-
menn giska á að hafi verið einhverfuafbrigði.
Einstefnan kann svo að hefna sín eins og kom á
daginn um fræði Einsteins.
Ödæmigerðir einhverfir virðast núorðið
fæddir til að stjórna tölvum - sem stjórna
kaldlyndri stétt hagfræðinga, hinni gráu vís-
indamennsku. Ófélagslyndið hefur með réttu
eða röngu vakið ímyndunai-afl venjulegri
manna sem ekki geta annað skilið en maður sé
manns gaman. Asperger-fólkið er líklega sama
mannlíf og fyrr á tíð taldist andsetið og gat þá
verið ýmist af guðdómi eða hinu andstæða. Sú
andsetna Reagan í myndinni um Særingar-
manninn er markaðsútfærsla á þessu fyrir-
brigði. Kaþólska kirkjan beitti sér gegn
Asperger-einhverfum fyrr á tíð: Jóhönnu af
Örk lét hún brenna og fleiri. Hitler kom á sam-
spili þessara afbrigða sinna og kaldlyndra nas-
ista. Þegar safnaðarformaður rekur trúarsöfn-
uð sinn fyrir ætternisstapa eins og stundum
heyrist um í fréttum þá gerist sama og í
Þýskalandi upp úr kreppunni þegar þeir tor-
næmustu á þáningar mannanna tóku þar völd-
in undir stjóm öfgamannsins.
Um afbrigðilegt fólk gildir eins og aðra að
það reynir að koma sér upp umhverfí sem ger-
ir því lífið viðráðanlegt. Það mótar umhverfið í
sinni mynd. Við því er að búast að sú mótun
verði frábrugðin því sem menn eiga að venjast.
Samfélag venjulegra manna hlýtur því að
koma sér upp samskiptaháttum milli sín og
hinna með frumlegu vitsmunina. Slík úrræði
eru menningarleg en ekki skynsamleg í fræði-
legum skilningi orðsins. Þetta sjónarmið virðir
upplýsingin ekki, fóstra nútímaþjóðfélags,
heldur setur afbrigðið í sama mót og alla aðra
menn sem ekki eru sannanlega, vefjafræðilega
öðru vísi en aðrir. Dave Bowie hefur hvað eftir
annað lýst þessum kjörum í ágætum kvik-
myndum.
Núlíminn
Sögur af umskiptingum svara til einhverfra
á fyrstu æviárum þeirra, væntanlega ekki
allra, en nógu margra til að þessi skýring hefur
verið gefin á sögunum. Slíkar sögur segja okk-
ur margt um samfélög fyrri tíma en lítið um
einhverfu.
Við höfum ekki frekar ástæðu til að koma
okkur upp neikvæðri mynd af einhverfri mann-
eskju en fyrri tíma menn. Þvert á móti ætti að
vera metnaður hvers íslendings að skilja fólk,
hversu sérlegt sem það er, því þjóðmenning
okkar hefur lengst af einskorðast við hug-
menningu, sögur og ævintýr. Sumir segja jafn-
vel að menning okkar sé sköpunarverk ein-
kennilegra manna. í rituðum heimildum þjóð-
arinnar er gríðarfjölbreytt mannlíf eftir meira
en þúsund ára þróun sagnaarfsins, og því ætt-
um við ekki að kinoka okkur við að leita til
. lO ŒSBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 13. DESEMBER 1997