Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.2000, Qupperneq 2
TÆKNIDRAUG-
UR í COVENT
GARDEN
Morgunblaðið/Kristinn
Eþos-kvartettinn á æfingu. Auður Hafsteinsdóttir, Greta Guðnadóttir, Guð-
mundur Kristmundsson og Bryndis Halla Gylfadóttir.
EÞOS-KVARTETTINN (
KAMMERMÚSÍKKLÚBBNUM
London. Morgunblaðið.
FALL er fararheill segir máltækið. Og menn
hugga sig við það í nýja óperuhúsinu í Covent
Garden. Eitt og annað hefur farið úrskeiðis á
fyrstu sýningunum og reyndar hefur orðið að
aflýsa sumum og fresta öðrum. Listamennimir
hafa staðið fyrir sínu og vel það, en það er
tölvutæknin, sem er að stríða með endalausum
draugagangi. Öll spjót standa á þeim, sem ríkj-
um ráða í Covent Garden, og þeir róa nú lífróð-
ur til að kveða sinn óperudraug niður.
Fyrsta sýningin í húsinu var Le Grand
Macabre eftir Ligeti og varð strax að fella nið-
ur sex sýningar vegna alls kyns erfiðleika.
Hljómsveitarfólkið hótaði að hætta vegna þess
að gryfjan væri dauðagildra og settust menn
ekki aftur við hljóðfærin fyrr en búið var að
bæta og breyta útgönguleiðum. Þegar sá
welski Bryn Terfel söng Falstaff, varð að
fresta einni sýningunni um tvo tíma vegna bil-
unar í sviðslyftu og á sýningu miðvikudags-
kvöldið á Gawain eftir Harrison Birtwistle
varð að gera hálftíma hlé vegna viðgerða á
sviðsbúnaðinum.
Gagnrýnandi The Daily Thelegraph, Rupert
Christiansen, segir þjónustu í hléum hafa verið
fyrir neðan allar hellur. Hann segir eðlilegt að
reikna með einhverjum byrjunarörðugleikum,
þegar nýtt og tæknivætt hús sé tekið í notkun,
en fyrr megi nú rota en dauðrota. Og það sem
verst sé; stjórn hússins virðist ekki ná stjórn á
neinu. Þessi óstjórn hefur ýtt undir þær raddir
sem vilja að óperan verði einkavædd.
Til þess var tekið, hversu óhönduglega
starfsmanni óperunnar fórst það úr hendi að
tilkynna bilunina og hléið á miðvikudagskvöld
og af því tilefni skrifar Hugh Viekers skondna
grein í The Independent, þar sem hann rifjar
upp ýms dæmi þess að mönnum hafi orðið fóta-
skortur á tungunni, þegar eitthvað bjátaði á.
Þar á meðal segir hann frá því, að eitt sinn hafi
Vladimir Ashkenazy verið að spila í Kanada,
þegar tveir strengir í flyglinum slitnuðu og í
sömu andránni datt vinstri pedallinn afl! Bæj-
arstjórinn á þeim bæ komst þá m.a. svo að orði:
„Það veit ég fyrir víst, að ekkert okkar hafði
hugmynd um hversu lélegur flygillinn væri,
fyrr en Ashkenzy fór að leika á hann.“
STRENGJAKVARTETTAR eftir Haydn,
Debussy og Beethoven eru á efnisskrá tón-
leika Eþos-kvartettsins hjá Kammermús-
íkklúbbnum í Bústaðakirkju annað kvöld,
sunnudagskvöld, kl. 20.30.
Eþos-kvartettinn skipa þau Auður Haf-
steinsdóttir, 1. fiðla, Greta Guðnadóttir, 2.
fiðla, Guðmundur Kristmundsson, lágfiðla,
og Bryndís Halla Gylfadóttir, knéfiðla.
Gekk ekki lengur
að vera svona nafnlaus
Þetta er í fyrsta sinn sem þau koma
fram undir nafni Eþos-kvartettsins en að
sögn Gretu hafa þau fjögur spilað saman
nokkuð reglulega í hátt í þrjú ár, auk þess
sem leiðir þeirra hafa oft legið saman í
starfi með öðrum hópum. „Það gekk ekki
lengur að vera svona nafnlaus," segir hún.
Fyrstur á efnisskránni er strengjakvart-
ett eftir Haydn í G-dúr, opus 76.1. „Haydn
er afskaplega skemmtilegur og kankvís.
Þetta er mikið virtúósaverk, þar sem lang-
mest mæðir á fyrstu fiðlu,“ segir Greta.
Gott jafnvægi
Strengjakvartett í g-moll opus 10 er eini
strengjakvartettinn sem Debussy samdi, að
sögn Gretu mjög impressjónískt og franskt
verk, með góðu jafnvægi milli allra fjög-
urra raddanna.
Að lokum leika þau strengjakvartett í
Es-dúr opus 127 eftir Beethoven. „Hann er
sá fyrsti í röðinni af síðustu sex strengja-
kvartettunum hans en þó flóknastur þeirra
og því sannarlega ekki fyrir byrjendur."
Menningarverðlaun VISA íslands gfhent í áttunda sinn
VERÐLAUN ÁSVIÐI LISTA, VÍS-
INDAOG ÞJOÐMENNINGAR
MENNINGARVERÐLAUN VISA íslands
fyrir árið 1999 voru afhent fyrir skemmstu
við hátíðlega athöfn í húsakynnum fyrirtæk-
isins. Verðlaunafé nam samtals 2 milljónum
króna og voru veitt verðlaun á sviði tónlist-
ar, ritlistar, leiklistar, vísinda og þjóðmenn-
ingar.
Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri
VISA, gerði grein fyrir verðlaunahöfum
Menningarsjóðsins 1999 og afhenti þeim
verðlaun sín. Verðlaunahafar voru eftirtald-
ir:
Tónlist: Garðar Cortes, óperusöngvari,
hljómsveitar- og kórstjóri. Ritlist: Guðjón
Friðriksson. Leiklist: Leikararnir fjórir sem
léku í leikriti Ólafs Jóhanns Ólafssonar
„Fjögur hjörtu", Árni Tryggvason, Bessi
Bjarnason, Gunnar Eyjólfsson og Rúrik
Haraldsson. Vísindi: Prófessor Helgi
Björnsson, jarðeðlis- og jöklafræðingur.
Þjóðmenning: Þjóðkirkjan. Tók biskup ís-
lands, herra Karl Sigurbjörnsson, við verð-
laununum
Það kom fram í máli Sólons R. Sigurðs-
sonar, stjórnarformanns VISA íslands, við
athöfnina að verðlaunasjóðurinn, sem stofn-
aður var árið 1992, hefði þríþætt markmið:
Að styðja íslenska menningu og listir, að
efla verkmenntun, vísindi og tækni og að
veita fé til líknar- og velferðarmála. Sólon
sagði ennfremur að árlega bærust VISA ís-
landi fjöldi óska um stuðning við mörg góð
og virðingarverð málefni og hefði það verið
ákveðið af stjórn fyrirtækisins að beina
stuðningi þess við slík málefni í faglegan
farveg með stofnun Menningarsjóðsins.
I stjórn Menningarsjóðs VISA Islands
eiga sæti þeir Sólon R. Sigurðsson, stjórn-
arformaður VISA, Einar S. Einarsson,
framkvæmdastjóri VISA, og Jón Stefáns-
son, organisti og söngstjóri.
Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri VISA fslands, afhendir Arna Tryggvasyni, Bessa Bjarna-
syni, Gunnari Eyjólfssyni og Rúrik Haraldssyni leiklistarverðlaun Menningarsjóðs VISA1999.
Verðlaunahafar Menningarsjóðs VISA Islands 1999. Frá vinstri: Biskup íslands, herra Karl Sig-
urbjörnsson, sem tók við verðlaunum Þjóðkirkjunnar, prófessor Helgi Björnsson, jarðeðlis- og
jöklafræðingur, sem hlaut verðlaun á sviði vísinda, Guðjón Friðriksson, rithöfundur, sem fékk
verðlaun á sviði ritlistar, Garðar Cortes, sem hlaut tónlistarverðlaunin, og leikararnir Árni
Tryggvason, Bessi Bjarnason, Gunnar Eyjólfsson og Rúrik Haraldsson.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Verk Ásmundar
Sveinssonar.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Vagna
Sólveig Vagnsdóttir. Til 23. jan.
Galleri@hlemmur.is: Særún Stefáns-
dóttir. Til 30. jan.
Gallerí Nema hvað: Olga Pálsdóttir.
Til 30. janúar.
Gallerí One o One:
Ráðhildur Ingadóttir. Til 8. febr.
Gallerí Sævars Karls:
Samsýning. Til 22. jan.
Gerðarsafn: Verk úr safni Þorvaldar
Guðmundssonar. Til 30. jan.
Hafnarborg: Bjarne Werner Spren-
sen. Til 24. jan.
Hallgrímskirkja: Leifur Breiðfjörð.
Til 16. feb.
i8, Ingólfsstræti 8: Ola Kolehmainen.
Til 23. jan.
Islensk grafík, Tryggvagata 17
(hafnarmegin)
Þriðja árs grafíknemar. Til 30. jan.
Listasafn ASÍ: Ásmundarsalur og
Gryfja: Vignir Jóhannsson. Til 23.
jan. Arinstofa: Ný aðföng.
Listasafn Einars Jónssonar: Lokað í
jan. Höggmyndagarðurinn opinn alla
daga.
Listasafn fslands: Vormenn íslenskr-
ar myndlistar. Til 16. jan.Við alda-
mót. Til 10. jan.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Lok-
að í janúar.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning opin þriðjudaga-föstudaga
kl. 14-16. Til 15. maí.
Gerðuberg: „Þetta vil ég sjá.“ Til 6.
feb.
Kjarvalsstaðir: Rauðvik, samsýning
Tuma Magnússonar, Claus Egemose,
Johan van Oords og Tinu Roos. Tií
27. feb.
Kjarvalsstaðir: Veg(g)ir, Hlynur
Hallsson. Til 3. feb.
Landspitalinn: Hláturgas 2000, far-
andsýning um læknaskop. Til 12. feb.
TONLIST
Laugardagur
Smári, Veghúsastíg 7: Nemendaóp-
era Söngskólans: Rauða tjaldið. Kl.
16
Salurinn, Kópavogi: Pálína Árnadótt-
ir, fiðluleikari, og Sooah Chae, píanó-
leikari. Kl. 16.
Sunnudagur
Smári, Veghúsastíg 7: Einsöngstón-
leikar Brynhildar Björnsdóttur sópr-
ansöngkonu. Kl. 15.
Nemendaópera Söngskólans: Rauða
tjaldið. Kl. 20.
Bústaðakirkja: Eþos-kvartettinn í
Kammermúsíkklúbbnum, kl. 20.30.
Hallgrimskirkja: Mótettukórinn,
kammersveit og einsöngvarar flytja
kantötu eftir Bach, kl. 17.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Gullna hliðið, fim. 13.
jan.
Glanni glæpur í Latabæ, sun. 16. jan.
Krítarhringurinn í Kákasus, lau. 15.
jan., fös. 21. jan.
Tveir tvöfaldir, lau. 22. jan.
Borgarleikhúsið: Bláa herbergið,
sun. 16. jan.
Litla hryllingsbúðin, lau. 15. jan.
Sex í sveit, miðv. 26. jan.
Afaspil sun. 16. jan.
Leitin að vísbendingu..., lau. 15., fös.
21. jan.
Fegurðardrottningin frá Línakri, fim.
20. jan.
Iðnó: Stjörnur á morgunhimni, sun.
16. jan.
Frankie & Johnny, lau. 15. jan.
Hafnarfj. 15., fös. 21. jan.
Hvenær kemurðu aftur rauðhærði
riddari?, sun. 16. jan.
Loftkastalinn: Panodil, frumsýn.
miðv. 26. jan.
Kaffileikhúsið: Ó, þessi þjóð, fös. 21.
jan.
Islenska ópcran: Baneitrað samband,
lau. 15. jan.
Hellisbúinn, miðv. 19. jan., fim. 20.
jan.
Upplýsingar um listviðburði sem ósk-
að er eftir að birtar verði í þessum
dálki verða að hafa borist bréflega
eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið,
Menning/listir, Kringlunni 1, 103
Itvík. Myndsendir: 5691222. Netfang:
menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. JANÚAR 2000