Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.2000, Page 20
*
4
Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Is-
lands, vaidi 15 íslenskar
listakonur á sýninguna
„Þetta vil ég sjá" sem
opnuð verður í Gerðu-
bergi í dag kl. 16. Lista-
konurnar sjálfar völdu
síðan hvaða verk þær
vildu sýna.
ERKIN sem á sýBÍngunni
verða eru 15 talsins, eitt eftir
hverja listakonu. Sýningin
einkennist af fjölbreytni og
kennir þar margra grasa.
Finna má þar flestallar list-
greinar m.a. málverk, skúlp-
túr, vefnað, leirlist, vídeóverk
„Ég á mörg falleg verk eftir konur og hefði
getað valið úr þeim hópi, en ég ákvað að láta
konunum eftir að velja sjálfar og held að margar
þeirra hafi viljað sýna nýrri verk sín,“ segir Vig-
dís og kveður nýtt og ferskt efni þannig vonandi
setja svip sinn á sýninguna. „Þetta er í raun
listaveisla á verkum kvenna,“ bætir hún við.
Vandasamt að velja
eina listakonu fram yfir aðra
„Strax og ég fór að hugleiða þetta efni, „Þetta
vil ég sjá,“ langaði mig til að það væri augljóst
^svað ég met list kvenna mikiis,“ segir Vigdís og
bætir við að sér finnist konur magnaðir lista-
menn, þó kannski sé ekki nógu oft bent á mikil-
vægi þeirra. „Mér var það því sérlega kært að
geta lagt áherslu á að á sýningunni væru aðeins
verk kvenna.
Nú er það svo að þess er óskað að maður velji
listamenn sem eru á lífi og það skapar alltaf
'» ■■■■■■■■■■— ............................
Brunnur eftir Kristínu ísleifsdóttur.
vissan vanda að velja einn listamann fram yfir
annan," segir Vigdís og játar að valið hafi verið
vandasamt. Síst vilji hún móðga eða særa ein-
hvern þar sem hún telji listakonur á íslandi upp
til hópa mjög góðar. „Eg þekki margar listakon-
ur á Islandi en auðvitað standa sumar mér nær
en aðrar,“ bætir hún við og kveðst því hafa tekið
þá stefnu að velja listakonur sem hún umgengst
og þekkir persónulega.
Þá finnist sér þó ekki síður ánægjulegt að
geta dregið upp mynd af hve víðtæk list ís-
lenskra kvenna sé. „Mér finnst það mjög
skemmtilegt og sem leikhúsmaður flaug hugur-
inn að sjálfsögðu einnig til þeirra kvenna sem
hafa komið að leikmyndagerð," segir Vigdís, en
Messíana Tómasdóttir leggur til sýningarinnar
módel af leikmynd og brúður úr verkinu „Mað-
ur lifandi“ sem sýnt var í Borgarleikhúsinu sl.
vor.
Hefði viljað koma fleiri verkum að
„Það er gaman að geta nýtt rými Gerðubergs
betur með því að bjóða einnig upp á þrívíddar-
verk eins og leikmynd, höggmyndir og leh'-
smíð,“ segir Vigdís. „Ég hefði þó gjarnan viljað
hafa þrisvar sinnum stærra rými til að geta
komið enn fleiri konum að.“ Hún bætir við að
þótt hún hafi miklar mætur á íslenskum mynd-
listarkonum þá megi ekki skilja það svo að hún
hafi ekki líka gaman af verkum karlanna.
Þegar Vigdís er spurð hvort eitthvert eitt list-
form sé í meira uppáhaldi hjá henni en annað
viðurkennir hún að vefnaðurinn skipi ákveðinn
sess í huga sér. „Mér þykir vænt um listvefnað,
en vil samt ekki taka eitt listform fram yfir ann-
að. Ég er listunnandi og vil hafa list í kringum
mig. Mér finnst listin nefnilega gefa mannlegri
hugsun vængi.
Hugur manns flýgur einfaldlega af stað þeg-
ar maður nýtur góðrar listar og það sem er ekki
síður skemmtilegt er að engir tveir líta eitt verk
sömu augum. Sem má sjá þegar maður spjallar
við vini og kunningja um list og hvaða áhrif hún
hefur á mann. Það getur orðið efni í langar og
góðar sammræður þegar hughrif hvers og eins
koma í ljós.“
„Ég gæti ekki lifað án listar og skil hreinlega
ekki hvernig það er hægt,“ segir Vigdís, en hún
hefur fylgst með myndlist sem og öðnim list-
greinum frá því hún var krakki. Listaáhuga sinn
Steinn arnarins eftir Kristjönu Samper.
telur hún hafa kviknað út frá biblíunni. Snemma
hafi hún byrjað að skálda í huga sér umhverfi
fyrir þær sögur sem þar voru sagðar.
„Ég hef sterkt myndminni og fer til að mynda
með heilu myndlistarsýningamar heim í hugan-
um,“ segir Vigdís ogbætir við, „það er gaman að
geta tekið myndir með sér án þess að eiga þær.
Maður þarf þannig ekki endilega að eignast all-
ar myndir því maður getur allt eins átt þær í
hjartanu."
Það er breiður aldurshópur sem sýnir verk
sín í Gerðubergi að þessu sinni og segir Vigdís
sjálfsagt að hún velji verk listakvenna eins og
Louisu Matthíasdóttur, Ásgerðar Búadóttm’,
Guðmundu Andrésdóttur og Sigrúnar Guðjóns-
dóttur sem séu henni næstar að aldri. „Þær eru
mér allar mjög kærar," segir Vigdís um lista-
konumar og bætir við að hún hafi nýlega skrifað
aðfararorð að bók Louisu Matthíasdóttur.
„Mér þykir þó ekki síður vænt um að ungu
listakonurnar skuli vera með. Ég er hreykin af
því að fylgjast vel með nýjum myndlistarmönn-
um og í því skyni reyni ég að sjá myndir þeirra,
kynna mér feril þehra og þau áhrif sem þar eru
greinanleg.“
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. JANÚAR 2000