Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Síða 2
Tónlistarfélagið í Reykjavík gengst á ný fyrir tónleikahaldi
MERKISVIÐBURÐIR í HVERT SINN
Morgunblaðið/Arnaldur
Frá tónleikum Tónlistarfélagsins í Reykjavík til heiðurs Halldóri Hansen lækni í Salnum.
TÓNLISTARFÉLAGIÐ í Reykjavík mun að
nýju gangast fyrir tónleikahaldi á höfuðborgar-
svæðinu en tónleikar félagsins voru snar þáttur
í tónlistarlífí landsins um langt árabil. Stefnt er
að því að halda tvenna tónleika á ári - tónleika
sem þykja munu merkisviðburðir í hvert sinn,
að því er fram kemur í máli formanns félagsins,
Baldvins Tryggvasonar. Tónleikarnir verða
haldnir í samvinnu við Salinn í Kópavogi. „Það
er besti hljómleikasalur landsins í dag,“ segir
Baldvin.
Þótt Tónlistarfélagið í Reykjavík hafi ekki
verið áberandi í tónleikahaldi hin síðari ár hef-
ur það alltaf verið virkt, að sögn Baldvins. „Það
má ekki gleyma því að félagið hefur rekið Tón-
listarskólann í Reykjavík af miklum metnaði. A
meðal annars húsnæðið sem skólinn er í leigu-
!aust.“
Baldvin segir að eftir að Austurbæjarbíói var
alfarið breytt í kvikmyndahús, Bíóborgina, hafi
fjarað undan tónleikahaldi Tónlistarfélagsins.
„Við þetta hvarf grundvöllurinn eiginlega und-
an tónleikahaldi í húsinu því tónleikar með
stórum og vinsælum listamönnum kosta pen-
inga. Ef salurinn er ekki nægilega stór gengur
svona lagað hreinlega ekki upp. Þess vegna
lognaðist þetta út af.“
Upp úr 1980 fór Tónlistarfélagið, sem um
langt skeið hafði hagnast af kvikmyndahúsa-
rekstri sínum, að tapa á honum og til að bæta
gráu ofan á svart veiktist helsta diifíjöður fé-
lagsins, Ragnar Jónsson í Smára. „Félagið varð
fyrir fjárhagslegum skakkaföllum og enginn
tók upp merkið er Ragnar gekk úr skaftinu. Því
miður.“
Á næstu árum lét félagið skólann sitja í fyrir-
rúmi en eftir að hafa rétt jafnt og þétt úr kútn-
um á síðustu misserum þótti mönnum tíma-
bært að taka á ný til við tónleikahald í
einhverjum stíl.
Raunar hafa fyrstu tónleikarnir þegar farið
fram - tónleikar til heiðurs Halldóri Hansen
lækni og söngunnanda í Salnum í júnímánuði
síðastliðnum. Næstu tónleikar verða í lok mán-
aðarins þegar píanóleikarinn kunni Ann Schein
kemur fram í Salnum. Er miðasala þegar hafin.
Baldvin segir margt hafa breyst frá því Tón-
listarfélagið stóð í eldlínu tónleikahalds. „Tón-
leikar eru ekkert nýnæmi fyrir fólki í dag.
Listahátíð í Reykjavík er alltaf að eflast, Sin-
fóníuhljómsveit Islands blómstrar - en Tónlist-
arfélagið stóð bak við hana upphaflega - og
fleiri aðila mætti nefna. Það er því ekki að sárri
þörf að Tónlistarfélagið tekur nú upp þráðinn.
Það sem við ætlum að gera er að einblína á virta
og vinsæla listamenn, ekki bara erlenda enda
eigum við Islendingar orðið stóran hóp góðra
tónlistarmanna, ekki síst söngvara," segir
Baldvin.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur.
Árnastofnun: Handritasýning til 15.
maí.
Gallerí Fold: Lu Hong. Til 12. nóv.
Gallerí Nema hvað: Bryndís Erla
Hjálmarsdóttir og Birta Guðjónsdóttir.
Til 7. nóv.
Gallerí Reykjavík: Sigmar Vilhelmsson.
Til 12. nóv.
Gallerí Sævars Karls: llmur María
Stefánsdóttir. Til 9. nóv.
Garður, Ártún 3, Selfossi: GUK er opið
í dag. John Krogh. Veffang: http:/
www.simnet.is/GUK.
Gerðarsafn: Tryggvi Ólafsson. Guðrún
Halldórsdóttir. Til 26. nóv.
Hafnarborg: Margrét Guðmundsdóttir.
Úr listaverkasafni Búnaðarbanka ís-
lands. Ljósmyndir Nönnu Bisp Búchert
við ljóð Kristínar Ómarsdóttur. Ljós-
myndasýning til heiðurs Eyþóri Þor-
lákssyni. Til 6. nóv.
Hallgrímsk.: Erla Þórarinsd. Til 27.
nóv.
i8: Jyrki Parantainen. Til 26. nóv.
íslensk grafík: Erla Stef. Til 5. nóv.
Landakirkja: Tíminn og trúin.
Langholtskirkja: Kaleikar og krossar.
Til 19. nóv.
Listasafn Akureyrar: „Heimskauts-
löndin unaðslegu". Til 17. des.
Listasafn ASI - Ásmundarsalur: Jón
Axel Björnsson. Til 12. nóv.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14-17. Högg-
myndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn fslands: Sigurður Guðm. Verk
Þórarins B. Þorlákssonar. Til 26. nóv.
Listasafn Rvk - Ásmundarsafn: Verk í
eigu safnsins.
Listasafn Rvk - Kjarvalsstaðir: Aust-
ursalur: Jóhannes S. Kjarval. MÓT-
hönnun á Islandi. Til 12. nóv.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Meistari Jakob: Islendingasögumar á
kínversku. Til 6. nóv.
Norræna h.: J. Parantainen. Til 17. des.
Nýlistasafnið: Róska. Til 19. nóv.
Smiðjan art, gallerí: Verk Jóns Engil-
berts. Til 20. nóv.
Sparisjóður Hfj., Garðatorgi: Pétur
Bjarnason. Til 9. nóv.
TÓNLIST
Laugardagur
Dómkirkjan: Deborah Calland og
Barry Millington. Kl. 17.
Fríkirkjan: Sigurður Halldórsson og
Helga Ingólfsdóttii-. Kl. 17.
Reykholtsk.: Skagf. söngsv., Söngsv.
Hverag. og Kveldúlfskórinn. Kl. 16.
Salurinn: Agon Orchestra. KJ. 20.
Sunnudagur
Dómkirkjan: Deborah Calland og
Barry Millington. Kl. 17.
Langholtskirkja: 7 unglingakórar
ásamt hljómsveit. Kl. 17.
Mánudagur
Salurinn, Kópavogi: Kammersveitin
The London Mozart Players. Kl. 20.
Fimmtudagur
Bústaðakirkja: Minningartónleikar um
Guðna Þ. Guðmundsson. Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Kirsuberjagarðurinn,
fim. 9., fös. 10. nóv. Draumur á Jóns-
messunótt, lau. 4. nóv. Glanni glæpur í
Latabæ, sun. 5. nóv. kl. 14 og 17.
Litla sviðið: Horfðu reiður um öxl, sun.
5., mið. 8., fim. 9., fös. 10. nóv. Borgar-
leikhúsið: Abigail heldur partí, lau. 4.,
fös. 10. nóv. Kysstu mig Kata, lau. 4.
nóv. Sex í sveit, sun. 5. nóv. Möguleik-
húsið: Lóma, sun. 5., fös. 10. nóv. Völu-
spá, sun. 5., þri. 7., mið. 8. nóv. Langafi
prakkari, sun 5. nóv. Snuðra og tuðra,
fös. 10. nóv.
Loftkastalinn: Á sama tíma að ári, lau.
4. nóv. Bangsimon, sun. 5. nóv. kl. 13 og
15.30. Iðnó: Trúðuleikur, sun. 5. nóv. kl.
16 og 20. Sýnd veiði, lau. 4. nóv. kl. 20 og
22, fim. 9., fös. 10. nóv. Tilvist, mið. 8.
nóv. Tjamarbíó: Prinsessan í hörpunni,
lau. 4., sun. 5. nóv. Með fullri reisn, lau.
4. nóv. Kaffileikhúsið: Háaloft, þri. 7.
nóv. Hratt og bítandi, lau. 4. nóv. Storm-
ur og Ormur, sun. 5. nóv. Kvenna
hvað...?, sun. 5. nóv. íslenska óperan:
Stúlkan í vitanum, sun. 5. nóv. Nem-
endalcikhúsið í Smiðjunni: Ofviðrið,
lau. 4., mið. 8., fim. 9., fós. 10. nóv. Haftt-
arfjarðarleikhúsið: Vitleysingarnir,
lau. 4., fím. 9., fös. 10. nóv. Leikfélag Ak-
ureyrar: Gleðigjafarnir, lau. 4. nóv.
//
íslenskar kvikmyndir í Norræna húsinu í New York
EINSTAKl ÁR FYRIR
ÍSLENSKA
KVIKMYNDAGERÐ"
New York. Morgunblaðið.
ISLENSKIR kvikmyndadagar hófust í Norræna húsinu í New York sl.
miðvikudagskvöld þegar kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Englar
alheimsins, var frumsýnd. Fjórar nýlegar íslenskar kvikmyndir verða
sýndar þar í nóvembermánuði en auk Engla alheimsins eru það mynd-
irnar 101 Reykjavík eftir Baltasar Kormák, Ungfrúin góða og húsið eftir
Guðnýju Halldórsdóttur og Fíaskó eftir Ragnar Bragason.
Miðvikudagar verða bíódagar í Norræna húsinu og eru íslensku kvik-
myndirnar fyrstar í röð norrænna kvikmyndadaga sem haldið verður
áfram á nýju ári.
Jytte Jensen, sýningarstjóri við kvikmyndadeild Nútímalistasafnsins
í New York, MoMA, hefur umsjón með kvikmyndadagskrá Norræna
hússins og telur að íslensk kvikmyndagerð sé í miklum bióma um þessar
mundir.
Viðstaddir frumsýninguna voru Baltasar Kormákur, leikstjóri og
leikari, og Þorflnnur Ómarsson frá Kvikmyndasjóði íslands. Baltasar
sat fyrir svörum kvikmyndagesta að lokinni sýningu á 101 Reykjavík á
fimmtudagskvöldið þar sem húsfyllir var í 180 manna sal Norræna
hússins. Sagði Þorfinnur þetta hafa verið einstakt ár fyrir íslenska
kvikmyndagerð en aldrei hefðu jafnmargar myndir verið í vinnslu á ís-
landi og um þessar mundir. Islenskar kvikmyndir hefðu verið seldar til
sýninga í fleiri löndum en áður auk þess sem myndirnar væru mjög vel
sóttar heima fyrir og tiltók hann sérstaklega að um 90.000 manns
hefðu séð Engla alheimsins á Islandi. Þá virtist sem gengi 101 Reykja-
vík færi enn vaxandi nú þegar myndin hefði verið tilnefnd til Fassbind-
er-verðlauna evrópsku kvikmyndahátíðarinnar. Sagt er frá íslensku
kvikmyndadögunum í vikuritinu Time Out í New York og tilteknar vin-
Ljósmynd/Hulda Stefónsdóttir
íslensk kvikmyndahátió stendur nú yfir í Norræna húsinu í New York.
Vidstödd frumsýningu voru f.v. Baltasar Kormákur, leikstjóri og leikari,
Magnús Bjarnason, aðalrædismaður í New York, Jytte Jensen, umsjón-
armaður hátíðarinnar og sýningarstjóri kvikmyndadeildar MoMA, og
Þorfinnur Ómarsson frá Kvikmyndasjóði íslands.
sældir 101 Reykjavíkur á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum undanfarið.
Jytte Jensen, sýningarstjóri við kvikmyndadeild MoMA og sérfræð-
ingur í norrænum kvikmyndum segir það sérstaklega ánægjulegt að
hefja yfirreið um nýjar norrænar kvikmyndir á íslandi. „íslensk kvik-
myndagerð er sennilega síst þekkt af hinum norrænum enda ung að ár-
um,“ segir Jytte. „Það er margt að gerast í íslenskum kvikmyndum um
þessar mundir og því ánægjulegt að geta staðið fyrir kynningu á mynd-
um sem eru í senn framandi áhorfendum um leið og þær eru frábærlega
vel gerðar.“ Hún tekur undir með Þorfinni og segir að þetta hafi ekki
bara verið einstakt ár fyrir íslenskar kvikmyndir heldur finnist sér eins
og íslensk kvikmyndagerð sé að ávinna sér sess í alþjóðlegum kvik-
myndaheimi. „Áður var velgengni íslenskra kvikmynda erlendis að
mestu bundin við einn mann, Friðrik Þór Friðriksson, en nú er eins og
tekið sé eftir fleiri kvikmyndagerðarmönnum og fleiri kvikmyndum. ís-
land er að skapa sér nafn á sviði kvikmyndagerðar,“ segir Jytte.
~ ^ | r p, 'M #
jf Lf.
-5 ■!* ■
Tékkneska kammersveitin Agon Orchestra.
TEKKNESK KAMMER-
SVEIT í SALNUM
TEKKNESKA kammersveitin Agon Orchestra heldur tónleika
í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs í kvöld kl. 20.
Tónleikamir eru samvinnuverkefni Tónskáldafélags íslands
og Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu árið 2000.
Flytjendur era (jórtán og leika þeir á ýmis hljóðfæri, margar
gerðir af flautum auk munnhörpu og melódíku, rafmagnsgítar,
rafmagnsbassa og banjó, tenór-, alt- og bassasaxófóna, trompet
og franskt horn, fiðlur, selló, píanó og fjölbreytt slagverk. Með-
limjr úr CAPUT-hópnum takaþátt, í flutningi á einu verkanna.
Á efnisskránni er verk eftir Hauk Tómasson, auk verka eftir
danskt tónskáld og tékkneska höfunda. Sljórnandi hópsins er
tékkneska tónskáldið Petr Kofron.
Aðalstyrktaraðilar tónleikanna eru Pragborg ogtékklenska
mennfamálaráðunejdið.
Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 13-18 og tónleika-
kvöld til kl. 20. Um helgar er miðasalan opnuð klukkustund
fyrir tónleika.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. NÓVEMBER 2000