Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Blaðsíða 20
STJORNLEYSI ER ALDREI
FJARRISKALDSKAPNUM
Á ritþingi Gerðubergs, sem haldið verður í dag,
situr Einar Már Guðmundsson fyrir svörum um ver k
sín. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR ræddi við hann
um áhrifavaldana í 1 ífi hans.
MorgunblaSið/Árni Sæberg
Bjarni Þorsteinsson spyrjandi, Silja Aðalsteinsdóttir, sem stjórnar umræðum á ritþinginu, og
Einar Már Guðmundsson. Á myndina vantar annan spyrjandann, Guðna Elísson.
RITÞING Einars Más Guðmundssonar
verður haldið í dag, laugardaginn 4.
nóvember, og hefst klukkan 13.30.
Ritþingið er haldið í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi og stjórnandi þess er
Silja Aðalsteinsdóttir. Spyrlar eru Guðni El-
ísson og Bjarni Þorsteinsson. Á þinginu
verða auk þess lesin og flutt brot úr verkum
Einas Más til að krydda dagskrána. Meðal
annars mætir Tómas R. Einarsson sem leik-
ur tónlist sína við ljóðaupplestur Einars af
nýútkomnum geisladiski, I draumum var
þetta helst.
í kynningu frá Gerðubergi segir að Einar
hafi verið róttækur anarkisti sem strákur og
ungur maður og eimi hæfilega eftir af ögr-
andi andófi gegn viðteknum venjum og skoð-
unum í tali hans og riti. Þegar Einar er sjálf-
ur spurður um þennan anarkisma sinn í
æsku svarar hann:
Mannréttindi að fá
að hafa rangt fyrir sér
„Eg held að stjórnleysi sé aldrei fjarri
skáldskapnum. Eg á mér ákveðna fortíð og
hef unnið úr henni, til dæmis í Rauðum dög-
um. Það er þó varla hægt að kalla sjálfan sig
anarkista. Það er eins og að segja að maður
sé heilagur maður. Það má segja að ég hafi
farið í gegnum stjórnleysistímabil upp úr
1970 en síðan hafa menn fjarlægst það, þótt
*• þeir hafi haldið vissum þáttum eftir. Áuð-
vitað höfðu menn oft rangt fyrir sér en ég tel
að það séu mannréttindi að fá að hafa rangt
fyrir sér.
Það hefur oftast verið talið dyggð í heimi
skynsemishyggjunnar að hafa sömu skoðun
allt sitt líf. Það tel ég alrangt. Það er arfur
frá rétttrúnaðarmönnum. Ef þeir höfðu aðrar
skoðanir í dag en í gær voru þeir að svíkja
málstaðinn. En málstaðurinn er til út af fyrir
sig og rúmar margar stefnur, hvort sem þær
eru kallaðar anarkismi eða ekki.“
Hvernig birtist þetta andóf þegar þú varst
strákur?
„Eg held að ég hafi nú verið frekar frið-
sæll þá; að minnsta kosti ekki mjög ódæll.
Yfirleitt sögðu þeir á foreldrafundi, kennar-
arnir, að ég væri ekkert slæmur strákur en
hefði frá mörgu að segja. Ég veit ekki hvort
það er andóf.
En i lok 7. áratugarins kemur þetta and-
rúmsloft sem menn drukku í sig, landflóttinn
mikli til Svíþjóðar, atvinnuleysi, barátta gegn
Víetnam-stríðinu. Síðan voru það ’68-upp-
reisnirnar í Evrópu og Prag. Sá andi sem
maður hafði úr rokktónlistinni gerði það líka
að verkum að maður hafði samúð með þess-
um öflum. Þú veist, það var þetta leiðinlega
kerfi, en svo svona skemmtilegir menn eins
og John Lennon og Keith Richards.
Sá félagsskapur sem ég tengdist svo hér,
Fylkingin, var lausbeislaður stjórnleysingja-
hópur á þessum tíma en komst síðar undir
járnhæl kreddumanna. Við stjórnleysingjarn-
ir héldum þó okkar striki.“
Fimm hundruð ijóð
Einar Már var 26 ára þegar fyrsta ljóða-
bókin hans kom út, árið 1980, en hann segist
þá þegar hafa skrifað í ansi langan tíma, allt
frá tvítugu. „Ég gerði mér grein fyrir því að
ég þyrfti að skrifa dálítið áður en ég færi að
gefa ljóðin mín út; ég þyrfti að skrifa svona
um fimm hundruð ljóð - og byrja svo upp á
nýtt.“
Hvers vegna fórstu að skrifa?
„Þegar ég uppgötvaði vímugjafann orð
varð ekki aftur snúið. Það má segja að ég
hafi verið fíkill síðan.
Hins vegar gerði ég mér fljótlega grein
fyrir því að það sem maður var að skrifa
fyrstu árin var eldgos úr sálinni og bergmál
frá öðrum. Því var það fyrsta sem ég skrifaði
til að ná tökum á mínu eigin tungumáli.“
Hverjir voru uppáhaldshöfundarnir þínir
þegar þú varst strákur?
„Ég hlustaði á framhaldsleikritin í útvarp-
inu og ég man að eitt þeirra heillaði mig svo
að þegar ég vissi að það var til á bók vildi ég
eignast hana. Þetta var Óliver Tvist. Svo las
ég höfunda eins og Armann Kr. eins og aðrir
strákar á mínum aldri og við vorum sáttir við
það. Svo voru það Bob Moran og Zorro og
snemma fengum við strákarnir áhuga á forn-
aldarsögum Norðurlanda, einkum Bósasögu.
Annars er það svo að þegar spurt er um
lesefni barnæskunnar verður að segjast eins
og er að það réðst af tilviljun. Það var ekkert
kerfi á því sem maður las, heldur var það les-
ið sem var til á bókasafninu. Hins vegar var
alltaf verið að segja sögur í kringum mig í
barnæsku. Það var alltaf verið að segja sögur
í báðum ættum - og svo kom popptónlistin.
Ég var mjög ungur þegar ég fór að lifa
mig inn í tónlist míns samtíma vegna þess að
eldri bróðir minn fylgdist grannt með henni.
Ég byrjaði á Shadows."
Hrun múrsins milli hámenningar
og lágmenningar
Hefur popptónlist haft áhrif á skáldskap
þinn?
„Ég held að það einkenni þá kynslóð sem
er fædd um miðbik aldarinnar að við upp-
lifðum boðskap þessarar tónlistar strax sem
hrun á múrnum milli hámenningar og lág-
menningar. Við höfðum fæturna báðum meg-
in og gerðum kannski ekki mikinn greinar-
mun á því. Hvað bókina varðar, þá hefur
íslenskur almenningur aldrei sett það fyrir
sig að ráðast á garðinn þar sem hann er
hæstur og þar kemur líka sú hefð sem við
eigum og kemur inn á spurningu þína um
hvað ég las sem strákur. Ég held að það hafi
verið mjög sundurlaust og við gerðum engan
mun á fínbókmenntum og aíþreyingarbók-
menntum."
En hvenær kynntistu ljóðlistinni?
„Ætli það hafi ekki verið þegar móðir mín
var að fara með Jóhannes úr Kötlum fyrir
mig til að svæfa mig.“
Bandaríkjqferð Sinfóníuhljómsveitar íslands
GÓÐAR VIÐTÖKUR
GAGNRÝNENDA
BANDARÍSK dagblöð hafa haldið áfram
að fjalla um tónleika Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Vesturheimi og ekki
er annað að heyra en menn séu al-
m mennt ánægðir með leik sveitarinnar. Vekur
það furðu flestra gagnrýnenda að sinfón-
íuhljómsveit sem ekki á sér nema hálfrar aldar
sögu, og kemur auk þess írá jafnfámennu landi
og íslandi, skuli sýna slíka hæfni.
Gagnrýnandi dagblaðsins The Orange
County Register sagði eftir tónleika sinfón-
íuhljómsveitarinnar í Costa Mesa í Los Angel-
es að leikur sveitarinnar væri fágaður, án þess
þó að of mikils aga yrði vart. „Óll verkin voru
flutt á leikandi og léttan máta,“ sagði í gagn-
rýni blaðsins sem kvað Icerapp Atla Heimis
Sveinssonar vera sérlega skemmtilegt áheym-
ar.
Detroit News var sama sinnis og lýsti gagn-
-•rýnandi þess dagblaðs Icerapp 2000 sem spuna
á 18. aldar tónlist með fönkívafi. Þá sagði Los
Angeles Times verkið vera gamansamt, þar
sem greina mætti áhrif dans- og ásláttartón-
listar. „Það hefur viss tengsl við rapptónlist og
heilmikil tengsl við húrnor," sagði í umfjöllun
blaðsins.
Sinfónía no. 1 eftir Sibelius vakti þá almenna
hrifningu bandarískra tónlistargagnrýnenda.
Los Angeles Times sagði Sibelius tryggja Sin-
fóníuhljómsveit íslands í sessi og Detroit
News sagði sveitina ekki ofleika og sýna óað-
finnanlegan aga í leik sínum. Ef til vill skorti
eitthvað á tilfinningaríkustu hluta sinfóníunn-
ar, en þess í stað nytu áheyrendur þess að
hlýða á verkið í heild sinni.
Judith og Einari hrósað
Það var einna helst flutningur sinfón-
íuhljómsveitarinnar á fiðlukonsert í D-moll eft-
ir Katsatúrían sem gagnrýnendur voru ekki á
einu máli um og var verkinu ýmist hrósað eða
það gagnrýnt. Til að mynda sagði Ann Arbor
News leik Judith Ingólfsson í verkinu eftir-
tektarverðan, á meðan Los Angeles Times
sagði fiðlukonsertinn jámkenndan. Leik Jud-
ith Ingólfsson var þó í hvívetna hrósað og að
;land Symphony Orchestra i
ns heat up on Sibehus piece
>TN AJLBOR — What began as a displayed grcat pa3.oon withrn a &ame-
storU*loU™.sl«la,dS^n.
flL„u,n- a atviish. diamaticaUy ic symphony is somctimes reduccfl
ÆSiftó' aassSKíss.
uitered tnastcrpicce. SibcU ____vaá:* lu clcgant
orchestration and potcnt I
thcmutic cclls.
Saccani opened his pro-
gram with a bit of inodcrn
Icciandic music, Atli Heimir
Sveinssou’s lcerapp aooo.
Ihw funky spin on thc íBtli-
ccntury divcrtiniento qdutcs
Gershwin’s “1 Got Rbythm,"
■■■■ -— gocs fur a laugh with » bla-
nuÞ‘“u,f *“ . RO-.d tan, chunk of Strayinsky*s Ihc °f
** achleved at rcmarkable spccd. ^ Qn ^ to
h its current U5. tour. thelccland Aionc point,thcy allbhirt out
u>cre adolcscencc comparcd wlth iaugber gave way to a
*t orchcstras of thu level. _ windv snooíer, Khachaturian’s i<m<>
For the last thrce Y®*1*' 0,0 ronCerto in D minor. The
mbcr troupe has berain lh*wc ícelandic vtoUnist Judith Ingolf-
Mncrícan tnusic directorwbo is a ywrng medalut oí the 199» Inlcrw I
iduatc of tbe Urdvmily of vLolin Competitiou In Indi-
hoalofMusJc.RicoSaccaa^H^ auapolis. spuu out Klríchaturtau’s long
>, is an odd dispanty bctwcen what W**1 ^toMcdoffhl. rclcndcss
p““
c podiutn, SACcani pvca thc Uryre^ warmtna
on that he once caught Lc°o*rd ________;---------------j—
cmstcinott one hrímorc ^nodvc _ reach Lawrence Johnson ai
,gbta and never got over il- SaccgnJ 311-3}94 or at lawrmc*bJ@ooL
:aps. plunges, swoons • and gasps
mdlhtyh tn short. bc ovcrconductc. rom. ---------J^
mati Las Vegas Review Journal stendur hún
mörgum eldri einleikurum fyllilega á sporði.
Einar Jóhannesson klarínettuleikari vakti
þá einnig athygli gagnrýnanda Ann Arbor
News, sem kvað hann hafa sett tóninn fyrir
strengjaleik sinfóníuhljómsveitarinnar með
einleik sínum í Sinfóníu nr. 1 og þegar á heild-
ina er litið voru dagblöðin á einu máli um að
Sinfóníuhljómsveit Islands hefði komið þeim
skemmtilega á óvart.
From lceland, music to give you chills
I, SUSAN tSAACS NtsatTT
REViEW
pUyina In <h» XhMluiuri*n
“*» M noUvorthy •' II
WUd lngoM..M> $ul arcund lh«w
_ »n. n» rivUnn Bul .lu> (Mlt
IIm wor u bocin •ml (hwn «n. •h«nn« kn... puml
n w*» « UUo lik* h«.rvm P.D Q ** up ihn lop of pkroua with p*t
-**- l- u. I_|---«- .J—m fOr l»«Oy pW.d —-r..rU.
Hmmm ., .1 >1» pUytng U imburd wilh dnr
BprWc' m«l Uon «nd rhyihmir anltncnl Yo.
»nd moled wilh Svnni»ou'* pul*ir>d could hc«r ih. c<
_____IteUndit rtiythn... A )oh of Oorah |.v. U wwh • ______
I iu win «nd some big band )»u undcr> nu> Iho firwlr ohapcdonding of Iha
io conlinonUl drKL U you B*c*i «mw>
M lnfliiny. whfch. Wdrtrrí twotx tr.lhoond.Uwnj Wo pd lo hc«r tont |tmI ck
u ond otolta ootrM Ju- lúne to go homo »ot pUymg ui (hc Khocholunan.
IUU Sl
r Iniolíjton ia Iho Therewi
tiuHtii Concortö for Vtoiín b>ihoSiboUut Symphony No. Itad
tatounirf wttti vbnB- ond Onbwlru in D Minor. Ur hor Minor. Op M, Ihal mtdo up Ihoprv
M M MW PD.Qi, the l*rgo trwn U
lorbw* c Mm», «nunwi| pl«:
an'r 1c*r- IM mnrn waiiling to he
tuoUvun. hwlurod prvmmonUy ii
Ih. worVV uvwul rn.wr.nOnl, M
Iflhoor
mtaro DMpUo er mtotfuon jinco h*r viclory ta hiwod .wi ta itair cholrt. U ih«
m, oorao of Uu ttalt Intomtuonti VioUn Crapo- clwtlra htd Um ttnng. wind
■ •rnplqyt - Uuon ot li«Hoi»i>iiiv. wtioro *he brau puwor I - -*■*- *-*“
lceland's
fluent
symphony
REVIEW: Tho vUtting
•Sauidliinviuu
orchotlrn, wllh an
Aiucricnn m Ihe holm,
thliic* In Slbcllun mid
Khuchuturiiui.
•v hmothv MArrcnif
Thr Oftngr County tagkw
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 4. NÓVEMBER 2000