Tíminn - 16.12.1966, Síða 8

Tíminn - 16.12.1966, Síða 8
TÍMINN FÖSTUDAGUR 16. desember 1966 GuSbrandur fyrir framan alla árganga Tímans, en blaðinu safnaði hanní nær fimmtíu ár. Guðbrandur Magnússon minnist fyrstu áranna í viðtali: „Ég sagði við Tryggva: Vilt þú verða ritstjóri Tímans?" | I ■ ■ ■/. /> -v4 %»*»■» -*"y<w ""^í'' .„vv4*+ +»»»«%* X- • v*>w«ý>'v>"-/v -»ee«44 ■■««<vÁv.: Guðbrandur viS fundargerðarbækurnar, sem hann færði svo lengi og með «vo miklum ágætum. (Tímamyndir GE) Einn þeirra manna, sem mjög kom við sögn fyrstu ára Fram- sóknarflo'kksins er Guðbrandur Magnússon, fyrrum forstjóri Áfengisverzlunar ríkisins og fyrsti ristjóii Tírnans. Guðbrandur Magnússon er fædd ur að Hömrum á Mýnum í Horna- firði, 15. febrúar 1887. Guðbrand- ur er því áttræður eftir tæpa tvo mánuði — en þvi tryði enginn, sem sæi Ihann glaðan á mannamót um og ekki vissi aldur hans. Guð- brandur er áreiðanlega lang yngisti öldungurinn 1 Reykjavík eða réttara sagt elzti unglingur- inn, þvi Guðhrandur er enn ungur maður í raun, bæði hvað snertir líikamlegt og andlegt atgerfi. Hann hleypur um, iéttur og kvik- ur í spori og er sérdeilis snar í snúningum. I>eir yngri standa hon um ekki á sporði í lífsgleði og glettni. Guðbrandur á ekki langt að sækja þessa lífsseiglu og þrótt. Mér er sagt að afa hans, Sigurði Ðjamasyni, hafi orðið það á, að slíta nýtt hrosshársreipi við hey- band, er hann gekk að heyskap — þá á níræðiisaldri. Guðbrandur fluttist með for- eldrum sdnum til Seyðisfjarðar 3ja ára og ólst þar upp. Nýfermd- ur fór hann tdl merkishjónanna Sigríðar Þorsteinsdóttur og Skafta Jósefssonar ritstjóra Austra, er Þorsteinn sonur Skafta ritstjóri, stjórnaði. Blaðamaður Tímans heimsótti Guðbrand Magnsúson á heimOi hans fyrir skömmu til að eiga við hann viðtal í tilefni af 50 ára afmæli Framsóknarflokksins. — Þú telur það mikla gæfu lífs þíns, að þú áttir þess kost að dvelja og læra á heimili Skafta Jósefssonar, Guðbrandur? — Já, það var mikil gæfa, en þar eins og oftar í lífi mínu var það fjarstýring forsjónarinnar, sem réði. Ég var á 13. ári, er fað- ir minn sendi mig til séra Björns Þorlákssonar á Dvergasteini til að búa mig undir skólagönigu. Séra Björn dæmdi mig frá, sem óhæfan til langskólagöngu og það sem réð úrslitum um fall mitt á því prófi, var það, að ég bar Xerxes fram eftir stafanna hlóð- an, þ.e.a.s. ex-er-ex-es í stað ser ses — og þess vegna varð ég prentari. Séra Bjöm sagði reynd ar við mig síðar á lífsleiðinni: ,J3g veðjaði vitl’aust á þennan dreng.“ Heimili Skafta Jósefssonar og Sigríðar Þorsteinsdóttur var mik- ið menningar og framfaraheimili. Skafti var ritstjóri Austra og Þonsteinn sonur hans eigandi og stjórnandi prentsmiðjunnar. Þær mæðgumar Sigríður Þorsteinsdótt ir og Ingibjörg Skaftadóttir gáfu út fynsta kvennablaðið á íslandi, Framsókn. Á þetta menntaheim- ili komu, allir höfðingjar, sem á ferðinni voru og þangað lágu mangir stnaumar. — Þú ert kornungur maður, er þú ferð frá Seyðisfirði að prent- námi loknu. — Já. Ég leitaði fyrir mér um atvinnu í Reykjavík árið 1905 er ég var 19 ára gamall. Þá var enga atvinnu að fá fyrir prentara í Reykjaví'k, en hins vegar gat ég komizt að í prentsmiðju Bjöms Jónssonar á Oddeyri við Akur- eyri og þangað fór ég — og enn var það fjarstýring forsjónarinnar sem var að verki, því þessi fjar- stýrða lykkja á lífshlaup mitt átti eftir að hafa úrslitaþýðingu á líf mitt og viðhorf, því á Akureyri kynntist ég ungmennafélagsihreyf ingunni. í árslok 1905 er Ung- mennafélag Akureyrar stofnað. Ég kom þó ekki fyrr en á annan fund félagsins en er samt talinn meðal stofnenda félagsins. Á þess um fundi hélt ég mína jómfrúr- ræðu og tókst bærilega. Það var þarna, sem ég tók bakteríuna og hún var svo mögnuð að ég var strax haldinn af því að koma upp sams konar félagi í Reykjavík, og það tókst um haustið 1906. Guðbrandur Magnússon um það leyti sem hann var ritstjóri Tfmans. Það félag varð strax f jöimemnt og öflugt og hafði mikil áhritf. Ég var ritari fyrstu stjómar fé- lagsins og er Ungmennafélag ís- lands var stofnað 1907 var óg fynsti umdæmisstjórinn. Þegar Jónas Jónsison fró Hriflu kom heim úr sinni fyrstu utanför réð ég því, að hann var ráðinn rit- stjóri Skinfaxa, málgagns ung- mennafélaganna. Af þeirri blaða- mennsku varð Jónas landkunnur og áhrifamikill maður. En það var einmitt þetta samstarf okkar Jónasar, sem leiddi til þess, að ég á þátt í stofnun Tímans og verð fyrsti ritstjóri blaðsins. Það var í ársbyrjun 1917 sem Jónas kemur til mín í rauninni í nauðum sinum og segir við mig: Nú getur þetta ekki dregizt ieng- ur. Framsóknarflokkurinn er bú- inn að fá menn kjörna á þing og nú á hann meira að segja ráð- herra. Flokkurinn verður að eign- ast blað. Nú er Héðinn enn er- lendis og þú verður að taka að Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.