Tíminn - 16.12.1966, Síða 15

Tíminn - 16.12.1966, Síða 15
FÖSTUDAGUR 16. desember 1966 TIMBNN 15 Vel fer á því, að hafa íiþrótta þáttr einu sinni í viku í sjón- varpinu, auk þess, sem annað kastið eru sýndir heilir_ knatt- spymuleikir frá HM. fþrótta- áhugamenn hafa látið misjafn- lega af íþróttalþáttum sjónvarps ins, og hafa margir látið í ljós óánægju með lýsingu Sigurðar Sigurðssonar á kappleikjumium frá HM. Hreinasti óþarfi virð- ist að tala eins mikið með myndunum og Sigurður gerir, því sjón er sögu ríkari. Of mik- ið tal eyðileggur ánægjuna, segja íþróttamenn, sem talað hafa við mig um þessa hluti. Eins hafa þeir bent á, að hlægi legt sé að lýsa leikjunum eins og í beinni útsendingu, t. d. eins og í leiknum England — Portúgal. ,,Ef England vinnur, er England komið í úrslit.“ Auðvitað vita allir, að England varð heimsmeistari, og því af- káralegt að tala um orðna hiuti í nútíð og framtíð. Annars hef- ur Sigurði tekizt allvel í vali mynda bæði frá HM og ems frá erlendum fþróttamótum. Vonandi líður ekki á löngu, þar tfl byrjað verður að sýna innlendar íþróttafróttamyndir í ifkai mæli. Þátturinn, Með ungu fólM, var með skemmtílegasta móti í gær, einknm þar sem breytt var út af hinu hefðbundna fonm. Að þættinum má þó ýmislegt Qnna, og að okk- ar dómi leggur stjómandi of mfflMa álherzlu á söng og spfl, sénstaMega þó bítlamúsík. Á- hngamál æskunnar snúast að vfsn talsvert ctm þau etfni, fram hjá því verður ekki gengið, en ekki er þar með sagt hún kæri sig ekki um neitt annað. Það gæti tfl að mynda verið ágætt fyrir sjónvarpsmenn að bregða sér á málfund hjá menntaskóla nemum. Þar ku heldur en ekki vera líf í tuskunum og á einum slíkum var fyrir skömmu sam- þykkt að senda biskupi áskor- un um að hækka fermingar- aldur til muna. Ýmsar ágætar fréttamyndir vom í erlenda fréttaþættinum á miðvikudaginn . Þó er það no'kkur galli á útsendihgunni, að textinn er oft ekki í réttu samræmi við fróttamyndina. T. d. er þulurinn stundum búinn að lesa textann þegar aðeins helmingur myndarinnar hefur verið sýndur, og ríkir síðan þögn meðan verið er að ljúka sýningu myndarinnar. Vafa- laust er erfiðara að semja texta sem hefur sömu lengd ,.og fréttamyndin, en það yrði ólíkt skemmtilegra. Dagskráin í kvöld er forvitni leg, ekM sízt, þar sem nýr ís- lenzkur þáttur hefur göngu sína. Er það spurningaþáttur í umsjá Áma Joihnsen sem nefnist „f pokahominu," en stjómandi er Tage Ammen- drup. Þáttur þessi hefst M. 21.25. Verður honum þannig hagað, að fjórir spyrjendur eiga að geta sér til um hverjir séu þrír gestir, sem fram koma í þættimim. Em gestirnir allir góðkunnir borgarar. Spyrjehd- urni fá 24 spuningar til þess að geta upp á hverjum ein- stökum. Inn á milli verða síð- an einhver skemmtiatriði. Spyrjendurnir í þessum fyrsta þætti verða Guðrún Antonsdóttir, Þórólfur Þór- lindsson, Katrín Fjeldsted og Gylfi Jónsson. Verður gaman að vita hvernig þessi nýi þátt- ur sjónvarpsins tekst. Dagskráin hefst annars kl. 20.00 með innlenda fréttaþætt- inum „Úr borg og byggð,“ en að honum loknum verður stuttur íþróttaþáttur. Síðan hefst þátturinn „í brennidepli" stjórnandi þáttarins er Magnús Bjarnfreðsson, en umsjónamað ur Haraldur J. Hamar. Haraldur mun að þessu sinni ræða við Magnús Jónsson\ fjár- málaráðherra, um Boeing-þotu Flugfélags^ íslands og ástæður þess, að FÍ verður að gera flug vél þessa út frá Keflavjkurflug velli. M ræðir hann við Þor- stedn Gíslason, skipstjóra, um síldveiðar með togurum og um togaraútgerð og síldveiðar. Einnig talar hann við Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóra um offramleiðslu á mjólkurvörum og þá nauðsyn, sem nú hefur skaþazt’ á að flytja mjólk frá Norðurlandi hingað suður. Rætt verður við Guðlaug Gísla- son í Vestmannaeyjum um Hoo wercraft — eða „svifbíla," og að lokum verður rætt við rak- arameistara um bítlaklippingu- Verður því gripið á ýmsum at- hyglisverðum málum í þessum Skemmtiþáttur Lucy. Ball verður einnig í kvöld, og nefn ist þessi þáttur ,.Lucy fer í lista skóla.“ íslenzkan texta gerði Óskar Ingimarsson. Þátturinn um „Dýrðlinginn" heitir að þessu / sinni „Borgarstjórinn góðgjarni” og gerði Bergur Guðnason íslenzkan texta. Dags'králok verða um kl. 23. 10, þulur í kvöld er Kristín Pétursdóttir. MINNING Úlöf Jónsdóttir, Huppahiíð Ég vil með fáeinum orðum minn ast frænku minnar, Ólafar Jóns- dóttur, sem í dag verður borin tfl grafar frá StaðarbakkaMrkju. Hún er fædd í Huppahlíð 15. apríl 1898. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi þar og seinni kona hans Þorbjörg Jóhannesdótt ír frá Efra Nesi í Stafholtstnngum. Ólöf sáluga ól allan sinn aldur í Huppahlíð. Foreldrar hennar bjuggu þar um hálfrar aldar skeið og var hún hjá þeim alla tíð. Þau önduðust í hárri elli. Annaðist Ólöf þau af sérstakri umhyggju og ræktarsemí, er heflsu þeirra og kröftum tók að hnigna. Eftir lát foreldra sinna stóð hún fyrir búi lajá bræðrum sínum, þar til hún varð sökum heilsubrests að fara í sjúkrahús. Heimilið í Hlíð var áður fyrr mjög mannmargt og er það enn einkum á sumrin. Þangað hafa mörg kaupstaðabörn komið til sumardvalar, langflest eru þau af ætt Jóns í Hlíð. Mörg þeirra hafa dvalizt þar sumar eftir sumar. Eins og að líkum lætur voru það húsráðendur á heimilinu, sem all ir gátu treyst fyrir börnum sín- um. Ólöf sál. hugsaði um þau sem væru þau hennar eigin börn, og kenndi þeim marga gagnlega hluti. Og eru þau uxu úr grasi urðu mörg þeirra hennar tryggustu vin- ir. Ólöf var mikil búkona í þess orðs beztu meriringu. Henni þótti mjög vænt um heimili sitt og vildi prýða það og bæta, bæði utan bæjar sem innan. Hún hafði mikla ánægju af að fagna gestum, en þeir voru oft margir einkanlega á sumrin. En í Hlíð var þó í raun og veru enginn gestur, þar fannst öllum, sem þeir væru heima hjá sér- Eins og fyrr segir var eftír sótt að koma börnum til sumar- dvalar að Hlíð. En þar áttu líka mörg gamalmenni sitt síðasta heim ili. Ólöf sál. hafði. sérstakt lag á að umgangast gamalt fólk og las burða og gera því lífið bærilegt. Fjölmargir vinir og ættíngja munu í dag blessa minningu henn- ar ,er hún verður lögð til hinztu hvfldar. RÆTT VIÐ GUÐBRAND Kramhald aí bls 8 þér að verða ritstjóri. Þarna átti Jónais við Hóðin Valdimarsson. Ungu menntamennirnir í Kaup- mónniahöfn og ég netfni þá fyrsta Jónais Jónsson, Bjarna Ásgeirsson og Héðinn Valdimarsson höfðu ým islegt ráðslagað um flokksstofnun, blaðaútgáfu og fleira og það var í rauninni búið að ráðstafa því svo, að Héðinn yrði ritstjórinn. Því segi ég, að Jónas hafi komið tfl mín í nauðum siínum og ég tók boðinu um að gerast ritstjóri og svaraði því til, að ég hefði þó þann kostinn, að það yrði auð- velt að loisna við mig. Þetta var í febrúarlok 1917 og í miðjum marz 'kemur út fyrsta tölublað Timans. Nú, þegar til kom og Héðinn kom heim var hann settur í lands- verzilunina og ég hólt ritstjórn- inni áfram. Tryggvi Þórhalls'son er á þess- um . tíma settur dósent við guð- fræðideild Háskólans, en sá stóll hafði reyndar verið heitinn öðr- um og því var sett á samkeppnis- próf um stólinn til þess að unnt yrði að efna það loforð. Um hauist- ið þegar samkeppnisprófið fer fram, er Jónas Jónsson norður að búi sínu í Hriflu en veturinn 1917—1918, frostaveturipn miMa, er flestum skólum lokað vegna kolaskorts. Kol fengust ekki flutt til landsins vegna styrjMdarinn- ar. Kvöldið, sem það frétíist, að svipta á Tryggva dósentembætt- inu, er ég staddur heima á Laufási með fjölskyldunni' þar, Önnu og Tryggva og Ásgeir Ásgeirssyni og Dóru. Erum við að bollaleggja um, hvað til bragðs skuli takia. Tryggvi vill ógjarna flytjast frá ættaróðalinu Laufási, en þá er enga kennslu að hafa þennan vet- ur og möguleikar hér ©kM marg- ir. Það er þá, sem ég segi við Tryggva: Vfltu verða ritstjóri Tímans? Tryggvi te'kur sér frest til morguns að gefa svarið, ef mér væri þetta alvara og að kvöldi næsta dags varð það orðið að ráði, að Tryggvi Þórhalilsson gerðist rit stjóri Tímans. Það var hlutafélag um útgáfu Tímans og stjórn fé- lagsims sMpuðu auk mán þeir Hallgrimur Rristinsson, Jón Árna- son og Jónas Jónsson. Nú, Jónas var fyrir norðan eins og fyrr er sagt. Tfl að fá samþykki Jónasar fyrir ráðningu Tryggva að olað inu tókum við það ráð, að biðja Courmonge sendiherra Frakka í Reykjavik að tala við Jónas á sinni tungu í símann og var það gert tii þess að þetta færi ekM í hámæli meðan enn væri í óvissu, hvort Tryggvi yrði ritstjóri. Þetta var í nóvemlber 1917 og 17. nóvem ber tók Tryggvi formlega við rit- stjórninni. Tryggvi var þá þegar orðinn víðkunnur maður. Hann hafði ferðazt um landið ungur að ár- um með Þórhalli föður sínum lekt or, þegar hann fór um landið sem formaður Búnaðarfélagis ísilands. Við Tryggvi höfðum þá þekkzt í all mörg ár. Ég hafði fyrst heyrt afspum af Tryggva er hann var á ferðalögum með föður sínum og er ég v*ar á Seyðisfirði fór orð af honum, sem sérstöku gáfu- og glæsimenni. Þessi afspurn af Tryggva varð tfl þess að ég gerði mér ferð að Lautfási til Tryggva er ég vann að því að stofna Ung- mennafélag Reykjavíkur, til að biðja hann um að vera með í stofnun félagsins. Það voru fyrstu persónulegu kynni mín af Tryggva og upp frá því urðu kynni ok'kar náin. En hvert var starf þitt í flokkn um á þessum fyrstu árum auk af- skiptanna af Tímanum, Guðbrand ur? — Ja, flokkurinn var á þessum tíma lítið annað en þingflokkur- inn, og kjósendur hans þá efcki enn komnir í félög með föstu skipulagi. „TímaiMíkan" svokall- aða var þá einskonar ókrýnd mið- stjóm Framsóknarflokksins milli þinga en að sjálfsögðu hötfðum við samráð við þingmenn meðan þing sat. í „Tímaklíkiunni“ voru auk stjórnar útgáfufélagsins og Trygigva og ég hef áður upp tal- ið, Aðalsteinn Kristinsson, bróð- ir Hallgríms. — Nú, Héðinn Valdimarsson, upptoaflega ritstjóraefni, hefur þá aldrei verið þama með? — Nei, Héðinn var aldrei með í „Tímaklíkunni.“ Ungu mennta- mennirnir í Kaupmannahöfn hötfðu í hu-ga sósíaldemókratísfcan flokfc í sínum ráðagerðum. En það var meðal annars vegn-a áhrifa frá þingmönnunum, er stofnuðu flokkinn og að þarna völdust tfl fyrstu starfa menn með uppeldi og kynni af öllum högum þjóðar- innar eins og Tryggvi og ég, að Fr ams ókn a rflokkurinn verður þjóðlegur umibótafloikkur, rammís lenzkur flokkur og þjóðernissinn aður, en ékfci flokkur í alþjóða- hreyfin-gu sósíaldsmans. Þetta er mikji gæfa íslenzku þjóðinni að mínu áliti. — Þú hefur teMð miMnn þátt í starfi Framsóknarflobksins öll þessi ár, sem hann hefur starf- að, Guðbrandur. — Já, ég hef verið með allan tímann og ég hef fylgzt vel með sögu flokksins vegna þess, að allt frá því fliofckurinn féfck fastara skipulag hef ég fært fundargerð- ir miðstjórnarinnar, allt fram tfl 1963, og þar er aflra getið, sem þá fundi sátu og skýrt frá ræð- um aflra er þar hafa talað, sam- tímatfrásagnir af hvers manns máli. Þessar bækur eru margar og þær eru nú í góðri geymslu og geta orðið góð heimfld síðari tóma. Tjeká. JOLAFOTIN Drengjajakkaföt frá 5—14 ára, terylene og ull, margir litir. Matrósaföt Matrósakjólar 2—8 ára. Matrósakragar og flautu- bönd Drengjabuxur terylene og ull 3—12 ára- Drengjaskyrtur, hvítar frá 2 ára. Drengjapeysur dralon og ull.. RÚÍ/ITEPPI yfir hjóna rúm, diolon, þvottekta. PATTONSGARNIÐ, margir grófleikar, allir litir. Dúnsængur Gæsadúnssængur. Unglingasængur Vöggusængur Koddar og rúmfatnaður. Póstsendum. Vestui-götu 12 sími 13570 SERVÍETTU- PRENTUN SIMI 32401. Björn Helgason.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.