Alþýðublaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 1
al wm u ÖU-
L1 tlll IO 0!
riðjuaagur 19. |anuar 1982 8. tbl. — 63. arg.
Fiskvérð hækkar að meðaltali um 17,9%
A fundi yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins i dag varð
samkomulag um almennt fisk-
verö, sem gildir frá 1. janúar til
28. febrúar 1982.
Verðákvörðunin felur i sér að
meðaltali 17.9% hækkun á fisk-
veröi. Gert er ráð fyrir að oliu-
gjalds á árinu 1982 verði 7%.
1 þessari meðalhækkun er með-
talin sérstök hækkun á óslægöum
þorski og ýsu. Þannig er hækkun
á slægðum þorski 16.4% en
óslægöum 23.3%. Slægö ýsa
hækkar um 9.3% en óslægð um
rúmlega 23%. Aðrar tegundir
hækka um 15.8%.
Fulltrúar fiskkaupenda gerðu
svohljóðandi grein fyrir atkvæði
sinu.
A fimmtudag s.l. varð sam-
komulag milli fulltrúa fiskkaup-
enda og sjávarútvegsráðherra
um tiltekna meöalhækkun fisk-
verðs.
Að beiöni sjávarútvegsráö-piy
herra höfum við nú fallist á frek-[2.
ENNÞA ALLT I HNbT
Ríkisstjórnin og deilurnar um efnahagsúrræðin:
— og þing kemur saman á morgun
Hvorki gengur né rekur meö
samsetningu á efnahagspakka
ríkisstjórnarinnar. Heimildir
Alþýðublaðsins innan rikis-
stjórnarinnar herma, að miklar
dcilur séu uppi við innan
stjórnarinnar og se' ennþá
langur vegur i samkomulags-
grundvöll með næstu efnahags-
aðgcrðir.
Ekki þarf annað, en lesa mál-
gögn Framsóknarflokksins og
Alþýðubandalagsins, þ.e.
Timann og Þjóðviljann, til að
sjá, að djúp gjá skilur að þessa
samstarfsflokka. Ragnar Am-
alds fjármálaráðherra hefur
lagt fram i rikisstjórninni
ákveðinn grundvöll að efna-
hagsúrræðum, en við litlar
undirtektir framsóknarmanna.
Finnst þeim siðarnefndu, að
hugmyndir-Ragnarsum viðnám
gegn verðbólgu gangi alltof
skammt og dugi litt gegn þeirri
holskeflu veröbólgunnar, sem
fyrirsjáanleg .er á næstu
mánuðum. Ganga yfirlýsingar
ráðherra rikisstjómarinnar i
fjölmiðlum hver gegn
annarri, eips og alþjóð hefur
orðið vör við.
Tiðir fundir voru i siðustu
viku hjá rikisstjórninni þá
einkum um fiskverðsákvörðun
og gengismál, en efnahagsað-
gerðirá breiðum grunni voru þá
einnig til umræðu.
Að sögn Magnúsar Torfa
Ölafssonar blaðafulltrúa rikis-
stjórnarinnar hafa báðar efna-
hagsmálanefndirnar, þ.e.
ráðherranefndin og hin sérlega
efnahagsmálanefnd rikis-
stjómarinnar unnið vel nú um
helgina. „Málin eru hins vegar
ekki komin á ákvörðunarstig,”
sagði Magnús Torfi. „Það get ég
fullyrt.”
Sagði hann engar tima-
setningar komnar á hinar
margumtöluðu efnahagsráð-
stafanir og hann hefði engar
getgátur heyrt um það hvenær
slikrar ákvörðunar væri að
vænta.” Það er rikisstjórnar-
fundur hjá rikisstjórninni i
fyrramálið, (i dag)”, sagði
Magnús Torfi Ólafsson”, en ég
get engu um það spáð hvort tið-
inda verði að vænta af þeim
fundi.”
Menn hafa bent á, að rikis-
stjórnin sé nú i þann veginn að
missa af lestinni, hvað varðar
möguleikann til að setja um-
ræddarráðstafanir fram iformi
bráðabirgðalaga, þvi þing komi
saman n.k. miðvikudag. Það
stefni þvi allt i, að rikisstjórnin
verði að keyra i gegn fmmvarp
um efnahagsmál á þingi, þ.e. ef
rikisstjórnin sem síik kemst þá
að einhverri niðurstöðu i' málinu
og getur fært það af umræðu- og
deilustiginu yfir á ákvörðunar-
stigið. Er jafnframt talið að
mjög verði það erfitt i fram-
kvæmd fyrir rikisstjórnina að
ná frumvarpi um efnahags-
úrræði i gegn á þingi, en eins og
kunnugt erþá var ætlunin sú, að
rikisst jórnin nýtti fjarveru
þingsins til útgáfu bráðabirgða-
laga um efnahagsráðstafanir.
Vegna sundurþykkis istjórninni
virðist nú sem sá möguleiki sé
fyrir bý.
íhaldið gagnrýnir ákvörðun um nýja viðlegu við Holtabakka:
Þeir hafa sjálfir samþykkt miklar
skuldbindingar hafnarsjóðs
— segir Sigurður E. Guðmundsson
Það er mikill tvfskinnungur
sem fram kemur i málflutningi
s jál fstæðism anna varðandi
fjárs kuldbindingar Rcykja-
víkurhafnar, sagði Sigurður E.
Guðmundsson, varaborgarfull-
trúi Alþýðuflokksins i viðtali við
Alþýðublaðið i vikunni. Borgar-
stjórn samþykkti i siðustu viku
tillögu frá borgarfulltrúum Al-
þýðuflokksins um, að fram-
kvæmdir skyldu hefjast við nýja
viðlcgu við lloltabakka árið
1982. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins gagnrýndu harðlega
þessa ákvörðun, en þeir telja, að
með samþykktinni verði fram-
kvæmdafé hafnarinnar bundið
til langs tima. Sjálfstæðismenn
cru alls ekki sjáifum sér sam-
kvæmir i þessum málflutningi
sagði Sigurður E. Guðmundsson
og það sést best, ef litið er á
aðrar skuldbindingar hafnar-
sjóðs, sem ihaldið hefur staðið
að eins og mcirihlutaflokkarnir.
Sjálfstæðismenn tala mikið
um miklar fjárhagsskuldbind-
ingar hafnarinnar fram i tim-
ann, sagði Sigurður E. Guð-
mundsson, en þeir sleppa þvi að
nefnaýmis óþægileg atriði, sem
sýna velhnökrana á þeirra eigin
málflutningi. Þar má til dæmis
nefna skuldbindingar vegna
kaupa á Faxaskála, þar liggja
bundnar 440 milljónirgamlar af
kaupverði skálans. Hann var
keyptur til að leysa þann hriút,
sem kominn vará skipulagsmál
hafnarinnar milli Eimskips og
Hafskips. Þessar skuldbind-
ingar voru samþykktar af full-
trúum Sjálfstæðisflokksins. sem
öðrum.
Annað stórt mál i þessu sam-
hengi sem i'haldsmenn þegja nú
um, þegar þeir tala um miklar
fjárskuldbindingai-, er stór
samningur sem gerður var við
Björgun hf. með milligöngu
Landsbankans um landfyllingu
norðan Grandagarðs. Þessi
samningur var samþykktur i
einu hljóði enda var hann
byggður á hagstæðri fyrir-
greiðslu Landsbankans og
framkvæmdirnar í þágu sjávar-
útvegs og fiskvinnslui borginni.
Um þetta þegja þeir nú, sjálf-
stæðismennirnir, þegar þeir
tala um skuldir hafnarsjóðs.
Það gleymist li'ka æði oft að
minnaáþann hnút, sem kominn
var upp i samskiptum skipa-
félaganna, áður en vinstri
meirihlutinn tók við þessum
málum, sagði Sigurður E. Guð-
mundsson. Hafnarstjórn undir
forystu Björgvins Guðmunds-
sonar hefur nú komffi þessum
málum i gott horf og hefur veitt
Eimskip og Hafskip mikla fyrir-
greiðslu til að leysa þessi mál.
Við alþýðuflokksmenn töldum,
að það bæri að stiga skrefið til
fullsmeð því að veita skipadeild
SIS sams konar fyrirgreiðslu.
Þær framkvæmdir sem við höf-
um nú lagt til, að verði hafnar á
þessu ári, munu jafna þann að-
stöðumun sem rikt hefur milli
félaganna og örva flutninga um
svæði hafnarinnar.
Ég lagði áherslu á það í ræðu
á borgarstjórnarfundi sagði
Sigurður E. Guðmundsson, að
með þessari tillögu um fram-
kvæmdir við viðlegukantinn við
Holtabakka væri nánast um lof-
Sigurður E. Guðmundsson.
orð að ræða sem hafnarstjórn
hafði á sinum tima gefið um, að
þessar framkvæmdir yrðu
settar á áætlun árið 1982. 1 öðru
lagi hafði meirihuti hafnar-
stjórnar ekki gert ráð fyrir út-
gjaldaaukningu i þessu skyni
nema upp á 2.5 milj. kr, vegna
þess að tæknivinnan væri i öllu
falli tveggja ára framkvæmd. 1
þriðja lagi hafði hafnarstjóm
álitið nauðsynlegt að f á lán á ár-
inu að upphæð 6 milj. kr. til
margvislegra annarra fram-
kvæmda. Þegar þetta lá fyrir
ásamt vitneskju um útvegun
hagstæðs láns frá City Bank i
London, sem að vitað var að gat
verið afborgunarlaust fyrstu
fjögur árin, fannst meirihlut-
anum réttað setja þetta af stað.
Fyrir þvf liggja einnig veiga-
miklar aðrar ástæður, eins og
ég hef áður tekið fram, sagði
Sigurður E. Guðmundsson að
lokum.
Ályktun 6 verkalýðsfélaga á Sauðárkróki um Blöndu:
Virkjun Blöndu verður veikburða atvinnulífi
mikill styrkur
Sameiginlegur fundur stjórna 6
vcrkalýðsfélaga á Sauðárkróki og
við Skagaf jörð álykta eftirfarandi
uin Blönduvirkjun:
Fundurinn lýsir áhyggjum sin-
um yfir þvi hver dráttur hefir
orðið á endanlegri ákvörðun
stjórnvalda um virkjun Blöndu.
Bendir fundurinn á lágar tekjur
ibúa Norðurlands vestra og að
ýmsir þættir atvinnulifsins eru
veikir og tæknileg þróun þess
hægfara, miðað við það sem ann-
arsstaðar gerist. Er þvi ljóst að
stórframkvæmd sem virkjun
Blöndu muni verða veikburða at-
vinnulifisvæðisins mikillstyrkur.
Jafnhliða virkjunarf ram-
kvæmdum þarf að hefja öflugt
átak til uppbyggingar atvinnu-
Ufsins og fyrirtækja sem m.a.
byggja sina tilveru á raforku.
Fundurinn telur, að miðað við
þær upplýsingar sem fyrir liggja
um virkjunartilhögun við Blöndu
beri að fara eftir svokallaðri
tilhögun I, að fengnu skynsam-
legu samkomulagi við landeig-
endur um bætur vegna þess lands
sem fer undir vatn i fyrirhuguðu
miðlunarlóni.
Fundurinn telur rangt að tala
um eyðileggingu á þvi' landi sem
undir miðlunarlónið fer, heldur
verði um að ræða aðra nýtingu
þess, sem komi ibúum kjördæm-
isinsog þjóðarheildinni ekki siður
að notum.
Fundurinn harmar þær deilur
sem uppi eru um virkjunartilhög-
un og telur, að náist ekki sam-
komulag eigi stjórnvöld að
tryggja með nauðsynlegum að-
.gerðum, að andstaða einhvers
hluta landeigenda komiekki iveg
fyrir framkvæmdir.
Stjórnir eftirtalinna verkalýðs-
félaga standa að þessari ályktun:
Verkamannafélagsins öldunnar,
Sauðárkróki
Verkalýðsfclagsins Fram, Hofs-
ósi
Verkamannafélagsins Fram,
Sauðárkróki
Iðnsveinafélags Skagafjarðar
Verslunarmannafélags Skaga-
fjarðar
Vörubilstjórafélags Skagaf jarðar.
Prófkjör Alþýðuflokksins
í Reykjavík:
Utlit fyrir
ellefu
framboð
Talið er öruggt að a.m.k.
ellcfu menn og konur muni gefa
kost á sér i prófkjöri Alþýðu-
flokksins iReykjavik, sem fram
fcr inæsta mánuði, þ.e. 13 og 14.
fcbrúar. Framboðsfrestur
rcnnur út miðvikudaginn 20.
janúar, en Alþýðublaðið hefur
árciðanlcgar upplýsingar um þá
aðila. scm munu taka þátt i
prófkjörinu.
Þeir sem eru með i prófkjör-
inu eru eftirtaldir, eftir þvisem
Alþýðublaðið kemst næst:
Bjarni P. Magnússon,
Sigurður Guðmundsson, Snorri
Guðmundsson, Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, Guðriöur
Þorsteinsdóttir, Asta
Benediktsdóttir, Skjöldur
Þorgrimsson, Guðmundur
Haraldsson, Grétar Simonar-
son, Marius Sveinsson Bragi
Jósepsson og Jón Hjálmarsson.
Ekki liggur ennþá fyrir, i
hvaða sæti þessir frambjóð-
endur bjóða sig fram i, en kosið
verður um sex sæö á lista
flokksins fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar. Prófkjörið
er bindandief frambjöðandi fær
1/5 kjörfylgi Alþýðuflokksins i
siðustu reglulegu kosningum i
Reykjavik. Frambjóðendur
ráða þvi hve ofarlega þeir skipa
sér á prófkjörslistanum, en eru
sjálfkrafa i framboði til alira
sæta fyrir neðan. Þannig eru
þeirsem bjóða sig fram i 1. sæti
listans, jafnframt i framboði til
allra hinna fimm sætanna, sem
kosið verður um.
Alþýðublaðið mun greina
nákvæmar frá framboðsmálum
þegar frestur til framboðs er út-
runninn.
Prófkjörið i Hafnarfirði:
Sjö keppa
um fjögur
efstu sætin
Sjö einstaklingar hafa gefiö
kost á sér i prófkjöri Alþýðu-
flokksins i Hafnarfirði, að sögn
Hrafnkels Asgcirssonar for-
manns kjörstjórnar. Framboðs-
frcstur rann út á miðnætti s.l.
sunnudags. en kosið verður um
fjögur efstu sætin á lista flokks-
ins i bæ jarstjórnarkosningunum
i mai.
Hrafnkell sagði að eftirtalin
framboð hefðu borist: Höröur
Zóphaníasson skólastjóri og
Guðmundur ArniStefánsson rit-
stjórnarfulltrúi gefa kost á sér i
öll sætin fjögur. Grétar Þor-
leifsson formaður félags bygg-
ingarmanna, Maria Asgeirs-
dóttir lyfjafræðingur, Jóna Guð-
jónsdóttir skrifstofumaður,
Eyjólfur Sæmundsson efna-
verkfræðingur og Bragi Guö-
mundsson læknir gefa kost á sér
i 2. til 4. sæti listans.
Prófkjörið i Hafnarfirði fer
fram dagana 6. og 7. febrúar
næstkomandi.