Alþýðublaðið - 22.05.1982, Qupperneq 3
Laugardagur 22. mai 1982
------------RITSTJÚRNARGREIN---------------
Að hanna skoðanir
Hrakspár Dagblaðsins um fylgi Alþýðuflokksins í
borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík geta orðiðtil
þess að fæla kjósendur frá því að fylgja sannfæringu
sinni. Meirihluti þeirra kjósenda sem lýsa sig
óákveðna, en neita ekki að svara, eru andvigir vaida-
einokun Sjálfstæðisflokksins. Alþýðuflokkurinn hefur
jafnan reynzt f lygisdrjúgur meðal þeirra, sem telja
sig ekki bundna á flokksklafa ævilangt, heldur taka
afstöðu eftir mönnum og málefnum hverju sinni.
Hrakspár Dagblaðsins kynnu að fæla þessa kjósendur
f rá stuðningi við Alþýðuf lokkinn, i blóra við sannfær-
ingu þeirra.
En er eitthvert mark takandi á þessum hrakspám?
Hver er dómur reynslunnar?
• Sjálfstæðismenn hafa áður unnið hverjar kosn-
ingarnar á fætur öðrum, skv. skoðanakönnunum —
fyrir kjördag. Til þess eins að tapa þeim, þegar at-
kvæðin hafa endanlega verið talin upp úr kjörköss-
unum.
• I seinustu viku fyrir borgarstjórnarkosningarnar
í Reykjavík 1978 spáði Vísir Sjálfstæðisflokknum
svipuðu fylgi og D og V gerir nú. Á forsíðu Vísis fékk
Sjálfstæðisflokkurinn 10 af 15 borgarfulltrúum fyrir
kosningar.
• Að kosningum loknum reyndust borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins vera 7 talsins og valdaeinokun
Sjálfstæðisflokksins i Reykjavík í hálfa öld var þar
með úr sögunni.
• Tíu dögum fyrir Aðventukosningarnar 1979 spáði
Dagblaðið því, að Alþýðuflokkurinn fengi rúmlega
11% atkvæða og að f lokkurinn hefði þar með tapað
öðrum hverjum fylgismanni frá 1978. Að kosningum
loknum reyndist fylgi Alþýðuf lokksins vera tæp 18%,
eða um 50% meira en Dbl. spáði.
Dómur reynslunnar er því ótvíræður. Sjálfstæðis-
menn hafa reynzt duglegir við að vinna kosningar
fyrir f ram, og að sama skapi lagnir við að tapa þeim á
kjördegi. Hrakspárnar um fylgi Alþýðuflokksins hafa
heldur ekki staðizt. Það er þvf með öllu ástæðulaust
fyrir jafnaðarmenn, og þá sem hafa hugsað sér að
veita þeim brautargengi, að láta ómarktækar skoð-
anakannanir hræða sig frá því að fylgja sannfæringu
sinni. Leiðarahöfundur Dagblaðsins sjálfs viður-
kennir, að skoðanakönnun, þar sem tæpur helmingur
úrtaksins neitar að taka afstöðu eða að svara, hefur
ekkert forsagnargildi og getur ekki talizt kosninga-
spá. Þótt niðurstöðurnar séu þannig ómarktækar og
villandi, er vitað af reynslu, að þær eru skoðanaleið-
andi. Þess vegna mundi engin hlutlæg rannsóknar-
stofnun, sem vönd væri að virðingu sinni, birta jafn
ómarktæka könnun, aðeins nokkrum dögum fyrir
kosningar. Með flestum þjóðum mundi slíkt athæfi
flokkast undir brot á almennum reglum um fram-
kvæmd og birtingu slíkra kannana.
Forspá um f lygi f lokks, sem byggir á svörum um 20
einstaklinga, segir lítið um fylgisvonir flokksins, en
þeim mun meira um fúskið sem D og V vill klæða í
gervi fræðimennsku. JBH
Útilokunaraðferðin
þegar úr vöndu er að ráða hefur stundum gefizt
vel að beita útilokunaraðferðinni.
• Ef þú ert andvígur valdaeinokun Geirsarmsins t
Reykjavík, — þá útilokar þú D-listann.
• Ef þér þykir nóg um valdahroka hinnar nýju
yfirstéttar Alþýðubandalagsins og vilt refsa
kommunum fyrir lélegan árangur í misheppnaðri
verðbólgustjórn, — þá útilokar þú G-listann.
• Ef þú hef ur tekið eftir þvi, að Egilt Skúli er ekki í
framboði, og vilt ekki láta plata þig, eins og hendir
stundum formann Framsóknarf lokksins, með skatta-
lækkunarloforðum, sem Framsóknarf lokkurinn hef ur
aldrei staðið við í verki, og voru reyndar f undin upp á
auglýsingastofunni, sem hannaði kosningabaráttu
Framsóknarmanna, — þá útilokar þú B-listann.
• Ef þú vilt traustan meirihluta i borgarstjórn
undir nýrri forystu, þá útilokar þú V-listann, því að
talsmenn kvennalistans hafa sjálfir útilokað þátttöku
í nokkrum meirihluta.
Ef þú vilt útiloka valdaeinokun Geirsarmsins, en
samftryggja borginni traustan meirihluta undir nýrri
forystu, þá er aðeins einn listi eftir, A-listinn. Þá áttu
samleið með A-listanum. Þá verðskuldar A-listinn þitt
atkvæði. — JBH
'3
SUNNUDAGSLEiÐARI:
Til umhugsunar að
loknum kosningum
Gylfi Þ. Gíslason skrifar:
Menn verða og hafa orðið jafnaðarmenn af
ýmsum ástæðum, út frá ýmsum sjönarmiðum. 1
kjölfar iðnbyltingarinnar og á bernskuskeiði
fjármagnskerfisins, kapitalismans, lögðu jafn-
aðarmehn megináherzlu á bætta og skyn-
samlegri skipan efnahagsmála, til þess að út-
rýma sárri fátækt með auknum hagvexti. Allar
götur fram yfir tima fyrri heimsstyrjaldar var
jafnaðarstefnan fyrst og fremst kenning um nýtt
og hagkvæmt efnahagskerfi. En með batnandi
hag alls almennings i öllum iðnrikjum nútimans
fór athygli jafnaðarmanna i sivaxandi mæli að
beinast að nauðsyn þess að auka afkomuöryggi
og efla jöfnuö, bæta menntun og tryggja aðgang
allra aö menningarverðmætum. Velferðarsjón-
armiðin komu til sögunnar fyrir um það bil
hálfri öld. bau hafa allt til þessa dags sett meg-
insvip á baráttu og boðskap jafnaðarmanna i
vestrænum rikjum.
Sjónarmið jafnaðarmanna um lýðræðislegan
áætlunarbúskap til þess að efla hagvöxt og hóf-
leg rikisafskipti til þess að efla velferö.hafa haft
veruleg áhrif á þjóðfélagsþróun I vestrænum
iðnrikjum á þessari öld. Hagsæld hefur vaxiö og
velferð aukizt. Enn er þjóðfélag vestrænna iðn-
rikja samt langt frá þvi að vera eins og jafnað-
armenn vildu að það væri. Um.það ber atvinnu-
leysi,sem þar rikir viðast hvar, og verðbólga
gleggst vitni. En reynsla hefur sýnt að svokallað
blandað hagkerfi vestrænna rikja getur starfað
með þeim hætti, að þar sé hvorki umtalsvert at-
vinnuleysi né verðbólga. Að sliku marki þarf að
stefna. Til þess að það náist þarf viðtækt sam-
starf margvislegra þjóðfélagsafla sem erfitt
reynist að koma til leiðar i lýðræöissamfélagi.
En það verður að takast. Hinar gömlu hug-
myndir jafnaðarmanna um lýðræðislegan áætl-
unarbúskap og velferðarráðstafanir af rikis-
valdsins hálfu munu þá áreiðanlega reynast
heilladrjúgar. Samt er liklegt, að na * synlegt sé
að laga þær nokkuö að breyttum þji 3ilagshátt-
um. Lýðræðislegur áætlunarbúskapur á ekki að
vera fólginn i höftum á efnahagsstarfsemi né af-
skiptum af rekstri einstakra fyrirtækja.’.og gæta
þarf þess, að velferðarráðstafanir lami ekki
heilbrigt framtak né hafi I för með sér óeðlilega
skriffinnsku. En meginsjónarmiðin halda gildi
sinu. f þeim er fólgin vonin um lausn vandans,
sem að steðjar.
0g ný sjónarmið hafa verið að vakna i hugun
jafnaðarmanna á undanförnum árum og áratug-
um. Viljum við ekki öll, að sérhver maður eigi
þess kost, að njóta farsældar I iífi sinu? Er ein-
staklingnum nóg að hafa vel I sig og á? Er honum
nóg að njóta þess öryggis og bess jafnréttis, sem
nútima velferðarþjóöfélag tryggir honum? barf
ekki líf hans lika að vera fagurt, þarf ekki um-
hverfið að vera aðlaðandi, þarf hann’ ekki aö
geta notið náttúrunnar, þarf hann ekki að læra
aö meta listina, þarf hann ekki að gota notið þess
að hann er fnjáls maður sem á þess kost að efla
þroska sinn og þekkingu?
A þessi sjónarmið eiga nútíma jafnaðarmenn að
leggja vaxandi áherzlu. Fagurt mannlff á að
vera markmið þeirra, viö hlið boðskapar um
skynsamlega hagstjórn og réttlátra velferðar-
sjónarmiöa. í landsmálum hafa islenzkir jafn-
aðarmenn og flokkur þeirra, Alþýöuflokkurinn ,
haft forystu varðandi hugmyndir um lýöræðis-
legan áætlunarbúskap og félagsmálastefnu.
Hugmyndirnar um að fegra mannlifið eiga ekki
siður erindi inn á sviö sveitarstjórnarmála.
Reykjavik á að verða æ fegurri borg. Jafnaðar-
menn I Reykjavik eiga að hafa þaö að einu höf-
uðmarkmiði sinu að Reykjavik veröi heimkynni
fagursmannlífs.
Hðrður Zóphaníasson efsti maður á lista Alþýðuflokksins i Hafnarfirði:
„Við erum í mikilli sókn”
— Það er mat
flestra að
við bætum
við okkur
manni og
fáum þrjá
bæjarfulltrúa
kjörna
„Viö jafnaöarmenn hér I
Hafnarfiröi getum ekki veriO
annaö en bjartsýnir, viö erum f
mikilli sókn”} sagði Hörður
Zóphaniasson efsti maOur á
lista AlþýOuflokksins I Hafnar-
firöi I spjalii viö AlþýOublaöiO f
gær. „baö er mikill hugur f
okkar fólki og vel hefur veriö
unniö i kosningabaráttunni og
þaö hcfur skilaö sér. Viö finnum
fyrir meöbyr i bænum, hvar
sem borið er niöur.”
Harður sagði að hafnfirskir
kratar hefðu farið ýmsar leiðir i
kosningabaráttunni — leiðir
sem ekki hefðu veriö famar
áður I Firðinum. „Viö höfum
t.a.m. staðið fyrir utan versl-
anir og afhent fólki bæklinga og
kynningarrit. Auk þess hafa
frambjóðendur Alþýðuflokksins
bankað uppá i nánast hverri
einustu ibúð i bænum og látið af
hendi dreifirit og talað viö hús-
ráðendur. bessi beinu mann-
eskjulegu samskipti frambjóð-
enda viö bæjarbúa hafa gefið
góða raun og vakið sérstaka at-
hygli á flokknum og frambjóð-
endum hans,” sagði Hörður
Zóphaniasson.
Aö sögn Harðar er staöan sú I
bæjarmálapólitikinni i Hafnar-
firði, aö óháðir borgarar og
Sjálfstæðisflokkurinn hafa farið
með stjórn bæjarmálanna
siðustu átta ár og væru bæjar-
búar almennt orönir þreyttir á
ráðslagi þessara tveggja flokka,
eöa öllu heldur einræöi foringja
þessara flokka, sem öllu vilja
stjórna. „Hafnfirðingar vilja
breytta stjórn á bænum — betri
stjórn. beir vilja breytingu. Og
ef það á að takast að breyta þá
er eini valkosturinn Alþýðu-
flokkurinn, þvi Framsóknog Al-
þýðubandalagið eru i mikilli
lægð i bænum og litið talað um
þá flokka.”
„bað er sama hvort talað er
viðsamherja eöa mótherja.lang
flestir spá Alþýðuflokknum
talsverðri fylgisaukningu,”
sagði Hörður Zóphaniasson.
„Flokkurinn hefur sterka mál-
efnalega stöðu. Lagt fram
markvissa stefnu,og auk þess er
listi flokksins samhentur og
sterkur. Alþýðuflokkurinn, einn
flokka, viöhafði prófkjör um
skipan framboðslista. í þvi
prófkjöri tóku þdtt850 manns, á
meðan hinir flokkamir I bænum
létu 10-30 manna klikur fara
með sfn framboösmál. betta er
talandi dæmi um ólik vinnu-
brögð jafnaðarmanna og hinna
flokkanna. Og þetta vita bæjar-
búar og kjósa samkvæmt þvi.”
Hörður sagði aö listi jafnaðar-
manna væri mjög vel skipaöur.
1 ööru sæti er ungur maöur,
Guðmundur Arni Stefánsson.
Hann er eini frambjóðandinn i
Firðinum undir þritugu, sem er
iöruggu sæti til bæjarstjórnar. 1
þriðja sæti listans er siðan
Bragi Guðmundsson læknir,
sem allir Hafnfirðingar þekkja
aðgóöueinu.Traustur maöur og
vel látinn alls staðar. 1 fjórða
sætinu er síöan ung og fram-
bærileg kona, Jóna Ósk
Guðjónsdóttir, sem væri verð-
ugur fulltrúi kvenna i bæjar-
stjórn.”
bað er mitt mat, óháð ósk-
hyggju, aö Alþýðuflokkurinn I
Hafnarfiröi komi sterkur út I
þessum kosningum. bað hefur
verið vel unnið i kosningabar-
áttunni,bæjarbúar hafa kunnað
að meta málflutning okkar og
frambjóðendur, svo allar
aðstæður renna stoðum undir þá
skoðun mina, aö Alþýðuflokkur-
inn vinni mann til viðbótar i
þessum kosningum og að við
fáum þarmeð þrjá menn kjörna.
Við erum meira að segja svo
bjartsýn, aðviðsegjum jafnvel,
„ef ekki þrjá menn kjörna, þá
fjóra, það er miklu betra.” Ég
vil hvetja alla stuöningsmenn
Alþýðuflokksins til að vinna vel
á kjördag, hafa samband við
vini og kunningja og láta ekki
deigan siga fyrr en kj«*stöðum
hefur verið lokaö. Nú er byr,
notum hann velog gerum sigur-
inn sem glæsilegastan,” sagði
Hörður Zóphaniasson að lokum.