Alþýðublaðið - 19.08.1982, Side 2
2
Fimmtudagur 19. ágúst 1982
—■—RITSTJÖRNARGREIN-------------------------
Bakreikningar frá búskussum
Það er íhugunaref ni, segir
Kjartan Jóhannsson í nýlegri blaðagrein,
hve miklu betur þjóðin væri nú á vegi stödd,
ef fylgt hefði verið stefnumörkun Alþýðu-
flokksins á undanförnum árum. Aðsteðj-
andi vandi í þjóðarbúskapnum er aðeins að
litlu leyti ytri áföllum að kenna. Hann er að
langmestu leyti bein afleiðing rangrar
stjórnarstefnu og fyrirhyggjuleysis. Af-
rakstri góðærisins s.l. tvö ár hefur verið
eytt. Stofnað hefur verið til óhóflegra
skulda erlendis. Allt of stórum hluta er-
lends lánsfjár hefur 'verið varið á óarð-
bæran hátt. Það hefur farið í að standa
straum af skriðu f iskiskipainnf lutnings og í
óhóflegar útflutningsbætur vegna offram-
leiðslu landbúnaðarafurða. Þar á ofan hafa
verið tekin hrein eyðslulán erlendis til þess
að standa undir hallarekstri, í einhverju
mesta góðæri, sem yf ir landið hef ur gengið.
Þannig hef ur ríkisstjórnin gengið ótæpilega
á auðlindir sjávar og eytt f iskistofnum sem
framtíð þjóðarinnar á að byggjast á.
Svokallaðar efnahagsráðstafanir, sem
ríkisstjórn Alþýðubandalags, Framsóknar
og Sjálfstæðismanna er ríú að berja saman,
eru fyrst og tremst reikningur hennar til
þjóðárinnar fyrir afleiðingum óstjórnar
undanfarinna ára, segir Kjartan.
Kjartan nefnir f jögur dæmi um það, hve
miklu betur þjóðin væri nú á vegi stödd, ef
fylgt hefði verið stefnu Alþýðuf lokksins.
Dæmi eitt: Ríkisstjórnirt hefur heimilað
viðbót við skipastólinn með innflutningi,
a.m.k. 7000 tonn, og 20-25 f iskiskip umf ram
það, sem verið hefði, ef fylgt hefði verið
þeirri ste'fnu sem Alþýðuflokkurinn mótaði
í ríkisstjórn og hef ur tvívegis siðan f lutt til-
lögur um á þingi. Þessi aukning skipastóls-
ins hefur haft í för með sér 17% afkomu-
rýrnun sjómanna og útgerðar á togaraflot-
anum. Nú er útgerðin á hausnum og tapið á
togaraflotanum er nánast metið á þessa
prósentutölu.
Dæmi tvö: f feb. 1980 flutti Alþýðu-
flokkurinn lagafrumvarp um niðurtalningu
útf lutningsbóta. Allir hinir stjórnmála-
flokkarnir greiddu atkvæði gegn því. Ef
það hefði verið samþykkt fyrir hálfu öðru
ári, hefði landbúnaðurinn þegar lagað sig
að nýjum aðstæðum. Þá hefðu útflutnings-
bætur horf ið á fyrsta ári, en bændur fengið
styrki á undanförnum árum til að laga sig
að breyttum aðstæðum.
Dæmi þrjú: Alþýðuflokkurinn lagði það
fram sem stefnumark 1979, að erlendar
lántökur takmörkuðust við að greiðslu-
byrði af þeim færi ekki yfir 15%. Þetta
töldu Alþýðubandalagsmenn goðgá. I um-
ræðum um lánsfjárlög á s.l. vori hélt
Kjartan Jóhannsson því fram, að lántöku-
áform ríkisstjórnarinnar væru um 1000
milljónum of há. Greiðslubyrði yrði of
mikil og hætta á að vaxandi viðskiptahalli
festi stjórnvöld í vítahring erlendra skulda.
Ragnar Arnalds lýsti viðvörunarorðum
Kjartans þá sem svartagallsrausi. Nú veit
hann betur. Ríkisstjórnin kennir vöxtum af
erlendum lánum um hluta viðskipahallans.
Rikisstjórninni var f ullkunnugt um ríkjandi
vaxtastig, þegar hún ákvað að stórauka
lántökur.
Dæmi fjögur: Ef raunvaxta- og verð-
tryggingarstefnu Alþýðuflokksins hefði
verið fylgt í reynd, en hún ekki afskræmd,
væri hér innlendur sparnaður en ekki f jár-
f lótti í innkaup erlendis f rá með tilheyrandi
viðskiptahalla. Ef tillögur Alþýðuflokks í
des. 1980 um bætt kjör ibúðarbyggjenda,
ibúðarkaupenda og sparif járeigenda hefðu
náð f ram að ganga, þá byggi ungt fólk við
sæmilegar aðstæður til ibúðakaupa og við
hefðum haft innlent fé í arðbærar fram-
kvæmdir í stað þess að auka erlendar
skuldir um 40%, eins og núv. ríkisstjórn
hefur gert.
Allt ber þetta að sama brunni. Ef tillögur
Alþýðuflokksins hefðu náð fram að ganga
væri ekki við núverandi vanda að etja.
Ástandið nú er fyrst og fremst afleiðing
rangrar stjórnarstefnu, segir formaður Al-
þýðuf lokksins.
— J BH
Blekkir Haukdal forseta íslands?
" Flogið hefur fyrir, að Eggert Haukdal
alþm. hugsi sér að biða með það f ram yf ir
setningu væntanlegra bráðabirgðalaga að
gera kjósendum sinum og þjóðinni grein
fyrirafstöðu sinni til ríkisstjórnarinnar. Er
sagt, að þá ætli hann að opinbera ef ni bréfs
síns frá í sumar, til forsætisráðherra, og til-
kynna, að stuðningi við ríkisstjórnina sé
lokið og liðsinnis hans sé ekki að vænta við
bráðabirgðalögin. Sjálfur hefur Eggert
gefið í skyn í viðtali við Alþýðublaðið, að
nákvæmlega þetta sé ætlun hans.
Sé svo þá ber þessi þingmaður, Eggert
Haukdal, öðrum fremur ábyrgð á væntan-
legum bráðabirgðalögum þótt eftir á segist
hann vera þeim andvígur. Þá ábyrgð tekst
þingmaðurinn á herðar með því að fresta
fram yfir bráðabirgðalagasetninguna að
skýra frá andstöðu sinni við rikisstjórnina
þannig að t.d. forseta fslands sé andstaða
hans ekki kunn fyrr en forseti hefur undir-
ritað bráðabirgðalögin. Vilji þingmaðurinn
ekki teljast öðrum fremur ábyrgur fyrir
væntanlegum bráðabirgðalögum ber hon-
um a.m.k. að láta forseta Islands vita um
breytta afstöðu sína til ríkisstjórnarinnar,
áður en af bráðabirgðalagasetningunni
verðunþótt svo þingmaðurinn kunni af ein-
hverjum ástæðum að vilja leyna kjósendur
sína og þjóðina sinnaskiptunum eitthvað
lengur. Það er óafsakanlegt framferði
þingmannsins gagnvart forseta Islands ef
hann biður með að greina f rá andstöðu sinni
þangaðtil bráðabirgðalög hafa verið gefin
út, því þá á þingmaðurinn hlut að því að
blekkja forseta, auk þess sem hann með
slikri framkomu gerist ábyrgur fyrir
bráðabirgðalögum, sem styðjast ekki við
þingmeirihluta og ganga gegn þingræðinu i
landinu.
Hitt er svo annað mál hvort vitneskja um
andstöðu Eggerts Haukdal myndi nægja til
þess, að forsætisráðherra léti ekki af því
verða að kref jast staðfestingar forseta ís-
lands á bráðabirgðalögum, sem ekki styðj-
ast við þingmeirihluta. Forsætisráðherra er
trúandi til alls— jaf nvel þess að beita valdi
í trássi við þingvilja. En undarlega öfug-
snúin eru þjóðmálin á íslandi ef svo á að
fara, að formaður stjórnarskárnefndar
beiti valdi sínu sem forsætisráðherra til
þess að brjóta gegn þingræði með því að
setja lög, sem vitað er að löggjafarsam-
koman muni fella.
Pálmi 1
hluta á þingi þegar til atkvæöa-
greiðslu um efnahagsaðgeröir
rikisstjórnarinnar kemur?
„Við munum fyrst leggja tillög-
urnarfram áöuren hægt er að sjá
hvert íylgi þær la, en það kemur i
ljós þegar aö þvi kemur ”, sagði
Páimi.
En er þaö ekki til siös að stjórn-
in kanni fyrst íylgi sitt og riði
siðan á vaöið meö tillögur og
aðrar aðgerðir?
„Þið skuluð ekki hala neinar
áhyggjur af þvi þarna á Alþýöu-
blaðinu hvort stjórnin hefur
kannað þau mál eöa ekki". Varð-
andi þaö hvort hann teldi umsögn
Eggerts Haukdal um að stjórnin
mundi ekki geta laíað út kjör-
timabilið, vera yíirlýsingu Egg-
erts um að hann mundi ekki
styðja tillögurnar,sagöist Pálmi
ekkert geta sagt, hann ætlaöi sér
ekki aö vera meö ótimabæra spá-
mennsku. Hann sagöi aö lokum
að þaö kæmi i ljós á allra næstu
dögum hvort samkomulag næöist
innan stjórnarinnar og þá hvort
hún sæti áfram.
Flugstöð 1
er slikur aö niöurlægjandi
verður að teljast, ekki einungis
gagnvart okkur sem starfsíólki,
heldureinnig fyrir þær þúsundir
islendinga, sem um stöðina
fara.
Þá er það skoðun okkar að að-
skilnaður herflugs og farþega-
flugs sé nauðsynlegur og i raun
sjálfsagður þáttur i reisn is-
lensku þjóðarinnar.
Friðjón 1
rikisstjórnarfundur siödegis i
dag (i gær) og þá mundu mál
vafalaust skýrast.
Ekki vildi Friöjón gefa neitt
út á umsögn Eggerts Haukdal
þar sem haf t er eftir þeim siðar-
nefnda i D&V i gær að hann teldi
að rikisstjórninni tækist ekki að
sitja út kjörtimabilið og að
stjórnir lifi lengi á verkum
sinum ef þau sru góð en skemur
ef þau eru það ekki.
Guðmundur 4
þegar hann lundar með verka-
lýðnum, en greiða bráðabirgða-
lögunum atkvæði sitt, þegar
hann er sestur i þingstólinn?
Og það er íróðleg spurning,
sem þegar þarf aö fá svar við:
Hefur Alþýðubandalagið tryggt
sér stuðning Guömundar J. við
fyrirhugaðar aðgerðir i efna-
hagsmálum, eða er gengið út
frá þvi að Guðmundur rétti upp
liöndina, þegar þaö á við, eins
og hingað til?
„Samningana i gildi” sagði
verkalýðshreyíingin, ásamt
Alþýðubandalagi og Alþýðu-
flokki, þegar Geirsstjórnin
réðst að kjörum fólksins i
landinu. Hvað segja foringjar
Alþýðubandalagsins nú, þegar
Geirsleiöir eru farnar á nýjan
leik? Hvaö segir verkalýðs-
armur Alþýðubandalagsins?
Fólkið i landinu biður eftir
svörum.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Nokkrir nemendur
verða teknir í póstnám nú i haust
Umsækjendur skulu hafa lokið grunn-
skólaprófi eða hliðstæðu prófi og er þá
námstiminn tvö ár, Hafi umsækjendur
lokið verslunarprófi, stúdentsprófi eða
hafi hliðstæða menntun er námstiminn
eitt ár.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá
dyraverði Póst- og simahússins við
Austurvöll og póst- og simastöðvum utan
Reykjavikur.
Umsóknir ásamt heilbrigðisvottorði,
sakavottorði og prófskirteini eða staðfestu
afriti af þvi, skulu berast fyrir 3. septem-
ber 1982.
Nánari upplýsingar veittar i sima 26000.
Tæknifræðingar
Hafnamálastofnun rikisins vill ráða
tæknifræðing til mælingastarfa frá 15.
september.
Skriflegum umsóknum þar sem gerð er
grein fyrir menntun og starfsferli, sé
skilað til Hafnamálastofnunar rikisins
fyrir 25. ágúst.