Alþýðublaðið - 19.08.1982, Page 3
Fimmtudagur 19. ágúst 1982
3
Alþýðubandalagsmenn með kröfur sem þeir áður daufheyrðust við:
„FORSENDURNAR
BREYST TIL MUNA”
— segir Ólafur R. Grimsson alþingismaður
alþingismaður
í tillögum Alþýðubandalags-
manna um væntanlegar efna-
hagsaðgerðir kennir margra
grasa og þykir Alþýðuflokks-
mönnum helst furðu sæta, að
þeir séu nú með ýmsar kröfur
sem þeir lögðustgegn eða sýndu
litinn áhuga þegar þessir sömu
menn voru i stjórn með krötum
fyrir örfáum árum.
Þannig eru þeir nú með kröfur
um skerðingu eða afnám út-
flutningsbóta á landbúnaðar-
afurðir, lengingu lánstima fyrir
húsbyggjendur, stöðvun á frek-
ari innflutningi fiskiskipa og
skipulagsbreytingar á rikisgeir-
anum en þetta eru allt málefni
sem Alþýðuflokkurinn hefur
barist fyrir á undanförnum
árum. Alþýðublaðið hafði sam-
band við Ólaf R. Grimsson og
spurði hann hvers vegna þeir
Alþýðubandalagsmenn hefðu
ekki tekið undir þessar hug-
myndir þegar A-flokkarnir voru
saman i stjórn.
„Það hefur nú ýmislegt gerst
siðan, ýmsar forsendur hafa
breyst, enda 3 ár siðan þessir
flokkar voru saman i stjórn.
Vandi landbúnaðarins hefur
aukist til muna, markaðs-
brestur i Noregi með meiru. Við
viljum minnka útflutningsbæt-
urnar i áföngum, en ekki endi-
lega afnema þær með öllu.
Nýjar forsendur eru einnig fyrir
hendi hvað sjávarútveginn
varðar, skipastóllinn hefur
stækkað mikið siðan og afla-
brestur hefur orðið. Skilyrðin
hafa breyst mjög og þvi flytjum
við þessar tillögur nú.
Nú,við urðum ekki varir viö
miklar kröfur Alþýöuflokks-
manna um skipulagsbreytingar
á rikisgeiranum, enda virtust
þeir hafa misst allan áhuga á
þvi þegar Sighvatur Björgvins-
son komst i stól i Framkvæmda-'
stofnuninni,a.m.k. hvaö varðar
að leggja þá stofnun niöur i þvi
formi sem hún er nú. Enn
fremur hef ég aldrei rekist á
vilja hjá þeim til að stytta ráðn-
ingartima ýmissa embættis-
manna. Hvað varðar lengingu
lánstima húsbyggjenda tel ég að
slagurinn hafi oft verið við Al-
þýðuflokksmenn um það atriði,
fremur en hitt. En það er ágætt
að heyra þessa jákvæðu afstöðu
þeirra nú og ég vonast til að þeir
styðji þessi atriði þegar þau
koma fram”, sagði Ólafur
Ragnar.
Fullkomnasta rannsóknaskip Sovétmanna
rannsakar hafsbotn Reykj aneshryggsins
Við Reykjavlkurhöfn liggur
um þessar mundir sovéska
skipiö „Akademisk Mstislav
Keldysh”, sem er þeirra full-
komnasta ’ hafrannsóknaskip.
Það er smíðað i Finniandi og um
borð eru sérsmiöaöir kanda-
diskir kafbátar, Pisces VII og
XI, en þeir geta kafað með þrjá
menn allt niður á 2000 metra
dýpi.
A skipinu er 130 manna
áhöfn og mun helmingur hennar
vera visindamenn, en skipið er
hingað komið úr leiðangri þar
sem kannaður var suðurhluti
Reykjaneshryggsins. Þetta er
fjórðileiðangur skipsins og hafa
tekið þátt i rannsóknunum vis-
indamenn hvaðanæva úr heim-
inum.
Skipið er mjög nýtiskulegt og
búið fjölmörgum sérhæfðum
tækjum til rannsókna á eðlis-
fræði, efnafræði, jarðeðlisfræði,
jarðfræði og liffræði hafsins.
Burðargeta þess er um 5500
tonn, það er 122 metrar að lengd
og skipið getur siglt um 20 þús-
und milur án þess að fara i höfn.
Um borð er mjög afkastamik-
ið tölvukerfi, ho’.lenskt P-800 frá
Philips, en aðaltalvan er tengd 7
rannsóknastofum. Sérstök
„skiptiskrúfa” gerir stjórnun
skipsins auðvelda og enn önnur
tækni gerir kleift að snúa þvi 360
gráður á staðnum, auk þess að
halda þvi á sarna stað þrátt fyr-
ir mikið hvassviðri.
Meðal þess sem kom fram við
kynningu Sovétmannanna var
að þetta svæði telst jarðfræði-
lega mjög ungt og að dýralif
væri nokkuð fátæklegt. Taldi yf-
irmaður leiðangursins að þessi
ferð ætti eftir að leiða margt
fróðlegt i ljós um sprungusvæði
hafsbotnsins.
Diplómatískt jafntefli í
skákkeppni íslenskra og
hollenskra þingmanna
Þá er skákkeppninni milli
islenskra og hollenskra þing-
manna lokið. Tefldar voru 3
umferðir og voru keppendur
þrír frá hvorri þjóð. t fyrstu
umferö unnu islensku þing-
mennirnir 2:1, i annarri um-
ferð unnu Hollendingarnir 0:3
en i hinni siðustu, sem tefld
var i gær, varð jafntefli á öll-
um borðum þannig að leikar
fóru samtals 3.5:5.5 fyrir Hol-
lendingana.
Hins er að gæta að þessi
keppni var eins konar seinni
umferð, þvi áður höfðu is-
lenskir þingmenn keppt við
kollega sina i Hollandi og þá
fóru leikar þannig að Islend-
ingarnir unnu 6:4 svo samtals
varð jafntefli þar eð báðir
hlutu 9.5 stig. Mjög diplóma-
tisk úrslit það.
Eftir keppnina sýndu þing-
mennirnir Vilmundur Gylfa-
son og Halldór Blöndal
Hollendingunum aðstöðu
þeirra á Alþingi og urðu
miklar umræður um mismun-
inn á löggjafarvaldinu i lönd-
unum tveim, þriskiptingu
valdsins, þjóðaratkvæða-
greiðslur og fleira. Hollensku
þingmennirnir hverfa nú til
sins heimalands, enda eru hjá
þeim kosningar á næsta leiti.
Hreppsnefnd Hvalfjarðarstrandarhrepps:
Vill áframhaldandi
hvalveiðar
Hreppsnefnd Hvalfjarðar-
strandarhrepps skorar á rikis-
stjórnina að mótmæla sam-
þykkt alþjóðahvalveiðiráðsins
um bann við hvalveiðum frá og
með árinu 1986.
Hreppsnefndin telur, að
þjóðir, sem engra hagsmuna
hafa að gæta, eigi ekki að hafa
ákvörðunarvald um
það, hvernig Islendingar nýta
auðlindir sinar.
Hreppsnefndin bendir á, að
hér er um gifurlega hagsmuni
að ræða, ekki aðeins fyrir Hval-
fjarðarstrandarhrepp, heldur
einnig fyrir nærliggjandi
sveitarfélög og þjóðarbúiö i
heild, enda eru hvalafurðir 1,3%
af útflutningstekjum þjóöar-
innar.
Þá minnir hreppsnefndin á,
að Hvalstöðin i Hvalfirði hefur
verið rekin i 35 ár og ekkert
bendir til, að hvalastofninri sé
að ganga til þurrðar, eða að
honum sé ógnað með ofveiði.
Droplaug
arstaðir
opnaðir
formlega
Droplaugarstaðir heitir nýtt
dvalarheimili aldraðra hér i
Iteykjavik sem formlega var
tekið i notkun i gærdag. Drop-
laugarstaðir standa viö Baróns-
stig.
Við hina formlegu opnun hélt
Sigurður Guðmundsson,borgar-
fulltrúi Alþýöuflokksins, ræðu,
en hann hefur verið lormaður
byggingarnefndar Droplaugar-
staða.
Einnig l'lutti Davið Oddsson
borgarstjóri ávarp.
Þvi má bæta viö, aö uppbygg-
ing þessa dvalarheimilis fór
fram i tið fyrrverandi meiri-
hluta borgarstjórnar-vinstri-
meirihlutans-þótt ihaldsmeiri-
hluti sé nú viö völd i borginni
þegar hin lormlega opnun fer
fram.
Auglýsið
í
Alþýðu-
blaðinu
Fundarboð
Aðalfundur Sjóefnavinnslunnár hf. verður
haldinn i Félagsheimilinu Festi, Grinda-
vik, laugardaginn 4. september og hefst
kl. 14.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Aukning hlutafjár.
Stjórnin
Útboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir til-
boðum i eftirfarandi:
RARIK—82035. 132KV SUÐURLÍNA,
niðurrekstur á staurum.
Verkið felst i niðurrekstri á tréstaurum á
svæði frá Hornafirði til Prestbakka. Verk-
svið eru i Hornafjarðarfljóti, Skeiðará,
Núpsvötnum, Gigjukvisl og viðar. Fjöldi
tréstaura er 345 stk.
Opnunardagur: mánudagur 13. septem-
ber 1982 kl. 14:00
Tilboðum skal skila á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik fyrir opnunartima, og verða
þau opnuð að viðstöddum þeim bjóð-
endum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik, frá og með fimmtudegi 19.
ágúst 1982 og kosta kr 300,- hvert eintak.
Reykjavik,17. ágúst 1982
Rafmagnsveitur rikisins
Lögtaksúrskurður
Keflavík, Grindavík, Njarðvik
og Gullbringusýsla
Það úrskurðast hér með, að lögtök geta
farið fram íyrir vangoldnum þinggjöldum
skv. þinggjaldsseðli 1982, er féllu i eindaga
hinn 15. þessa mánaðar og eftirtöldum
gjöldum álögðum árið 1982 i Keflavik,
Grindavik, Njarðvik og Gullbringusýslu.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eigna-
skattur, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald,
slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
iðnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðar-
málagjald, slysatryggingargjald atvinnu-
rekanda skv. 36. gr. laga nr. 67/1971 um
almannatryggingar, lifeyristryggingar-
gjald skv. 25. gr. sömu laga, atvinnu-
leysistryggingargjald, launaskattur,
skipaskoðunargjald, lesta- og vitagjald,
bifreiðaskattur, slysatryggingargjald
ökumanna, vélaeftirlitsgjald,
skemmtanaskattur og miðagjald, vöru-
gjald, gjöld af innlendum tollvöruteg-
undum, matvælaeftirlitsgjald, gjald til
styrktarsjóðs fatlaðra, aðflutnings- og út-
flutningsgjöld, skráningargjöld skips-
hafna, skipulagsgjald af nýbyggingum,
gjaldföllnum en ógreiddum söluskatti árs-
ins 1982 svo og nýálögðum hækkunum
söluskatts vegna fyrri ára, allt ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði. Ennfremur
nær úrskurðurinn til skattsekta, sem
ákveðnar hafa verið til rikissjóðs.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum,
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða
látin fara fram að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar verði þau
eigi að fullu greidd innan þess tima.
Keflavik 16. ágúst 1982
Bæjarfógetinn i Keflavik, Grindavik og
Njarðvik. Sýslumaðurinn i Gullbringu-
sýslu.
\