Alþýðublaðið - 18.09.1982, Side 1
alþyðu
blaöiö
Wn
i
Laugardagur 18. september 1982
139. tbl. 63. árg.
„An ills gengis, „Það verður að setja
nema heiman hafi....” ríkisstjórninni stólinn
fyrir dyrnar....”
Sjá leiðara bls. 1 Sjá bls. 4
Borgarstjórn samþykkti landsvirkjunarsamninginn:
„Samningurinn mun sameina þjóðina
um eitt brýnasta hagsmunamál sitt”
E. Guðmundsson borgarfulltrúi
- segir Sigurður
Borgarstjórn samþykkti á
fundi sínum í fyrrakvöld
Landsvirkjunarsamninginn nýja
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða. Með samningnuin
greiddu atkvæði allir borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
nema Albert Guðmundsson, full-
trúar Framsóknarflokks, Alþýð-
ubandalags og Alþýðuflokksins.
Sigurður E. Guðmundsson,
borgarfulltúi sagði í gær í samtali
við Alþýðublaðið, að samþykkt
þessa samnings hefði ótvíræða
kosti fyrir borgarbúa.
„Alþýðuflokkurinn er með-
mæltur þessum samningi. Flokks
þing; hans hefur samþykkt stefn-
umótun í þessa átt fyrir mörgum
árum síðan og þingkjörinn full-
trúi flokksins í stjórn Landsvirkj-
unar hefur stutt eindregið þá
samningsgerð, sem er undanfari
þessa samnings. Borgarmálaráð
flokksins hefur einnig samþykkt
samninginn . einróma og við al-
þýðuflokksmenn teljum kosti
þessa samkomulags yfirgnæf
andi á móti göllum þess.
Og hverjir eru að þínu mati
þessir kostir?
Rekstraröryggi raforkuvinnslu
í þágu Reykvíkinga vex stórlega.
Starfsgrundvöllur hinnar nýju
Landsvirkjunar verður landið allt
og þar með býr hún við margfalt
öryggi miðað við það sern nú er.
Með aðild sinni tryggir borgin
íhlutunarrétt sinn í hinni nýju
Landsvirkjun um nýjar virkjanir,
hvar þær verða reistar og í hvaða
röð. Þetta atriði hefur geysilega
rnikið gildi. - Loks er á það að
líta, að hin nýja Landsvirkjun
mun sameina þjóðina um eitt
brýnasta hagsmunamái sitt -ork-
uöflun og orkusölu. Einnig það
er mjög mikilvægt atriði.
Framhald á bls. 3
Vinnueftirlitsreglur brotnar á Alþingi:
Símastúlka Alþingis kvartar
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins
á Vestfjörðum:
„Vona að fundurinn
verði vel sóttur”
- segir Kristján
Að undanförnu hafa staðið yfir
töluverðar lagfæringar og
breytingar í Alþingishúsinu. Þar
er m.a. verið að koma upp nýju
loftræstikerfi. Hefur þessum
framkvæmdum öllum fylgt nokk-
ur óþægindi fyrir starfsfólk húss-
ins og í fyrradag sá símastúlka
Alþingis sig tilneydda til að senda
eftir manni frá eftirlitsdeild Vinn-
ueftirlitsins, þar sem henni fannst
með öllu ómögulegt að sinna sín-
um störfum þar eð framkvæmd-
um fylgdu ryk og hávaði í svo
miklum mæli að ekki var við un-
að. Einn daginn mun ástandið
hafa verið svo slæmt að síma-
stúlkan þurfti að hafa hjálm á
höfði þar sem hrynja tók úr loft-
inu yfir hana!
Eftirlitsmaður frá Vinnueftir-
litinu fór á staðinn í fyrradag og
bar mönnum saman um að öllu
betur hefði mátt ganga að verk-
um og í raun væri það gegn regl-
um Vinnueftirlitsins að bjóða
starfsfólkinu upp á svona aðstæð-
ur. Ekki hefur Alþingi verið for-
mlega kært, en samkvæmt upplýs
ingum hjá eftirlitsdeildinni hef-
ur þó oft verið kært af minnatil-
efni. Eftirlitsmaðurinn mun hafa
talað við Ólaf Ólafsson fulltrúa
skrifstofustjóra og mun niður-
staðan hafa orðið sú að þar sem
framkvæmdunum mun sennilega
ljúka nú um helgina yrði senni-
lega ekkert gert í málinu. Þó mun
eftirlitsmaðurinn líta inn eftir
helgi til að kanna hvort þá verði
allt komið í Iag.
Að sögn Ólafs Ólafssonar
sköpuðust þessi óþægindi í tvo
eða þrjá daga meðan verið var að
setja upp loftræstikerfið og í
þessu tilfelli sé því eiginlega
kvartað yfir því sem verið væri að
lagfæra. Öllum þessum fram-
kvæmdum fylgdu óþægindi sem
ekki væri hægt að komast hjá, þó
að sjálfsögðu mætti alltaf gera
betur.
Aðalfundur Kjördæntisráðs
Alþýðuflokksins í yestfjarða-
kj ördæmi hetst i dag á ísatirði. Al~
þíðublaðið innti Kristján Jónas-
son, formann kjördæmisráðsins,
eftir því hver yrðu aðalmál, fund-
arins að þessu sinni.
„Aðalmálin til untræðu verða
að sjálfsögðu stjórnmálaviðhorf-
ið, væntanlegar þingkosningar og
síðan prófkjörsmálin. Framsögu-
menn verða þingmenn kjördæm-
isins,, þeir Sighvatur Björgvins-
son og Karvel Pálmason og þeir
munu reifa stjórnmálaviðhorfið
og kjördæmamálið eins og það
horfir við nú um þessar mundir.
Síðan er gert ráð fyrir að próf-
kjörsntálin beri á góma og ákvarð-
anir verði teknar í þeim
málum".'
Gerið þið ráð fyrir að halda
prófkjör í fjórðungnum nú í haust
eða síðar?
Það er dálítið erfitt að svara
þessari spurningu nákvæmlega á
þessari stundu. Þetta veltur mik-
ið á því hvort þingkosningar
verða snemrna næsta sumar eða
næsta haust. Um þetta verða ef-
laust umræður á fundinum. En ég
vil segja það sem mína skoðun,
að ef líkur eru á kosningum að
vori þá virðist það skynsamlegt
að hafa prófkjör ekki síðar en nú
á haustdögum eða í byrjun
vetrar. Það er nauðsynlegt að
vera ekki með prófkjör nálægt
kosningunum þannig að kosning-
astarfið og prófkjörsvinnan fari
ekki saman. Mun betra er að fólk
fái tíma eftir prófkjör til að safna
kröftum fyrir kosningaslaginn
sjálfan. En menn ræða þetta
sjálfsagt á fundinum, þ.e. hvenær
og hvernig eigi að standa að próf-
kjörinu.
Jónasson
Og þið búist við góðri þátt-
töku?
Já, við búumst við góðri þátt-
töku. Því getur ekkert breytt
nema veðrið, en það hefur ekki
verið sem best upp á síðkastið.
Flér er eiginlega vetur genginn í
garð, snjór niður í miðjar hlíðar
og heiðar lokaðar.Ég býst við því
að Patreksfirðingarnir komi flug-
leiðis. Bolvíkingar verða að
koma sjóleiðina þar sem Óshlíðin
er lokuð vegna vegafram-
kvæmda. Frá hinum stöðunum
nær okkur koma menn með bíl-
um. Jú, éggeri ráð fyrir þ ví aðhér
verði góð fundarsókn, allt að
fjörutíu manns. Það er auðvitað
miklu betra að fundir sem þessir
séu fjölmennir; þá eru fleiri um
ákvarðanir og minni hætta á að
þær verði gagnrýndar eftir á.
Vonandi setur veðrið ekki strik í
reikninginn”.
Kristján Jónasson
— RITSTJÓRN ARGREIN-----------------------
Hreinskilin umræða eða baktjaldamakk
Hreinskilin, opin og gagnrýnin
umræða innan íslenskra stjórn-
málaflokka um stefnu þeirra,
störf og skipulag, hefur verið
mjög af skornum skammti í gegn-
um árin. íslenskir stjórnmála-
flokkar hafa flestir hverjir verið
lokaðar stofnanir, þar sem deilur
og innanflokksvandamál hafa
verið vandlegafalin. Undantekn-
ing frá þessu er Alþýðuflokkur-
inn. Alþýðuflokkurinn - þá
einkanlega á síðari árum - hefur
hafnað þessari einangrunar-
stefnu - þessum feluleik - og rætt
sín mál fyrir opnum tjöldum.
Fjölmiðlun í landinu er nú orð-
ið ekki eins reyrð í flokksbönd og
gerðist hér á árum áður. Sömu-
leiðishefur upplýsingastreymi frá
opinberum aðilum aukist til
muna, þá sérstaklega vegna
aukins þrýstings frá aðgangshörð
um fjölmilum. Allt er þetta af
hinu góða, enda eðlilegt að fólk t
landinu fái sem nákvæmastar
uþplýsingar um gang mála á hin-
uin ýmsu sviðum þjóðlífs.
Þrátt fyrir þetta eru þrír af fjór-
um íslenskum stjórnmálaflokk-
um ennþá við sama heygarðs-
hornið. Sellu- og klíkufundir eru
haldnir og þar má ekkert leka út.
Og þar eru stóru ákvarðanirnar
teknar. Deilur innan flokkanna
eru þaggaðar niður með offorsi.
Alþýðubandalagið er þó sýnu
verst í þessu sambandi. Þar er
flokksskipulagið í stíl stóra bróð-
ur í Moskvu. Enda þótt Alþýðu
bandalagið hafi á síðari árum
breyst í sósíaldemókratíska átt og
hafnað í orði kveðnu komm-
únismanum í austri, þá er þó enn-
þá sitthvað skylt með Kremlar-
herrum og valdaklíku Alþýðu-
bandalags. Hreinskilin umræða
um stöðu og störf Alþýðubanda-
lagsins fer aldrei fram fyrir opn-
um tjöldum. í slíkri umræðu - þá
sjaldan sem hún fer fram - eru
þátttakendtrr vandlega valdir.
Þar fá aðems fáeinir útvaldir
fundarboð. Það er síðan þessi
„elíta”, sem kemst að niðurstöðu
og þar á eftir er aknennu-wi
flokksmönnum tilkynnt hin eina
sanna lína.
A svipaðan hátt eru þessu farið
í Framsóknarflokknum. Þar á bæ
eru öll opin skoðanaskipti innan
flokks, um ágæti flokksins og
störf stranglega bönnuð.
Sjálfstæðisflokkurinn er í raun
nákvæmlega eins uppbyggður. Sá
flokkur er klofinn í að minnsta
kosti tvær fylkingar - Geirs og
Gunnarslið. Þessar fylkingar
deila mjög gjarnan hvor á aðra,
en að opnar og frjálslegar um-
ræður innan hvorrar fylkingar um
sig, eigi sér stað, það er af og frá.
Það er ta.m. á allra vitorði að
stjórnarandstæðingar í Sjálfstæð-
isflokknum eru margir hverjir
mjög óánægðir meðforystu flokks
ins. En engum dettur í hug að
slíkt megi ræða opinberlega. Út á
við á ásjónan að vera hrein og
tær, enda þótt hrikti í bakvið
tjöldin.
Engum dettur í hug, að í einum
stjórnmálaflokki séu allir aHtaf
sammála. Það er því broslegt
þegar stjórnmálaflokkar reyna
að fela slíkan ágreining.
Alþýðuflokkurinn hefur gjör-
breytt skipulagi sínu á síðustu
árum. Flokkurinn hefur verið
opnaður upp á gátt. En það er
ekki nægilegt að breyta skipu-
laginu einu. Framkvæmdin verð-
ur að fylgja á eftir. Alþýðuflokks-
menn hafa í samræmi við þessar
skoðanir sínar, ekki hikað við að
ræða hreinskilni veikleika flokks-
ins og vandamál. Þetta hafa
þeir gert opinberlega, m.a. í
Alþýðublaðinu. Alþýðu-
flokkurinn er ekkert einkamái
fárra forystumanna. Hann er
stjórnmálaflokkur sem byggir á
stuðningi þúsunda og aftur þús-
unda. Og þessar þúsundir eiga
rétt á því að fá að fylgjast ná-
kvæmlega með þeirri umræðu,
sem á sér stað innan flokksins.
f Alþýðublaðinu s.t. fimmtu-
dag og í dag er birt erindi Karvels
Pálmasonar atþingismanns, sem
hann flutti á ráðstefnu verkalýðs-
málanefndar Alþyðuflokksins
t*m síðustu helgi. Fjallaðiráð-
stefnan og erirrdi Karvels um
Alþýðuflokkinn og verkalýðs-
hreyfinguna. í máti sínu gagn-
rýndi Karvel umbúðafaust sitt-
hvað í starfi og stefnu flokksins.
Þetta gerði hann vafningslaust og
' benti jafnframt á leiðir til úrbóta.
Vafalaust eru ekki allir Alþýðu-
flokksmenn sammála skoðunum
Karvels í þessu sambandi, en það
skiptir ekki höfuðmáli. Miklar
umræður urðu um ýmislegt það
sem Karvel kom inn á á umræddri
ráðstefnu Alþýðuflokksmanna
og voru menn ekki á eitt sáttir.
Og þótt nefnd ráðstefna hafi
verið fjölmenn, þá þótti einnig
eðlilegt að sem flestir flokks-
menn gætu tekið þátt í umræð-
unni og því var erindi Karvels
Pálmasonar birt í Alþýðublað-
inu.
f öðrum sjórnmálaflokkum
færi umræða af þessu tagi aldrei
fram, hvað þá að sjálfsgagnrýni
af þessu tagi fengi pláss í mál-
gögnum flokkanna.
Til lengri tíma litið er það
óumdeilanlega styrkleiki Alþýðu
flokksins, að koma til dyranna
eins og hann er klæddur. Bak-
tjaldamnkk hinan flokkanna hitt-
ir þá sjálfa fyrir, þegar upp verð-
ur staðið. Alþýðuflokkurinn ger-
ir meira en tala um lýðraeði. vaid-
dreifingu og opna twwæðu. Hann
starfar f þeim anda. _ GÁS