Alþýðublaðið - 18.09.1982, Blaðsíða 4
alþýöu-
blaðió
Laugardagur 18. september 1982
Otgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Framkvæ’mdastjóri: Jóhannes Guðmundsson
Stjórnmálaritstjóri og ábm. Jón Baldvin Hannibalsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Guðmundur Arni Stefánsson.
Blaðamaður: Þráinn Hallgrfmsson.
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir.
(Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson.
Ritstjórn og auglýsingar eru aö Siöumúla 11, Reykjavik, simi 81866.
Áskriftarsíminn
er 81866
„Verður að setja ríkisstjórninni stólinn
fyrir dyrnar„
- Rætt við verkafólk hjá
Bæjarútgerð Reykjavíkur
Frá vinstri: Helga R. Kristjánsdóttir, Dóra Mjöll Stefánsdóttir,
Bryndís Axelsdóttir, Unnur S. Karldóttir, Mólfríður Sigurbjörns-
dóttir og Inga Sverrisdóttir.
„Mér finnst ríkisstjórnin alls
ckki hafa sýnt þá stjórnun sem
nauðsynleg er á sviði
sjávarútvegsins, aðalatvinnuvegs
þjóðarinnar sem fjöldi manns
byggir afkomu sína á“, sagði
Ólafur þorgeirsson, verkamaður
hjá BUR, þcgar blaðamaður
Alþýðublaðsins leit inn þar vestur
frá á fimmtudaginn að kynna sér
viðhorf starfsfólksins til stóru
mála dagsins: vanda útgcrðar-
innar, aðgerðir eða aðgerðarleysi
ríkisstjrórnarinnar og stöðvunar
fiskiskipaflotans.
Ólafur var staddur ásamt vinnu-
félögum sínum í matsal fyrir-
tækisins. Með honum voru þeir
Svavar Svavarsson, Halldór Pét-
ursson, Sturla Erlendsson, allt
verkstjórar og svo Einar Magnús-
son, verkamaður. Fljótlega urðu
umræðurnar líllegar.
„Ég veit ekki til þess að nokkur
lausn sé komin fram. En er ekki
annars alltaf veriö að gera
eitthvaö fyrir útgerðina? Með alls
konar peningatilfærslum og fyrir-
greiðslu? Kakan ereftirsem áður
sú sama, sami peningurinn. Það
er bara spurningin um hver vinn-
ur og hver tapar“sagðiSvavar og
þeir hinir tóku undir. Þeir töldu
að ríkisstjórnin hefði hjálpað út-
gerðinni að koma sér í þennan
vanda með því að leyfa offjölgun
fiskiskipa og að hún þyrfti sömu-
leiðis aö hjálpa hcnni út úr hon-
um aftur.
Útgerðin veiðir upp á
magn, en ekki gæði
„Það mætti gera á margan hátt
t.d. með því að stuðla að því að .
útgerðin fái meira greitt fyrir 1.
flokks fisk og urn leið að gera
greinarmun á góðum 1. flokks
fisk og svo lélegum 1. flokks fisk:,
en þar á milli er mikill munur.
Það er of mikil breydd innan
flokksins. Það þarf að stuðla að
því að sjómenn hafi áhuga á því
að koma inn með góðan fisk, en
staðreyndin er sú í dag, að
útgerðarmenn og sjómenn eru
búnir að reikna það út að það
borgar sig að veiða upp á magn en
ekki gæði“.
Talið barst að stöðvun
fiskiskipanna. Ólafi sýndist það
ætla að verða ansi dýrt fyrir íhald-
ið að koma Gunnari frá völdum,
þegar gripið er til svona aðgerða.
„Mér sýnist ástæðurnar fyrir
þessari stöðvun vera tvær sér-
staklega. Annars vegar höfum
við minnkandi fiskgengd, sem að
hluta til er vegna ja, mannlegra
mistaka, mistaka skulum við
segja, og svo hins vegar höfum
við reksturinn. Ef sjávarútvegur-
mn á að lúta leikreglum
viðskiptalífsins verða tekjur að
nægja fyrir útgjöldum.
Sjávarútvegurinn má ekki vera
rekinn eftir atvinnubóta-
sjónarmiðum. Það fer ekki
saman við minnkandi afla og sí-
harðnandi samkeppni á er-
Iendum mörkuðum með sölu sjá-
varafurða" sagði Ólafur. Sumum
fannst að þegar svona væri komið
væri alveg eins gott að ríkið eða
bæjarfélögin tækju útgerðina í
sínar hendur, fyrst útgerðar-
mennirnir gætu ekki rekið þetta
hjálparlaust.
„Það er auðvitað nauðsynlegt
meðan hlutirnir eru svona að
bæta rekstrargrundvöllinn, en
aðeins að ákveðnu sanngjörnu
marki. Ég held að það eigi hik-
laust að leyfa illa reknum
útgerðarfyrirtækjum að skolast
fyrir borð“ sagði Svavar og voru
þeir vinnufélagar nokkuð sam-
mála um það. „Ég er algjörlega
sammála Stéingrími í þeim efn-
um. Það verður að vera eðlilegur
rekstur í sjávarútveginum" sagði
Ólafur. „En það er ekki sarha
hvaða fyrirtæki það eru og ekki
sama í hvað opinbert framlag
ríkisins eða bæjarfélaganna fer“
sagði Halldór og bætti því við að
þegar opinberir aðilar legðu fjár-
magn í útgerðarfyrirtæki þá ætti
það að vera í atvinnu tækið
sjáiflt. Þeir vildu gera greinar -
m,un á rekstrarkostnaði: olíunni,
vöxtum og öðrum slíkum liðum
annars vegar og hins vegar
atvinnutækjunum sjálfum, skip-
unum. Þeim fannst landsbyggð-
asjónarmiðið orka tvímælis þegar
afleiðingarnar bitnuðu svona á
undirstöðunni sjálfri.
Ailaf beðið þar til í óefni
er komið
Blaðamanni fannst kominn
tími til að kynna sér viðhorf kven-
fólksins. Á næsta borði sátu þær
Helga R. Kristjánsdóttir. Dóra
Mjöll Stefánsdóttir, Bryndís Ax-
elsdóttir, Unnur S. Karlsdóttir,
Málhildur Sigurbjörnsdóttir og
Inga Sverrisdóttir. Málhildur er
trúnaðarmaður á staðnum og
hafði hún að mestu leyti orð fyrir
hópnum, en þær hinar tóku undir
flest allt sem hún hafði til mál-
anna að leggja.
„Það er nú svo með þessar
aðgerðir allar, ég get ekki séð að
þær þjóni nokkrum tilgangi.
Hvernig fór fyrir síðustu
kauphækkuninni? Var ekki búið
að rífa hana af okkur strax aftur?
Það sama er um sjómennina að
segja. Hvað stöðvunina varðar er
náttúrlega öruggt að það verður
að setja ríkisstjórninni stólinn
fyrir dyrnar á einhvern hátt, en
hvort þetta er rétta leiðin veit ég
ekki. Ékki hef ég „patent-lausn“
á þessu. En það gefur auga leið
að vegna þessa alls er atvinnu-
leysi raunverulegur möguleiki.
Það er t.d. öruggt að ef skipin
koma nú inn með eintóman karfa
Framhald á bls. 3
Frá vinstri: Svavar Svavarsson, Halldór Pétursson, Einar Magnús-
son, Sturla Erlendsson og Ólafur Þorgeirsson.
„18
eftirminnileg
kvöld“
Viltu fræðast um og fást við efni svo sem:
streitu, sálræna spennu, hjartasjúkdóma,
mataræði og krabbamein, vísindi og trú, að
meðhöndla mannslíkamann sem réttilegast.
Vertu velkominn á „18 EFTIRMINNILEG
KVÖLD“ með Dr. John Berglund, sem er
sérfræðingur um þessi málefni.
Fyrsta kvöldið kynnir hann allt námskeiðið í
heild.
Ef þér finnst, eftir þá kynningu, að þú munir
hafa gagn af námskeiðinu, er hasgt að inn-
ritasi Námsskeiðsgjaid er kr. 350,00 Dr.
Bergiund hefur fengið Aðventkirkjuna, Ing-
ólfsskaeti 19, Reykjavík til afnota fyrir nám -
skeið aift. Það hefst sunnudagskvöfctíð 19.
sept. kl. 20.
Svar við athugasemd frá V.G.
Alþýðublaðið birti s.l. þriðju-
dag og miðvikudag ítarlega frá
sögn af fróðlegri ráðstefnu
Alþýðuflokksmanna um
Alþýðuflokkinn og verkalýðs-
hreyfinguna.
I seinni grcininni var drepið á
það sem blm. taldi aðalatriði í
máli manna í hringborðsum-
ræðum.
S.l. fimmtudag birtist í Al-
þýðublaðinu athugasemd frá Vil-
mundi Gylfasyni, alþm. Vil-
mundur er, eins og Alþýðu-
blaðið, ánægður með ráðstefn-
una, en síður mcð frásögn
Alþýðublaðsins af henni. Hann
telur „áherslur, orðfæri og efnis-
atriði meira og minna röng og úr
lagi færð“. Hann telur blaðið
hafa brugðist þeirri skyldu sinni
að birta „rétta frásögn“.
Því miður nefnir VG engin
dæmi til stuðnings þessum ásök-
unum. Það er því úr vöndu að
ráða fyrir Alþýðublaðið að bera
af sér svo alvarlegar ásakanir um
fréttafalsanir, þegar engin dæmi
eru nefnd. Sem betur fer eru fleiri
til frásagnar. Við hringborðsum-
ræðurnar kom til orðaskipta milli
VG og nokkurra þátttakenda.
Alþýðublaðið leitaði þess vegna
til þessara aðila, þeirra Guðríðar
Elíasdóttur, formanns
Verkakvennafélagsins Framtíðar
í Hafnarfírði, Gunnars Más
Kristóferssonar, fv. formanns Al-
þýðusambands Vesturlands og
Magnúsar Geirssonar, formanns
Rafíðnaðarsambandsins, og
spurði þau, hvort hallað væri
réttumáli í frásögn Alþýðuhlaðs
ins af þessum skoðanaskiptum.
Svör þeirra fara hér á eftir.
Við spurðum Guðríði: „Þú
andmæltir þeim ummæium VG
að tímabilið miHi stríða hafi verið
„fasfskur tími“ í sögu
Alþýðurtokksins. Er rétt frá
þessu gremt í frásögn Alþýðu-
blaðsé*8?“ — Guðríður svaraði
orðrétt:
„Þetta er rétt eftir haft. Ég get
ekkert sáð athugavert við frásögn
blaðshM. Enda er ems g»t* að VG
nefmM éæmi máU sínu ttt sMk.
mg«.“ Framhald á btfi. 3
Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í
eftirfarandi:
RARIK-82038.132 kV Suöurlína, stálturnar.
Opnunardagur: föstudagur 15. október 1982
kl. 14:00
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykja-
vík fyrir opnunartíma, og verða þau opnuð að
viðstöddum bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118,
Reykjavík, frá og með fimmtudegi 16. sept-
errtoer 1982 og kosta kr. 50, hvert eintak.
n«yfcj«vík 18. september 1982
RAFMAQM6VEITUR HÍKtSmS