Alþýðublaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 1
alþýöu öið lOda hver króna 21:19 v'wm J Sjá ritstjórnargreinar bls. 2 Laugardagur 16. október 1982 154. tbl. 63. árg. Olíkar túlkanir innan BSRB á gildi kjarasamningsins: Kjarasamningur BSRB „gamalmennasamningur”? Þegar samningur BSRB og ríkis- ins var lagður fyrir félagsmenn BSRB í haust hlaut hann almennan stuðning félagsmannanna. Ekki voru þó allir ánægðir og m.a. var formaður BSRB, Kristján Thorlac- ius það ekki. Nýlega komu út Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana og er þar haft viðtal við Einar Ólafs- son, formann SFR, aðallega um þau vinnubrögð að gera sérkjara- samninga samhliða aðalkjara- samningi: En af viðtalinu að dæma virðist innan BSRB ríkja mismunandi túlkanir á raunverulegri þýðingu aðalkjarasamningsins. Þarer rifjað upp að í útvarpsviðtali við hagfræð- ing BSRB hafi komið fram sú full- yrðing, að þeir sem fengu minnst út úr þeim samningum hafi aðeins fengið 1.23% kjarabót, en aðrir hafi fengið allt að 20% hækkun. Jafnframt að Björn hafi haldið því fram að þetta væru eins konar gam- almennasamningar, en að unga fólkið hafi verið sniðgengið. Einar var spurður um þetta og segist hann hafa „hrokkið við“ og „fengið það á tilfinninguna, að þarna væri verið að skemmta skrattanum". Segir hann algera undantekningu ef menn hafi fengið svona mikla hækkun og fráleitt að einhverjir hafi fengið svona litla hækkun. Um að hér væri á ferðinni „gamalmennasamningur" sagði Einar: „Þeir, sem fá minnst út úr þess- um samningum í upphafi, eru að sjálfsögðu nýliðarnir í röðum opin- berra starfsmanna og vafalaust eru margir þeirra ungt fólk. En starfs- aldurshækkanirnar eru auðvitað ekki hugsaðar til skamms tíma. Þær munu eiga sína viðveru áfram, svo að þeir, sem nú eru nýliöar í starfi munu að sjálfsögðu njóta allra þessara hækkana. Að segja að unga fólkið hafi verið afskipt, eða skilið eftir, er því hreinlega rangt og skil ég ekki hvaða tilgangi það þjónar að halda slíku fram. Stað- reyndin er sú, að hver einasti félagi í SFR á þessar aldurshækkanir, og að það er ekki nýtt, hvorki í opin- beru starfi né annars staðar, að launaumbun fylgi langri þjónustu. Það er auðvitað ekki sama hvernig hlutirnir eru túlkaðir - hvort þeir Kjartan Jóhannson, form. Alþýðuflokksins: Hriktir verulega í ríkisstjórnar- samstarfinu Yfirlýsingar stuðnings- manna ríkisstjórnar- innar ákaflega ósamhljóma Kjartan Jóhannsson Sviptingar eru miklar á Alþingi íslendinga þessa dagana og vanda- samt að spá hvað á næstu dögum mun eiga sér stað. Ovissan hefur sjaldan verið meiri síðustu misserin og stafar það ekki síst af því að stjórnarliðar eru síður en svo sam- mála um næstu skref. Gunnar Thoroddsen virðist enn lifa í þeirri von að bráðabirgðalögin fái óbreytt óvæntan stuðning úr röð- um sjórnarandstöðunnar, en al- þýðubandalagsmenn og framsókn armenn vilja fá úr því skorið strax, þó hins vegar og þvert á móti sé nú að því að virðist ætlunin að ganga til samninga við stjórnarandstöð- una, hvernig sem þetta allt kemur heim og saman. Alþýðublaðið ræddi við for- mann Alþýðuflokksins, Kjartan Jó hannsson í gær og spurði hann nán- ar út í þá þróun sem átt hefur sér stað undanfarna daga. „Vissulega hefur óvissan aukist síðustu dagana og stafar það fyrst og fremst af togstreitunni sem komin er upp innan ríkisstjórnar- innar og birtist t.d. í yfirlýsingum þingflokka stjórnarliðanna. Allt bendir þetta greinilega á þá stað- reynd að nú hriktir verulega í ríkis- stj órnarsamstarfinu. Gunnar Thoroddsen hefur verið að gefa í skyn að enn megi vænta stuðnings úr röðum þingmanna AI- þýðuflokksins við bráðabirgðalög- in og reyndar fleiri en hann. Þetta er náttúrulega út í hött og ég geri ráð fyrir því, að menn séu búnir að fá nóg af þessum „draugasögum" hjá Gunnari og Morgunblaðinu og ég tel slíkar getsakir um einstaka þingmenn Alþýðuflokksins hrein- lega ósmekklegar. Yfirlýsingar alþýðubandalags- manna og reyndar framsóknar- manna um að frumvarp til staðfest- ingar eða synjunar á bráðabirgða- lögunum verði lagt fram strax og efna til kosninga ef þau verða felld eru í hæsta máta óvenjulegar og er það sjálfsagt einsdæmi að stuðn ingsflokkar stjórnar skrifist á í fjölmiðlum og setji þannig fram kröfur á eigin ráðherra og þá rikis- stjórn sem þeir styðja. Á þessu sést að greinilega ríkir mikill órói og að mikil togstreita er á ferðinni. f sjálfu sér má skilja þessar yfirlýs- ingar Alþýðubandalagsins þann- ig, að þeir telji lífdaga stjórnarinn- ar á enda og vilji að hún segi af sér. Um leið segja stjórnaraðilar hins vegar að þeir vilji semja, en ég hef Framh. á bls. 2 Björn Arnórsson eru túlkaðir út og suður, norður eða niður - eða reynt er að líta á málin frá félagslegu sjónarmiði“. Af þessu tilefni var haft samband við Björn Arnórsson, hagfræðing BSRB og hann spurður nánar um þennan mismunandi skilning á samningnum. „í þessu viðtali í Félagstíðindun- um eru ummæli mín f útvarpinu mjög tekin úr samhengi. Hvað varðar að ég hafi sagt samninginn vera einhvers konar „gamal- mennasamning", þá er það alls ekki rétt eftir mér haft. Ég var að tala um samningana í heild og að lífeyrisþegarnir hafi fengið einna mest og að því leyti fengið meir en hin yngri. Ég nota aldrei orðið „gamalmenni“ og í starfi mínu með og fýrir lífeyrisþegana hef ég kynnst því að meðal þeirra er að finna margar „ungar“ eldsálir. Þá gætir einnig ruglings varðandi prósentuhækkanirnar. Er ruglað saman tölum sem reikna inn kjar- askerðingu, sem engan veginn er ljós, og hreinum prósentu hækkun- um. 1. ágúst fá allir minnst 4% og gildir það í 14 mánuði. Sfðan koma auk þess 1. janúar 2.1% sem gilda i 9 mánuði. Þegar litið er á samn- ingstímabilið í heild er kjarabót þessarar 2.1% hækkunar minni, eða um 1.35% vegna styttri gildis- tíma. Því er kjarabótin í raun um 5.35% þó eftir 14 mánuði sé pró- sentuhækkun í heild um 6.1%. í viðtalinu í Félagstíðindunum er ummælum mínum kippt úr sam- hengi og því ruglað saman sem í kjaraskerðingunni l.des. kann að felast, en það er síður en svo ljóst nú hversu mikil hún í rauninni verður. Almennt hefur ekki verið gerð nákvæm úttekt á kjarasamningi BSRB, en þegar ég ræddi um þá sem einna mest og minnst fengu átti ég þá við tiltölulega fámenna hópa öfganna, meðan þorrinn fékk kjarabót á bilinu í kringum 11-12“ sagði Björn Arnórsson, hagfræð- ingur BSRB. Nýr skóli stofnaður í borginni: Alþýðuskólinn Nýr skóli hefur verið stofnaður í Reykjavík. Að skólanum standa Fræðsluráð Alþýðuflokksins Reykjavík, en það er skipað full trúum alþýðuflokksfélaganna borginni og Fulltrúaráðs Alþýðu flokksins í Reykjavík. Við náðum gær taii af formanni fulltrúará ðsins, Sigurði E. Guðmundssyni og spurðum hann um aðdragandann að stofnun þessa nýja skóla. „Aðdragandann að stofnun skólans má rekja allt aftur til stofn- unar fræðsluráðs Alþýðuflokksins fyrir 1-2 árum síðan, en ráðið hefur unnið mjög gott starf. Ráðið hóf fljótlega námsskeiðahald og í sumar hefur umfangsmikið vetrar- starf verið í undirbúningi. Ég lagði fram tillögu um stofnun Alþýðu- skólans í haust og hún hefur borið tilætlaðan áangur. Ég lít svo á að stofnun þessa skóla marki tímamót í flokksstarfinu hérna í Reykjavík. Þetta ásamt stofnun fræðsluráðsins og útgáfu Borgarblaðsins mikilvægustu þættirnir í þeirri við- leitni að auka flokksstarfið í borg- inni“, sagði Sigurður E. Guð- mundsson. Markmið Alþýðuskólans er að veita fólki í Reykjavík og nágrenni möguleika til náms á sviði félags- og fundarstarfa, um verkalýðs- og kjaramál, stjórnmálastefnur með sérstaka áherslu á jafnaðarstefn- una. Kappkostað verður að hafa kennsluna sem aðgengilegasta fyrir almenning. Leiðbeinendur verða úr hópi hinna hæfustu manna. Formaður fræðsluráðsins er Lár- us Guðjónsson og sagði hann í við- tali við Alþýðublaðið að mjög ánægjulegt væri að þessi skóli væri nú að verða að veruleika. Blaðið mun eftir helgina ræða við Lárus Guðjónsson um framtíðarverkefni skólans. eru Sjá nánar auglýsingu um starfsemi skólans í vetur bls. 3 Er Kröfluævintýrinu að Ijúka? „Engan veginn ánægður með árangurinn” — segir Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra I athugasemdum við fjárlaga- frumvarpið er meðal annars að flnna eftirfarandi athugasemd við Kröfluvirkjun. „Ráðgert er að afla Kröfluvirkjun lánsheimildar til að standa undir fjármagns- kostnaði til virkjunarinnar. Gert er ráð fyrir 219.382 þús. króna lántöku á árinu 1983 til greiðslu afborgana og vaxta af eldri lán- um“. Til að gefa fólki einhverja hugmynd um þessa upphæð þá er hún jafnhá og allar tekjur Sem- entsverksmiðju ríkisins, nærri þrisvar sinnum tekjur Laxár- virkjunar og J eldur meira en allt framlag ríkisii.s til Háskóla fs- lands. Alþýðublaðið sneri sér í gær til Hjörleifs Guttormssonar, iðnaðarráðherra og spurði hann hvort áfram ætti að veita fé til framkvæmda við Kröflu. „Það er nú ekki ráðið ennþá og verður ekki endanlega afgreitt fyrr en með fullmótun lánsfjárá- ætlunar. Ég geri ráð fyrir því sem meginstefnu að halda virkjuninni í rekstri", sagði ráðherra. „Þessi virkjun hefur haft ákveðnu hlut- verki að gegna vegna stað- setningar sinnar og það hefur ver- ið álitið þýðingarmikið að halda Framh. á bls. 3 Frumvarp um breytingar á lögum um ríkisbanka Sundurliða skal launa- greiðslur, bifreiðakostnað, ferða-, risnukostnað og eignabreytingu Alþingi samþykkti í aprfl á þessu ári breytingu á lögum um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. 1 breytingunum var fólgin aukin upplýsingaskylda rfldsstofnana og fyrirtækja, en tilgangurinn með lagabreyting- unum var einmitt að ná fram virkara aðhaldi og eftirliti með fjármunum ríkisins og fram- kvæmd fjárlaga. Lög þessi náðu ekki til ríkisbankanna, en nú hef- ur Jóhanna Sigurðardóttir, al- þingismaður, lagt til að svipuð breyting verði gerð á lögum um ríkisbankana. Ef þessar breytingar á lögum ná fram að ganga verða bankarn- ir hér eftir að sundurliða mun ít- arlegar en áður launagreiðslur, bifreiðakostnað, ferða og risnu- kostnað auk þess sem þeir verða Jóhanna Sigurðardóttir: Ef þetta frumvarp verður samþykkt, er rétt að huga að reglum einkabankanna einnig í þessu efni... að gera grein fyrir eignum og eignabreytingum á árinu. Al- þýðublaðið hafði í gær samband Framh. á bls. 3 '»•*<***-■ J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.