Alþýðublaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 3
Laugardagur 16. október 1982 3 Til sölu Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki vegna Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar: 1. Land-Rover diesel, árg. 1979. 2. Land-Rover diesel, árg. 1977. 3. Mercedes Benz, 17 manna, árg. 1974. 4. Volvo vörubifreið, N84 m/ 6 manna húsi, árg. 1970 5. Ford D-910 vörubílsgrind, árg. 1973. 6. Loftþjappa, HYDRO 125 cub. 7. Flutningakerra, pallstærð 5 m2. Bifreiðar þessar og tæki verða til sýnis í porti Vélamiðstöðvarinnar að Skúlatúni 1 mánu- daginn 18. og þriðjudaginn 19. þ.m. Tilboð verðappnuð á skrifstofu vorri að Frí- kirkjuvegi 3, miðvikudaginn 20. þ.m. kl. 14,00 e.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR C ^ Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 LANDSPÍTALINN RIKISSPITALARNIR lausar stöður STARFSMAÐUR óskast í fullt starf á barnaheimili Landspítalans við Engihlíð. Upplýsingar veitir forstöðumnaður barnaheimilisins í síma 29000 (591). KLEPPSSPÍTALINN LÆKNARITARI óskast á Kleppsspítalann og geð- deild Landspítalans. Stúdentspróf eða sambærileg menntun áskilin ásamt góðri vélritunar- og ís'ensku- kunnáttu. Umsókn er greini menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu ríkisspítalannafyrir 1. nóvember nk. Upplýsingar veitir læknafulltrúi Kleppsspítalans í síma 38160 eða skrifstofustjóri Landspítalans í síma 29000. VÍFILSTAÐASPÍTALINN FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast í hálft starf. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist stjórnarnefnd rík- isspítalanna fyrir 15. nóvember nk. Upplýsingar veitir yfirlæknir Vífilstað^pítala síma 42800. STARFSMENN óskast til ræstinga í hlutastarf (50%). Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri Vífils- staðaspítala í síma 42800. RÍKISSPÍTALARNIR Reykjavík, 17. október 1982. VINNUEFTIRLIT RfKISINS Síðumúla 13, 105 Reykjavík, sími 82970. Laus staða laus er til umsóknar staða UMDÆMISEFTIRLITSMANNS Á AUSTURLANDI Linsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Vinnueftirliti ríkisins Síðumúla 13 fyrir 15. nóvember nk. á þar til gerðum eyðublöðum. Nánari upplýsingar um starfið veitir deildar- stjóri eftiriitsdeildar í síma (91)-29099. 10,1% atvinnuleysi í Bandaríkjunum Þó atvinnuleysið í Bandaríkj- unum sé komið upp í 10.1% (var um 7.3% í ársbyrjun 1981) segir slíkt ekki nema hálfa söguna. Hinn helmingur sögunnar er ekki síður merkilegur: hverjir það eru sem atvinnulausir ganga. Meðan atvinnuleysið er innan við 5% hjá „hvítflibbum“ er það 15.6% hjá verkalýðnum. Og á meðan hvítir unglingar eru í rúm- lega 20% tilfella atvinnulausir, eru rúmlega 48% blökkuung- linga atvinnulausir Frumvarp 1 við Jóhönnu Sigurðardóttur. Var hún spurð hvort hún teldi, að þessar lagabreytingar mundu renna jafn hratt í gegn um þingið eins og raun varð á í vor. „ Já, ég tel eðlilegt samræmi, að þingmenn styðji þessar breyting- ar, enda eru þær í fullu samræmi við það, sem þeir hafa áður sam- þykkt varðandi fjármuni ríkis- og ríkisstofnana. Það er fullkomlega eðlilegt, að sömu kröfur séu gerðar til bankanna í þessu efni.“ En nú ná þessar lagabreytingar einungis til hinna svokölluðu ríkisbanka? Hvað um hina stóru bankana, Alþýðubanka, Iðn- aðarbanka og Versiunarbanka? „Já, það er rétt þessar laga- breytingar ná einungis til ríkis- bankanna, Landsbanka, Seðla- banka, Útvegsbanka og Búnaðarbanka. Mér finnst rétt að láta fyrst reyna á samþykkt þessa frumvarps. En verði það samþykkt þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að hugað verði að svipuðum breytingum hjá þeim einnig.“ Þær lagabreytingar, sem fram koma í frumvarpinu eru að því leyti ólíkar lögunum um ríkisbók- hald frá því í vor, að nú skulu bankarnir leggja fram sundur- liðun yfir „efnislega fjármuni", en þar er átt við húseignir, vélar, áhöld, bifreiðir svo eitthvað sé nefnt. Einnig á að sundurgreina eignabreytingar og afskriftir. Krafla 1 henni í rekstri án allt of mikilla fjárútláta. Nú hafa staðið yfir rannsóknir og boranir í sumar, jarðhitaleit og gufuöflun og það mun skýrast bráðlega hvað út úr þeim hefur komið. Þannig að all- ar forsendur ættu bráðlega að liggja fyrir til þess að ákvörðun megi taka um frekari fram- kvæmdir, ef menn telja þær heppilegar.“ Ráðherra var spurður hvort einhverjar tekjur væru af virkj- uninni, en ekki er getið slíkra tekna í nýju fjárlagafrumvarpi: „Nei, ég geri ekki ráð fyrir telj- andi tekjum á þessu ári, umfram það að standa undir daglegum rekstri þessa fyrirtækis. Rafork- usalan gerir ekki meira en skila þeim tekjum. Engum tekjum er hins vegar skilað í fjármagns- kostnað." Þýðir þetta að menn séu loks að gefast upp á Kröflu? „Um framhaldið vil ég segja það, að þetta verður allt sett undir gagnrýnið mat áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Okkur er það ve! ljóst að hér er um gífurlega háar tölur að ræða, en stefnan hefur verið sú eins og ég hef sagt að reyna að halda virkjuninni í myndinni án allt of mikils tilkostnaðar." Þannig að þú ert ekki ánægður með árangurinn? „Nei, engan veginn; virkjunin hefur verið til alvarlegrar skoð- unar lengi og við erum ekki ánæg- ðir með það, sem komið hefur út úr þessu dæmi. Við verðum einn- ig að meta það í þessu sambandi, að þörfin inn á kerfið er ekki al- veg jafn brýn og hún var áður, þannig það er margt sem þarf að skoða áður en frekari ákvarðanir verða teknar", sagði iðnaðarráð- herra að lokum. í REVKJAVÍK HVERFISGÖTU106 A 3H/EÐ SÍMI29244 Námskeið Alþýðuskólans í Reykjavík veturinn 1982 - 1983 Félagsmálanámskeið I Almennt námskeið í félags- og fundastörfum ásamt leiðbeiningum í framsögn dagana 23. og 24. október n.k. Félagsmálanámskeið II Almennt námskeið í félags- og fundastörfum í fram- haldi af félagsmálanámskeiði I. Námskeiðið fer fram dagana 20. og 21. nóvember nk. Leiklistarnámskeið Almennt námskeið þar sem kennd verða grundvallar- atriði leikrænnar tjáningar og stefnt að myndun leik- hóps í lok þess, er síðan setji leikrit á laggirnar í sam- vinnu við leiðbeinanda. Námskeiðið fer fram í janúar- mánuði nk. Tímasetning verður ákveðin í samráði við þátttakendur. Leiðbeinandi verður þjókunnur leikari og leikstjóri. Stjórnmálanámskeið I Almennt námskeið um Jafnaðarstefnuna, Alþýðu- flokkinn og starf hans fyrr og nú. Þjóðkunnir stjórn- málamenn munu flytja erindi og lögð verður áherzla á að kryfja viðfangsefnin til mergjar. Námskeiðið fer fram 15. og 16. janúar nk. Stjórnmálanámskeið II Almennt námskeið um Alþýðuflokkinn og verkalýðs- hreyfinguna og tengsl þeirra fyrr og nú. Erindi flytja m.a. þekktir forystumenn verkalýðssamtakanna og kappkostað verður að skoða málin niður í kjölinn. Námskeiðið fer fram dagana 12. og 13. febrúar nk. Samtakanámskeið i Almennt námskeið um störf og stefnu launþegasam- takanna, skipulag þeirra og starfsemi. Námskeiðið fer fram 5. og 6. marz nk. Félagsmálanámskeið I almennt námskeið í félags- og fundastörfum ásamt leiðbeiningum í framsögn dagana 9. og 10. apríl nk. Félagsmálanámskeið li Almennt námskeið í félags- og fundastörfum í fram- haldi af félagsmálanámskeiði II. Fer fram dagana 7. og 8. maí nk. Auglýsing frá ríkisskatt- stjóra Verðbreytingarstuöull fyrir árið 1982 Samkvæmt ákvæðum 26. gr. laga nr. 75 14. september 1981 um tekjuskatt og eignar- skatt hefur ríkisskattstjóri reiknað verðbreyt- ingarstuðul fyrir árið 1982 og nemur hann 1,5378 miðað við 1,000 á árinu 1981. Reykjavík 14. október 1982 Ríkisskattstjóri.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.