Alþýðublaðið - 23.10.1982, Blaðsíða 1
Laugardagur 23. október 1982
158. tbl. 63. árg.
Sigurður E. Guðmundsson, borgarfulltrúi:
DAVÍÐ ODDSSON FÓR
MEÐ RANGT MAL
f SJÚNVARPINU
A borgarstjórnarfundi á fímmtu-
dag s.l. gagnrýndi Sigurður E.
Guðmundsson borgarfulltrúi Al-
þýðuflokksins Davíð Oddsson,
borgarstjóra harðlega fyrir ein-
hliða, ósannan og ódrengilegan
málfíutning í sjónvarpi í vikunni, er
hann sat fyrir svörum um borgar-
mál. „Davíð lét ekkert tækifæri ó-
notað til að ráðast að fyrrverandi
meirihluta, líkt og hann væri á
kosningafundi. Hann lét einnig
vera að fara rétt með staðreyndir í
sumum tilvikum”, sagði Sigurður
E. Guðmundsson í viðtali við Al-
þýðublaðið í gær. „Enginn fulltrúi
fyrrverandi meirihluta var til and-
svara þarna og því var þetta
ódrengileg framkoma”, bætti hann
við.
Sigurður E. Guðmundsson
Hvað er til marks um óheiðar-
leika í tilsvörum Davíðs Oddssonar
í þættinum?
„Jú, það má benda á nokkur
dæmi um rangfærslur og beinlínis
rangar fullyrðingar. Borgarstjóri
málaði hallann á Búr afar dökkum
litum, sagði meðal annars að tapið
væri um 20-30 milljónir á þessu ári.
Það væri einhver munur en hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa, sem
bæri sig, enda væri það hlutafélag!
Þetta er vitaskuld orðum aukið,
samkvæmt hálfsársuppgjöri BÚR
er hagnaður af fiskvinnslunni 10.1
milljón króna (fyrir verðbreyting-
arfærslur). Á sama tírna er hins
vegar tap af togurunum 21.3 milj-
ónir króna. Mismunur er því tap
upp á 11.2 milljónir króna en ekki
20-30 milljónir króna.”
En er raunverulega hagnaður af
rekstri útgerðarfélags Akur-
eyringa?
„Þetta er afskaplega hæpin full-
yrðing hjá Davíð og ég veit ekki
hvaðan hann hefur þetta. Svo mik-
ið er víst, að forstjóri fyrirtækisins,
Framh. á bls. 3
Tekjur af
áfengissölunni
hækkað
um 51%
íslendingar keyptu á tímabil-
inu 1. júlí til 30. september
áfengi fyrir um 166 milljónir
króna og er sú upphæð 50.7%
hærri en á sama tíma í fyrra.
Um 73% heildarsölunnar
varð í Reykjavíkurútibúunum,
þar var selt fyrir urn 121 milljón-
ir og varð aukningin þar einnig
mest hlutfallslega, um 52.5%
meiri að verðgildi en í fyrra.
Hlutfallslega minnsta
aukningin á sölu samkvæmt
verðlagi var hjá Seyðisfjarðar-
útibúinu, um 37.3%.
Fjármálaráðherra bjartsýnn á
framtíð Kröfluvirkjunar:
Krafla mun standa
undir sér
með tíð og tíma
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra sagði í samtali við A1 -
þýðublaðið ísíðustu viku að hann
væri „engan veginn ánægður” með
það sem helði komið út úr borun-
um og framkvæmdum við Kröflu
fram að þessu, en niðurstöður bor-
ana í sumar lægju að vísu ekki
fyrir ennþá. I fjárlögum nú er gert
ráð fyrir 220 milljónum til greiðslu
vaxta og afborgana við Kröllu en á
móti koma sáralitlar tekjur. Við
spurðum í gær Ragnar Arnalds,
fjármálaráðherra, hvort hann ætl-
aði að halda áfram að setja fjár-
magn í Kröfluvirkjun, en sú á-
kvörðun tengist lánsfjáráætlun sem
verið er að vinna þessa dagana.
„Kröfluvirkjun er meðal meiri
háttar orkuframkvæmda og er því
tekin inn í lánsfjáráætlun, sem ver-
ið er að vinna að nú. Þetta er ekki
ennþá ákveðið endanlega. í sumar
voru boraðar þrjár holur, en árang-
ur af þessum borunum ræður því
hvort haldið verður áfram að bora
eða ekki”.
Og hvernig virðist þér árangur
vera?
„Samkvæmt fyrstu fréttum af
þessum borunum, þá er árangur
mjög góður, þessar holur skila að
því að mér er sagt um 15 MW og ein
þeirra skilar um 7 MW. Spurning
er hvort ekki eigi að bora áfram á
því svæði sem bestan árangur gaf í
sumar. En ég vil taka það fram að
þetta eru einungis lausafréttir, sem
ekki eru staðfestar. í sambandi við
frekari framkvæmdir verður einnig
að hafa í huga hvenær þörf er á
orkunni. Ef þetta er rétt, að fengist
hafi 15 MW, þá erum við komnir
með fulla nýtingu á aðra vélasam-
stæðu virkjunarinnar.
En gefur þetta dæmi í heild ekki
Er Kröfluævintýrinu
aö Ijúka?
„Engan veginn
ánægður með
árangurinn”
- segir Hjörleifur
Guttormsson
iðnaðarráðherra
I athugasemdum við fjárlaga-
frumvarpið er meðal annars að
fínna eftirfarandi athugasemd við
Kröfluvirkjun. „Ráðgert er að
afla Kröfluvirkjun lánsheimildar
til að standa undir fjármagns-
kostnaði til virkjunarinnar. Gert
lands. Alþýðublaðið sneri sér
gær til Hjörleifs Guttormssonar
iðnaðarráðherra og spurði hani
hvort áfram ætti að veita fé ti
framkvæmda við Kröflu.
„Það er nú ekki ráðið ennþá oj
verður ekki endanlega afgreit
Meðfylgjandi úrklippa úr Alþýðublaðinu s.l. laugardag, sýnir svo ekki
verður um villst, að þeir flokksbræður Hjörleifur og Ragnar eru langt frá
því sammála um framtíðarhorfur Kröfluvirkjunar.
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra
og fyrrum Kröflunefndarmaður.
tilefni til mikilla vonbrigða?
„Það voru auðvitað mikil von-
brigði hve lengi vel gekk seint að fá
orku til virkjunarinnar. Það á sér
margar skýringar eins og menn
vita. Boranir lágu niðri um skeið og
nú hafa verið boraðar sex holur á
tveimur árum. Nú er einsýnt að við
erum að komast með virkjunina á
rétt ról. Það sem einkennir þessa
virkjun, er að byrjað er að reka
hana áður en framkvæmdum er
lokið. Það hefur vitaskuld í för með
sér kosti og galla, þegar verið er að
reka virkjunina með innan við 1/4
af afkastagetu. Lán til framkvæmd-
anna voru einnig tekin til skamms
tíma og skemmri en eðlilegt getur
talist með mannvirki sem á að
standa í áratugi”.
Framh. á bls. 3
Kosið á fll-
þýðuflokksfélagi
Reykjavíkur
um helgina
Alþýöuflokksfélag Reykja-
víkur cfnir í dag og á morgun til
kosninga mcðal félagsmanna
sinna. í þcssum kosningum -
sem eru tvískiptar - verða ann-
ars vegar kjörnir fulltrúar AF-
þvðuflokksfélagsins í fulltrua-
ráð Alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavík og hins vegar verða
kjörnir fulltrúar félagsins á
flokksþing Alþýðuflokksins,
sem fram fer 5.-7. nóvcmber
næstkoinandi.
Kosningarnar fara fram á
skrifstofu Alþýðuflokksins og
standa frá klukkan 14-18 bæði
laugardag og sunnudag.
Félagar í Alþýðuflokksfé-
laginu eru hvattir til að notfæra
sér kosningaréttinn og mæta á
kjörstað, en kjósa á 50 fulltrúa á
flokksþing og 50 í fulltrúaráðið.
RITSTJORNARGREIN
ÆTLAR KRÖFLUÆVINTÝRIÐ ENGAN ENDI AÐ TAKA?
Kröfluævintýrinu er enn ekki lokið. Kröflukóngarnir
vilja enn ekki viðurkenna mistök sín. Þeir rembast eins
og rjúpan við staurinn. Ennþá á að halda áfram að ausa
fé í Kröfluvirkjun.
Mistakasaga Kröfluvirkjunar verður ekki rakin hér. Sú
saga er öllum kunn. Sukkið og sóunin jafnhliða algjöru
fyrirhyggjuleysi, var einkenni hinnar margfrægu Kröflu-
nefndar. Þeir sem í þeirri makalausu nefnd sátu , munu
aldrei losna við Kröflustimpilinn. Krafla mun hanga sem
myllusteinn um háls þeirra, hér eftir sem fyrr.
En þaö furðulegasta við þetta mál er sú staðreynd, að
þeir menn sem báru ábyrgð á Kröfluhneykslinu sitja nú á
valdastólum ríkisstjórnarinnar. Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra var iðnaðarráðherra á tímum Kröfluvit-
leysunnar. Ingvar Gíslason menntamálaráðherra var
varaformaður Kröflunefndar. Ragnar Arnalds fjármála-
ráðherra sat einnig í Kröflunefnd.
Það er grátbrosleg staðreynd, að þessir menn, sem
stóðu að einhverri almestu fjárfestingardellu sem uppvís
hefur orðið hér á landi, eru nú meðal valdamestu manna
þjóðarinnar. Það er ekki öfundsvert fyrir íslensku þjóðina
að lúta forsjá manna, sem hafa gert sig seka um algert
dómgreindarleysi og blindu við ákvarðanir í öðru eins
stórmáli eins og Kröfluvirkjun var og er.
Þúsundir milljóna nýkróna hafa farið í Kröfluhítina í
gegnum árin og enn gleypir Krafla fé skattborgaranna. í
fjárlögum fyrir árið 1982 er gert ráð fyrir því, að 220
milljónir króna gangi til Kröflu til þess að greiða fjár-
magnskostnað af fyrirtækinu. M.ö.o. það eiga að fara
jafnmiklir fjármunir til að greiða afborganir og vexti af
Kröfluævintýrinu og fara sem framlag ríkisins til Háskóla
íslands. Hvert mannsbarn á íslandi á þannig að borga 1
þúsund krónur á næsta ári til að greiða af skuldum, sem
stofnað hefur verið til vegna Kröfluvirkjunar. Að vísu
verður þetta fjármagn til Kröflu tekið að láni erlendis, en
þá skuld þarf að greiða og auðvitað verða það skatt-
greiðendur sem borga brúsann eins og alltaf áður.
Reiknaö er með að Kröfluvirkjun geti staðið undirdag-
legum rekstrj þessa fyrirtækis. Ekkert umfram fé kemur
hins vegar til að greiða skuldir fyrirtækisins, hvað þá að
virkjunin gefi af sér fjármagn til að halda áfram borunum
og rannsóknum.
Það hefur verið mikið borað við Kröflu í gegnum árin.
Alltaf við og við hafa taismenn virkjunarinnar lýst því yfir
að nú loks sé árangur að koma í Ijós. Árangurinn lætur
hins vegar ennþá á sér standa. Og nú enn á ný gera
menn sér vonir um árangur við Kröflu. Og fjármálaráð-
herra lýsir því yfir í Alþýðublaðinu í dag, að Kröfluvirkjun
verði tekin inn í lánsfjáráætlun, sem verið er að vinna
þessa dagana. Það á sem sé að halda áfram fjáraustrin-
um í Kröfluvirkjun. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra og
fyrrum Kröflunefndarmaður segir sfðan orðrétt í Alþýðu-
blaðinu: „Ég er bjartsýnn á að Kröfluvirkjun standi undir
sér með tíð og tíma og árangur virðist ágætur af borunum
undanfarið.”
Lengi má manninn reyna. Ragnar Arnalds virðist lítt
ætla að læra af þeirri keðju mistaka, sem hann og fleiri
stóðu að í Kröflunefnd. Það þarf ekki lítið pólitískt hug-
rekki að nota orðið bjartsýni um Kröfluvirkjun eftir þær
hrikalegu fjárfúlgur, sem þetta fyrirtæki hefur gleypt í
gegnum árin og skilað illa til baka eða alls ekki.
Samráðherra Ragnarsog flokksbróðir, HjörleifurGutt-
ormsson iönaðarráðherra, fer hins vegar hægar í sakirn-
ar, þegar spáð er í spilin um framtíð Kröflu. f viðtali f
Alþýðublaðinu í síðustu viku, viðurkennir hann fúslega,
að Krafla hafi valdið honum vonbrigðum. Hann segir
einnig, að áður en ákvarðanir verða teknar um frekari
framkvæmdir við Kröflu, þá verða málin öll sett undir
gagnrýnið mat, Hjörleifur slær engu öðru föstu um
Kröflu, en að gera megi ráð fyrir því að þeirri meginstefnu
verið viðhaldið að halda virkjuninni í rekstri.
Hjörleifur Guttormsson hefur haft það orð á sér, að
teygja mál og toga út í hið óendanlega til þess að komast
hjá því að taka ákvarðanir. Heldur virðist þó hin varfærna
stefna Hjörleifs í Kröflumálinu viturlegri en alblinda
Ragnars Arnalds fjármálaráðherra.
Kröflunefndarkóngar hafa teygað bikarinn í botn. Mál
er að linni. Óráðsían í kringum Kröfluvirkjun verður að
taka enda. Alþýðuflokkurinn einn íslenskra stjórnmála-
flokka, hefur allt frá byrjun staðið utan Kröfludellunnar og
barist gegn henni. Alþýðuflokkurinn mun berjast gegn
áframhaldandi peningasóun og fyrirhyggjuleysi í þeim
efnum.
-GÁS.