Alþýðublaðið - 23.10.1982, Síða 4
Útgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Framkvæ’mdastjöri: JóhannesGuömundsson
Stjórnmálaritstjóri og ábm. Jón Baldvin Hannibalsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Guömundur Arni Stefánsson.
Blaöamaöur: Þráinn Hallgrfmsson.
Gjaldkeri: Haildóra Jónsdóttir.
jDreifingarstjóri: Siguröur Steinarsson.
Laugardagur 23 október 1982 RitstjórnogauglýsingareruaöSiöumúla 11, Reykjavik,simi81866.
Askriftarsíminn
er 81866
Bandalag kvenna
i Reykjavik:
Efnt til
vinnuvöku
í tilefni af
ári aldraðra
Bandalag kvenna í Reykjavik
stendur um þessar niundir fyrir
vinnuvöku í tilefni af ári aldr-
aðra. Hófst hún að Hallveigar-
stöðum í gærkvöldi og mun
standa yfir til hádegis á sunnudag
- degi Sameinuðu þjóðanna 24.
október.
Öllum ágóða af vinnuvökunni
verður varið til eflingar starfsemi
í þágu aldraðra, en sem dæmi um
það má nefna, að nýlega færði
stjórn og ellimálanefnd Banda-
lagsins elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Droplaugarstöðum píanó að
gjöf-
Aðildarfélög að Bandalagi
kvenna í Reykjavík eru 30 með
um 13 þúsund félögum. Núver-
andi aðalstjórn skipa: Unnur S.
Ágústsdóttir, formaður, Svan-
laug Árnadóttir, Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, Sigrún Sturludóttir
og Vigdís Einarsdóttir.
Magnús H. Magnússon,
alþingismaður:
Helga Má
svarað
Helgi Már spurði mig um það í
Alþýðublaðinu 19. okt. sl. hvers
vegna ég hafi setið hjá við atkvæða-
greiðslu um þann úrskurð forseta
Sameinaðs þings að vísa frá fyrir-
spurn, sem Vilmundur Gylfason
vildi leggja fyrir dómsmálaráð-
herra.
Svar:
a) Ég þekki Jón Helgason, forseta
Sameinaðs þings, ekki að öðru
en sanngirni og réttsýni og er
því ekki reiðubúinn til að greiða
atkvæði til að hnekkja úrskurði
hans nema þá að vel skoðuðu
máli.
b) Þegar atkvæðagreiðslan um úr-
skurð forseta fór fram hafði ég
ekki séð umrædda fyrirspurn og
heldur ekki tillögu forseta um
orðalagsbreytingu á fyrirspurn-
inni, sem Vilmundur hafnaði.
c) Ég tel ekki, að málfrelsi þing-
manns hafi verið alvarlega skert
með umræddum úrskurði for-
seta, þótt fyrirspurnarformið
hafi ekki dugað að þessu sinni.
Margar aðrar leiðir eru þing-
mönnum færar og hefur Vil-
mundur nú notað eina þeirra,
þ.e. flutning þingsályktunartil-
lögu. Um þetta vil ég annars
segja það, að mér virðist ýmsir
þingmenn skerða málfrelsi ann-
arra þingmanna mun meira en
forsetar þingsins og á ég þá við1
það, að ræður ýmissa þing-
manna eru oft það langar, að
aðrir þingntenn komast ekki að
með skaplegum hætti.
d) Mér finnst efni umræddrar
fyrirspurnar ekki það merkilegt
eða aðkallandi að gera eigi úr
því meiri háttar mál.
e) Eftir að umrædd fyrirspurn var
lögð fram á prentuðu þingskjali
sé ég ekki, að synjun forseta
hafi átt við nægileg rök að styðj-
ast.
Magnús H. Magnússon
Kanadíska ríkið styrkir
fiskflakautflutning
á Bandaríkjamarkað
Viðtal við Guðmund H. Garðarsson hjá S.H.
hefur einkum orðið í sölum á
verksmiðjuframleiddri vöru, en í
henni var söluaukning miðað við
sama tíma í fyrra um 12%. Hins
vegar var samdráttur í flakasölu á
sama tíma.
Hverjar eru helstu skýringarnar
á þessu?
Samkeppnin er geysihörð á
bandaríska markaðinum. Cold-
water stendur mjög sterkt að vígi
hvað snertir verksmiðjufram-
leiddar vörur. Fyrirtækið á tvær
mjög fullkomnar fiskiðnaðarverk-
smiðjur, sem skapa mikla mögu-
leika á sveigjanleika í framleiðslu
nýrra vörutegunda og öðru er lýtur
að því að mæta breyttum og nýjum
kröfum í verksmiðjuframleiddum
vörum.
f sölu þessara vara ríkir að sjálf-
sögðu mikil samkeppni, en hún er
enn harðari og erfiðari viðureignar
í sölu frystra fiskflaka vegna þess,
að þar eigum við í höggi við fram-
leiðendur, sem með ríkisstyrktri
verðpólitík, hafa verið undir þeim
fiskflakaverðum, sem íslendingar
hafa náð í Bandaríkjunum.
Fiskflök eru eins og allir vita
stöðluð vara. Henni verður lítið
breytt frá því formi sem hún er í við
frystingu, þannig að helstu selj-
endur eru að bjóða svipaða vöru.
Okkar styrkur hefur verið gegnum
árin og er enn, að íslensk fiskflök
eru talin best að gæðum á mark-
aðnum. { skjóli þess og krafti þess
sölukerfis, sem Coldwater hefur
yfir að ráða, eru frystu fiskflökin
frá SH-frystihúsunum í háu verði
Sem dæmi má nefna, að verðlista-
verð Coldwater á frystum þorsk-
flökum í 5 punda pakkningum er
$1,80 pr. pund. Kanadamennj
bjóða þorskflök í samskonar um-1
búðum á mun lægra verði. Er talið |
Alþýðuflokksfélag
Keflavíkur
heldur félagsfund
mánudaginn 25. okt. kl.
20.30
Dagskrá:
1. Kjör fulltrúa á flokksþing.
2. Rætt um þau mál er fyrir flokksþingi liggja
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið
Stjórnin
Stjórnarfundur Coldwater Sea-
food Corporation var haldinn í síð-
ustu viku í Rowaytpn í Connecticut
í Bandaríkjunum. í því tilefni sneri
Alþýðublaðið sér til Guðmundar
H. Garðarssonar hjá Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna og spurði frétta
af starfsemi Coldwater í Banda-
ríkjunum.
Éins- og kunnugt er af fréttum,
hafa markaðsaðstæður fyrir sölu á
frystum fiski verið mjög erfiðar í
Bandaríkjunum. í stað mikillar
söluaukningar, eins og var fyrir
nokkrum árum, hefur sala á fryst-
um fiski frá íslandi dregist saman.
Hvað Coldwater áhrærir, þá
voru heildarsölur að magni til
fyrstu 9 mánuði þessa árs 3% minni
en á sama tíma í fyrra, þannig hvað
heildarsölur áhrærir, það sem af er
árinu, er útkoman betri en leit út
fyrir á fyrstu mánuðum þessa árs,
þegar stefndi í mun meiri minnkun.
Batinn á seinni hluta þessa árs
Guðmundur H. Garðarsson,
viðskiptafræðingur blaðafulltrúi
Sölumiðstöðvar Hraðfrystihús-
anna.
41. flokksþing
Alþýðuflokksins
41. flokksþing Alþýöuflokksins verður haldið dagana
5.-7. nóvember n.k. í Kristalssal Hótels Loftleiða,
Reykjavík.
Dagskrá nánar auglýst síðar
f.h. Alþýðuflokksins
Kjartan Jóhannsson,
formaður
Karl Steinar Guðnason
ritari
Guðfinnur Einarsson, stjórnarformaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna og Þorsteinn Gíslason, framkvæmdastjóri Coldwater Seafood Corp-
oration ræða við forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur í heimsókn henn-
ar til Coldwater í september sl. Ljósm.: G.T.K.
að þau sveiflist á bilinu 20-50 sent
pr. pund.
Upplýst hefur verið í opinberum
gögnum fyrir vestan að ákveðið
kanadískt fyrirtæki hefur nýverið
fengið styrk að upphæð tuttugu
milljónir kanadískra dollara til að
styrkja aðstöðu sína í sölum frystra
fiskflaka til Bandaríkjanna.
Þá er einnig vitað um það, að
Nýfundnalandsstjórn hefur styrkt
stöðu ákveðins fjölda frystihúsa
með vaxtalágum lánum að heildar-
upphæð 20,7 milljónir kanadískra
dollara.
Þetta með öðru veldur að sjálf-
sögðu íslenskum útflytjendum á
fiskflökum miklum erfiðleikum og
getur hugsanlega haft skaðleg áhrif
á framtíðarstöðu okkar. Þessu
reynum við auðvitað að mæta með
öllum ráðum.
Hvað með þróun á fiskneyslu í
Bandaríkjunum?
Gerð var athugun á neyslu nokk-
urra mikilvægra matvælategunda í
Bandaríkjunum síðastliðin 5 ár,
þ.e. tímabilið 1976 til 1981.
1 ljós kom m.a. að neysla á fiski
hefur svo til staðið í stað. Aukning-
in var 0,8%. Mikil aukning var í
neyslu kjúklinga eða 20,3% svína-
kjöts 19,4% og grænmeti 7,4% en
Framh. á bls. 2
Einar T. Eliasson, yfirverkfræðingur Kröfluvirkjunar:
NAUM SENNILEGA 23
MEGAWðTTUM I HAUST
„Boranir í sumar hafa gengið
vel, 3 holur hafa verið boraðar og
þær lofa allar góðu. Fyrsta holan
gefur af sér um 4 megawött, útlit er
fyrir að önnur holan muni gefa af
sér svipað og sú þriðja, sem
reyndar kemst ekki í gagnið á þessu
ári, virðist ætla að gefa af sér 7-8
megawött”.
Þessu svaraði Einar T. Elíasson,
yfirverkfræðingur Kröfluvirkjunar
þegar Alþýðublaðið innti hann
eftir því hvernig gengið hafi að
bora í sumar. Einar var spurður að
því hvaða áhrif þetta hefði á nýt-
ingu vélasamstæðnanna við
Kröflu.
„Aðeins önnur vélasamstæðn-
anna er í gangi, hætt var við að nýta
hina. Nýtingamöguleiki þeirra
samtals er um 60 megawött, en 30
meðan aðeins önnur er í gangi. Af-
kastagetan er nú um 15 megawött,
en reikna má með því að í haust,
þegar fyrri holurnar tvær komast í
gagnið, fari hún upp í rúmlega 23
megawött. Fljótlega rná svo búast
við því að sú vélasamstæða sem í
notkun er verði fullnýtt, því með
þessum nýjustu holum fæst nóg afl
til þess. Það fer svo eftir fjár-
veitingavaldinu hvað gert verður
við þá vélasamstæðu sem eftir er”,
sagði Einar.
Laus staða
Staða framkvæmdastjóra rannsóknaráðs ríkisins er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, fyrir 19. nóvember n.k.
Menntamálaráðuneytið,
19. október 1982
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64, 66, 68 tbl. Lögbirting-
blaðs 1982 á íbúðarhúsi að Aðalgötu 20 á
Sauðárkróki, þinglýstri eign Hreins Sigurðs-
sonar, fer fram að kröfu Búnaðarbanka ís-
lands og Tryggingastofnunar ríkisins, á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 27. október
1982 kl. 10.30.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki