Alþýðublaðið - 04.11.1982, Page 2
2
Fimmtudagur 4. nóvember 1982
— RITSTJ ÓRN ARGREIN--------------
Friður - Frelsi - Framtíð
41 fiokksþing Alþýðuflokksins hefst á morgun.
Ýmsar nýjungar munu koma til framkvæmda á
þessu flokksþingi, þegar litið er til fyrri þinga. Fyrir
það fyrsta verða flokksþingsfulltrúar mun fleiri en
áður hefur gerst. Nú munu flokksþingsfulltrúar
kjósa framkvæmdastjórn flokksins, sex fulitrúa, en
áðurvarframkvæmdastjórnin kjörin af flokksstjórn.
Þessi breyting er í átt til aukins lýðræðis og vald-
dreifingar.
Það er einnig vert að vekja athygli á því, að
formleg þingsetning fer nú fram í Gamla bíói og
þangað er allt Alþýðuflokksfólk boðið velkomið,
méðan húsrúm leyfir. Þingsetningin hefst klukkan
17 á morgun, föstudag.
Gífurlegur fjöldi ólíkustu mála mun koma til um-
ræðna og ákvörðunar á þessu flokksþingi Alþýðu-
flokksins. Auðvitað hafa langflest þessi mál verið
rædd ítarlega innan flokksins áður, í hinum ýmsu
flokksfélögum og stefnan mótuð, en á flokksþing-
inu verður heildarstefnan ákvörðuð.
Þetta flokksþing Alþýðuflokksins er um margt
mikilvægt fyrir flokkinn. Það liggur Ijóst fyrir að stutt
er í næstu Alþingiskosningar. Það er því brýnt að
flokksþingið verði starfsamt og afkastamikið. Mikil-
vægt er að Alþýðuflokksmenn stilli saman strengi
sína á flokksþinginu og komi einhuga og samhuga
fram til baráttu fyrir framgangi jafnaðarstefnunnar.
Alþýðuflokkurinn er ekki sundurtættur hið innra
um stefnumiðin, eins og aðrir stjórnmáiaflokkar
hérlendis. Alþýðuflokkurinn byggir á traustum mál-
efnalegum grunni. Islenskir jafnaöarmenn standa
saman um hugsjónir sínar og berjast fyrir þeim
hönd í hönd.
Andstæöingar Alþýðuflokksins hafa að undan-
förnu reynt að koma því inn hjá landsmönnum, að
ailt logaði í illdeilum innan flokksins. Þar bærust
menn á banasqjótum í bardaga um völd og vegtyll-
ur. Hér er úlfaldi gerður úr mýflugu. Staðreyndirnar
eru allt aðrar. Það hefur aldrei verið talið óeðlilegt
innan Alþýðuflokksins að kosið sé um menn og
málefni. Það er gangur lýðræöisins. Alþýðuflokkur-
inn hefur t.a.m. einn flokka bundið prófkjör í lög sín,
þannig að stuzningsmenn flokksins velja fram-
bjóðendur hans. Prófkjörið gerir þannig ráð fyrir því
að kosið verði. Það er því langur vegur fráfjví, að
klofningur sé innan Alþýðuflokksins þótt tveir eða
fleiri menn bjóði sig fram til sömu trúnaðarstarfa
fyrirflokkinn. Þvert á móti sýnir það virkt lýöræði og
einnig hitt, að Alþýðuflokkurinn á ekki í erfiðleikum
með að finna hæfileikaríkt fólk, sem vill vinna
flokknum vel. Á því vandamáli hefur hins vegar
borið í öðrum flokkum.Þar er leitað meó logandi
Ijósi að frambærilegu fólki og gengur oft illa að
finna.
✓
Einkunnarorð flokksþingsins eru friður - frelsi -
framtíð. Þessi einkunnarorð lýsa í hnotskurn
nokkrum þeim aðalatriðum, sem jafnaðarstefnan
grundvallast á.
Alþýðuflokkurinn hefur ávallt barist fyrir friöi í
heiminum. Hann hefur barist fyrir afvoþnun og
spennuslökun. Þá hefur flokkurinn óhikað gagn-
rýnt þau mannréttindabrot, sem framin eru dag-
lega í hinum ýmsu heimshornum, hvort sem þau
eru framin austan eða vestan megin járntjalds.
Alþýðuflokkurinn íslenski hefur t.a.m. tekið virkan
þátt í baráttu norrænna jafnaðarmannaflokka í
virkri sókn til friðar í heiminum.
Frelsið hefur jafnan verið jafnaðarmönnum ofar-
lega í huga. Tjáningarfrelsið er t.a.m. einn horn-
steinn lýðræðisins. Þessi þáttur frelsisins er fótum
troðinn í Austur-Evróqu. Jafn réttur manna til lífsins
gæða er líka hluti frelsisbaráttunnar. Fátækt og
örbirgð víða á suðurhveli jarðar er frelsisskerðing
af verstu tegund. íslenskir jafnaðarmenn berjast
gegn kúgun, arðráni og annarri þeirri frelsis-
skerðingu, sem fyrirfinnst í heiminum.
Ýmsir hafa beyg af framtíðinni. Jafnaðarmenn
horfa hins vegar óttalausir til framtíðar, þótt dökkar
blikur séu á lofti á ýmsum sviðum. En jafnaðar-
menn vilja ekki loka augunum fyrir vandamálunum
- þeir vilja leysa þau. Þess vegna horfir Alþýðu-
flokkurinn til framtíðar. Hér á Islandi höfum við
nærtækt dæmi um það, hvernig stjórnmálaflokk-
arnir neita að horfa til framtíðar í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Þeir hugsa aðeins um líðandi stund og
reyna að bjarga því sem bjargað verður frá degi til
dags. Þannig vill Alþýðuflokkurinn ekki standa að
málum. Hann vill að unnið verði skynsamlega að
uþþbyggingu nýs og heilbrigðs efnahagslífs, þar
sem horft verði fram á veginn.
Flokksþing Alþýðuflokksins um helgina mun
endursgegla sterkan, einhuga og framsækinn
Alþýðuflokk.
41. flokksþing Alþýðuflokksins verður uþþhafið
að sókn til sigurs í þeirri kosningabaráttu, sem
framundan er.
-GÁS.
Alþýðu-
flokksfélag
Reykja-
víkur
boðar til almenns um-
ræðufundar
um stjórnarskrár-
málið
Framsaga: Jón Bald-
vin Hannibalsson
Mán. 8. nóv. kl. 20.30
að Hótel Esju.
Kjartan 1
nefhdin sein á sér og óákveðin. En
ég tel að viðræður sem þessar geti
verið skynsamlegt spor, ef tekst að
hafa áhrif á aðgerðir ríkisstjórnar-
innar og ákveða kosningar. En
ríkisstjórnin verður þá að gera
skýra grein fyrir stefnu sinni og
áformum, en vitaskuld geta þeir
ekki ætlast til að við gefum okkar
álit á því sem ekki er fyrir hendi“.
Breytir það stöðunni að þínu
mati að Geir og sjálfstæðismcnn í
stjórnarandstöðu eru hættir?
„I rauninni ekki frá okkar sjónar-
hóli séð. Auðvitað ræður Geir
hvað hann gerir, það er hans mál
og þeirra sjálfstæðismanna hvort
þeir séu búnir að fá nóg eða ekki.
Við tökum auðvitað okkar á-
kvarðanir óháð því. Og það var á-
kveðið að við myndum hittast aftur,
enda tel ég rétt að gefa ríkisstjórn-
inni þetta tækifæri á að svara mín-
um spurningum með viðhlítandi
hætti, með það fyrir augum að ná
einhverju viðunandi samkomulagi
um framgang þingmála, með ák-
vörðun kosningadags svo fljótt sem
auðið er í forgrunni“, svaraði
Kjartan Jóhannsson, formaður Al-
þýðuflokksins.í gær.
Styrkir til háskólanáms í Danmörku
Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa íslendingum til há-
skólanáms í Danmörku námsárið 1983-84. Styrkimir eru miðaðir við 8
mánaða námsdvöl en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir.
Styrkfjárhæðin er áætluð um 2.940 danskar krónur á mánuði. -
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytis-
ins, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 20. desember n.k. - Sérstök
umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytið,
Dagskrá 41. flokksþings Alþýðuflokksins:
Föstudagur
5. nóvember:
Kl. 17.00 - Þingsetning í ís-
lensku Óperunni
(Gamla bíó),
Reykjavík.
- Dagskrá: „Frelsi,
friður, framtíð", í
tali ogtónumíumsjá
FUJ, Reykjavík.
- Einsöngur: Signý
Sæmundsdóttir
syngur við undirleik
Guðrúnar Steinunn-
ar Sigurðardóttur.
- Ræða formanns Al-
þýðuflokksins.
Kl. 18.30 - HLÉ.
Kl. 20.00 - í Kristalssal Hótels
Loftleiða:
- Kosning starfs-
manna þingsins.
- þingsköp- afgreidd.
- Ávörp formanna
S.Á. og S.U.J.
- Skýrsla kjörbréfa-
nefndar.
- Kosnar nefndir -
skipað í starfshópa.
- Skýrsla form. fram-
kvæmdastjórnar.
- Skýrsla gjaldkera
Alþýðuflokksins.
- Skýrsla ÁSS.
- Skýrsla minningar-
sjóðs Jóns Baldvins-
sonar.
Fríður - Frelsi - Framtíð
- Skýrsla minningarsj.
Magnúsar Bjarna-
sonar.
- Skýrsla sveitastjórn-
arráðs.
- Skýrsla Verka-
lýðsmálanefndar.
- Skýrsla fræðsluráðs.
- Umræður um
skýrslur.
- Afgreiðsla.
Laugardagur
6. nóvember:
Kl. 09.00 - Almennar urn-
ræður.
- Flutningur tillagna.
Kl. 12.00 - HLÉ.
Kl. 13.00 - Starfshópar: efnis-
svið eru:
a) stjórnmála- og
atvinnumál.
b) Utanríkismál.
c) Mennta- og
menningarmál.
d) Félags- og kjara-
mál.
e) Alþýðuflokkur-
inn og hagsmuna-
samtök launþega.
f) Auk þess verður
kjörinn kjarni í
allsherjarnefnd,
sem starfar með
sama hætti og
hóparnir.
Kl. 16.30 - Kosning ' svkv. 33.
gr. A lið (Formaður,
varaformaður, rit-
ari, gjaldkeri og for-
maður framkvæmda
stjórnar).
Sunnudagur
7. nóvember:
Kl. 10.00 - Álit starfshópa. Af-
greiðsla tillagna.
- Kosning skv. 33. gr.
B lið (sex fulltrúar í
framkvæmdastjórn)
fer fram samhliða
þingstörfum milli kl.
13.00-15.00.
- Kosning skv. 33. gr.
C lið (þrjátíu fulltrú-
ar í flokksstjórn án
tillits til búsetu) fer
fram samhliða þing-
störfum milli kl.
15.30-17.30.
- forsetar ákveða
matar- og kaffihlé
eftir aðstæðum.
Kl. ca. 19.00 - Úrslit kosninga-
Þingslit.