Alþýðublaðið - 30.12.1982, Síða 3
Fimmtudagur 30. desember 1982
3
33 stúdentar útskrifaðir frá Flensborg
35 nemendur voru
brautskráðir frá Flensborgar-
skólanum í Hafnarfirði laugar-
daginn, 18. desember. Af þeim
var 1 með próf af heilsugæslu-
braut, 1 með verslunarpróf, en 33
með stúdentspróf.
Stúdentarnir 33 skiptast þann-
ig á brautir, að 5 luku prófi af
eðlisfræðibraut, 5 af félags-
fræðabraut, 1 af heilsugæslu-
braut,4 af málabraut,5 af náttúm
fræðibraut, 6 af uppeldisbraut
og 7 af viðskiptabraut.
Bestum námsárangri náðu
Hrafnhildur Skúladóttir, við-
skiptabraut, Gunnar Viktorsson,
málabraut, og Bryndís Erlings-
dóttir, náttúrufræðibraut, en
mikill meirihluti allra þeirra ein-
kunna var A.
Við skólaslitaathöfnina, sem
fram fór í húsnæði skólans, af-
henti skólameistari, Kristján
Bersi Ólafsson, hinum nýju stúd-
entum prófskírteini og sumurn
viðurkenningu fyrir góðan náms-
árangur. Þá söng þar kór skólans
undir stjórn Margrétar J. Pálma-
dóttur.
Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur 50 ára
Afmælisfagnaður í kvöld
Verkalýðs- og
Keflavíkur heldur í
fagnað í tilefni þess að 28. desem-
ber voru liðin 50 ár frá stofnun fé-
sjómannafélag lagsins, en það var stofnað þann
kvöld afmælis- dag árið 1932.
Mikil átök voru uppi fyrir
stofnun félagsins, en forveri þess
var barið niður með ofbeldi útvegs-
manna og annarra atvinnurek-
enda. Félagið hefur síðan í 50 ár
starfað af miklum þrótti og náð
umtalsverðum árangri í réttinda-
baráttu verkafólks og sjómanna.
Verslunarráð spáir um
þróun verðlags á árinu 1983
Verzlunarráð íslands hefur gert
spá um þróun verðlags, launa og
gengis Bandaríkjadollars á árinu
1983. Samkvæmt henni verður
verðbólgan á næsta ári um 59%
miðað við hækkun framfærsluvísi-
tölu frá upphafi til loka ársins.
Meðaltalshækkun verðlags á milli
ára verður á hinn bóginn um 62%.
í spánni er einnig gert ráð fyrir,
að laun hækki um 58% á árinu
1983, en gengi Bandaríkjadollars
um 65%.
Helstu forsendur spárinnar eru'
þær, að engar grunnkaupshækkan-
ir verði á árinu umfram gildandi
samninga, viðskiptakjör rýrni ó-
verulega, dollarinn haldi styrkleika
sínum á alþjóða peningamarkaði
og samdráttur verði í eftirspurn
vegna vaxtabreytinga og breytinga
á kaupgj aldsvísitölu.
Fjárhagsáætlun 1
Að sögn Guðmundar Oddssonar
er ýmislegt í þessari áætlun sem
ánægjulegt má teljast.
„Við lækkuðum fasteignagjöldin
um 10% og höfum ákveðið að inn-
heimta án álags. Þetta gerir að
hækkun á fasteignamati á milli ára
verður hjá okk,ur um 61%, en ekki
78% eins og fasteignamatið gaf
upp og hefði sjálfsagt orðið án
þessara ákvarðana. Onnur gjöld
haldast óbreytt, svo ekki er hægt að
segja að skattheimtan aukist hjá,
okkur, nema síður sé.
Einnig er rétt að benda á veru-
legt framlag til Strætisvagna Kópa-
vogs, sú upphæð er hærri en það
sem fer í stjórnun kaupstaðarins,
um 11.7 milljónir.
Vinningsnúmer í
happdrætti
Styrktarfélags
vangefinna
Vinningsnúmer:
1. vinningur:
SaabTurbo, bifreið, árgerð 1983,
nr. 23225
2. vinningur:
Bifreið að eigin vali að upphæð
kr. 130.000,- nr. 86656
3. -10. vinningur:
Húsbúnaður að eigin vali, hver
að upphæð kr. 30.000,- nr. 27742
- 38673 - 41197 - 60102 - 69420
82644 - 84001 og 88904.
Félagið flytur öllum hugheilar
þakkir fyrir veittan stuðning.
Styrktarfélag vangefinna
Einnig þykir mér fróðlegt að
benda á verulegt framlag til Strætis-
vagna Kópavogs, sú upphæð er
hærri en það sem fer í stjórnun
kaupstaðarins, um 11.7 millónir.
Einnig þykir mér fróðlegt að
bera saman framlög til félagsmála
hér og t.d. á Seltjarnarnesi. Hlutur
félagsmála af heildartekjum er
24.8% hjáokkur, en aðeins um 11-
12% hjá þeim. Mér finnst þetta
sláandi dæmi um mismuninn á
stjórnuninni og í rauninni á hinni
pólitísku stefnu hvað samhjálp og
slíkt varðar. Framlag til
heilbrigðismála virðist kannski
ekki mikið að þessu sinni, en hins
er að gæta að verulegt átak hefur
átt sér stað á undanförnum árum.
Nú hins vegar verður að segjast
eins og er að útlit er fyrir að nokkuð
hægi á hvað framkvæmdir snertir,
en þó er alls ekki útséð með það og
er von til þess að rofi til í þeim
efnum“ sagði Guðmundur.
Fyrri umræða hefur farið fram,
en síðari umræða fer að líkindum
fram í febrúar.
Fjöldauppsagnir 1
fyrirhugaðra viðræðna bæjar-
ráðs við útgerðarráð BÚH og
fulltrúa verkalýðsfélaganna í
bænum."
Á fundinum var einnig til um-
ræðu tillaga bæjarstjóra, Einars
Inga Halldórssonar, sem snerti
málefni Bæjarútgerðarinnar. í
henni var lagt til að ógreitt framlag
bæjarsjóðs til BÚH á þessu ári -
800 þúsund krónur - verði látið
renna til að mæta skuldum Bæjar-
útgerðarinnar við hafnarsjóð, Raf-
veitu Hafnarfjarðar og eftirlauna-
sjóð Hafnarfjarðar.
Þessi tillaga var samþykkt á
fundinum með 11 samhljóða at-
kvæðum, en bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokksins gerðu svohljóðandi
grein fyrir atkvæði sínu:
„Tel eðlilegra að ógreitt fram-
lag bæjarsjóðs til BÚH á árinu
1982 verði veitt í rekstur út-
gerðarinnar, sem tilfinnanlega
vantar rekstrarfé, en ekki verði
skuldajafnað við bæjarfyrirtæki
og - sjóði, eins og tillaga bæjar-
stjóra gerir ráð fyrir. Þess í stað
sýni bæjarsjóður og bæjarfyrir-
tæki biðlund um sinn hvað
varðar skuldir BÚH.
En til að rjúfa ekki þá samstöðu
í bæjarstjórn, sem orðið hefur
um málefni Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar á fundinum, þá
segi ég já.“
Eins og fram hefur komið er ráð-
gert að bæjarráð hitti fulltrúa í út-
gerðarráði og fulltrúa verkalýðsfé-
lagannaað máli í dag og verði þar
rædd hin alvarlega staða fyrirtækis-
ins og áhrif á atvinnuástandið í
bænum, og til hvaða ráða sé unnt
að grípa í því sambandi.
Úr einu í annað 1
Þá mun Guðmundi svíða nokk-
uð, að Ólafur Jóhannesson var
sóttur norður í land - í Norður-
land vestra - á sínum tíma til að
skipa efsta sætið í Reykjavík. Var
það þá mat Framsóknarmanna í
Reykjavík, að Guðmundur væri
ekki í stakk búinn til að axla þann
þunga sem hvílir á oddvita listans
í efsta sæti. Og nú virðist
sagan vera að endurtaka sig og
súrnar Guðmundi þessi þróun
mála.
Aðrir telja þó að þetta „hik“
Guðmundar nú sé aðeins til að
kalla á áskoranir og hvatningu frá
flokksmönnum. Hann vilji með
einhverjum hætti að frumkvæðið
komi frá öðrum en sjálfum sér og
sínum nánustu stuðnings-
mönnum.
Talið er líklegt að Guðmundur
héldi öðru sæti listans í prófkjöri,
þótt nokkuð sé hann umdeildur í
ýmsum klíkum Framsóknar-
flokksins í höfuðborginni.
Á hinn bóginn er nánast öruggt
talið, að Ólafur haldi efsta sætinu
og Guðmundur G. Þórarinsson
hniki honum ekki þumlung á
þeim vettvangi.
Það er svo aftur spuming hvort
þessi sjónleikur þeirra Framsókn-
armanna í Reykjavík núna varð-
andi listaskipan sé ekki farsi einn,
þegar til þess er litið að langt því
frá er það öruggt aðFramsóknnái
inn kjördæmakjörnum manni í
Reykjavík í næstu kosningum.
Ef til vill er það sá ótti sem
nagar Guðmund G. Þórarinsson
hvað helst og gerir það að verk-
um að hann er ekki ginnkeyptur í
annað sæti listans. Efsti maður
listans næði þó altént uppbótar-
þingsæti....
Ólafsvík -
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra í Ólafsvík er laust til umsóknar.
Starfiö veitist frá 1. febr. 1983.
Umsóknir um starfiö ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist sveitarstjóra Olafsvíkurhrepps,
sem veitir allar nánari upplýsingar, fyrir 7. jan. nk.
Hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps.
Leikskólinn í
Ólafsvík
Starfskraft vantar strax aö leikskólanum í Ólafsvík,
fóstrumenntun æskileg.
Staða forstööumanns með fóstrumenntun er einnig
laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist sveitarstjóra Ólafsvíkurhrepps, sem veit-
ir allar nánari upplýsingar í síma 93-6153, fyrir 10. jan.
nk.
Fyrir hönd leikskólanefndar:
Sveitarstjórinn Ólafsvíkurhreppi.
Jólatrés-
skemmtun
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrés-
skemmtun aö Hótel Sögu, Súlnasal sunnudaginp 2.
janúar 1983 kl. 15.00.
Aðgöngumiðar veröa seldir á skrifstofu félagsins á 8.
hæö í Húsi verzlunarinnar við Kringlumýrarbraut.
Tekiö verður á móti pöntunum í síma 86799.
Miðaverð fyrir fulloröna kr. 50.00.
Miðaverð fyrir börn kr. 80.00.
Miðar verða ekki afhentir við innganginn.
Ath. að skrifstofan er flutt af Hagamel 4 í
Hús verzlunarinnar 8. hæð við Kringlumýrarbraut.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Útboð:
Tilboð óskast í stálpípur fyrir Hitaveitu
Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 1. febrúar 1983, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirlcjuvegl 3 — Sími 25800