Alþýðublaðið - 31.03.1983, Síða 1
Gleðilega páska
Fimmtudagur 31. mars 1983.
47. tbl. 64. árg.
Verkamenn við Sundahöfn:
Páskahelgin er framundan. Næsta tölublaö Alþýöublaösins kemur því ekki út
fyrr en eftir páska; miðvikudaginn 6. apríl.
Alþýðublaðið óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra páska.
Félagar í FUJ í Reykjavík gefa út blað:
Vinnustaöafundir hafa verið tíðir hjá frambjóðendum Alþýðuflokksins á undanförnum dögum. Þessi
mynd var tekin í Landsbankanum i vikunni, þegar Jón Baldvin Hannibalsson kynnti þar stefnu
Alþýðuflokksins í komandi alþingiskosningum
lyuuiiunKsms i Komanai aipmgisKOsnmgum
inginn treysti sér til
ið verja frammistöðu
llþýðubandalagsins
húsnæðismálum
»r
Guðmundur J. hefur
ekki sést hér mánuðum
saman enda á hann
ekkert hingað
að sækja“
- sögðu verkamennirnir
Frambjóðendur Alþýðuflokks-
ins eru nú á stöðugum vinnustaða-
fundum í Reykjavík og hafa undir-
tektir yfirleitt verið góðar. Jóhanna
—RITSTJÚRNARGREIN-
Sigurðardóttir var á fundum í gær í
Karnabæ, Bílaborg og hjá efna-
lauginni Fönn. Mikla athygli við-
staddra vakti í gær, þegar enginn
verkamaður í Sundahöfn treysti sér
til að verja frammistöðu Alþýðu-
bandalags í húsnæðismálum. Jón
Baldvin Hannibalsson bað þá
menn, sem vildu standa upp og
verja frammistöðu Bandalagisns í
þessum málaflokki að standa upp
og svara, en enginn treysti sér til
þess, enda málstaðurinn ekki glæsi-
legur.
Fjölmenni var i þessum matar-
tíma í Sundaskála, þegar frambjóð-
andá> Alþýðuflokksins bar þar að
garði.Jón Baldvin Hannibalsson
dró upp Alþýðublaðið og benti
mönnum á hvernig núverandi
félagsmálaráðherra væri í rauninni
búinn að leggja hið opinbera hús-
næðiskerfi í rúst. Þetta sæist best af
því, að skammtímalán launamanns
á Dagsbrúnartaxta gætu farið í allt
að 83% af árstekjum hans. „Hvern-
ig ætla menn að réttlæta þessa
stefnu, spurði Jón Baldvin? Og á
sama tíma birta þeir á Þjóðviljan-
um uppsláttarfréttir um að nú eigi
að fara að byggja fyrir unga fólkið.
Finnst ykkur að það eigi að verð-
launa þessa menn fyrir frammi-
stöðuna, spurði hann?
Síðan bað Jón Baldvin viðstadda
alþýðubandalagsmenn að standa
upp og verja frammistöðu félags-
málaráðherrans. Þögn rikti í saln-
um. Enginn stóð upp. Á viðræðum
sem frambjóðandinn átti við verka-
menn, var Ijóst að þeir sem stutt
hafa Alþýðubandalagið undanfarin
ár, eru ekki ýkja hrifnir af flokkn-
um um þessar mundir. „Guðmund-
ur J. er steinhættur að koma
hingað, hefur ekki sést hér mánuð-
um saman, enda veit hann að hann
á hingað ekkert að sækja“, sagði
einn verkamaðurinn. „Alþýðu-
bandalagið hefur í rauninni dæmt
sig úr leik með frammistöðunni í
húsnæðismálunum", sagði annar.
»»
LIÐUR I KOSNINGABARÁTTU
UNGRA JAFNAUARMANNA"
- segja ristjórarnir, Sigurður
Guðmundsson og
Guðrún Helga Sigurðardóttir
Félagar í Fuj í Reykjavík hafa
gefið út blað, sem þeir nefna Friður,
Frelsi, Framtíð. „Þetta er stærsta
framlag okkar til kosningabaráttu
Alþýðuflokksins í höfuðborginni
fram að þessu“, sögðu þau Sigurður
Guðmundsson og Guðrún Helga
Sigurðardóttir í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær, en blaðið kom út í
byrjun vikunnar. Munu félagar í
FUJ dreifa blaðinu í borginni á
næstu dögum sérstaklega meðal
ungs fólks.
Blaðið er fjölbreytt og vandað að
efni. í því eru tvö viðtöl við fram-
bjóðendur í Reykjavík, þau Marí-
önnu Friðjónsdóttur og Viggó
Sigurðsson. Þá eru greinar um at-
vinnuleysi og kynning á Félagi
ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.
Fjallað er um raunvexti og hús-
næðismál, kollsteypur Svavars
Gestssonar í tannlæknamálinu,
kosningar og skoðanakannanir og
stefnumörkun Alþýðuflokksins við
þessar alþingiskosningar.. Þá er
fjallað um frið og afvopnun auk
fleira áhugaverðs efnis.
Húsnæðisstofnun rekin á yfirdrætti hjá Seðlabankanum:
120 milljónir vantar upp
á til að endar nái saman
120 milljónir króna vantar nú hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins til að
endar nái saman hjá stofnuninni og
hægt sé að standa við væntanlegar
skuldbindingar stofnunarinnar í ár.
Þetta fékk Alþýðublaðið staðfest
hjá stofnuninni í gær. Ástæðan er
fyrst og fremst sú, að minna hefur
komið inn af fjármagni í gegn um
lífeyrissjóði Iandsmanna en áætlað
var. Helmingur þessarar upphæðar
120 milljóna - um 60 milljónir
koma frá Veðdeildinni svo að unnt
sé að halda starfseminni gangandi,
en það dugir ekki til þannig að ann-
að eins er nú á yfirdrætti í Seðla-
banka íslands.
Aðalástæða þessa ástands hjá
Húsnæðisstofnuninni er eins og áð-
ur sagði að lífeyrissjóðirnir hafa
ekki skilað inn öllu því fjármagni
sem áætlað var á síðasta ári. Var
reiknað með því að byggingarsjóð-
ur ríkisins fengi t.d. lánað á síðasta
ári 187 milljónir frá lífeyrissjóðun-
um en hann fékk hins vegar ekki
nematæpar 130milljónirárið 1982.
Talið er að mjög hafi verið ofáætlað
■einnig i ár hve mikið lífeyrissjóðirn-
ir eru aflögufærir um fé til bygg-
ingasjóðanna. Áætlað var, að líf-
eyrirssjóðirnir létu 320 milljónir af
hendi á þennan hátt í ár, en margir
telja það mjög óraunhæft og benda
á reynsluna frá síðasta ári. Nú er
verið að athuga í hverju þessi mjög
svo óraunhæfa áætlanagerð liggur.
Það má því búast við því að erfitt
verði framundan í lánamálum hús-
byggjenda ef svo heldur fram sem
horfir í þessum málum.
Hver tekur mark á kosningaloforðum þeirra?
Mér ofbýður gersamlega þessi
málflutningur forystumanna
Alþýðubandalagsins og Sjálf-
stæðisflokks um húsnæðismálin
nú á síöustu dögum. Alþýðu-
bandalagið stendur nú á rústum
hins opinbera lánakerfis hús-
næðismarkaðarins, en ætlar
síöan nú aö bjarga öllu við, þegar
eru að koma kosningar. Nú
segjast þeir geta sett upp sér-
stakt kerfi fyrir þá sem eru aö
byggja í fyrsta sinn. En Svavar
Gestsson hefur fariö meö þetta
ráöuneyti árum saman og í raun-
inni lagt kerfiö í rúst. Sjálfstæöis-
menn segjast nú vilja veita þeim
sem byggja í fyrsta sinn sérstaka
fyrirgreiðslu og iána ailt upp í
80% byggingarkostnaöar. Á
sama tíma ætla þeir aö draga
stórlega úr erlendum lántökum
og lækka skatta. Hvernig fer
þetta saman?
Þetta voru orö Magnúsar H.
Magnússonar varaformanns
Alþýðuflokksins og fyrrum
félagsmálaráöherra i Alþýðu-
blaösviðtali s.l. þriöjudag.
Magnús H. Magnússon lagöi
sjálfur fram raunhæfar og vel
ígrundaöar tillögur í húsnæðis-
málunum. Ef þær tillögur heföu
verið samþykktar á sínum tíma,
þá væri hlutfali lengri lána nú um
65% af byggingarkostnaði
staöalíbúöa. Svavar Gestsson
skilar hins vegar af sér mun
lakara hlutfalli. Sama er uppi á
teningnum, þegar skoöaö er
hlutfall lána af kaupverði staöal-
ibúöa. Ef tillögur Magnúsar
hefðu verið samþykktar, þá væri
lánið 45% af veröi staöalíbúöar,
en í dag um 20%. Ofan á bætist
einnig, aö Magnús gerði ráð fyrir,
aö greiðslur lánsins yröu verö-
tryggðar, en svo er ekki í dag.
Þetta þýöir í núverandi verö-
bólguástandi, aö lán Húsnæðis-
stofnunar eru að raunviröi aö-
eins um 10—12% af veröi staöal-
íbúðar.
Pessar tölur sýna svart á hvítu
aö þessi mál hata öll hallast á
verri veg í stjórnartíð Svavars
Gestssonar í félagsmálaráðu-
neytinu. Þaö er því hámark ó-
svífninnar, þegar þessi maöur
hrópar nú á torgum um nauðsyn
þess aö gera átak í húsnæöis-
málunum. Spurt er: hvers vegna
hefur ráðherrann ekki tekiö á
þessum málum á undanförnum
árum, þegar hann hefur haft til
þess tækifæri?
Hvaö Sjálfstæðisflokkinn
áhrærir, þá þekkja allir sögu
flokksins ' og hug hans til opin-
bera lánakerfis húsnæöis-
markaöarins. Foringjar Sjálf-
stæöisflokksins hafa aldrei sýnt
því neinn raunverulegan áhuga
aö efla þaö kerfi, heldur þvert á
móti hamast gegn því. Það er
engin tilviljun, aö Sjálfstæðis-
flokknum er aldrei treyst fyrir
ráöuneyti félagsmála í sam-
steypustjórnum hér á landi. Sá
flokkur hefur og veriö þekktur
fyrir sitthvaö annaö, en aö hlúa
að fólagshyggjunni og samhjáip-
inni. Húsnæöismálapólitík
íhaldsins nú fyrir kosningar, er
þar af leiöandi kosningabomba
af ódýrustu gerð.
Mlþýöuflokkurinn heíur hins
vegar undirbyggt tillögur sínar i
þessum málum og nákvæmlega
tiundaö hvernig eigi aö afla
tekna vegna hækkaös lánahlut-
falls. Alþýöuflokkurinn hefur ár-
um saman verið sverö og skjöld-
ur hins opinbera húsnæöislána-
kerfis. Um það er ekki deilt. Til-
lögur Magnúsar H. Magnússon-
ar heföu gert þaö aö verkum aö
staða þeirra sem nú eru aö
byggja eöa kaupa íbúö væri allt
önnur og betri en nú er. Sam-
kvæmt þeim tillögum væri nú
raunhæft aö ná 80% markinu
innan fárra ára. En þeir sem nú
hrópa hæst á torgum um vand-
ann í húsnæðismálunum, vildu
ekki sjá framþróun i þessum
málum og felldu tillögur
Magnúsar. Þaö var allur hugur
íhalds og komma til raunveru-
legra úrbóta í húsnæðismálun-
um.
Paö er því ekki ofsagt, þótt
mönnum flökri sýndarmennska
Alþýðubandalags og Sjálf-
stæðisflokks um þessar mundir.
Yfirboö á yfirboð ofan eru þaö
einasta sem þessir fiokkar hafa
fram að færa.
Mlþýðubandalagiö og Sjálf-
stæöisflokkur hafa allt niður um
sig í húsnæðismálunum. Verkin
sýna merkin. Kosningaskjálfti
þessara flokka og örvæntingar-
hróp nú rétt fyrir kosningar
breyta þar engu um.
— GÁS.