Alþýðublaðið - 31.03.1983, Qupperneq 4
alþýðu-
Fimmtudagur 31. mars 1983.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guömundur Árni Stefánsson.
Blaðamenn: Þráinn Hallgrimsson og Friðrik Þór Guðmundsson.
Augiýsingastjóri: Áslaug G. Nielsen.
Gjaldkeri: Halldóra Jonsdóttir.
Dreifingarsljóri: Sigurður Steinarsson.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866.
Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38.
Áskriftarsíminn
er 81866
Einvígi Jóns Baldvins og Alberts í Sigtúni:
4 1
jk 5 V 1
Hér takast frambjóöendur á Jón Baldvin Hannibalsson til vinstri en Albert Guðmundsson
ysti til hægri á myndinni. Milli þeirra sitja spyrlar og fundarstjóri frá vinstri: Ágúst Valfeils,
Jón Óttar Ragnarsson, Agnes Bragadóttir og Þráinn Hallgrímsson.
„Eg gerði mistök“
- sagði Albert Guðmundsson um stuðning sinn við
ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens
Húsfyllir var í Sigtúni vió Suöurlandsbraut á mánudagskvöldiö þegar
þeir kapparnir Jón Baldvin Hannibalsson, efsti maöur A-listans í Reykja-
vík og Albert Guðmundsson, efsti maður D-listans í höfuðborginni leiddu
saman hesta sína. Albert Guðmundsson sagöi i upphafi að þessi fundur A-
listans væri mesta stuðningsyfirlýsing sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði
fengið í kosningabaráttunni Jón Baldvin svaraði aö bragði stuðningur við
hvaða Sjálfstæðisflokk. Pálma á Akri, sem er framsóknarmegin við fram-
sóknarflokkinn í landbúnaðarmálum, hinn þrönga flokk Geirs og Alberts
í Reykjavík eða frjálslynda flokksins hans Gunnars Thoroddsens? Fundur-
inn var mjög fjörugur á köflum og höfðu fundargestir gaman að ýmsum
svörum þeirra félaga. Fjölmargar fyrirspurnir bárust úr salnum og stóð
fundurinn til miðnættis. Of langt mál er að kynna svör frambjóðenda, en
markvert verður að teljast, að Albert Guðmundsson skyldi fást til að viður-
kenna, að hann hefði gert mistök, þegar hann á sínum tíma gerðist stuðn-
ingsmaður ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen. Hvorugur frambjóðenda
vildi útiloka samstarf þessara tveggja flokka að kosningum loknum, en
Albert tók þó fram, aö hann vildi ekki líkja forystumönnum Alþýðu-
flokksins á viðreisnarárunum við þá sem eru í fararbroddi í dag. Hér fara
á eftir kaflar úr ávörpum frambjóðendanna.
Jón Baldvin Hannibalsson:
„Valdhöfum
verðbólgu
áratugarins
hefur tekist
að tefla efnahag
okkar í
tvísýnu"
Þótt valdhafar verðbólguára-
tugarins hafi vissulega verið
ábyrgðarlausir orða sinna og gerða,
leysir það okkur kjósendur ekki frá
ábyrgð. Stjórnmálamenn og stjórn-
málaflokka á að dæma af verkum
þeirra. í þessum kosningum ber
kjósendum að kveða upp sinn dóm.
Yfir þeim, sem ráðið hafa ferðinni á
verðbólguáratugnum.
Hverjir eru það? Það eru tvíbura-
flokkarnir, Framsókn og Alþýðu-
bandalag, öllum öðrum fremur. Ef
við ekki höfnum þeim svo rækilega
í þessum kosningum, að ekki komi
til greina að þeir geti tjaslað saman
nýrri ríkisstjórn, þá tökum við á
okkur ábyrgðina af óstjórn þeirra.
Framsók'narflokkurinn hefur
verið við völd i 13 ár - Alþýðu-
bandalagið í 8. Reynslan, og hún er
ólyginn dómari, kennir okkur, að
stjórnarsamstarf þessara tveggja
flokka es ávísun á óðaverðbólgu,
hallarekstur, skuldasöfnun, versn-
andi lífskjör og vaxandi misrétti.
Velfarnaður þjóðarheildarinnar
byggist fyrst og fremst á skynsam-
legri nýtingu takmarkaðra auð-
linda. Gróðurmoldar, fiskistofna,
orkulinda og framtaki og atorku
einstaklinganna. Undirrót ógæf-
unnar á verðbólguáratugnum er sú,
að þessir flokkar hafa ástundað
rányrkjustefnu til lands og sjávar,.
en vannýtt aðrar auðlindir.
Fyrir ábyrga kjósendur er fyrsta
skrefið út úr ógöngunum, að hafna
tvíburaflokkunum við kjörborðið.
En það eitt er ekki nóg. Við verður
líka að verja atkvæði okkar þannig.
En hvað er að frétta af stóra
flokknum hans Alberts? Hefur
hann verið heill og óskiptur í
stjórnarandstöðu á verðbólguára-
tugnum? Það þarf ekki nema að
orða spurninguna til þess að vita,
að við erum að nefna, snöru í
hengds manns húsi.
Er Sjálfstæðisflokkurinn það
sem hann segist vera? Er hann sá
andstæðingur ríkisforsjár og mið-
stýringar, sem talsmenn hans láta í
veðri vaka á tyllidögum?
Ég spyr: Er sjálfstæðisflokkur
Pálma á Akri og Egils á Seljavöllum
reiðubúinn að segja skilið við fram-
sóknarfárið í landbúnaðinum?
Þorir Sjálfstæðisflokkurinn að
fylgja eftir yfirlýstri stefnu sinni um
frjálsa verðmyndun, líka í land-
búnaði, með beinum samningum
tD
Mroskahjálp
NÓAIÚNI1V. 105 REYKJAVlK, SlMI29901
Landssamtökin Þroskahjálp og Norræn samtök um
málefni vangefinna (NFPU) boöa til samnorrænnar
námsstefnu um efniö:
,,En skola för alla“
aö Hótel Loftleiðum dagana 18r-22. apríl 1983.
Námsstefnan er opin öllum þeim er starfa aö kennslu
og þjálfun þroskaheftra svo og foreldrum þroska-
heftra barna.
Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Landssamtakanna
Þroskahjálpar, Nóatúni 17,105 Reykjavík, sími 29901
fyrir 8. apríl n.k.
Fjöldi þátttakenda miöast viö 40—50 manns.
Þátttökugjald er kr. 1.000.00
Undirbúningsnefndin
bænda og vinnslustöðva, án bak-
reikninga til skattgreiðenda?
Er Sjálfstæðisflokkur Sverris
Hermannssonar reiðubúin að reka
kommissara út úr spillingarbæli
pólitískrar skömmtunarstjórnar?
Friðrik Sophusson segir að vísu:
Báknið burt - en hætt er við að
Sverrir segi: - Láttu það kjurt.
Albert Guðmundsson:
„Besta sumargjöfin
er meirihluti
Sjálfstæðismanna
á Alþingi"
„Hvað er það sem á að taka við að
kosningum loknum er spurt. Ég
svara: Það er Sjálfstæðisflokkur-
inn sem á að taka við. Ef ekki kem-
ur til meirihluti Sjálfstæðisflokks-
ins á Alþingi, þá munu fimm vinstri
flokkar taka hér við. Mér finnst það
lýsandi um afstöðu Alþýðuflokks-
ins að hann skuli hafa boðið mér
efsta manni Sjálfstæðismanna í
Reykjavík á þennan A-lista fund.
Vitanlega kemur Alþýðuflokkur-
inn fyrst til Sjálfstæðisflokksins
eftir ráðgjöf. Þetta er mesta traust-
yfirlýsing, sem Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur fengið í allri kosningabar-
áttunni.
Meirihluti á Alþingi íslendinga í
hendur Sjálfstæðisflokksins er
besta sumargjöf sem landsmönnum
getur hlotnast. Við sjáum það víða
um lönd, þar sem jafnaðarmenn
hafa farið með völdin, að þeir hafa
leitt efnahag landanna í rúst. Sjáið
t.d. hvernig er að fara fyrir mínu
ástkæra landi Frakklandi. Þar rek-
ur hver gengisfellingin aðra og alger
upplausn ríkir undir stjórn
Mitterrands forseta.
Alþýðuflokkurinn hefur sótt
sína stefnu til annarra landa, til
þinga jafnaðarmanna og sam-
þykkta þeirra. Ég vona að þeir læri
sína lexíu og taki upp stefnu Sjálf-
stæðisflokksins og mér heyrist nú á
þér Jón minn, að þú sért að snúast
til fylgis við hina hreinu og tæru
stefnu Sjálfstæðisflokksins í efna-
hags og atvinnumálum.
Valið í komandi kosningum
stendur því milli fimm vinstri
flokka og Sjálfstæðisflokksins og
ég vona að þjóðin beri gæfu til að
kjósa meirihluta Sjálfstæðismanna
inn á Alþingi íslendinga“.
'á • ' '4 V • ••0> 1 . >•/ 1
„Ég skipti ekki um skoðun í kjördæmamálinu á Þorskafjarð-
arheiðinni,“ segir Jón Baldvin við einni fyrirspurn fundar-
manns um það hvort hann hefði skipt um skoðun á kjör-
dæmamálinu við það að verða þingmaður Reykvíkinga. Eins
og sjá má var húsfyllir í Sigtúni og stóðu milli tvö til þrjú
hundruð manns um alian saiinn.
Aðalfundur
Iðnaðarbanka íslands hf. árið 1983 verður
haldinn í Súlnasal Hótel Sögu kl. 14:00,
laugardaginn 9. apríl 1983.
Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf
samkvæmt ákvæðum 18. gr. samþykkta
bankans.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir hluthöfum eða umboðsmönnum
þeirra í Aðalbanka að Lækjargötu 12, 3.
hæð, dagana 5. apríl til 8. apríl, að báðum
dögum meðtöldum.
Reikningar bankans fyrir árið 1982, ásamt
tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja,
verða hluthöfum til sýnis á sama stað.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir
fundinn, þurfa að hafa borist bankaráðinu
skriflega 7 dögum fyrirfundinn.
Reykjavík, 25. febrúar 1983
Bankaráð
IÐNAÐARBANKA ÍSLANDS HF.
Iðnaðaitankinn