Alþýðublaðið - 06.04.1983, Síða 2
Miðvikudagur 6. apríl 1983
•RITSTJORNARGREIN.
12 ára óstjórnartímabil
„Staðreyndiri er sú, að við höfum búið við sömu
leiðir og sömu flokka í landstjórninni nú í 12 ár.
Framsóknarflokkurinn hefur setið öll árin. Alþýðu-
bandalagið hefur verið i átta ár af þessum 12 í ríkis-
stjórn og sjálfstæðismenn hafa verið átta ár líka.
Þessir aðilar hafa ráðið ferðinni og beitt sínum ráð-
um, en við viljum benda á að það eru til betri leiðir
og höfum barist fyrir því að þær yrðu teknar upp.
Við viljum gerbreytta efnahagsstefnu".
Þetta voru orð Kjartans Jóhannssonar for-
manns Alþýðuflokksins á blaöamannafundi í síð-
ustu viku, þar sem forystumenn flokksins kynntu
efnahagsstefnu Alþýðuflokksins og höfuðmál í
kosningabaráttunni.
Alþýðuflokkurinn gengur út í þessa kosningabar-
áttu undir kjörorðinu, „betri leiðir bjóðast". Með
þessum orðum er flokkurinn að koma því til skila,
að það stjórnleysi sem i raun hefur ríkt hér á landi
síðustu ár, þarf ekki að vera viðvarandi ástand.
Það þurfi hins vegar kjark og dug til að komast út
úr vítahring vitleysunnar. Það þurfi að fara aðrar
leiðir.
Á nefndum blaðamannafundi sagði Kjartan Jó-
hannsson: „Það hefur margvíslegur skaöi skeð á
þessum síðustu árum og nú er oröin þjóðarnauð-
syn að menn fari inn á nýjar brautir í efnahags-
stjórn. Ráð hinna flokkanna hafa verið reynd.
. Þetta ástand sem hér ríkir þýðir náttúrlega að það
verður ekki hægt að segja já við öllu og það geng-
ur ekki aö vera með gylliboð; þau munu ekki koma
fráokkur Alþýðuflokksmönnum. Skuldasöfnun er-
lendis er staðreynd, sem við getum ekki horft
framhjá. Verðbólgan sömuleiðis. Atvinna er í
hættu. En menn hafa veriö svo uppteknir að bjarg-
ast frá degi til dags að menn hafa ekki komist al-
mennilega til verka“.
Formaður Alþýðuflokksins benti á nokkrar að-
gerðir sem grípa þyrfti til þegar í stað, svo stemma
mætti stigu við þeirri óheillaþróun sem átt hefur
sér stað i' efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar.
í því sambandi sagði hann m.a.: „Það er meginat-
riði að hætt verði að verja peningum í óarðbærar
framkvæmdir í óhóflegar útflutningsbætur og ó-
heyrilegan innflutning átogurum. Með þessu móti
losum við fé til þess að byggja upp arðbær störf,
skapa eðlilegan aðgang að rekstrarfé, gera það
kleift að úrvinnsluiðnaðurinn í sjávarútvegi og
landbúnaði fái tækifæri til að dafna og nýtækniiðn-
aðurinn og nýjar atvinnugreinar eins og í fiskirækt
fái raunveruleg vaxtarskilyrði. Jafnframt teljum við
erlendri samkeppni við íslenska framleiðslu og að
rikið verði að ganga á undan í því að kaupa íslensk-
ar vörur. Einnig verður þegar í stað að taka upp
skynsamlegri stjórnun á fiskveiðum, en hún hefur
eins og kunnugt er tekist mjög hrapalega að und-
anförnu“.
Kosningastefnuskrá Alþýðuflokksins er ítarleg. í
henni er ekki að finna nein yfirboð, engar kosn-
ingabombur. Stefna Alþýðuflokksins tekur ekki
neinum breytingum fyrir kosningar. Það er ekki
háttur jafnaðarmanna aö segja eitt fyrir kosningar
og annað eftir þær. Kosningamál Alþýðufloksins
eru í engu frábrugðin þeirri stefnu sem flokkurinn
hefur barist fyrir á undanförnum árum. Þeirri
stefnu hafa hinir flokkarnir hafnað fram að þessu.
Afleiðing þess er öllum Ijós. Kreppuástand á flest-
um sviðum þjóðlífs talar þar skýru máli. Þess
vegna er löngu kominn tími til að nýjar leiðir verði
farnar — leiðir Alþýöuflokksins. Að því geta kjós-
endur stuðlað í kosningunum 23. apríl næstkom-
andi.
— GÁS.
A
Áskorun
til greiðenda fasteignagjalda í
Kópavogi
Hér með er skorað á alla þá, sem eigi hafa lokið greiðslu fyrri
hluta fasteignagjalda fyrir árið 1983, að gera skil innan 30 daga
frá birtingu áskorunar þessarar. Hinn 6. mai næstkomandi
verður krafist nauðungaruppboðs samkvæmt lögum nr.
49/1951, á fasteignum þeirra er þá hafa eigi gert skil.
Innheimta Kópavogskaupstaðar
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða og
bifhjóla í Kjósar- og Kjalaf-
nes- og Mosfellshreppum
og á Seltjarnarnesi 1983:
Skoðun fer fram sem hér segir:
Kjósar- Kjalarnes- og Mosfellshreppur:
Mánudagur 11.
þriðjudagur 12.
miðvikudagur 13.
fimmtudagur 14.
Skoðun fer fram við Hlégarð í Mosfellshreppi.
Seltjarnarnes:
Mánudagur 18.
þriðjudagur 19.
miðvikudagur 20.
apríl
apríl
apríl
apríl
apríl
apríl
apríl
Skoðun fer fram við félagsheimilið á Seltjarnarnesi.
Skoðað verður frá kl. 8.15—12.00 og 13.00—16.00 alla
framantalda daga á báðum skoðunarstöðunum.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn
leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir
því, að bifreiðagjöld séu greidd, aö vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi og að bifreiðin hafi verið ijósa-
stillt eftir 1. ágúst s.l. Athygli skal vakin á því að skrán-
ingarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma ökutæki sínu til skoðun-
ar á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sekt-
um samkvæmt umferðarlögum og ökutækið tekið
úr umferð hvar sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu,
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi
29. mars 1983.
Einar Ingimundarson
Yfirvinnubanninu hjá Isal aflétt:
14 fengu endurráðningu
Deila Verkamannafélagsins Hlíf-
ar og stjórnar Álversins leystist
Kjartan 1
helst á þeim að skilja að menn eigi
að fá frítt húsnæði og þeir skýra í
engu hvernig þeir ætla að afla fjár
til þess að koma þessum málum í
gegn. Langhæfustu tillögur sem
fram hafa komið í þessu efni eru til-
lögur okkar alþýðuflokksmanna
um að tvöfalda eigi lán til þeirra
sem eru að byggja í fyrsta sinn og fá
aðstoð úr bankakerfinu til að létta
undir með húsnæðismálakerfinu í
landinu auk þess sem tillögur
Magnúsar H. Magnússonar um 10
ára áætlun í þessum efnum eru enn
í fullu gildi. Þetta voru raunhæfar
tillögur, sem ekki voru settar fram
rétt fyrir kosningar til að blekkja
fólk“
Hvað er helst á dagskránni hjá
ykkur í Reykjanesi á næstunni?
„Það eru vitanlega þessi föstu
liðir kosningabaráttunnar, svo sem
fundahöld, vinnustaðafundir, við-
talstímar á kosningaskrifstofu og
svo framvegis. Við erum ánægð
með það að finna góðan byr eftir
því sem líður á kosningabaráttuna“
fyrir páska og var yfirvinnubann-
inu aflétt um leið. Stjórn ísals
ákvað að ráða aftur 14 manns sem
aður hafði verið sagt upp.
Yfirvinnubannið var upphaflega
sett á vegna mikillar yfirvinnu sam-
hliða uppsögnum 17 starfsmanna.
Þegar svo ísal ákvað að ráða til sín
aftur flest alla þessa menn voru
haldnir fundir með verkamönnun-
um í álverinu og var þar samþykkt
að forsendur yfirvinnubannsins
væru ekki lengur fyrir hendi og með
endurráðningu mannanna hafði
það náðst fram sem stefnt var að.
Sigurður T. Sigurðsson starfs-
maður Hlífar, sagði í viðtali við
Alþýðublaðið að ekki væri rétt að
tala um sigur í þessu sambandi.
„En það hefur komið fram sem
stefnt var að. í augum verkamann-
anna var það mjög brýnt að hafa
þessa menn inni. Og það náðist sem
sagt fram, en við tekur spurningin
um hvort ekki megi gera fleira. Ekki
má gleyma því að stefna ísal hefur
ekkert breyst og þeir áskilja sér all-
an rétt til fækkunar síðar meir“
En hvernig er með önnur á-
greiningsefni, hreinlætismál, orlof-
smál og fleira?“
„Að sjálfsögðu verður haldið á-
fram að vinna í þeim málum. Við
munum krefjast lausnar hreinlætis-
vandamála í samráði við Vinnu-
eftirlitið og ætlumst til þess að þau
leysist á grundvelli laga“ sagði
Sigurður.
Sigurður E. 1
aðila til lausnar á þeim brýna
húsnæðisvanda, sem vitað er að
svo margar ungar fjölskyldur
glíma við nú.
• Þegar verði hafizt handa um að
hrinda í framkvæmd 6. lið Sam-
komulags um Markmið í hús-
næðismálum, við Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna í Reykjavík,
frá 8. júlí 1980, þess efnis, að
kannaðir verði möguleikar á
því, að borgin setji á stofn „eigin
húsnæðisskrifstofu, þar sem
fram fari þjónusta við eigenda-
skipti íbúða og leigumiðlun“.
Kosningamiðstöð A-listans
í Reykjavík er í Kjörgarði, kjallara, gengiö inn Hverfis-
götumegin. Símar: 11179, 21202, 21203.
Opið alla daga frá kl. 9-22. Verið velkomin.
Kjósendur
athugið hvort þið eruð á kjörskrá. Kærufrestur er til 8.
apríl.
Ef þið finnist ekki á kjörskrá, vinsamlegast hafið sam-
band við kosningaskrifstofuna, Kjörgarði Laugavegi
59. Símar: 11179 eða 21201
A-listinn í Reykjavík