Alþýðublaðið - 30.12.1983, Page 4

Alþýðublaðið - 30.12.1983, Page 4
alþýðu- blaöið Föstudagur 30. desember 1983 Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Arni Stefánsson. Blaðamenn: Þráinn Hallerímsson oi> Friðrik Þór Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Helma Jóhannesdóttir Gjaidkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866. Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Siðumúla 12. Áskriftarsíminn er 81866 Kjartan Jóhannsson: Við áramót staldra menn gjarnan við og hugleiða horfurnar á kom- andi ári. Þá er rétt að líta annars vegar á hvað stjórnvöld boða og hins vegar hverra annarra kosta er völ. Ríkisstjórnin segist ætla að inn- leiða sérstaka gjaldtöku af sjúk- lingum eða sjúklingaskatt á næsta ári. Upphæðin á að vera 300—600 kr. á dag. Þetta er stórvafasöm að- gerð og í henni felst mikil velferðar- skerðing. í henni felst brot gegn þeim meginreglum sem við höfum leitast við að byggja upp í okkar landi á undanförnum árum og ára- tugum og Alþýðuflokkurinn hefur haft sérstaka forgöngu um að kom- ið yrði á. Gegn þessum áformum verða allir jafnaðarmenn að beita sér af fyllsta þunga. Sjúklingaskatturinn lýsir viðhorfum ríkisstjórnarinnar Sumum finnst kannski 300—600 kr. á dag ekki há fjárhæð, en ýmsa mun þó muna um hana. Ríkis- stjórnin segir að einungis þeir best settu eigi að greiða þetta. En með því er ríkisstjórnin jafnframt að segja að menn eigi að sanna fátækt sína til þess að sleppa við að greiða þess fjárhæð. Þetta viðhorf er nið- 1983—84 og að menn munu þurfa lengri tíma til þess að vinna fyrir sköttunum sínum á komandi mán- uðum heldur en þeir hafa þurft að undanförnu. Miskunnarlaust og óskynsamlegt Þessar tvær aðgerðir ríkisstjórn- arinnar, annars vegar sú hækkun skattbyrði sem nú liggur á borðinu og hins vegar hinn boðaði sjúk- lingaskattur, eru bæði miskunnar- lausar og óskynsamlegar. Með þessu tvennu er enn verið að auka á óréttlætið í landinu og gera þeim sem standa undir íslensku þjóðfé- lagi með vinnu sinni erfiðara fyrir. Með þessu er verið að bæta gráu ofan á svart. Kaupskerðing verður æ sárari Fram til þessa hafa efnahagsað- gerðir ríkisstjórnarinnar verið fólgnar í því að lækka kaupmátt launa og lögbjóða óbreytt kaup meðan verðbólgan hélt áfram og verðlag á opinberri þjónustu hækk- aði sérstaklega. Kaupgeta launa er fyrir bragðið um þessar mundir u.þ.b. fjórðungi minni en að jafn- aði á sl. ári. Slíka kjaraskerðingu geta menn þolað um sinn margir hverjir, en aðrir þó mjög illa. En til feimni og hlédrægni og það af- skiptaleysi sem einkennt hefur við- horfin til útflutningssölu verður að breytast hjá okkur íslendingum. Trú mín er sú að þá muni árangur- inn ekki láta á sér standa. Með átaki í sölumálum má efla íslenskan iðnað Þetta er sá þátturinn sem ekki hvað síst hefur skort hjá íslenskum iðnaði. Þeir aðilar sem hafa aflað sér reynslu af erlendum viðskiptum úr innflutningi ættu nú að snúa sér að því verkefni að afla markaða fyrir íslenskan iðnvarning á erlendri grund. Það er ekki seinna vænna að það gerist átak í þessum efnum og þar hefur ríkisstjórnin vissulega hlutverki að gegna í uppörvun, hvatningu og fyrirgreiðslu. Með slíku átaki á að vera unnt að fjölga atvinnutækifærum í iðnaði og efla iðnaðinn, m.a. með því að ná betri nýtingu á þeirri aðstöðu sem fyrir hendi er í iðnaðinum og því fé sem þegar er bundið í greininni. Úrlausn á fjárhagsvanda útgerðar Að því er sjávarútveginn varðar verður að greiða úr þeim fjárhags- vanda sem þar hefur skapast. Það á ekki að gera með því að strika út skuldir hinna skuldugustu og láta þannig fólkið í landinu standa und- ir þessum skuldum. Fyrir því eru engin rök. En í slíkri aðgerð fælist á hinn bóginn mikið óréttlæti gagn- Við áramót 1983—84 urlægjandi fyrir þá sem eiga að biðja um undanþáguna. En það er líka niðurlægjandi fyrir íslendinga sem þjóð. Af þessu má aldrei verða. Hverjum skyldi annars hafa dott- ið það í hug fyrir seinustu kosning- ar að þetta yrði einn aðalboðskapur ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á árinu 1984? Ég held að þeir séu harla fáir. — Svo öruggir voru menn um að nú- verandi almannatryggingakerfi og velferðarkerfi væri öruggt í sessi. Svo er þó greinilega ekki. Þessi hug- mynd lýsir í rauninni viðhorfum þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr. En hún er jafnframt áminning til allra jafnaðarmanna um að halda vöku sinni og gleyma ekki þeim ávinningum sem unnist hafa og standa um þá dyggan vörð. Skattbyrðin vex Ýmsir töldu líklegt að ríkisstjórn- in mundi létta skattbyrðina á næsta ári og koma þannig til móts við launafólkið í landinu. Nú er hið gagnstæða komið á daginn. Skatt- byrðin mun í rauninni þyngjast mjög verulega og bætist sú byrði ofan á þá kjaraskerðingu sem al- mennt launafólk í landinu hefur þegar orðið fyrir. Fjármálaráðherra hefur jafn- framt birt hlutfallstölu fyrir fyrir- framgreiðslu á opinberum gjöldum á næsta ári og hún á að vera 12.3% á mánuði af heildarsköttum manna á sl. ári. Nú getur sérhver skatt- greiðandi á íslandi reiknað út hver fyrirframgreiðsla hans verði á hverjum mánuði á komandi ári og borið það saman við það sem hon- um hefur verið gert að greiða í skatta að undanförnu. Gangið úr skugga um eigin skattbyrði Þannig getur hver og einn gengið úr skugga um hvernig skattbyrðin verður hjá honum sjálfum og hvort hún vex eða ekki. Ég vil hvetja menn til að gera þetta. Þá þurfa þeir ekki að vaða reyk um það að skatt- byrðin er að þyngjast milli áranna' langframa getur launafólk ekki þolað slíka þróun, enda verður kaupskerðingin nú æ sárari með hverri vikunni sem líður, einkum meðal hinna verst settu. Sá árangur í verðbólgumálum, sem menn þó eygja um þessar mundir, kann að verða að engu vegna þess að nú eru óbærilegar þrautir lagðar á mörg heimili í landinu. Og þynging skatt- byrðinnar þrýstir á um það að hag- ur manna sé réttur með öðrum hætti. Við þessar aðstæður er ógn- vekjandi að ríkisstjórnin skuli í of- análag stefna að áframhaldandi rýrnun á kaupmætti launa á árinu 1984 samkvæmt þeirri forskrift sem hún hefur kynnt fyrir það ár. Þessi oftrú á launaskerðingu sem efna- hagsstjórntæki er bæði óréttlát og stórvarasöm. Tvö meginloforö verða ekki efnd í stjórnarsáttmála núverandi rík- isstjórnar bar tvö heit einna hæst. Annars vegar að reka ríkisbúskap- inn hallalaust og hins vegar að auka ekki erlendar skuldir. Nú liggur ljóst fyrir að hvorugt þessara heita verður efnt. Fjárlögin voru af- greidd með halla skömmu fyrir jól. Og í lánsfjáráætlun kemmur fram að hugmyndin er ekki að lækka er- lendar skuldir á árinu 1984, hvað þá að þær standi í stað, heldur er aug- ljóst samkvæmt þeim áætlunum að erlendar skuldir munu aukast um a.m.k. tvö þúsund milljónir króna á árinu 1984. Ríkið rekið á erlendum lánum Orsökin er fyrst og fremst sú mikla erlenda lántaka sem ætluð er til íslenska ríkisins og til þess að standa undir því langt umfram það sem nokkru sinni hefur tíðkast fyrr. Þannig eru ekki einungis heitin rof- in, heldur er líka fetað inn á nýja braut nefnilega að reka ríkið sjálft á erlendum lánum. í stjórnartíð fyrri ríkisstjórnar voru atvinnuvegirnir reknir að hluta til á erlendum lánum. Nú hafa orðið þau umskipti að ríkiskassann á að reka á árinu 1984 að verulegu leyti á erlendum lánum. Rétt hefði verið að lækka skattbyrðina í stað þess að hækka skattbyrð- ina, eins og ríkisstjórnin hefur nú ákveðið, hefði einmitt nú átt að lækka skattbyrðina mjög verulega hjá venjulegu launafólki og treysta þannig kjör þess og þann árangur sem virðist í augsýn í verðbólgumál- um. Jafnframt hefði átt að koma til móts við hina alverst settu með greiðslu afkomutryggingar þannig að hagur þeirra væri réttur með samfélagslegri aðgerð. Um þetta hvort tveggja höfum við Alþýðu- flokksþingmenn flutt tillögur á Al- þingi. Þær hafa ekki fengið hljóm- grunn fram að þessu. En á það mun reyna enn einu sinni þegar þingið kemur saman á nýju ári. Nýsköpun í atvinnulífi og uppstokkun á úreltum stjórnkerfum í stað aukinnar skuldasöfnunar erlendis hefði átt að ná tökum á óarðbærri fjárfestingu og skapa þannig um leið svigrúm til nýsköp- unar og til þess að mæta þörfum sem nú verða útundan, þörfum sem bæði koma fram í atvinnulífi og hjá hinu opinbera. Þannig yrði líka dregið úr frumorsökum verðbólgu og lífskjörin treyst. Meginviðfangs- efninu í efnahagsstjórn hefur í rauninni enn einu sinni verið skotið á frest, en það felst í því að ná tök- um á fjárfestingunni og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi jafnframt því að stokka upp úrelt skipulag í ýmsum greinum atvinnuvega- stjórnar og sjóðakerfis, svo sem eins og í landbúnaðinum þar sem greinilega er flutt fé frá launþegum og bændum til vinnslustöðva og annarra milliliða. Þessum verkefn- um hefur ekki verið sinnt á undan- förnum árum en þeim þurfa íslend- ingar að snúa sér að af alefli fyrr en síðar. í stað bölsýni á að leggja grunn að batnandi hag Sannleikurinn er nefnilega sá að atvinnuvegamálin hafa orðið út- undan í íslenskri efnahagsstjórn um mjög langan tíma. Og menn hafa látið undir höfuð leggjast að aðlaga atvinnuvegina að nútíman- um, en setið fastir í úreltum kenni- setningum og löggjöf sem var góð og gild á sínum tíma en þjónar ekki lengur þeim tilgangi að treysta lífs- kjörin í landinu. Ríkisstjórnin situr föst í hinu gamla fari og virðist hel- tekin af bölsýni. Hún sér ekkert nema versnandi hag og aukna kjaraskerðingu. Sannleikurinn er hins vegar sá að með skynsamlegri efnahagsstefnu þar sem tekið yrði á atvinnumálum og fjárfestingarmál- um má búa okkur batnandi hag og bjartari framtíð. Full atvinna — ný atvinnutækifæri Meginverkefnið á að vera að tryggja fulla atvinnu og skynsam- lega nýsköpun atvinnutækifæra. Það á að gera bæði með því að að- laga atvinnuvegina að núverandi aðstæðum, beita aðhald gegn óþarfri eða óarðbærri fjárfestingu og skapa þannig svigrúm til þess að mæta ótvíræðum þörfum sem líka munu skapa atvinnu, eins og t.d. í íbúðarbyggingum fyrir ungt fólk. Þá þarf að leita leiða eftir skyn- samlegum tækifærum til þess að nýta til iðnaðarframleiðslu þá raf- orku sem nú er vannýtt. Þetta á að gera með frekari uppbyggingu á orkufrekum iðnaði sem greiði við- unandi verð fyrir orkuna. Sölustarf í útflutningi iðnaðarvöru Brýnast er þó að nýta þá ótal möguleika sem við vafalaust eigum í útflutningi á ýmiss konar fram- leiðslu frá íslenskum iðnfyrirtækj- um, stórum sem smáum. Þessi tækifæri hafa legið ónýtt, en til þess að nýta þau þarf hugvit, aðgang að fjármagni og öfluga sölumennsku erlendis. Sölumennskunni hefur verið sýnt lítil ræktarsemi til skamms tíma. Hér þarf að eiga sér stað viðhorfsbreyting. Menn verða að gera sér ljóst að salan er órjúfan- legur þáttur í heilbrigðum atvinnu- rekstri, enda er henni gert hátt und- ir höfði hjá öðrum þjóðum, eink- um þeim sem best standa sig. Sú vart þeim sem af forsjálni hafa haft hóf á skuldasöfnun sinni. Fyrir þá forsjálni má ekki refsa þeim eins og pennastriksaðferðin mundi gera. Til þess að fjárhagsvandinn minnki i stað þess að aukast verður á hinn bóginn að tryggja viðunandi rekstrarafkomu. Einn meginþáttur- inn í því verður að vera sá að draga úr kostnaði við veiðarnar og auka verðmæti afurðanna, einkum með auknum gæðum. Drýgsta leiðin til þess að draga úr tilkostnaði er að fækka þeim skipum sem veiðarnar stunda, því að skipastóllinn er aug- ljóslega orðinn of stór eins og við- urkennt er nú loksins af öllum, þó að nokkuð seint sé. Til þess að unnt sé að fækka þeim skipum sem veiðarnar stunda, verð- ur að heimila framsal á úthlutuðum veiðikvótum sem fyrirhugaðir eru, þar sem takmarkanirnar á framsali væru einkum miðaðar við atvinnu- sjónarmið. Með þessum hætti mundi útgerðin laga sig að núver- andi aðstæðum. Jafnframt ætti að tengja þetta fjárhagslegum aðgerð- um, þannig að greiðslum af skip- um, sem létu af veiðum, væri frest- að um sinn og þær jafnframt léttar. Á sama hátt ætti með fjárhagsleg- um aðgerðum að hvetja til þess að úrelt skip yrðu tekin úr sjósókn. Með þessu mundi verulegur árang- ur nást í því að treysta rekstrar- grundvöll í útgerð á Islandi. Atvinnumálasjóður Loks er full þörf á því að stofn- setja Atvinnumálasjóð með svip- uðum, en þó ekki sama hætti og viðreisnarstjórnin gerði á sínum tíma. Slíkur sjóður ætti að ýmsu leyti ekki síður hlutverki nú að gegna en þá. Hlutverk hans ætti annars vegar að vera að greiða fyrir nýsköpun og nýjungum í atvinnu- lífi og örva útflutningssölustarf eins og að framan er lýst og hins vegar að greiða fyrir fjárhagslegri endurskipulagningu mikilvægra at- vinnufyrirtækja, einkum í sjávarút- vegi, m.a. með eigendaskiptum þannig að atvinna félli ekki niður Framhald á 3. síðu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.