Alþýðublaðið - 15.03.1984, Qupperneq 3
Fimmtudagur 15. mars 1984
3
Kýrnar verða tölvustýrðar
„Kjarnorkuvopit og
samskipti risaveldanna
Út er komiö fjórða ritið í ritröð
Öryggismálanefndar um öryggis-
og alþjóðamál. Ritið ber heitið
„Kjarnorkuvopn og samskipti
risaveldanna" og er höfundur
þess Albert Jónsson.
Kjarnorkuvopn skipa stóran
sess í samskiptum risaveldanna
tveggja, Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna, og gegna ráðandi hlut-
verki í því öryggiskerfi, sem koma
á í veg fyrir átök milli þessara
aðila. Af þeim sökum hafa kjarn-
orkuvopn og samskipti risaveld-
anna löngunr verið mönnum ofar-
lega í huga og að undanförnu hafa
þessi mál leitt til meiri og víðtæk-
ari umræðu en áður. í riti því sent
hér birtist er gefin innsýn t öll
helstu atriðin í stefnu og þróun
kjarnorkuvígbúnaðar rísaveld-
anna, yfirlit yfir áhrif og hlutverk
kjarnorkuvopna í samskiptum
þeirra og lagt nokkurt mat á stöðu
mála um þessar mundir.
I ritinu er fjallað um eðli og
eyðingarmátt kjarnorkuvopna og
gerð grein fyrir kjarnorkuher-
styrk risaveldanna. Annars vegar
er rætt um hinn langdræga eða
svonefnda strategíska herafla,
uppbyggingu hans og skiptingu í
einstaka hluta og stöðuna á milli
risaveldanna í vopnum af þessu
tagi. Hins vegar er greint á svipað-
an hátt frá kjarnorkuheraflanum
í Evrópu. Einnig er útskýrð merk-
ing þeirra herfræðilegu hugtaka
og fyrirbæra, sem legið hafa til
grundvallar fræðilegri umfjöllun
um kjarnorkuvopn og samskipti
risaveldanna. Ennfremur er gefið
sögulegt yfirlit yfir samskiptin og
áhrif kjarnorkuvopna og átaka
sín á milli. Hér er fjallað um
hvernig notkun kjarnorkuvopna
hefur ekki verið talin geta þjónað
pólitiskum markmiðum, tak-
markað gildi tölulegra yfirburða
þegar kjarnorkuvopn eru annars
vegar og hvort munur hafi verið á
kjarnorkuvopnastefnu risaveld-
anna og afstöðu þeirra til kjarn-
orkuvopna. Einnig er greint frá
þeim tilfellum þegar alvarlegir
árekstrar eða hættutímar hafa
orðið í samskiptunum og hvaða
ályktanir megi draga af þeim unr
áhrif kjarnorkuvopnanna á hegð-
un risaveldanna. Loks er spurt
hvort líkur séu á því að bilanir í
tækjabúnaði geti hrint af stað
kjarnorkuátökum.
Þá er rætt um þær breytingar,
sem orðið hafa í kjarnorkuvopna-
stefnu risaveldanna á undanförn-
um árum í átt til vaxandi áherslu
á viðbúnað fyrir takmarkað
kjarnorkustríð, og orsakir þess-
ara breytinga. Hér er einnig rætt
nánar um stöðuna i Evrópu,
kjarnorkuvopnastefnu Atlants-
hafsbandalagsins og ákvörðun
þess um að koma fyrir nýjum
kjarnorkuvopnum í Vestur-
Evrópu. Síðan er greint frá þróun
kjarnorkuvígbúnaðarins, nýjustu
vopnunum í heraflanum og þeim
sem eru að korna fram á sjónar-
1 sviðið. Ennfremur er fjallað um
hlutverk fjarskipta- og stjórn-
kerfa, undirbúning fyrir gagnkaf-
bátahernað og getu hvors aðila á
því sviði og loks um eldflauga-
varnir, þ.á.m. um hugmyndir um
að koma upp varnarkerfum í
geimnum. Að lokum er spurt
hvaða áhrif sú þróun geti haft,
sem orðið hefur í stefnu og víg-
búnaði risaveldanna, og hvort
ætlá megi að kjarnorkuátök
þeirra í milli hafi orðið liklegri af
hennar völdum eða ekki.
Ritið er til sölu í bókaverslun-
um og það má einnig fá í póst-
kröfu frá Öryggismálanefnd,
Laugavegi 170, Reykjavík.
Amnesty International — fangar mánaðarins:_
Hoang Cam sendi
dóttur sinni ljóð sín
Á síðustu árum liefur átt sér stað
víða erlendis bylting í fóðrun búfjár
með aðstoð tölvunnar. Sérstaklega
hefur þróunin orðið ör í alifugla-
ræktuninni, en nú eru kúabændur
óðum að taka þessa tækni í sína-
þjónustu segir í fréttabréfi upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins.
Islenskir bændur, sem fóru í
bændaferð á Smithfield landbún-
aðarsýninguna í London í vetur
heimsóttu mjólkurframleiðanda
nokkuð fyrir utan borgina. Þessi
bóndi var með mjög fullkomna
stjórnun á fóðrun mjólkurkúa,
með aðstoð tölvu.
Allar kýrnar voru með hálsbönd,
á þeim var smátæki þar sem númer
kýrinnar var skráð. Þegar kýrnar
eru svangar fara þær að opi, en
standa jafnframt á vog, þær stinga
höfðinu inni í opið og með geisla er
númer kýrinnar komið til tölvunn-
ar. Þá hefur boðum um vigt kýrinn-
ar verið komið til skila einnig og um
Ieið er gerð úttekt á því hvað kýrin
johii
Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins hefur sent frá sér skáld-
söguna MÝS OG MENN eftir John
Steinbeck í þýðingu Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar.
Þessi stutta skáldsaga er einhver
frægasta bók Steinbecks og hefur
tvisvar verið kvikmynduð síðan
hún kom fyrst út árið 1937. Síðari
kvikmyndin var sýnd í íslenska
sjónvarpinu fyrir skömmu.
Leikritagerð samdi höfundur
einnig af bókinni og hefur hún ver-
ið sýnd víða um heim, m.a. hér í
Iðnó.
Þýðandinn Ólafur Jóhann
Sigurðsson segir um bókina í eftir-
mála við þessa útgáfu hennar:
„Skáldsagan Mýs og menn gerist í
landbúnaðardal í Suður-Kaliforníu
á þeim árum sem hún var samin,
1936-1937, það er að segja í krepp-
unni miklu, sem enn i dag er iðulega
vitnað til. Hún bregður öðrum
þræði upp mynd af farandverka-
mönnum á búgarði, sem eru af
ýmsum ástæðum lausir í rásinni,
flækjast stað úr stað einkum og sér
í lagi fjallar hún um vináttu tveggja
gerólíkra manna. Annar þeirra er
tröllvaxinn heimskingi, eða réttara
sagt hálfbjáni, og rammur að afli,
en hinn andstæða hans, grannur og
lágvaxinn, skynugur maður og
trygglyndur, sem leggur sig í fram-
króka til að vernda vin sinn risann
og forða honum undan afleiðing-
um af sífelldum aulapörum hans,
þar eð hann veit, að þau koma
hvorki til af mannvonsku né glæpa-
hneigð, heldur af áskapaðri vönt-
un. Gildur þáttur í sögunni er
vonardraumur þessara manna um
að eignast lítið býli, öðlast rótfestu,
öryggi og lífshamingju í skauti nátt-
úrunnar."
Arnarflug 1
vandi þessara félaga stafar meðal
annars af þeirri staðreynd, að í
240 þúsund manna þjóðfélagi er
ekki rúm fyrir tvö áætlunarflug-
félög. Núverandi forsætisráð-
herra hefur sagt, að samkeppni
þessara tveggja félaga yrði þjóð-
inni til góðs. Vera má, að fargjöld
hafi eitthvað lækkað, en þjóðin
greiðir þetta allt á endanum,
þegar í nauðirnar rekur og sam-
keppnin hefur gert hugsanlegan
hagnað að engu.
á að fá mikið af fóðurbæti.
Skammturinn miðast við þunga og
nythæð deginum áður, eða undan-
farna daga. Þá er eftirleikurinn
auðveldur, nú skammtar tölvan
kjarnfóðrið, sem geta verið t.d.
þrjár mismundandi tegundir. Það
dettur niður í fóðurtrogið 'A af
dagskammtinum. Þegar kýrin hef-
ur lokið við að éta þá fær hún ekki
næsta skammt fyrr en eftir 3—4
tima. Bóndinn sem heimsóttur var
taldi ekki ávinning af þessari tækni
fyrr en fjöldi mjókurkúa væri kom-
inn nokkuð yfir 100. Jafnframt
upplýsti hann að tölvusérfræðingar
hefðu mestar áhyggjur af eina veika
hlekknum í kerfinu, sem væru
kýrnar.
í fjósinu á Læk i Hraungerðis-
hreppi er tölvustýrð fóðrun og hef-
ur gefist vel. Fleirri bændur hér á
landi hafa hug á að koma upp slíku
kerfi, enda er það nokkuð öruggt
að íslenskir bændur koma til með
að tileinka sér þessa tækni á næstu
árurn.
Frumvarpið 1
Þá bendir Jón á, að breytingar
sem nefndin telur koma til greina á
lögum um veðdeild Búnaðarbank-
ans verði tvö minniháttar atriði. I
fyrsta lagi að hækka veðsetningar-
hlutfall úr 60% í 75% af virðingar-
verði fasteignar. í öðru lagi að
heimila ábúendum ríkisjarða „að
veðsetja ábúðarjarðir sínar til
tryggingar lánum“, vegna ódeilan-
leika veðréttar á lögbýlum, enda
eigi leiguliðar annars nægar veð-
hæfar eignir.
Hefur Jón Baldvinn flutt, ásamt’
Guðmundi Einarssyni, frumvarp
varðandi þessi atriði, sem gengur út
frá því að í stað þess að fara ofan-
talda leið verði fremur lögum um
veðdeild B.í. breytt til samræmis.
Er þar gert ráð fyrir því að ef um
lánsfé er að ræða skuli útlánakjör
vaxta- og verðtryggingar eigi vera
lægri en á aðfengnu lánsfé, að við-
bættri 0.25% þóknun til veðdeild-
ar. Að ráðherra verði heimilt að
leyfa ábúendum ríkisjarða að veð-
setja ábúðarjarðir sinar til trygg-
ingar lánum, enda nægi eignir við-
komandi ábúenda í mannvirkjum
eða öðrum tryggingarhæfum eigm
um, en að ekki megi lána nema gegn
1. veðrétti og aldrei yfir 75% virð-
ingarverðs fasteignar, en þó verði
heimilt að taka gildan 2. veðrétt ef
opinberir sjóðir einir eiga forgangs-
veð og lánin samanlögð eru innan
75% virðingarverðs.
í nefndaráliti sínu um frumvarp-
ið um Iausaskuldir bænda bendir
Jón ennfremur á að í því er hvergi
vikið að kjarna málsins, sem er
fjármögnun skuldbreytingarinnar,
þrátt fyrir langan meðgöngutíma.
Það vanti endanlegar upplýsingar
um fjölda umsækjenda um skul-
breytingu, um heildarupphæð
fyrirhugaðrar skuldbreytingar, um
upphæð nýrrar lánsútvegunar til
þess að standa undir 30—40% „út-
greiðsluhlutfalli" og.um hvaða kjör
á „reiðufjárhluta11 lánanna lána-
drottnar sætta sig við til að taka við
, bréfunum.
Bent er á, að það sem Alþingi
þurfi fyrst og fremst að taka af-
stöðu til sé fjárútvegunin sjálf, en
að því er hvergi vikið í frumvarpinu
og benda allar líkur til þess að hún
verði í formi nýrra erlendra lána,
þar sem áætlanir ríkisstjórnarinnar
um Iánsfjáröflun á innlendum lána-
markaði hafa þegar brugðist.
Þá er minnt á að veðdeildin er
ekki aflögufær, því upplýst hefur
verið að höfuðstóll hennar sé nei-
kvæður um ca 20 milljónir króna.
Niðurstaða Jóns Baldvins er að
málið verði afgreitt með rökstuddri
dagskrá: Þar sem veðdeildinni er
lögum samkvæmt „heimilt að gefa
út bankavaxtabréf og veita lán gegn
veði í fasteignum, þ.m.t. að breyta
lausaskuldum bænda í föst lán ef
næg veð eru fyrir og um semst um
lánstíma og greiðslukjör rnilli lána-
drottna og skuldunauta, og sérstak-
ar lagaheimildir af þessu tilefni þar
af leiðandi óþarfar, tekur deildin
fyrir næsta mál á dagskrá".
Hoang Cam er 63 ára gamall.
Hann er Ijóðskáld, fyrrverandi
skæruliði og meðlimur Kommún-
istaflokks Viet Nam.
Þegar landið var undir stjórn
Sumaráætlun millilandaflugs
Flugleiða tekur gildi 25. mars næst
komandi. Ferðatiðni til Evrópu-
landa verður svipuð og síðastliðið
sumar, en ferðum fjölgað til Banda-
ríkjanna.
Til Luxemborgar verða 14 ferðir í
viku með DC-8-63 þotum, sem
rúma 249 farþega. Til Kaupmanna-
hafnar verða 10 ferðir í viku og sex
til London. Þá verða fjórar ferðir í
viku til Oslóar og Stokkhólms,
þrjár til Glasgow og tvær til Frank-
furt. Ennfremur tvær til Færeyja,
en vikulega verður flogið til Parisar,
Gautaborgar og Narssarsuaq. I
þessum ferðum verða notaðar
Boeingþotur Flugleiða sem taka
131 og 164 farþega, nema til
Færeyja. Því flugi er haldið uppi
með Fokker Friendship skrúfuþot-
um frá Reykjavík um Egilsstaði.
Frá 1. apríl verður tekin upp far-
rýmisskipting í áætlunarflugi Flug-
leiða til Norðurlanda og Bretlands.
Auk áætlunarflugsins munu þot-
ur Flugleiða sinna leiguflugi til sól-
arlanda á vegum ferðaskrifstof-
anna Úrvals, Utsýnar, Atlantik og
Ferðamiðstöðvarinnar. Einnig
verða leiguflug til fleiri staða, svo
sem á írlandi, í Kanada og Austur-
ríki. Frá 18. júní til 30. ágúst verða
dagsferðir frá Reykjavik til Kulusuk
Japana í seinni heimsstyrjöldinni,
þá varð Hoang Cam fyrst þekkt
alþýðuskáld. Árið 1946 gerðist
hann meðlimur Vietminh t.þ.a.
berjast gegn frönsku nýlendu-
á Grænlandi þrisvar í viku nteð
Fokker Friendship skrúfuþotum
Flugleiða.
18 ferðir á viku til Bandarikjanna
í sumar munu þotur Flugleiða
fljúga daglega frá Keflavíkurflug-
velli til New York og sömuleiðis
verða daglegar ferðir til Chicago.
Til Baltimore/Washington verða
þrjár ferðir i viku og ein til Detroit,
sem er nýr viðkomustaður Flug-
leiða í Bandaríkjunum. Samtals
verða 18 ferðir í viku frá íslandi lil
Bandarikjanna yfir háannatímann
í sumar. Til þess flugs verða notað-
ar þrjár DC-8-63 þotur og tekur
hver þeirra 249 farþega.
stjórninni. Árið 1951 gekk hann í
víetnamska Verkamannaflokkinn.
Hann barðist mjög fyrir frelsi í
menningu og listum. Hann skrifaði
greinar þar sem hann gagnrýndi
það sem hann og fleiri kölluðu mis-
beitingu valdsins og spillingu innan
stjórnar landsins. 1958 bannaði
stjórn Viet Nam ( Democratic
Republic of (North) Viet Nam—
DRV) alla óháða útgáfu í landinu,
og lét handtaka fjölda mennta-
manna. Hoang Cam var ásamt
fleirum bannað að skrifa. Hann
hefur síðan þá rekið kaffihús í
Honoi. Árið 1982 bað hann nokkra
Víetnama á leið til Bandaríkjanna
fyrir safn óbirtra ljóða, og bað þá
um að koma þeim til dóttur sinnar
sem búsett er í Bandaríkjunum.
Ljóðasafnið var tekið af fólkinu á
Hanoi flugvelli er það var á leið úr
landi. Nokkrum dögum seinna var
Hoang Cam handtekinn, sakaður
um aó eiga menningarleg samskipti
við útlendinga. Síðan í ágúst ’82
hefur hann þvi verið í haldi á þess-
ari forsendu. A.l. samtökin telja
hann vera í haldi vegna sinna til-
rauna t.þ.a. láta í ljós eigin skoðan-
ir. Hann er sagður þjást af of háum
blóðþrýsting og þrálátum astma.
Vinsamlegast skrifið kurteislega
orðað bréf og biðjið um að Hoang
Cam verði látinn laus. Skrifið til:
Ngai Pham van Dong
Prime Minister
Chu tich Hoi dong Bo truong
Hanoi
Socialist Rcpublic af Viet Nam.
Garöyrkjumaöur
Umsóknarfrestur um stööu garðyrkju-
manns hjá Hafnarfjaröarbæ sem augiýst
varí febrúars.l. erframlengdurtil og með
27. mars 1984.
Bæjarverkfræðingur.
Ferðum fjölgað til USA