Alþýðublaðið - 16.03.1984, Blaðsíða 2
2,
Föstudagur 16. mars 1984
RITSTJÓRNARGREIN
Ábyrgð stjórnmálamanna
og pólitísk spilling
ryrir nokkrum árum var rekið hér á landi flug-
félag, sem hét íscargó h.f.. Eigendurnir voru
ættaði r úr Framsóknarf lokknum, og þeim gekk
reksturinn illa, þótt ekki sé hægt að flokka
hann undirhörmungarframsóknaráratugarins,
sem ýmsir hafa státað af.
Þetta féíag átti nokkra skúra á Reykjavíkur-
flugvelii, eina illseljanlega flugvél og talsvert
af varahlutum. Félagið skuldaði umtalsverðar
fjárhæðir i peningastofnunum, einkum í Út-
vegsbankanum. Reksturinn gekk erfiðar og
erfiðar, þar til gjaldþrot var nánast óumflýjan-
iegt.
Um svipað leyti voru ungirog dugandi menn
að^eyna að auka umsvif pg rekstur Arnarflugs
hf. Þeir vildu hefja flug á áætlunarflugleiðum
milli íslartds og meginlands Evrópu, þótt öll
skynsamleg rök bentu til þess, að áætlunar-
flugleiðir á milli landa væru ekki til skiptanna.
Að minnsta kosti höfðu íslensk stjórnvöld
staðfest þessaskoðurt með kröfunni um sam-
einingu Flugfélags íslands og Loftleiða.
En ungu mennirnir hjá Arnarflugi hf. höfðu
aðra skoöun og böröust fyrir framgangi henn-
ar. Þeim var bént á, að íscargó hefði flugleyfi á
flugleiðinni milli íslands og Hollands, og ein-
hver glúrinn maöur hefur gert þeim grein fyrir
því, að með því kauþa íscargó, fengju þeir f lug-
leyfið einnig, og jafnvel eitthvað meira.
Hver sem loforðin kunna að hafa veriö lauk
málinu með því, að stjórn Arnarflugs hf. ákvað
að kauþa íscargó fyrir verð, sem var fjarri öllu
raunhæfu mati. En fyrri eigendur, ættaðir úr
Framsóknarflokki, sluþpu fyrir horn, og Út-
vegsbankinn einnig. —
Mái þetta kom til umræðu á Aiþingi og allir
viðurkenndu, nema höfuðpaurarnir, að þarna
væri á ferðinni pólitískt spillingarmál af verstu
tegund. Arnarflugsmenn voru varaðir við af-
leiðingum þessara kaupa, jafnvel þótt þeir
fengju einhverjar flugleiðir út á þau. Þeim var
bent á, að aukin greiðslubyrði yrði þeim ofviða,
og eignirnar lítt eða iilseljanlegar, þótt þeir
vildu losna við þær. Undir þessa skoðun tóku
fulltrúar allra flokka, nema Framsóknarflokks-
ins.
Nú er komið á daginn að þessi kaup, ásamt
tímabundnum erfiðleikum í rekstri, neyðir
félagið til að taka rekstrarlán að fjárhæð 1,5
milljónir dollara. Til þess að fá lánið þarf fyrir-
tækið ríkisábyrgð, sem ekki er óeðlilegt.
Það hefur hins vegar gerst, að tveir ráðherr-
ar, sem mikið komu við sögu íscargó-máisins
hafa reynt að fá Búnaðarbankann til að lána út
ávæntanlega ríkisábyrgð. Siíkt eróeðlilegt. En
líklega rennur þessum ráðherrum blóðið til
skyldunnar. Þeir áttu mikinn þátt í því, að
Arnarflug keypti íscargó, og nú gera þeir eins
og sumir, að reyna að klóra yfir skítinn sinn.
Þetta eru forsætisráðherrann, sem var sam-
gönguráðherra, þegar íscargó-ævintýrið átti
sér stað. Og þetta er fjármálaráðherrann, sem
þá var þingmaður og formaður bankaráðs Út-
vegsbankans.
Báðir þessir ráðherrar bera umtalsverða
ábyrgð á þeim vanda, sem Arnarflug h.f. er nú
í, þótt segja megi að hin endanlega ákvörðun
um íscargó-kauþin hafi verið í höndum Arnar-
flugsmanna. Félagið var „ganbbað" til aó
kaupa hálfónýtar eignir fyrir mikla fjármuni, en
fékk í kaupbæti áætlunarflugleiðir, sem eiga
auðvitað ekki að vera til sölu, enda byggðar á
tvíhiiða loftferðasamningurri.
Þessir ráðherrar vita sem er, að vandi Arnar-
flugs er það mikill, að kaupin á íscargó geta
ráðið úrslitum um það hvort félagið lifiráfram,
Það er vitað, að á flugvélakaupunum einum
tapaði Arnarflug 1,3 tii 1,4 miiljónum dollara,
sem er svipuð upphæð og félagið er nú að
biðja um ríkisábyrgð fyrir. — Hún getur orðið
dýrkeypt pólitíska spiliingin, eins og sannast í
þessu máli.
Vilja 4
forystan tæki við þessum tilmæl-
um og gerði að sínum. En hvað
gerist? Þáverandi formaður
flokksins, Geir Hallgrímsson, af-
greiddi málið daginn eftir í Mogg-
anum sínum: Kemur ekki til mála.
Þetta gerum við aldrei. Hann vissi
betur en hinn almenni stuðnings-
maður. Flokksforystan hefur
ekkert með það að gera að gera
viðhorf meirihluta flokksmanna
að sínum.
En þrátt fyrir allt virðist helm-
ingur kjósenda vera hliðhollur
þessum marghöfða þurs. Nú, eftir
að flokkurinn hefur staðið fyrir
mestu kjaraskerðingu lýðveldis-
tímabilsins, eftir að hafa hótað
því að afnéma velferðargrundvöll
þjóðfélagsins, eftir að hafa af-
hjúpað pilsfaldakapítalismann
með sósíalisma andskotans, eftir
að hafa boðað sparnaðarleiðir
sem ganga út frá því að losna við
lægst launaða starfsfólkið, eftir
að hafa hótað því að taka upp
gjald af sjúklingum, eftir að hafa
hlíft atvinnurekendum við stríð-
inu gegn verðbólgunni. Ótrúlegt
en þvi miður satt. Með aðstoð
fjölmiðlaeinokunar hefur flokk-
urinn komið því til skila sem hann
vildi: Það er búið að lækka verð-
bólguna (ekki er talað um hvern-
ig: Það er enginn vandi að afnema
verðbólgu með öllu með því að af-
nema laun með öllu). Og sjálfsagt
spilar inn í að þrátt fyrir allt hefur
flokkurinn ekki staðið við hótun
sína um afsósíalíseringu þjóðfél-
agsins ennþá að minnsta kosti svo
nokkru nemi. Það hafa engin rík-
isfyrirtæki verið seld, þvert á móti
hefur leiðtogi þeirra í borgar-
stjórn Reykjavíkur einmitt staðið
að þátttöku sveitarfélagsins í ein-
okunarfyrirtæki.
Sjálfstæðismeirihlutinn í borg-
arstjórn er reyndar gott fordæmi
um hvað gæti tekið við ef Sjálf-
stæðisflokkurinn næði meiri-
hluta á Alþingi. Þar ríkir nánast
Sovéskt kerfi. Boðskapur leiðtog-
ans er heilagur, hann leggur lín-
una, hinir rétta upp hendina.
Borgarstjórinn þarf ekki einu
sinni að hafa fyrir því að inna
undirfulltrúa sína álits. Hann
ákveður og hinir fylgja á eftir.
Flokksaginn í fyrirrúmi, liðhlaup
ekki liðið. FG.
Styrkir 4
upphæð verið varið til stuðnings
frjálsri skoðanamyndun í landinu.
Nóg þykir þó sumum um yfir-
burðarstöðu hægri blaðanna á ís-
lenskum dagblaðamarkaði; DV og
Morgunblaðið ráða yfir um 80%
markaðarins.
Á öðrum Norðurlöndum, s.s. í
Svíþjóð og Noregi ver hið opinbera
talsverðum upphæðum til styrktar
dagblaðaútgáfu.
Starf skrifstofustjóra
hjá Rafveitu Akraness er auglýst laust til umsóknar.
Verslunarpróf eðatilsvarandi menntun og reynslaí bók-
haldi æskileg. Umsóknum skal skila fyrir 25. mars n.k.
til rafveitustjórans á Akranesi, sem einnig veitir nánari
upplýsingar.
Rafveita Akranes
Útboð
Tilboð óskast i skorstein fyrir kyndistöö Hitaveitu Reykjavík-
ur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
12. apríl 1984 kl. 11 f.h.
INNKAÚPASTOFNUN REYKJAVIKURBQRGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Utboð
Tilboð óskast I eftirfarandi fyrir Hitaveitu Reykjavikur.
1. Pappalögn á þök tveggja miðlunargeyma á Grafar-
holti.
Tilboðin verðaopnuð þriðjudaginn 27. mars 1984 kl. 14
e.h.
2. Lögn dreifikerfis (íbúðarhverfi norðan Grafarvogs 3.
áfangi.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 27. mars 1984 kl. 15
e.h.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3. Reykjavík gegn 1500 kr. skilatryggingu fyrir hvort verk
fyrir sig.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Almennur fundur um kvótakerfi
og stjórnun fiskveiða verður haldinn í
Sigtúni Suðurlandsbraut 26. Sunnudag-
inn 18. mars kl. 14.
Hagsmunaaðilar.
Á mölinni mætumst
með bros á vör —
ef bensíngjöfin
er tempruð.
J
Árshátíð
Alþýðuflokksfélaganna
í Kópavogi
verður haldin laugardaginn 17. mars í félagsheim-
ilinu annarri hæð.
Árshátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.
Veislustjóri verður Þráinn Hallgrímsson.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Hljómsveitin Alfa Beta leikur fyrir dansi.
Fjölmenniö.
Stjórnin.
Miðaverð 500 kr.
Seldir v/innganginn
Fundur í Borgarmálaráði
Alþýðuflokksins
Fundur veröur haldinn í Borgarmálaráði Alþýðu-
flokksins í Reykjavík n.k. mánudag 19. mars kl. 5
siðdegis, á venjulegum fundarstað að Austur-
stræti 16 efstu hæð.
Mikilvæg mál á dagskrá.
Formaöur.