Alþýðublaðið - 16.03.1984, Qupperneq 3
Föstudagur 16. mars 1984
3
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins:
Alkalískemmdir
á uitdanhaldi
Nýlokið er þriðju rannsókn á út-
breiðslu alkalískemmda á húsum,
sem byggð eru fyrir 1983 í Reykja-
vík og nágrenni. Það er Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðar-
ins sem þessar rannsóknir hefur
stundað og hófust þær 1978.
Að þessu sinni voru helstu niður-
stöður þær, að aukning hefur orðið
á skemmdum frá síðustu skoðun í
elstu húsunum, en í húsum sem
byggð veru eftir 1968 voru skemmd-
ir álíka eða minni.
Án viðgerða aukast skemmdirn-
ar ört með tímanum. Þar sem
skemmdir greindust minni en áður
er ástæðan aukið viðhald húsa, en
þar sem viðgerð hefur nýlega farið
fram er oft erfitt að greina eða
flokka skemmdirnar.
Engar alkalískemmdir fundust i
húsum sem byggð voru eftir 1979.
Rannsók á borkjörnum sýndi að
loftblendi í steypu er oft of lítið til
að tryggja veðrunarþol hennar.
Astandið hefur þó greinilega batn-
að eftir 1978.
Mælingar á saltinnihaldi bor-
kjarna sýndu að saltmagn í steypu
er talsvert breytilegt en þó yfirleitt
mikið fram til ársins 1980.
Af þessum megin niðurstöðum
dregur stofnunin þær ályktanir að
rannsóknir á viðgerðar- og við-
haldsaðgerðum og upplýsingagjöf
þar að lútandi hefur skilað sér í
bættu viðhaldi húsa með alkalí-
skemmdir og að þar eð engar alkalí-
skemmdir fundust í steypu, yngri en
frá árinu 1979, styrkir það vonir um
að ekki hljótist vandræði af alkalí-
skemmdum i framtíðinni ef haldið
er áfram að blanda kísilryki í
sement og þvo steypuefni sem tekin
eru úr sjó. Ekki er þó hægt að full-
yrða að öryggi sé nægilegt, ef virk
fylliefni eru notuð.
Steinsteypan hefur batnað hvað
varðar loftblendni og saltinnihald
eftir 1979. Loftblendni steypu er þó
ekki enn nógu stöðug.
Verkstjórafélag
Reykjavíkur 65 ára
Laugardaginn 3. mars varð
Verkstjórafélag Reykjavíkur 65 ára.
Félagið var stofnað árið 1919 í húsi
K.F.U.M.
Fyrsti formaður félagsins var
Bjarni Pétursson og gegndi hann
því starfi til maí 1923, er hann
andaðist. Meðal fyrstu verkefna
félagsins var að koma á fastri skip-
an matar og kaffitíma verkamanna.
Einnig beitti félagið sér fyrir bygg-
ingu húss við Reykjavíkurhöfn, þar
sem hinir mörgu hafnarverkamenn
gætu haft afdrep.
í stjórn Verkstjórafélags Reykja-
víkur eru í dag Högni Jónsson for-
maður, Auður Ingólfsdóttir ritari,
Jörgen Berndsen gjaldkeri, Anna
M. Jónsdóttir varaformaður og
Birgir Davíðsson varagjaldkeri.
Félagsmenn eru um 600 úr öllum
starfsgreinum.
Nýi
1
er, því þótt ekki séu greiddar verð-
bætur á laun er vísitala framfærslu-
kostnaðar mælikvarði á kaupmátt
launa og skiptir miklu fyrir launa-
fólk í landinu að hún sé jafnan sem
réttust.
Hefur minnihluti nefndarinnar
lagt fram breytingartillögur við
frumvarpið þar sem gert er ráð fyrir
því að Kauplagsnefnd kanni eigi
sjaldnar en á þriggja ára fresti hvort
ástæða sé til að endurskoða grund-
völlinn, en í frumvarpi stjórnarinn-
ar er gert ráð fyrir fimm ára fresti.
Þá er Iögð fram sú breytingatillaga
að Kauplagsnefnd hagi gerð neyslu-
kannana á þann veg, að sundur-
greina megi þannig að jafnan megi
fá fram hvernig neyslu þess fjórð-
ungs landsmanna í landinu sem
minnst hefur úr að spila, sé háttað.
Hér er um að ræða að hafa úrtak
neyslukannana nógu stórt til að
sundurgreina megi aúðveldlega og
þannig að marktækt sé hvernig
neyslu lágtekjuhópa er háttað
hverju sinni, en um það er nú litlar
upplýsingar að hafa.
Eins og ljóst er af þessu nefndar-
áliti dregur minnihlutinn ekki í efa
að þörf sé á nýjum vísitölugrund-
velli er leysi hinn áratugagamla af
hólmi. Hins vegar hefur komið
fram að ástæða sé til að ætla að
hinn 6 ára grundvöllur sé ekki leng-
ur „raunhæfari“, í Ijósi þeirra breyt-
inga á neyslu sem hljóta að vera
samfara gífurlegri kjaraskerðingu,
sem ótvírætt hefur átt sér stað.
F.U.J. — félagar í
Reykjavík athugið:
Skemmtikvöld verður haldið laugardag-
inn 17. mars kl. 20.30 að Hverfisgötu 106
A
Stjórnin
Starfsmenn Sælgætisgerðarinnar Opal eru hér að pakka nýja, bláa
Opalnum. Með tilraunum og vöruþróun hefur tekist að halda sama bragði
og áður, þótt dregið hafi verið mjög úr bragðefnainnihaldi. Helga Sigurð-
ardóttir og Hrafnhildur Héðinsdóttir standa við pökkunarvélina, en Ragna
Gísladóttir fyllir á meðan á næstu vél.
Stúdentaráð Háskólans:
Nýr og endurbœttur
blár Opal á markað
Skýrslu menntamálaráð-
herra harðlega mótmælt
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á fundi Stúdentaráðs Há-
skóla íslands þann 13. mars s.l.
Fram hefur komið skýrsla unnin
fyrir menntamálaráðuneyti, um
Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Stúdentaráð Háskóla íslands, er
ósátt við vinnubrögð við vinnslu
skýrslunnar. Það er í hæsta máta
óeðlilegt að ekki sé rætt við aðila á
borð við stjórn LÍN, SHÍ, SÍNE og
BÍSN. Vonandi eigum við von á
vandaðri vinnubrögðum af hálfu
menntamálaráðuneytisins í fram-
tíðinni.
Stúdentaráð Háskóla íslands
harmar að skýrslan skuli vera unnin
á jafn hlutdrægan hátt og raun ber
vitni. Megnið af umfjöllun í skýrsl-
unni er sett fram á neikvæðan hátt
í garð námsmanna. Stúdentaráð
Háskóla íslands skilur ekki hvaða
tilgangi það þjónar að vinna slíka
úttekt.
Stúdentaráð Háskóla íslands
mótmælir harðlega öllum hug-
myndum um:
a) að námslán verði með sömu
kjörum og fjárfestingarlán
b) að 1-árs nemar fái ekki lán fyrr
en þeir hafa sýnt fyrst námsár-
angur
c) skerðingu á félagslegri aðstoð
d) aukin námsafköst
e) að eftirspurn eftir lánum byggist
á mati viðkomandi einstaklings
á því hvort það nám sem hann
hyggst stunda hafi það gildi að
geta borið kostnaðinn við lánið.
Stúdentaráð Háskóla íslands
mun vinna fræðilega úttekt á þess-
ari skýrslu og senda hana til réttra
aðila innan skamms.
Ómar í aldarfjórðung!
Hinn landskunni skemrntikraft-
ur, Ómar Ragnarsson, stendur á
merkúm tímamótum um þessar
mundir, en nú eru liöin 25 ár frá því
hann hóf feril sinn sem skemmti-
kraftur og jafnframt 30 ár frá því
hann lék sitt fyrsta stóra hlutverk í
leikhúsi.
Af því tilefni hafa nokkrir aðilar
tekið sig saman um að halda Ómari
hóf, þar sem rifjað verður upp
skemmtiefni frá ferli Ómars í aldar-
fjórðung.
Hófið verður haldið í Broadway,
föstudaginn 23. mars n.k. og verður
þar boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá, með gríni og söng, þar sem
Ómar sjálfur kemur fram ásamt
ýmsum gestum, sem tengjast ferli
hans í gegnum árin. Ómar mun
m.a. koma fram með nokkrum af
þeim undirleikurum sem lengst
hann hefur starfað með.
Auk þess sem hann mun taka lag-
ið með hljómsveit Gunnars Þórðar-
sonar bæði lög sem hann hefur
sjálfur sungið inn á hljómplötur og
lög með textum eftir hann, sem aðr-
ir hafa gert vinsæl.
Ýmsir aðilar og skemmtikraftar
aðrir munu troða upp í hófinu, með
skemmtiefni er tengist Ómari og
ferli hans í skemmtibransanum og
fréttamennskunni og er þar af nógu
að taka. Matseðillinn samanstend-
ur af uppáhaldsréttum Ómars, sem
framreiddir verða í samvinnu við
eiginkonu hans, Helgu Jóhanns-
dóttur, og kennir þar ýmissa grasa,
ekki síður en í skemmtidagskránni.
Þess er sérstaklega vænst, að allir
sem Ómar hefur gert góðlátlegt
grín að í gegnum árin, láti sjá sig í
hófinu og gefst þeim þá væntanlega
kostur á að svara fyrir sig, en hófið
er að sjálfsögðu opið öllum vel-
unnurum og aðdáendum þessa vin-
sæla skemmtikrafts.