Alþýðublaðið - 20.03.1984, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.03.1984, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20. mars 1984 3 Miðstjórn ASÍum „nýja“ vísitölugrundvöllinn: Farið af einum gömlum grunni á annan Miðstjórn Alþýðusambands ís- lands fjallaði nýverið um frumvarp stjórnarflokkanna um nýja vísitölu framfærslukostnaðar og skipan Kauplagsnefndar. Taidi miðstjórnin að neyslukönn- un sú sem framkvæmd var 1978 og 1979 og liggur til grundvallar hinn- ar nýju vísitölu gefi ekki lengur rétta mynd af raunverulegri neyslu fólks, þó færa megi rök fyrir því að hann sé í nánara samræmi við Blanda vegna heiðarvega eru hálfnaðar. Búið er að rækta um 700 af um- sömdum 3000 hekturum, töiuvert er eftir við að leggja girðingar og aðeins er lokið við 1 af þremur gangnamannaskálum. Kostnaður Landsvirkjunar vegna samnings við landeigendur er enn talinn vera 5% af virkjunar- kostnaðinum. neysluna en gildandi vísitölugrunn- ur. Þessi afstaða miðstjórnar ASÍ er í nokkru samræmi við þá afstöðu sem stjórnarandstaðan á þingi hef- ur látið í ljós og telur miðstjórnin að brýnna hefði verið að gera nýja könnun en að færa sig yfir af einum gömlum grunni á annan. Sem kunnugt er lagði stjórnarandstaðan til að svo yrði gert, auk þess sem grundvöllurinn yrði endurskoðað- ur á þriggja ára fresti, en ekki fimm ára, jafnframt sem neysla lágtekju- hópa yrði sérstaklega sundur- greind. Miðstjórn Alþýðusambandsins taldi þó ekki ástæðu til að amast við því að breytingin færi fram eins og frumvarp stjórnarflokkanna gerir ráð fyrir, ekki síst í ljósi þess að þær mikilvægu greiðslur, sem í dag tengjast vísitölu framfærslukostn- aðar, eru greiðslur af lánum sem fylgja lánskjaravísitölu og auðvelt að reikna til samanburðar breyting- ar samkvæmt eldri grunni, séu uppi óskir um slíkt. i Útboö Tilboð óskast i að framleiða og afhenda greinibrunna fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3. Reykjavík gegn 1500 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á s.st. fimmtudaginn 29. mars 1984 kl. 11 f.hád. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Aðalfundur Samvinnubankans Aðalfundur Samvinnubanka íslands h.f., verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, laugardaginn 24. mars 1984 og hefst kl. 13.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð f ram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfn- unarhlutabréfa og aukningu hlutafjár. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir í aðalbankanum, Bankastræti 7, dagana 21,—23. mars, svo og á fundarstað. Bankaráð Samvinnubanka íslands hf. Tilboö óskast í rafmagnslyftu 380 volt 3ja fasa Alimark- Scanko árgerð 1976. Lengd ca. 18 metrar. Lítið notuð og i sæmilegu ástandi. Tækið verður til sýnis á Keflavíkurflugvelli mið- vikudaginn 21. mars kl. 1—5. Tilboð óskast í byggingarkrana KRÖLL K-44 D árgerð 1976 380 volt 3ja fasa. Skemmdur eftir veltu. Tækið verður til sýnis á Keflavíkurflugvelli mið- vikudaginn 21. mars kl. 1—5. Sala varnarliðseigna Amnesty Siileyman Yasar, 37 ára fyrrver- andi kennari. Hann afplánar nú 8 ára fangelsisdóm, sakaður um að vera meðlimur í tyrknesku kennara- samtökunum TOB-DER, og að hafa tekið þátt í aðgerðum samtak- anna (tekið skal fram að aðgerðir samtakanna hafa eingöngu verið friðsamiegar). Súleyman Yasar var á tímabili varaformaður TOB-DER. Hann var handtekinn þann 25. nóvember 1980, en eftir herbyltinguna 12. september 1980 var starfsemi TOB- DER sem og flestra annarra félaga og verkalýðshreyfinga í landinu bönnuð. Ásamt honum voru margir aðrir meðlimir og forsvarsmenn kennarasamtakanna handteknir eftir herbyitinguna. Þeim var hald- ið í einangrun í allt að 90 daga — og þau sem seinna komu fyrir rétt greindu svo frá að þau hafi þurft að þola pyntingar er reynt var að fá fram „játningu" hjá þeim. Meðal annarra ásakana sem á þau voru bornar var að þau hafi frá árinu 1976 starfrækt samtök sem stuðli að því að upphefja eina þjóð- félagsstétt fram yfir aðrar, sem hafi í frammi áróður fyrir kommúnisma og aðskilnaðarstefnu, og brotið lög Tyrklands um félagasamtök. Ásökunin um áróður fyrir að- skilnaðarstefnu á rætur að rekja til viðurkenningar TOB-DER á Kúrd- um sem sjálfstæðum þjóðflokki, og að þeir hljóti kennslu á sínu máli-kúrdísku. Hinn stóri minni- hlutahópur Kúrda í Tyrklandi er ekki opinberlega viðurkenndur í landinu, og kúrdisk tunga bönnuð. Vinsamlegast sendið kurteislega orðað bréf og biðjið um að Súley- man Yasar sem nú situr í Canakkale E Type fangelsinu verði látinn laus úr haldi, sem og aðrir meðlimir TOB-DER sem enn eru í haldi. Skrifið til: Prime Minister Turgut Ozal Basbakanlik ANKARA TURKEY Ritari óskast Viöskiptaráöuneytiö óskar að ráða ritara frá 1. apríl n.k. Góð kunnátta í vélritun og ensku nauð- synleg. Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu Arnar- hvoli fyrir 28. mars • Reykjavík, 19. mars 1984 NÚ líður mér vel! Ljósaskoðun yujgenoAR Auglýsing um i nnlausn happdrættisskuldabréfa ríldssjóðs D f lokkur 1974 Hinn 20. mars hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs í D flokki 1974, (litur: grænn). Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 2.000, nú kr. 20,00, verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á vísitölu franifærslukostnaðar frá útgáfudegi á árinu 1974 til gjalddaga í ár. Innlausnarverð hvers skuldabréfs er kr. 1.063,90 Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda á, að bréfin eru eingöngu innleyst í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík. Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komiö í afgreiðslu Seðla- bankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða hvar sem er á landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans. Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar vísitölu framfærslukostnaðar. Skuldabréfin fyrnast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 20. mars 1984. Reykjavík, mars 1984. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.