Alþýðublaðið - 20.03.1984, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 20.03.1984, Blaðsíða 4
alþýóu- ■ nET.ny Þriðjudagur 20. mars 1984 Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson. Blaðamaður: Friðrik Þór Guðmundsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866. Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12. Askriftarslminn er 81866 Öryggis- og afvopnunarráðstefna kvenna frá 17þjóðlöndum beggja vegna járntjalds;_ Krafist afdráttarlausrar afstöðu gegn notkun kj arnorkuvopna „Þessi ráðstefna skilaði miklu. Þarna hittust konur frá 17 löndum Austur- og Vestur Evrópu, frá 43 kvennahreyfingum, og einungis það, aö skiptast þarna á skoðunum, hafði mikið að segja. Þarna vildu konurnar vinna bug á þeirri tor- Iryggni sem mengar sambúð aust- urs og vesturs og reyna að skilja skoðanir hver annarra," sögðu þær Sjöfn Sigurbjörnsdóttir og Hall- dóra Rafnar, sem fyrir skömmu sóttu ráðstefnu í Helsinki, Finn- landi, um afvopnunar- og öryggis- mál. Ráðstefnan var boðuð af kvennahreyfingum þeirra stjórn- málaflokka, sem sæti eiga á finnska þjóðþinginu. Höfðu þessir aðilar áður haldið svipaðar ráðstefnur, 1973 eftir Helsinkifundinn (The Conference on Security and Cooperation in Europe) og aftur 1980 fyrir Madridráðstefnuna. Þetta var hins vegar í fyrsta sinn sem fulltrúar frá Islandi voru með. Sótti Sjöfn ráðstefnuna fyrir Sam- band Alþýðuflokkskvenna, en Halldóra Rafnar er formaður Landssambands Sjálfstæðis- kvenna. Þátttakendur á ráðstefnunni, sem fór fram helgina 3r4. mars sl., voru 78 talsins og í þetta sinn var hún haldin í tengslum við Stokk- hólmsráðstefnuna, en fyrsta hluta hennar lauk fyrir nokkrum dögum. Á ráðstefnunni voru samþykktar tvær ályktanir; ein sem send hefur verið kvennahreyfingum í löndum þátttakenda; önnur til ríkisstjórna þeirra landa sem þátttakendur áttu á Helsinkisráðstefnunni og Stokk- hólmsráðstefnunni, sem hefur síð- ustu vikurnar rætt afvopnunar- og öryggismál eins og kunnugt er, og mun fram haldið verða á næstunni. í ályktun þeirri, sem send hefur verið ríkisstjórnum beggja vegna járntjalds segir m.a. í lauslegri þýð- ingu: Við konur erum áhyggjufull- ar yfir framtíð barna okkar og framtíð alls mannkyns vegna þess háskalega ástands sem nú ríkir; ástands sem er fyrst og fremst til- komið vegna kjarnorkuvígbúnaðar í álfunni. Almenningsálitið hefur í ríkari mæli snúist sterklega gegn stríðshættunni og gegn auknum vígbúnaði. Síðar segir: „Ríkisstjórnir bera þá ábyrgð og það verkefni, að koma á friðasamlegum samskiptum og spennuslökun milli ríkja, sem búa við ólík þjóðfélagsmynstur (austur- vestur).“ I ályktuninni er lýst ánægju með ýmsan þann árangur sem lesa má úr niðurstöðum CSCE fundarins í Helsinki 1973 og Madridráðstefn- unnar 1980 um traust og öryggi í Evrópu, en jafnframt á það bent að. þrátt fyrir þennan árangur við samningaborðin, þá hafi kjarn- „Orð eru til alls fyrstu — segja þœr Sjöfn Sigurbjörnsdóttir og Halldóra Rafnar „Auðvitað voru skoðahir kvenn- anna skiptar; þarna voru konúr beggja vegna járntjalds og konur frá ólíkum pólitískum samtökum í Evrópu. Hins vegar var mikið gagn að því að hittast og talav saman; skiptast á skoðunum. Og konurnar voru tilbúnar til að mætast; reyna að ná saman. Og þær tvær ályktan- ir sem samþykktar voru sýna það, að það er hægt að ná samkomu- lagi" Þetta sögðu Sjöfn Sigurbjörns- dóttir frá Sambandi Alþýðírflokks- kvenna og Halldóra Rafnar for- maður Landssambands Sjálf- stæðiskvenna í samtali við Alþýðu- blaðið, en þær tvær voru frá Islandl á ráðstefnu kvenna um öryggis og afvopnunarmál í Helsinki um síð- ustu mánaðamót. „Orð eru til alls fyrst“ sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, „og þótt ýmsum hafi fundist sem lítill áþreif- anlegur árangur hafi orðið á Helsinkifundinum ’73 og Madrid- ráðstefnunni ’80 og vilji að fram- kvæmdin verði í samræmi við nið- urstöður og samþykktir þessa funda, þá verður ekki undan því lit- ið, að ekkert verður komist áleiðis án þess að ræða málin. Og við konurnar náðum vel saman í Helsinki. Ályktanir ráðstefnunnar sýna fram á þann vilja, sem konur vilja lýsa, hvort heldur þær búa í austantjaldslöndum eða vestan megin járntjalds i Evrópu. Konur vilja taka tiilit hver til annarra; vilja láta skynsemina ráða.“ Halldóra Rafnar sagði að konur frá ríkjum Austur-Evrópu hefðu komið vel undirbúnar til ráðstefn- unnar með harðar áróðursræður. „Þær voru harðar í fyrstu.en sýndu þó vilja til að ræða málin og hlusta á okkar viðhorf, og, mæta sjónar- miðum okkar. Ég held hins vegar að það sé nauðsynlegt til að koma í veg fyrir tortryggni og ótta, að ferðafrelsi milli austurs og vesturs verði að veruleika, þannig að fólk geti hitt hvort annað og náð að skilja hvort annað“ Þær Sjöfn Sigurbjörnsdóttir og Halldóra Rafnar vildu undirstrika gagnsemi ráðstefnunnar og sögðu að fyrst konur úr austri og vestri hefðu getað komist að niðurstöðu í stefnumiðum í þeim ályktunum sem samþykktar voru, þá ættu þjóðir heims að geta gert slíkt hið sama í reynd og framkvæmd. orkuvopnavígbúnaður aukist og nýjum kjarnavopnum verið komið fyrir í Evrópu. Lysir ráðstefna kvennanna því yfir að þessi þróun sé algjör andstæða við niðurstöður Madridráðstefnunnar og við þau markmið, sem Stokkhólmsráð- stefnan hefur markað sér. „Hótun- in sem fellst í kjarnorkuvopnum eða hugsanlega notkun þeirra skap- ar öllu mannkyninu hættu af hel- stríðiþ segir i ályktuninni. í ályktuninni eru síðan eftirfar- andi kröfur settar fram og þeim beint sérstaklega til Stokkhólms- ráðstefnunnar og þeirra ríkja, sem þar eru þátttakendur: 1) Að tekin verði afstaða gegn notkun kjarnorkuvopna. 2) Að styðja að komið verði á kjarnorkuvopnalausum svæðum, ef viðkomandi ríki hafa orðið sam- mála um slíkt. 3) Að koma í veg fyrir niðursetn- ingu meðaldrægra eldflauga í Evrópu og slíkra eldflauga sem beint væri gegn Evrópu, auk þess að uppræta þær kjarnorkueld- flaugar sem þegar hefur verið kom- ið fyrir. 4) Áð fram fari gagnkvæm „fryst- ing“ kjarnorkuvopna á jafnréttis- grundvelli, þar sem allra aðila yrði gætt, og gæti það orðið skref í átt til alhliða afvopnunar. Að lokum segir í ályktun kvenn- anna: „Konur um allan heim vænta þess að öryggismálaráðstefnan í Stokkhólmi muni leiða til aukins skilnings og trausts manna í milli og efla öryggi og frið í Evrópu“ Setja þarf lög um lágmarkslaun Alþýðublaðið hefur gagnrýnt það, að ekki skyldi í síðustu kjara- samningum lögð meiri áhersla á hið gamla baráttumál verkalýðshreyf- ingarinnar, að daglaun skuli nægja til Iífsviðurværis. Vinnuveitendur höfnuðu kröfunni um 15 þúsund króna lágmarkslaun, og með kjara- samningunum voru staðfest lág- markslaun að fjárhæð 12.600 krón- ur. Hvernig væri að redda hlut- unum með þvi að bjóða bændum við Blöndu í Flor- idaferð með Flugleiðum? Fyrir nokkru flutti Sighvatur Björgvinsson frumvarp á Alþingi um lágmarkslaun. í 1. grein frum- varpsins segir, að óheimilt sé, að greiða lægri laun fyrir dagvinnu en 15 þúsund krónur á mánuði— Með frumvarpinu fylgir vönduð greinar- gerð, þar sem fjallað er um hug- myndina um lágmarkslaun frá ýms- um sjónarhornum. Hér á eftir fer hluti af greinargerðinni: Frumvarp þetta um lágmarks- laun felur í sér einfalda lausn á því vandamáli að af ýmsum ástæðum hefur ekki tekist að tryggja íslensku verkafólki boðleg lágmarkslaun í frjálsum samningum. Flókin launakerfi, þar sem stór hópur launafólks sækir verulegan hluta tekna sinna með álags- og hlunn- indagreiðslum ofan á Iága viðmið- unarkauptaxta, hafa ásamt öðrum valdið þvi að á grundvelli kaup- taxtakerfisins er nær ógerlegt að hækka kaup láglaunafólks sérstak- lega án þess að hærri tekjuhópar fái jafnframt margfalda slíka launa- hækkun í sinn hlut. Fólkið á lægstu kauptöxtunum, sem engar álags-; ákvæðis- eða hlunningagreiðslur hefur, er jafnframt minnihlutahóp- ar í launþegahreyfingunni með mjög takmörkuð áhrif og meiri- hlutavilji hefur ekki verið fyrir því á borði að kjör þessa minnihlutahóps fáist bætt beint eða óbeint á kostn- að þeirra betur stæðu. Vinna nótt og dag Vinnuveitendur hafa einnig vérið mun fúsari til samninga um kaup- hækkanir við hálaunahópa en lág- tekjufólk. Þannig hefur launakerf- ið í landinu, skortur á samhæfðri launamálastefnu launþegasamtaka og afstaða vinnuveitenda í samein- ingu bæði meðvitað og ómeðvitað beinst gegn lágtekjufólkinu og haldið kjörum þess niðri. Eins og nú er komið málum er kaupið, sem lægst launaða fólkinu er ætlað að lifa af fyrir fulla vinnu, Iandi okkar og þjóð til skammar. Fimmtán þús- und króna mánaðarlaun fyrir fulla dagvinnu nægja engum íslendingi nema fyrir einföldustu frumþörf- um. Eigi að síður er til þess ætlast að talsverður hópur fólks þiggi allt að þriðjungi lægri laun fyrir störf sín. Hver heilvita maður sér að við slíkar aðstæður hefur fólk ekki nema um tvennt að velja: annað- hvort að vinna nótt með degi til þess eins að hafa í sig og á og halda á sér hita ellegar neita sér um einföldustu frumþarfir mannlegs lífs svo að ekki sé nú talað um annað sem þorri landsmanna telur vera sjálf- sagðan þátt í daglegu lífi fólks á ís- landi. Fátækt og skortur Lífskjörin, sem þessu láglauna- fólki er ætlað að búa við, er í svo hróplegu ósamræmi við lífshætti mikils meiri hluta þjóðarinnar að líkast er sem óravegur annaðhvort í tíma eða í fjarlægð á hnettinum skilji að þá tvo hópa fólks — hinn bjargálna meiri hluta og hinn fá- tæka minni hluta sem saman byggja land vort. Slíkt ástand er okkur öll- um til vansæmdar. Fáist ekki bót á því í frjálsum kjarasamningum — en það virðist sem sakir standa næsta vonlítið — ber stjórnvöldum skylda til þess að taka í taumana. í kaup- og kjaramálum er skylda stjórnvalda í grundvallaratriðum aðeins ein: að tryggja að enginn þurfi að búa við fátækt og skort. Fáist slík trygging ekki fram með öðrum hætti er skylt að beita til þess lögum. Hneykslanlegt athæfi stjórnvalda er að kynna niðurstöð- ur úr kjarakönnun Kjararannsókn- arnefndar, sem staðfestir hyldýpið milli hins bjargálma meiri hluta og hins fátæka minnihluta og neyð hins síðarnefnda, eins og skrítilegt fyrirbæri Iíkt og tvíhöfða kálf eða fisk með fjóra sundmaga og láta svo við það sitja og lýsa allri ábyrgð af höndum sér. Þetta athæfi lýsir ekki bara ábyrgðarleysi heldur því kaldrifjaða miskunnarleysi sem samfélagið og stjórnendur þess Framhald á bls. 2

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.