Tíminn - 19.02.1967, Síða 10
22
TÍIWINN
SUNNUDAGUR 19. fcbrúar 1867.
MÓGILSÁR-STÖÐIN
Framhald af bls. 16
lega 900 þús, txjáplöntur, og var
það um 100 þús. minna en aetlað
var. Á hinn skammi gróðursetning
artími aðal sök á því. Aftur á
mói hefðu gróðurstöðvar lands-
ins getað látið í té allt að 1.2
mflljónir plantna á síðasta ári,
og bíður mismunur þess og þess
sem gróðursett var, gróðursetning
ar á yfirstandandi ári. —
Sérstakar tilraunir hafa verið gerð
ar með áburðargjöf í skóglendum
undanfarin 5 ár. Segja skógræktar
menn að greinilegt sé, að á köld-
um sumrum flýti köfnunarefni
fyrir vexti plantna. Munu niður-
stöður þessara tilrauna brátt birt-
ar.
Viðlhald og endurbætur girðinga
er feiknamikið verk á hverju ári.
Girðingar Skógræktar ríkisins
eru samanlagt röskir 220 kílómetr
ar og girða af 26.000 hektara lands,
en girðingar skógræktarfélaganna
eru 324 kílómetrar að lengd og
girða 5.300 hektara lands. Þegar
girðingar eru vel upp settar úr
góðu efni þarf ekki að reikna með
nema 5% árlegu viðhaldi. En það
svarar til þess, að skógræktarfé-
lögin og Skógrækt rlkisins þyrftu
árlega að endurbyggja um 27 km.
langar girðingar. Með núverandi
verðlagi er það um 1.3 milljónir
króna. Skógrækt ríkisins hieldur
nokkurn vegin í horfinu, en skóg-
ræktarfélögin hefur tilfinnanlega
skort fé til girðingaviðhalds.
Skógarlhögg og viðarsala var með
skipuðum hætti og undanfarið. Þó
var miklu minni eftirspum eftir
girðingastaurum en oft áður. Seld-
ust ekki nema um 4.500 staurár.
Af eldiviði og reykingaviði seld-
ust 95 tonn. Á Vöglum hafa birki
staurar verið fúavarðir með Basi-
liti um nokkur ár. Ástæða er að
ætla, að slíkir staurar endist mik-
ið lengur en óvarðir, en tíminn
verður að skera úr um hve lengi.
Samskonar fúavarnir verða nú
upp tekpar i Hallormsstaðaskógi.
Dálítið var selt af furulimi og
jólatrjám frá Hallormsstað.
SKULDABRÉFALÁN
Framhald af bls. 16
|brétf að fjárlhæð kr. 100.000.00
í B-tflokki verða 140 sérskuldabréf
að fjárfhæð kr. 50.000.00 í C-flokki
verða 2100 sérskuldabréf að fjár-
hæð kr. 5.000.00
Sérskuldabréfin ávaxtast með
10% vöxtum og endurgreiðast á
næstu 7 árum, á árunum 1968—
1974. Gjalddagi útdreginna bréfa
og vaxta er 1. maí ár hvert, í
Ifyrsta sinn 1. maí 1968.
■ Sérstök athygli skal vakin á því,
að skuldaíbréfin svo og vextir af
þeim, eru undanþegin framtals-
skyldu og skattlagningu á sama
hátt og sparifé, sbr. 21. gr. 1. nr.
90 1965 um tekju- og eignaskatt.
Um nánari skilmála brétfanna
vísast til útboðsauglýsingar sem
birt verður í dagbiöðunum 21.
febrúar n. k. en þann dag hefst
sala þeirra.
Iðnaðarbanki íslands h.f. ann-
ast sölu brétfanna, bæði aðalbank-
inn og útibú hans í Reykjavík,
Hafnarfirði og Akureyri."
16 ÍSLENZKIR
Framhald af bls 16
fáum, því hraðari verður vöxtur
þjóðarinnar. Við eyðum sem svar-
ar 2 milljörðum á ári í samlbandi
við innflytjendur, og frá seinni
héimsstyrjöldinni hafa 2 mifljón-
ir manna gerzt innflytjendur í
Ástralíu. Frá í júlí 1966 og fram
til júní í ár, munu 150 þúsund
manns gerast innflytjendur 1
Ástraii'U, og á s.l. ári eignuðust
innflytjendur 60 þús. börn, sem
svarar til þess að innflytjendur
eiga eitt atf hverjum fjórum börn-
um sem fæðast í Ástralíu. Núna
eru 11,5 milljónir fbúa í Ástralíu,
og fjörutíu af hundraði íbúanna
eru undir 21 ára aldri.
—• ílendast margir af innflytj-
endunum?
—• Um það bil 93 af hverjum
hundrað verða kyrrir, og við von-
umst til að sú tala hækki í 99
áður en langt um líður, en get-
ur þó aldrei orðið 100%.
Nýlega var breytt skipulagi í
sambandi^ við ferðalög innflytj-
enda til Ástralíu, og kostar það nú
ekki meira fyrir Norðurlandabúa,
en það kostar þá að fljúga frá
löndum sínum til London, en það-
an er farið í sérstökum leiguflug
vélum, og hefur með því tekizt
að lækka fargjaldakostnaðinn mik
ið. Þegar til Ástralíu er komið,
tekur sérþjálfað starfsfólk á móti
innflytjendunum, og útvegar hús
næði og atvinnu, kemur þeim á
enskunámskeið sem ekki kunna,
ensku — en það kemur víst ekki
til með íslendingana því allsstaðar
á Norðurlöndunum nema hér þurf
um við að nota túlka til að tala
við fólk, en hér hefur þess ekki
þurft.
— Finnst yður eitthvað líkt með
fslendingum og Ástralíubúum?
— Já, það er nokkuð margt að
því ég held, báðar þjóðirnar búa
á eyjum, báðar þjóðirnar eru dug-
legar, báðar þjóðirnar notfæra
sér mikið flugvélar, og ef allt hjá
ykkur er eins og hér á Hótel Sögu,
þar sem þjónustan er eins og bezt
gerist á hótelum annars staðar,
þá eru möguleikarnir miklir fyrir
ykkur í Ástralíu, sagði Murray
að lokum.
GJÖF TIL STYRKTAR
LANDGRÆÐSLUNNi
EiginmaSur minn, faBir, stúpfaðir, tengdafaðir og afl,
Ingimar Magnús Björnsson,
véivirkl, Meðalholti 9,
verður jarðsunginn frá Démkirkjunnt þriðjudaglnn 21. febrúar
kl. U0 e. h.
Blóm vihsamlegast afþökkuð.
María 'Hannesdóttlr,
Jóhanna Þórunn Ingimarsdóttir,
Herdís Jónsdóttir,
Hannes Jónsson,
Karln W. Jónsson
og barnabörn.
Hugheilar þakkir til allra sem auðsýndu okkur hlýhug og vináttu
við andlát og jarðarör,
Þorsteins Kristinssonar,
Kirkjuvogi, Höfnum.
Erlendína Magnúsdóttir,'
börn, tengdadætur, barnabörn og
systir.
Maðurinn minn
Bjarni Pálsson,
vélstjóri
lézt af slysförum hinn 17. þ.m.
Fyrir mína hönd og barna hans.
Matthildur Þórðardóttir.
Systir okkar,
Nanna Þ. Gíslason,
lézt á Landsspítalanum sunnudaginn, 12. febrúar. Útförin hefur
farið fram. Við þökkum hjartanlega auðsýnda samúð.
Baldur Þ. Gíslason, Freyr Þ. Gislason,
Vilhjálmur Þ. Gíslason, Gylfi Þ. Gíslason.
Deilt um til-
vist vinnusjúk-
dómadeildar
EJ—Reykjavík, föstudag.
Nokkrar deilur urðu um það
í borgarstjóm í gær, hvort til
væri atvinnusjúkdómadeild við
Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur
eða ekki.
Guðjón Jónsson (Alþ.bl.) flutti
tillögu, þar sem stjórn Heilsu-
verndarstöðvarinnar var falið að
koma á stofn og starfrækja at-
vinnusjúkdómadeild við Heilsu-
varndairstöðina, og skyldi verk-
efni hennar vera að rannsaka at-
vinnusjúkdóma og skipuleggja
varnir gegn þeim.
Gunnar Helgason (S) sagði, að
slík deild væri starfandi, og hefði
starfað um nokkurn tíma, undir
stjórn aðstoðarborgarlæknir. Ekki
vissi ihann þó um starfslið né hús
næði deildar þessarar.
Guðjón skýrði frá því, að í lok
ársins 1965 hafi hann, fyrir hönd
Félags jámiðnaðarmanna, farið á
fund aðstoðarborgarlæknis og
óskað eftir ýmsum rannsóknum á
járnsmiðum til athugunar á at-
vinnusjúkdómum. Ekkert hafi get-
að orðið úr þeirri rannsókn, enda
þá ekki starfandi sérstök deild.
Ekki hefði verið tilkynnt síðan, að
deildin hefði verið stofnuð. Ef
hún væri til, þá hefðu þeir, sem
hana þyrftu að nota, a.m.k. ekki
fengið að vita um tilvist hennar.
Meirihlutinn bar fram breyting
artillögu, þar sem stjórn Heilsu-
verndarstöðvarinnar var falið að
athuga, hvort hægt væri að efla
þá atvinnusjúkdómadeild, sem
starfandi væri við stöðina, og
hún var samþykkt með atkvæð-
um meirihlutans.
Frú Jóhanna Jórunn Einarsdótt-
ir, sem andaðist 8. júlí f.á. bað
tengdason sinn, Brynjólf Ingólfs-
son, ráðuneytisstjóra, skömmu fyr-
ir andlát sitt, að sjá til þess, að
tíu þúsund krónur úr búi sínu yrðu
eftir hennar dag greiddar til styrkt
ar landgræðslu á íslnadi.
Eins og kemur fram í bréfi
Brynjólfs Ingólfssonar, þá kvaðst
Jólhanna sál. nýlega hafa lesið
grein um árangur þann, sem náðst
hefur í sandgræðslu hér á landi,
og hefði það vakið mikinn og ein-
lægan áhuga hennar á málinu.
Ég vi'l fyrir hönd Landgræðslu
ríkisins þakka af alhug þá ræktar
semi og hlýhug, sem felst í þess-
ari gjöf, því hugarfar gefandans
er riiér kærkomnast. í samráði við
erfingja hinnar þjóðræknu konu,
svo og landbúnaðarráðuneytið, hef
ég ákveðið að verja þessum fjár-
munum til uppgræðslu í Þjórsár-
dal. Mikill hluti af Þjórsárdal er
eins og eyðimörk, þratt fyrir nærri
þrjátíu ára friðun Skógræktar rík
isins. Eins og stendur, og er ekki
veitt sérstakt ríkisframlag til land
græðslu í dalnum, en þó er fyrir-
hugað að hefjast þar handa nú
þegar og þá fyrst og fremst fyrir
fé, sem kæmi annars staðar að en
úr ríkissjóði.
BRIDGESTON E
HJÓLBARÐAR
Siaukin sala
BRIDGESTONE
sannar gæðin.
Veitir aukið
öryggi í akstri.
B RIDGESTON E
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTA —
Verzlun og viðgerðir.
Sími 17-9-84.
Gúmmíbarðinn h.f,
Brautarholti 8,
HUSBYGGJENDUfi
TRÉSMIÐJAN,
HOLTSGÖTU 37,
framleiðir eldhúss- og
svefnherbergisinnréttingar
Jarl Jónsson
lögg. endurskoðandi
Holtagerði 22 Kópavogi
Sími 15209
B. T. R.
Víofuar olíuslöngur
i mefratali oe
Samanskrúfu? slöngutengi
i flestar cegundir af:
Ámoksturstækjun<
Bílkrönum
Dráttarvéium
Jarðýtum
Lyfturum
Skurðgröfum
Sturtuvögnnm
Vegheflnm
Vélstnrtnm
Vökvastýrum
LANDVÉLAR H.F.
Laugaveg 168
Símj 14243
Snorrabraut 38
Skólavörðustig 13
ÚTSALA
VEITUM MIKINN
AFSLÁTT AF
MARGS KONAR
FATNAÐI
NOTIÐ
TÆKIFÆRIÐ
OG GERIÐ
GÓÐ KAUP.