Alþýðublaðið - 02.06.1984, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 02.06.1984, Blaðsíða 5
Laugardagur 2. júni 1984 5 Skerseyrín, en þar mun Sjóminjasafnið rísa í framtíðinni. Húsið í baksýn er Hrafnista í Hafnarfirði. jarðhæðina. Hin gólfin eru alveg ný. Grindin var einnig víða skemmd og búið að fjarlægja hraunhelluna sumstaðar. Lerki var fengið til að bæta grindina og hraunið var auð- velt að nálgast í Hafnarfirði. Einna erfiðast var að fá skífuna á gaflinn, en hún fannst loksins í Portúgai. Verkið var unnið eftir því, sem fjármagn leyfði hvert ár. En það þýddi í raun og veru að það var unn- ið frá ársbyrjun og fram á vor ár hvert. Verkinu miðaði mjög vel.og er áætlað að viðbyggingunni ljúki í, surriar. Endurbyggingu sjálfs hússins . lauk á síðasta ári. Sýning á 75 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar Á 75 ára afmæli Hafnarfjarðar- bæjar sl. sumar, var sett upp sýning í pakkhúsinu á vegum Sjóminja- safns íslands og Byggðasafns Hafnarfjarðar. Þar voru annars- vegar sýnd skipalíkön, sem sýndu þróun og sögu fiski- og farskipa- kosts íslendinga. Hinsvegar voru sýndir munir og ljósmyndir, sem tengdust sögu bæjarins. Var höfuð- áhersla lögð á að sýna útvegssögu hans, en auk þess var brugðið upp myndum og munum, sem tengdust skólasögu hans og ýmsu öðru. Páll V. Bjarnason og Gyða Gunnars- dóttir, þjóðfræðingur, sáu um upp- setningu sýningarinnar. Hún var opin í einn mánuð og mjög fjölsótt. Skerseyri Við yfirgáfum nú pakkhúsið og Páll V. Bjarnason, arkitekt út á Skerseyri. héldum út á Skerseyri. Þar var áður bújörð, en hún mun hafa farið í eyði fyrir aldamót. Skerseyrin er á mörkum Hafnarfjarðar og Garða- bæjar. Umhverfið þarna er friðað og verða engar framkvæmdir á svæðinu utan að þarna á Sjóminja- safnið að rísa í framtíðinni. Á næsta ári er áætlað að hefja framkvæmdir við bátaskýli á Skers- eyrinni og væntanlega verður í framhaldi af því farið í fram- kvæmdir við varanlegt safnhús fyr- ir Sjóminjasafnið. Páll sagði, að þar sem lóðin væri mjög sérkennileg og falleg, með hraunbolla sína, kletta og lítil lón, væri umhverfið mjög viðkvæmt. Það er því áformað að reisa nokkr- ar smærri byggingar og fella þær að umhverfinu frekar en að reisa eitt stórt hús. Auk þess að standa við sjó er lóðin nálægt Hrafnistu í Hafnar- firði. Sú nálægð skapar möguleika fyrir safnið, að afla sér fróðleiks, sem hverfur með þeim öldruðu sjó- mönnum, sem þar gista síðustu æviár sín og auk þess gæti það yljað sjóbörðum vöngum, að berja aug- um áhöld og amboð, sem þeim léku milli handa á yngri árum, en eru nú horfin af sjónarsviðinu. Söfnun Safn er ekki bara hús, heldur fyrst og fremst munir. Sagði Páll að Sjóminjasafnið væri enn sérstök deild innan Þjóðminjasafnsins. Það á þegar all mikið af munum og minjum tengdum sjávarútvegi. Lítill hluti þessara gripa er til sýnis í kjallara Þjóðminjasafnsins. Auk þess á safnið yfir 20 báta og áraskip af ýmsum stærðum og gerðum. Það eru þau skip, sem eiga að fara i bátaskýlið á Skerseyrinni. í sumar verður svo hafin skipuleg sjóminjasöfnun fyrir safnið. Sáf Hvíldarstund um borð í togaranum Garðari snemma á öldinni. Mynd þessi var á sýningunni i pakkhúsinu í fyrrasumar. LAUSNIN ER FUNDiN SEX FÁGÆTAR Það er stundum erfitt að firma tœkifærisgjafir handa lax- og silungsveiðimönnum, sem eiga öll tœki og tól til að stunda íþrótt sína. Nú hefur Bókautgáfan Þjóðsaga á- kveðið, að leysa þessa þraut. Hún hefur safnað saman í einn bókaflokk sex bókum um lax- og silungsveiðar. Sumar þessara bóka eru fá- gætar, og er þessi bókaflokk- ur kjörin gjöf við margvísleg tœkifæri. Og auðvitað geta menn einfaldlega keypt þœr handa sjálfum sér. — I þessum bókaflokki eru eftirtaldar bækur: 1. Elliðaárnar, paradís Reykjavíkur, eftir Guðmund Daníels- son. Bókinni fylgja vönduð veiðikort, gömul og ný. 2. Norðurá, fegurst áa, eftir Björn J. Blöndal. Þessari bók fylgja einnig skýr og góð veiðikort og fjöldi mynda. 3. Dunar á eyrum, Ölfusá og Sogið, eftir Guðmund Daníels- son. Þessi bók er mikið og merkilegt heimildarit. 4. Roðskinna, bók um galdurinn að fiska á stöng og mennina sem kunna það, eftir Stefán Jónsson. Þetta er lífleg og skemmtileg bók, prýdd fjölda teikninga. 5. Vötn og veiðimenn, uppár Árnessýslu, eftir Guðmund. Daníelsson. Eins og Dunar á eyrum, er þessi bók mikið heimildarit um hið mikla vatnasvœði Árnessýslu. 6. Með flugu í höfðinu, eftirStefán Jónsson, sem hann nefnir bókarkorn um tæki til fluguveiða og notkun þeirra. Þetta er bæði skemmtileg og gagnleg handbók fyrir þá, sem stunda fluguveiði. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að eignast nokkrar helstu lax- og silungsveiðibækur, sem gefnar hafa verið út á íslandi. Hafsjór af fróðleik og heimildum. — Upplagið er takmarkað. Sendum öllum sjómönnum landsins heillaóskir í tilefni sjómannadagsins SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA Sjávarafurðadeild SAMBANDSHUSINU REYKJAVÍK SÍMI28200

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.