Tíminn - 26.02.1967, Side 3

Tíminn - 26.02.1967, Side 3
SUNNUDAGUR 35. febrúar 1967 TÍMINN ÍSPEGLITÍMANS Franska kvikmyndaleikkon- an Brigitte Bardot dvelst um þessar mundir í bænum Meril- bel í Frakklandi en þar eru stundaðar ýmsar vetraríþróttir. Fyrir skömmu varð svo leik- konan fyrir því áfalli að renna til á teppi, með þeim afleið- ingum að hún valt niður .tröpp- umar í böll þeirri, sem hún á við Maribel, og fótbrotnaði. * Söngvararnir The Rolling Stones eru nú komnir í sviðs- ljósið á noikkurn annan hátt en venjulega. Er það eítir að lögregla frá þeirri deiid lög- reglunnar, sem annast eitur- lyfjamál, gerði húsleit i húsi þar sem The Rolling Stones voru allir. Það er gítarleikar- inn Keith Ridhard, sem á hús- ið og var gerð leit á honum, söngvaranum Mick Jagger og fimm öðrum karlmönnum, sem þarna voru viðstaddir. Einnig var gerð leit á vinkonu söngv- arans. Árangurinn af þessari húsleit var sá, að lögregian fann eitthvert dvjft, sem nú er verið að rannsaka hvort sé eitt- hvert eiturefni og komi í ljós að svo sé verður lögð fram kæra á hendur yhe Rolling Stories. Það eina, sem þeir segja um þetta mál er að lög- fræðingur -þeirra hafi ráðlagt þeim að segja ekkert. ★ Hvernig ætli ykkur finndist að hossast á strútsbaki á 50 km. hraða, hafandi lítið til að halda sér í og eigandi það á hættu að fuglinn styngi allt í einu hausnum í sandinn til að fela sig? Að minnsta kosti finnst unglingunum í Holly- wood ekkert athugavert við það — eins og myndin sann- ar bezt — og það er nú eitt aðalsporið þar í borg, að keppa á 800 m. braut hafandi strúta fyrir reiðkost. Fyrst þarf keppandinn sjálfur að komast hjólparlaust á bak — og síðan að komast á braut- arenda á baki fuglsins og það er ekkert léttaverk — þar sem enn hefur ekki verið fundinn upp heppilegur hnakk ur á strútana. En kröikkunum finnst gaman að þessu — spm það sjálfsagt er — og gróða- vænlegt er það fyrir eigend- urna, sem temja strúta með það fyrir augum, að nota þá til keppni. Loilobrigida hefur að und- anfömu dvalizt í Brazilíu og er nú svo komið að hún hefur fallið í ónáð og orðið að hálf- gerðu atlhiægi hjó brasilískum yfirvöldum. Orsökin er sú, að hún fór á kameval í Ríó og þá urðu henni á þau mistök að stiga þrjú vitlaus spor í samba. Auk þess fór hún fram á það, að hún yrði ekki ljós- mynduð nema í vissum stell- ingum, sem hún sjálf ákvað. Brasilisk blöð fullyrða að tími Ginu Loliobrigidu sé búinn að vera. Leikkonan er orðin 39 ára. ★ Listaverkasafn ríkisins í Wa^hington hefur boðið Franz Josef II prinsi af Liedhten- stein milli fimm og sex milljón dollara fyrir málverk eftir Leo- nardo Da Vinci. Er þetta hæsta verð, sem hefur verið boðið fyrir máiverk fram að þessu. ★ í kvikmyndinni You Only Live Twice, sem er fimmta James Bond kvikmyndin sem er tekin, fer svo að kvennaguil ið James Bond giftist og er það japanska leikkonan Mie Hama, sem verþur þeirrar náð- ar aðnjótandi að fá að leika eiginkonu kappans. Þó hefur hún ekki ein heiðurinn því að vissum atriðum leikur önnur leikkona hennar hlutverk og það er engin önnur en eigin- kona Sean 0‘Connery, sem leikur þar og er ástæðan sú að japanska leikkonan, sem hafur verið nefnd Brigitte Bardot Japans, veiktist, svo að hún gat ekki leikið í nokkrum atrið- um myndarinnar. * Við úthlutun Óskarsverðlaun anna fengu Óskarsverðlaun fyrir beztan leik í aðalhlutverk- um hjónin Eliza'betlh Taylor og Ridhard Burton. Er þeim veitt verðlaun fyrir leik þeirra í kvikmyndinni „Hver er hrædd- ur við Virginiu Wooif. Þá var kvikmyndin útnefnd bezta kvik- mynd ánsins ásamt fjórum öðr- um kvikmyndum: Alfie, Rúss- arnir koma, A Man for all Seasons og The J^ebbles. í allt fékk kvikmyndin Hver er hrædd ur við Virginiu Woolf 13 verð * laun og hefur engin ein kvik- mynd fengið jafnmörg verð- laun nema kvikmyndin Allt um Evu, sem fékk fimmtán verðlaun. ★ Jakob Goldfinger heitir veizl unarmaður nokkur í Parisar- txirg, og nú hefur hann stefnt viðkomandi aðilum fyrir dreíf- ingu á James Bond kvikmynd- inni Goldfinger og krefst einn- ar og hálfrar milljónar króna í sikaðabætur. Síðan kvikmynd in var tekin til sýninga í París hefur hann ekki haft stundleg- an frið fyrir mönnum, sem hringja um miðjar nætur og þykjast vera úr leyniþjónust- unni. ★ Kvikmyndastjarnan Glenn Ford hefur boðizt til þess að fara til Vietnam og berjast þar í einn mánuð. Er hann ásamt John Wayne og James Stewart, — en þeir voru allir þrír hátt- settir í seinni heimsstyrjöld- inni, — einn helzti talsmaður hernaðarstefnu Bandaríkj- anna. Á öndverðum meiði eru hins vegar félagarnir Frank Sinatra, Sammy Davis og Dean Martin. ★ Enski heimspekingurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Ber- trand Russel er nú 94 ára. Hann hefur nú fengið um það bil sjö milljónir króna fyrir fyrri hluta endurminninga sinna, sem eiga að koma út í Bandaríkjunum. Hins vegar hefur nýjasta bók hans ekki enn'þá fengið neina útgefanda í Bandaríikjunum. — Bókin heitir Stríðsglæpir í Vietnam. * Næsta haust á að frumsýna nýjan söngleik á Broadway og verður hann byggður á leik- riti Bemards Shaw, Sesar og Kleopatra. Verður það franska leikkonan Leslei Caron, sem fer með hlutverk Kleopotru, en ekki hefur enn verið ákveð- ið, hver á að leika Sesar. Söng- leiikurinn á að nefnast „Fyrsti Rómverjinn hennar“ og verð- ur fróðlegt að sjá, hvort hann reynist eins vinsæll og söng- leikurinn My fair lady, sem einnig er byggður á leikriti eftir Bernard Shaw. * Blöðin í Ítalíu og Beigiu — og víðar í Evrópu — eru hvern dag þakin af efni um ítölsku greifaynjuna og milljónaerf- ingjann Giovanna Agusta, sem hljópst að heiman til að gift- ast hinum þeldökka knatt- spyrnumanni, Jose Germano, frá Brazilíu, sem leikur með belgiska liðinu Standard Liege, eigandi það á hættu að verða gerð arflaus. En það skipti hana engu móli, aðalatriðið var að ná í knattspyrnUhetjuna. Myndin er af þeim Agusta og Germano, gangandi á götu í Brussel, á fund föður stúlk- unnar og var tekin sl. mánu- dag. Gamli maðurinn lagði þar blessun' sína á ráðhaginm og Agusta heldur Gérmanó og arfinum. (Þess má geta, að Standard Liege lék hér í Reykjavík í fyrrahaust við Val í Evrópukeppni bikarliða, en Germano kom ekki hingað. Hins vegar lék hann gegn Val í Liege og réðu Valsmenn ekk ert við hann. Hann skoraði nokkur mörk og var aðalmað- urinn bak við sigur Belga 8—1 en leiknum á Laugardalsvelli lauk með jafntefli 1—1). ★

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.