Alþýðublaðið - 14.06.1984, Qupperneq 3
Fimmtudagur 14. júní 1984
3
Nýleið
til að mæta óvæntum útgjöldum
Hlaupareikningur fyrir launafólk með allt að 10.000 króna yfirdráttarheimild.
Öll þekkjum við það vandamál
þegar óvænt útgjöld koma upp á t.d.
þegar bíllinn bilar og þarf á verkstæði eða
einhver í fjölskyldunni á stórafmæli.
Eins vitum við að sumir mánuðir eru ein-
faldlega erfiðari fjárhagslega en aðrir og
oft getur reynst erfitt að ná endum saman
í mánaðarlok, þegar engin innstæða er
eftir á tékkheftinu. Þá væri gott að eiga
varasjóð til að grípa til.
Allt að 10.000 króna varasjóður.
Slíkur varasjóður stendur þér nú til
boða. Eftir að ávísana- og hlaupa-
reikningar hjá okkur verða sameinaðir í
eitt reikningsform, áttu kost á að sækja
um stöðuga yfirdráttarheimild, allt að
10.000 krónum, á hlaupareikning þinn ef
þú ert í föstum launareikningsviðskiptum.
Með föstum launareikningsviðskiptum er
átt við að laun þín eða tryggingabætur
séu greidd reglulega inn á innlánsreikning
í sparisjóðnum. Nýir viðskiptavinir fá
yfirdráttarheimild um leið og þeir geta
sýnt fram á föst launareikningsviðskipti.
Þinn kostnaður.
Ef þú notfærir þér yfirdráttar-
heimildina er kostnaðurinn sem af því
hlýst 6% heimildargjald á ári auk 12%
vaxta sem reiknast á yfirdráttarstöðu
hvers dags. Þessi kostnaður er svo skuld-
færður á reikning þinn í lok hvers
mánaðar. Fyrstu yfirdráttarheimildimar
verða veittar frá og með 15. maí.
Þú getur sótt um strax.
Þú getur fengið nánari upplýsingar
um yfirdráttarheimildina ásamt um-
sóknareyðublöðum í hlaupareiknings-
deildum okkar að Skólavörðustíg 11 og
í Sparisjóðnum, Seltjamamesi.
SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR
OG NÁGRENNIS
Skólavörðustíg 11, sími 27766
Austurströnd 3 Seltjamamesi, sími 25966