Alþýðublaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 22

Alþýðublaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 22
22 Fimmtudagur 14. júní 1984 Milljón króna gj aldeyrissparnaður — af hverjum starfsmanni Viðskiptavinurinn bíður, meðan skipt er um dekk hjá honum. Öll vinna fer fram inni og viðskiptavinirnir geta einnig fengið sér kaffi á meðan á viðgerð stendur og lesið blöðin. Framh. af bls. 4 Evrópu. CIMA hefur framleitt sér- hönnuð sólningarmót fyrir Gúmmívinnustofuna en við fram- leiðslu þeirra var stuðst við áratuga reynslu bæði hér á landi og á hinum Norðurlöndunum hvað varðar gerð munsturs á sumar- og vetrarhjól- börðum. Við framleiðum þessa hjólbarða undir nafninu NORÐ- DEKK. Aðeins eru sólaðar bestu tegundir af dekkjum til þess að tryggja að seld séu eingöngu sóluð dekk í hæsta mögulega gæða- flokki. Stefnan hefur verið að kaupa eingöngu Michelin dekk til sólunar. Viðskiptavinir Gúmmí- vinnustofunnar geta einnig látið sóla fyrir sig dekk. Verið er að setja upp mjög full- kominn tölvustýrðan rasp til þess að raspa niður dekk og mun hann auka mjög nákvæmni sem og stöð- ugleika dekkjanna. Þjónusta okkar er sem sagt þessi: Við — gerum við dekk — skiptum um dekk undir bílnum — jafnvægisstillum dekk — skerum munstur í notuð dekk — neglum vetrarhjólbarða, bæða nýja og notaða — sólum notuð dekk — getum geymt hjólbarða fyrir fólk ef óskað er — aðstaða fyrir fólk að skipta sjálft um dekk undir bílnum — seljum nýja og sólaða hjólbarða af öllum stærðum og gerðum. Nokkur atriði — þjónustu okkar eru: 1. Aðstaða í sérflokki 2. Höfum nýjustu og fullkomnustu affelgunar- og balancevélar sem völ er á. 3. Allir bílar eru teknir í hús meðan skipting fer fram, jafnt fólksbíl- ar sem stórir tíu hjóla vörubílar með dráttarvagni. 4. Viðskiptavinir geta tekið sjálfir undan bíl sínum án endurgjalds. 5. Setustofa og kaffisopi fyrir við- skiptavini meðan þjónusta fer fram. 6. Fljót og örugg þjónusta. Að lokum nokkur orð um heit- sólun. 1. stig. Hjólbarðinn grandskoðaður, að- eins eru sólaðir fyrsta flokks hjól- barðar. 2. stig Hjólbarðinn raspaður. Eingöngu eru notaðir raspar af bestu gerð, því nákvæmari sem raspurinn er því nákvæmari, betri og stöðugri verð- ur hjólbarðinn. 3. stig. Hjólbarðinn límborinn. 4. stig. Slitgúmmí lagt á hjólbarðann. Notaðar eru eingöngu bestu fáan- legu gúmmíblöndur, framleiddar hjá Ellerbrock í Vestur-Þýskalandi. 5. stig. Hjólbarðinn hjá okkur er heit- sólaður. Lagt er á hliðarnar svokall- að hliðarefni til styrktar og til þess að útlitið verði eins og á nýjum hjól- barða. 6. stig. Suðan. Teknir hafa verið í notk- un fullkomnustu suðupottar sem völ er á fyrir radial hjólbarða. Hin nýja tækni við þessa suðupotta eyk- ur til muna gæði sólningarinnar og kemur í veg fyrir skekkju og aflög- un hjólbarðans. í stað þess að nota 10—12 kg loftþrýsting inn í hjól- barðanum er notað heitt vatn með 15 kg þrýsting. Það gefur jafnari hita í gegnum hjólbarðann og stytt- ir suðutímann og minnkar þar með álag á belginn. 7. stig. Eftir suðuna er nýsólaður hjól- barðinn trukkprófaður og skoðað- ur til þess að koma í veg fyrir að frá okkur fari annað en fyrsta flokks vara. 8. stig. Hvítur hringur settur á hjólbarð- ann. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3 SÍMI81411 UMBOÐSMENN UM LANDALLT Og nokkur orð um kaldsólun. 1. stig. Hjólbarðinn skoðaður og gert við minniháttar skemmdir. 2. stig. Hjólbarðinn raspaður með mestu mögulegri nákvæmni. 3. stig. Raspað með litlum handrasp upp úr öllum sprungum. 4. stig. Hjólbarðinn límborinn. 5. stig. Allar holur og misjöfnur fylltar með fylligúmmíi, siðan er lagt á millileggsgúmmí. 6. stig. PRL-baninn, sem kemur soðinn og mótaður frá Ellerbrock í Vestur- Þýskalandi — Topp vara — ,er lím- borinn og síðan lagður á hjólbarð- ann í vél sem stýrir bananum ná- kvæmlega á hjólbarðann. 7. stig. Utan á hjólbarðann er lagt plast og grisja sem auðveldar lofttæm- ingu, síðan er sett gúmmíumslag ut- an um allt saman. Slanga er sett í hjólbarðann og síðan er hjólbarð- inn settur á felgu. 8. stig. Hjólbarðinn á felgunni er settur inn i stóran þrýstipott. Þegar Hjól- barðinn er kominn inn í pottinn er loftbarka kúplað við slönguna, sið- an er annar barki sem liggur út úr pottinum settur á umslagið sem er utan um hjólbarðann. Við það að setja 7 kg þrýsting inn í hjólbarð- ann og 9 kg í pottinn, lofttæmist umslagið utan á hjólbarðanum og myndar pressu á banann. Suðutími við 95° C hita er um 5 klst. Aðal- kosturinn við þessa aðferð þ.e. kald- sólunina, er lágt hitastig sem veldur minna álagi á hjólbarðann við suð- una og þrýstingurinn í hjólbarðan- um er sá sami og undir bílnum. Hjólbarðinn heldur sinni réttu lög- un meðan á suðunni stendur. 9. stig. Hjólbarðinn tekinn úr pottinum. Felga og slanga tekin úr hjólbarð- anum, plast og grisja rifið af. 10. stig. Hjólbarðinn er skoðaður gaum- gæfilega áður en hann er afhentur viðskiptavininum. GTK

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.