Tíminn - 09.04.1967, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.04.1967, Blaðsíða 3
SUNNUDAGUR 9. aprfl 1967. TÍMINN I SPEGLITIMANS Hin fræga franska söngkona Juliette Greco hefur verið í söng- og brúðkaupsferð í Rúss landi og á heimleiðinni kom hún við í Þýzkalandi og hélt þar nokkrar skemmtanir. Þessi mynd er tekin í Berlín eftir eina skemmtunina. De Gaulle forseti Frakklands ihefur neitað að láta grafa sig í Les Invalides í París en þar eru frægustu herforingjar Fr<ykklands jarðsettir og var talið, að hann vildi láta gera stórt minnismerki yfir sig. Hef ur hann ákveðið að láta jarð setja sig í þorpinu Colombey- les-deux-eglises en þar hefur hann sveitasetur sitt og lö'g- heimili og hefur hann nú í seinustu tið alltaf gengið til kosninga þar. Líka sögu er að segja af Franco einræðisiherra á Spáni. Hann hefur einnig neitað að láta jarðsetja sig með al annarra spánskra hershöfð ingja, og lét pólitíska fanga á Spáni reisa gífurlegan minnis varða rétt utan við Madrid þar sem hann hyggst láta grafa sig- Það vakti allmikla athygli fyrir skemmstu, þegar Sophia Loren ítalska leikkonan fræga kom til Sviss á- samt eiginmanni sínum með heljarmikinn hatt á höfði. Þótt ust margir þar kenna sama hatt og tízkusýningardaman fræga Twiggy hafði haft á höfðinu á mynd í tízkublaðinu Vogue. Einkaritari Sophiu stundi þvi upp að ekki gæti verið um sama hattinn að ræða, því að hattur Sophiu hefði verið teiknaður og keyptur hjá Dior í París, en við nánari athugun kom í ljús, að hatturinn sem Twiggy bar var einnig frá Dior, en ekk- ert hefur upplýstst enn í þessu máli nánar. Franski leikarinn Jean Gab in sagði fyrir skemmstu um stuttpilsatízkuna: Ef þér eruð svartsýnismanneskja þá hrygg izt þér yfir því að gáfur stúlkn anna ná eins stutt og pilsin þeirra, en ef þér eruð bjart- sýnismaður þá gleðjizt þér yf- ir því að pilsin þerira ná eins stutt og gáfur þeirra. Óheppnasti innbrotsþjófur í Þýzkalandi heitir Peter Weiss. og er frá Wiesbaden. Hann or- sakaði nefnilega sjálfur að lögreglan stóð hann að verki. Hann hafði brotizt inn í fyrir tæki í Wiesbaden og ætlaði að brjóta upp peningaskáp þar með járnkarli. Sóttist honum verkig erfiðleka og á endanum tók hann upp síma í herberg inu, sem hann var í og hringdi í kunningja sinn og sagði: Viltu senda Heinz hingað, ég get ekki opnað fjandans skápinn. Það var ekki Heinz, sem kom heldur lögreglan því að í mis gripum hafði þjófurinn tekið síma, sem gaf beint samband við heimili forstjóra fyrirtækis ins og það var forstjórafrúin, sem kom í símann og gerði lög reglunni viðvart. # r X / t > t/tryt.t % ■tjVt 'tJ£/Vt < '••tV&t.t itftfjq .................!....... ..................................... Brigitte Bardot er nú á ftal kom á flugvöllinn í Róm. Kvik Edgar Allan Poe og mótleikari íu við kvikmyndaleik og er myndin, sem hún er að leika hennar í kvikmyndinni er þessi mynd tekin þegar hún í er byggð á þrem sögúm eftir franska kvennagullið Alan De- lon. Það var uppi fótur og fit í Chicago fyrir skemmstu þeg ar þau vom gefin saman í hjónaband þar John D. Rocke feller IV og Sharon Lee Percy, og er sagt að ekki hafi svo margir tignir gestir komið þar í borg síðan 1959, þegar Elizabet Englandsdrottning kom þar. Meðal gesta voru fjórir Rockefeller, Amyn Khan, föðurbróðir Aga Khan, sem hér var á ferð fyrir skemmstu, Lynda Bird Johnson, sem var í fylgd með George Hamilton og tylft leynilögreglumanna, Maurice Chevalier, Art Buch- wald, John Lindsey borgar- stjóri NY.-borgar og flestir frægustu stjórnmálamenn Bandaríkjanna. John D. Rockefeller er sonar sonur Johns Rockefeller, sem setti á stofn olíufyrirtækið Standard Oil Company en Slharon er dóttir öldungadeildar þingmannsins og milljónamær- ingsins Charles Percy. Fyrir um það bil hálfu ári var mjö'g mikið skrifað um þessa fjol- skyldu í blöð um allan heim, þar sem tvíburasystir Sharon Percy var myrt, meðan kosn ingabarátta föður þeirra stóð sem hæst og nú kvöldið fyrir giftinguna fékk móðir stjúpu Sharons heilablóðfall og lézt dgainn eftir. Hjónavígslan fór fram í Rockefeller Memory Church að viðstöddu 1200 manns og fyrír utan kirkjuna var fjöldi leyni löreglumanna frá FBI. Það sem vakti einna mesta athygli í kirkjunni var að Lynda B. Johnson og George Hamilton komu móð og másandi fimmtán mínútum of seint. Hér á myndinni sjáum við svo brúðhjónin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.