Tíminn - 09.04.1967, Page 12

Tíminn - 09.04.1967, Page 12
TÍMINN SUNNUFERÐIR til solarlanda Vinsælar utanlandsferðir með íslenzkum fararstjórum Margra ára reynsla og ótvíræðar vinsældir tryggja farþegum okkar snuðrulaust ferðalag undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðirnar, viður- kenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. Á síðasta ári komu yfir 1500 ánægðir farþegar heim úr SUNNU-ferðum. Við auglýsum sjaldan, því ánægðir viðskiptavinir komnir heim úr vel heppnuðum og skemmtilegum SUNNU-ferðum eru okkar bezta auglýsing. London — Amsterdam — Kaupmannahöfn Brottfarardagar: 2. júlí — 16. júlí — 30. júlí — 13. ágúst — 27. ágúst — 3. scpt. — 17. sept. 12 dagar — Verð kr. 11.800— Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborg- um Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar Milljónaborgin London, tilkomumikil og sögu- fræg höfuðborg heimsveldis, með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heill- andi og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við sundið", Kaupmannahöfn, þar sem íslendingar una sér betur en viðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tívolí og ótal aðra skemmtistaði. Þar er hægt að framlengja dvöl í ferðalok. Þessi stutta og ódýra ferð hefir átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju ári. í fyrra voru farnar fimm slíkar ferðir og komust færri en vildu. Fararstjórar: Jón Helgason, Jón Sigurbjörnsson og Gunnar Eyjólfsson. París — Rínarlönd — Sviss Brottför 18. ágúst. — 17 daga ferð. — Verð kr. 17.650.00. Þessi vinsæla ferð hefir verið farin svo til óbreytt í sjö ár, og jafnan við rniklar vinsældir, enda fólk komið heim með óbrotgjarnar endurminningar. Fólki gefst hér tækifæri til að kynnast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu, í rólegri ferð. Flogið er til Parísar og dvalið þar í borg fegurðar og gleði sólríka sumardaga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið í skemmtiferð suður yfir fjallaskörðin til Ítalíu. Frá Sviss er farið fljúgandi til Rínarlanda, og dvalið fjóra daga við Rín í Riideslheim, einumfrægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín. Þar er „Vínhátíðin", þar sem drottningin er krýnd. Farið er í ökuferðir um Rínarbyggðir og siglt á fljótinu með skemmtilegum farþegaskipum. — Fararstjóri: Jón Helgason. Edinborgarhátíðin Brottför 26. ágúst. — 7 daga ferð. Verð kr. 7,210.00 Þessi vinsæla ferð hefir verið farin á hverju ári í sex ár og jafnan fullskipuð. Fara allmargir ár- lega, enda er Edinhorgarhátíðin mikilfenglegasta listahátíð álfunnar, auk þess sem Edinborg er mjög fögur borg og ánægjulegt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er í skemmtiferðir upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð, en jafnah komið heim á hótel í Edinborg að kvöldi. Hægt er að framlengjá dvölina og skreppa til London. Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson, leikari- Italía — septembersól Brottför 8. september — 21 dagur. — Verð kr. 21-300.00. Þessi luxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðstæðar ferðir, vegna hagkvæmra viðskiptasam- banda SUNNU á Ítalíu. — Flogið til Milano og ekið þaðan um fegurstu byggðir Ítalíu, með 3—4 daga viðdvöl í þessum borgum. Feneyjum, hinni „Fljótandi borg“ ævintýra, söngs og sögu. Umferðin líður fljótandi um skurðina frægu, milli skrauthalla og hótela. Florenz ,hin fagra höfuðborg listanna á miðöldum ítaliu. Róm eru helgaðir fimm dagar, því þar er margt að sjá. Frá Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pompei til Sorrento hinnar undurfögru borgar við Capriflóann. Skroppið er út til Capri. Eftir ökuferðir um fegurstu byggðir Ítalíu kemur að því ævintýri ferðarinnar að sigla með einu glæsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michel- angelo (63 þús. smál. að stærð) og ganga á land í Cannes á frönsku Riverian og aka síðan til Nizza, þar sem dvalið er síðustu daga ferðarinnar. Frá Nizza er flogið heim með viðkomu í London, þar sem hægt er að framlengja ferðina, ef óskað er. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur. Ítalía og Spánn Brottför 23. septcmber. — 21 dagur. — Verð kr. 24.,860,00 IÞessi óvenjulega og glæsilega ferð var farin í fyrsta sinn fyrir 2 árum og aftur í fyrra, fullskipuð og komust færri en vildu. Hefir fólki ekki áður gefizt kostur á að kynnast bæði Ítalíu og Spáni í einni og sömu ferðinni. Flogið er til Feneyja og dvalið þar. Flogið til Rómar og dvalið þar í nokkra daga, til Napoli og alla leið til Sorrento. Frá Napoli er síðan siglt með glæsilegu hafskipi til Spánár. Þaðan er ekið til Torremolinos, baðstrandarbæjarins fræga á Sólströnd Spánar. Frá Sólströndinni er flogið til Madrid og að dvöl lokinni þar er flogið til London og höfg þar tveggja daga viðdvöl. — Fararstjóri: Jón Helgason. Ævintýraferðin til Austurlanda Brottför 7. október. — 21 dagur. _ Verð kr. 23.700,00. aj Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt í þessum vinsælu ferðum SUNNU á ævintýraslóðir Austur- j( landa, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum, sem fyrir augun ber. Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er í tvo daga. Flogið til Beirut. ;í Skoðaðir leyndardómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austurlöndum nser. Heimsóttir i persneskir teppasalar í fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Kairo Og dvalið á góðu hóteli á i bökkum Nílar. Frá Kairo er flogið til Jerusalem, dvalið í fimm daga og skoðaðir allir helztu jjb sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerusalem er flogið til London og hægt að framlengja dvöl, ef óskað | er — Fararstjóri: Guðni Þórðarson. Heimssýnlngin í Montreal og New York "1-fsWarardagar: 11. maí — 27. júlí og 14. sept. 14 dagar kr. 12.800. Heimssýningarárið er kjörið til að heimsækja Ameríku. Við fljúgum í þotum Pan American > til New York og þaðan til Montreal þar sem dvalið er eina viku, heimssýningin skoðuð j og litig á náttúruundur Kanada. Síðan dvalið að i • ',-n í New York, þar sem fólki gefst kostur j á margs konar skemmtun og ferð til Washington. f ferðinni 27. júlí gefst kostur á að heim- i sækja íslendingabyggðir í Manitoba, Winnipeg og vera á hátíðahöldum íslendingadagsins að Gimli. * Fararstjórar: Jón Helgason og Guðni Þórðarson. pselt er í ferðina 11. maí). SUNNUDAGUR 9. aprfl 1967 Mallorka — London Brottfarardagar: 25. maí — 8. júní — 22. júní — 6. júlí — — 20. júlí — 3. ágúst — 17. ágúst — 31. ágúst. 14. sept. — 28. sept. — Verð frá kr. 9.600. Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda og London getum við haft svona ódýrar vegna þess að vin- sældir þeirra leyfa að teknar séu heilar flugvélar á leigu, sem flytja farþegana á milli áfangastaða og hótelin gefa SUNNU beztu fáanleg kjör vegna þess að skrifstofan semur um fyrir rúmlega 100 gesti yfir árið, til margra ára. Búið er í tvær vikur á glæsilegum baðstrandarhótelum með einkasundlaugum og baði með hverju herbergi aðeins 7 km. frá miðri höfuðborginni Palma. Mallorca er vinsælasti ferða- mannastaðurinn í Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt sem hugurinn girnist. Sól, náttúrufegurð og fjölbreytt skemmtanalíf, góð hótel og góðan mat. Á heimleiðinni er stanzað dag í London. Innifalið í verði ferðar em flugferðir, ferðir milli flugvalla og hótela, gisting og þrjár máltíðir á dag á Mallorca og gisting og morgunverður í London. Þið fljúgið með íslenzkri flugvél beint til Mallorca á 7 tímum og njótið leiðsagnar og aðstoðar ágæts íslenzks fararstjóra og skrifstofu okkar á Mallorca. Þið getið valið um dýrðlega aðbúð á beztu hótelum i þremur verðflokkum, eða dvöl í luxusíbúð- um og getið fengið bíl með. Nú þarf enginn lengur að fara tll Kaupmannahafnar til að komast ódýrt til Mallorca með „billeg- um“ skrifstofum dönskum og taka alla þá áhættu, sem því fylgir. íslenzkar ferðir hæfa íslendingum bezt, því við gerum okkur ekki ánægða nema með það bezta. Fararstjóri: Njörður P. Njarðvík. Kaupmannahöfn (Hamborg) — Edinborg 10. september. — 10 dagar. — Verð kr. 6.900.00. Þessi ódýra og vinsæla haustferð var farin í fyrsta sinn í fyrra, Ferðin er svona ódýr vegna þess að SUNNA leigir flugvél til ferðarinnar Dvalið í hinni glaðværu Kaupmannahöfn, skroppið í tvo daga til Hamborgar og stanzað í sólarhring í Edinborg á heimleiðinni. Þó þessi ferð sé nú auglýst í fyrsta sinn eru margir búnir að panta af þeim, sem voru með í fyrra. Fararstjórar: Geir Aðils og Guðni Þórðarson. í SUNNUFERÐUM eru eingöngu notuð góð hótel. Flogið lengstu leiðirnar og ekið eingöngu þar sem landslagsfegurð er mest. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu sem reynt hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið um ná- kvæma ferðaáætlun og pantið snemma, því yfirleitt komast aldrei allir sem vilja í SUNNU-ferðir. Það eru ferðir, sem fólk getur treyst og síðast en ekki sízt. — SUNNA auglýsir aldrei ferð, sem ekki er farin. Hótel okkar á Mallorca. Ferðaskrifstofan SUNNA Bankastræti 7. — Símar 16400 og 12070

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.