Tíminn - 13.04.1967, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.04.1967, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 13. aprö 1967. TBMINN Lúðvik Kristjánsson: Abendingar til Þjóð- hátíðarnefndar 1974 Eins og þegar er orðið alþjóð kunnugt hefur nýlega verið skipuð nefnd til þess að hafa með hönd- um undirbúning að minningu um ellefu hundruð ára búsetu á ís- landi. í þessa nefnd hafa valizt ágætismenn og er ekki að efa, að þá muni alla fýsa þess að leysa verk sitt svo af hendi, að þjóðin megi hafa af sem mest gagn og jafnframt sæmd. — En í þessu sambandi ber að mörgu að hyggja, og þvi má ekki gleyma, að ís- lendmgar eru fámenn þjóð og fremui vanefnum búin, svo ekki sé meira sagt, en svo að segja að á hverju strái blasa við óleyst verkefni, vitanlega misjafnlega mikiivæg. Af þeim sökum langar mig til þes's að koma á framfæri nokkrum þönkum mínum í sam bandi við fyrirhugað minningar- hald. Mattháas Johannessen ritstjóri, sem er formaður nefndarinnar, hef ur að nokkru leyti reifað í sjón- varpi, hvað nefndin hefði helzt á prjónunum, eða öllu heldur væri varfærnislegra að orða það svo, að hann hefði í höfuðdrátt- um drepið á, hvað nefndin hefði látið sér koma til hugar í hverju þessi minning ættjl að vera fólgin. Þessi skýrslugerð Matthíasar í sjónvarpinu var þó engan veginn tæmandi. í Tímanum föstudaginn 7. apríl síðastl. er skýrt frá eftirfarandi: — „Þjóðhátíðarnefndin 1974 gerir í tillögum s'ínum, sem lagðar voru fram á Alþingi í dag, m.a. ráð fyrir, að út verði gefið í samtals 58 bindum sýnishorn íslenzkra bókmennta frá upphafi og fram til ársins 1974. Er gert ráð fyrir, að sérstök ritstjórn sjái um val verkanna, en komið verði á fót samstarfi útgáfufyrirtækja um út- giáfuna. Þjóðhátíðarnefndin gerir tillög- ur um, að útgáfan skiptist £ 8 flokka: fornrit 12 bindi, ljóð 10 bindi, skáldsögur 12 bindi, smá- sögur 4 bindi, þjóðsögur og sagna þættir 4 bindi, ævisögur og end- urminningar 6 bindi og ræður og ritgerðir 6 bindi“. Nú má í fyrsta lagi spyrja, get- ur ckki minna gagn gert. Og í öðru lagi má varpa fram þeirri spurningu, hvar ætlar nefndin í efniniiðurröðun sinni rúm fyrir það, sein ritað hefur verið af sagn fræði á íslandi, eins og skilgreina á það orð á strangvísindalegan hátt? í sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins 9. apríl síðastl. er leiðari í blaðinu, sem heitir: „Hugmyndir um þjóðhátíð“. Ég get mér þess til, að höfundur hans sé Matthías Johannessen ritstjóri og formað- ur pjóðhátíðarnefndar. Ég hirði ekki um að rekja efni þessa leið- ara, en vil einungis geta þessa: — „Ýmsar fleiri hugmyndir koma fram í tillögum þjóðliátíðarnefnd- ar. Þar er rætt um útgáfu á sam- felldri fslandssögu, sem aðgengi- leg væri fyrir almenning". Sjalfsagt mundi ekki óvinnandi vegur að vinna slíkt verk, þar sem það á að vera, að mínum skiln- ingi; yfirlitsrit. — En mér er spurn, hvers vegna alltaf þetta h^lfkák með saimningu íslands- sogu, úr því að nefndin ætlast til að út komi fyrir hennar atbeina 58 bindi bóka í sambandi við af- mælið? Aikunna er, að Mennnigarsjóð- ur hefur verið með á döfinni út- gáfu á Sögu íslendinga. Henni var í öndverðu ætlað að vera 10 bindi, en sú bindatala hefur farið úr skorðum. Saga þessi átti að ná til ársins 1918. í ritstjórn verksins völdust þessir menn í öndverðu: Árni prófessor Pálsson, Barði þjóðskjalavörður Guðmundsson og ÞÓrKell bókavörður Jóhannesson, síðar háskólarektor. Nú vita allir, að þessir menn voru ágætlega gefnir, prýðilega menntaðir og fjölfróðir. Ég kann ekki skil á því, á hve löngum tíma þeir hafa áætlað að þetta verk væri unnið, en mig hefur alltaf furðað á pví, að þeir skyldu áræða að forma þetta vérk með þeim hætti, sem þeir gerðu, vel vitandi þess, hví- lík ókjör þurfti að kanna af frum- gögnum og jafnvel gefa út, áður en samin væri Íslandssaga, sem samiDóðin væri þjóðinni, en það hafa þeir sjálfsagt ætlast til, að verk það yrði, sem þeir höfðu tekið að sér að annast ritstjórn á. Af íslandssögu Menningarsjóðs 1 hafa þegar komið út sjö bindi, og birtist það seinasta 1958. Margt er í þessari sögu byggt á könnun frumgagna, er leiða furðu margt í ljós, sem áður var ókunnugt um, en hitt vita allir, sem grannt hafa kynnt sér þetta verk, að tekizt hefur að forklúðra það svo, að héðan af getur það aldrei orðið barn í brók, aldrei orðið að þeirri Sögu íslendinga, sem upphafs- menn hennar munu hafa gert ráð fyrir. Aikunnugt er, að reist verður handritahús, það er einnig jafn kunnugt, að talsverður hluti Árna- safns verður afhentur íslenzku þjóðinni. Þótt íslenzkar ritaldar- bók.nenntir hafi varpað mestum ljóma á bókiðju fslendinga, má ekki gleyma því, að margt hefur verið ritað fyrr og síðar á íslandi, er mikilvægt gildi hefur fyrir þjóð menningu okkar og sögu. Nú er handritastofnuninni ætlað miklu víðtækara starfssvið en að gefa út og rannsaka íslenzk fornrit og er það vel. Störf þessarar stofn- unar eru þegar að líta sitt fyrsta ljós, og má vænta þess, að smám saman sjái þess greinilegri merki, þegar fram líða stundir. Forstöðu- maður stofnunarinnar er sem kunn ugt er dr. Einar Ólafur Sveins- son, víðkunnur vísindamaður, og hefur hann við hlið sér hið prýði- legasta starfslið. Hafnarstræti Lúðvík Kristjánsson Þá er að víkja að Orðabók há- skólans, sem er undir öruggri for ustu dr. Jakobs BenediktssonaÉ og að henni er sleitulaust unnið. Þegar þar að kemur, að hún birt- ist, verður um slíkan Stórasjó að ræða, að óbornar kynslóðir munu sennilega seint fá hann þurraus- inn. Öll könnun á sögu hlýtur að byggjast á rannsókn frumgagna, svo fremi sem þau eru til eða þá á rétt prentuðu afriti þeirra. Að sjálfsögðu hafa verið prentuð mörg rit, sem geyma fimin öll 1 af efni um íslenzka sögu, og verð- ,ur ekki hirt um að geta annarra |en þeirra, sem enn eru á döfinni og míkil nauðsyn er á, að lokið verði útgáfa á sem fyrst. Verður þá fyrst fyrir mér i nefna íslenzkt fombréfasafn. Fyrsta bindi þess kom út 1857 —1876, og annaðist Jón Sigurðs- son útgáfu þess. Var ætlan Jóns, að út væru gefin öll fornbréf fram að 1000. Bindi II—X gaf dr. Jón i Þorkelsson þjóðBkjalavörður úit og að nokkru leyti það XI. En þá tók dr. Páll Eggert Ólafsson við ug gaf út 4 bindi. Með 15. bindi er komið fram að árinu 1570, en dr. Jón Þorkelsson hafði afritað bréf fram að 1600, og eru þau afrit hans varðveitt í Þjóð- skjalasafni. Björn Þorsteinsson ságnfræðingur hefur gefið út það, sem komið er af 16. bindi Forn- bréfasafns, og fjailar það að mestu leyti um viðskipti íslendinga og Englendinga. — Engum blöðum er um það að fletta, að íslenzkt fornbréfasafn er gullnáma fyrir rannsóknir á íslenzkri sögu. Próf. Maguús Már uárusson er sá maður, sem gerzt hefur kynnt sér hana, og að sjálfsögðu hefur hann í samanburði við frumrit rekið sig á ýmsan mislestur hjá dr. Jóni, en hvað sem því líður er starf dr. Jóns að útgáfu Fornbréfa- safnsins stórvirki. Sá vísindamað- ur a Norðurlöndum, sem einna nánast yfirlit hefur yfir fornbréfa söfn allra þeirra landa, hefur lát- ið svo ummælt í mín eyru, að íslenzka fornbréfasafnið sé að sýnu aðgengilegast til notkunar. Sögufélagið hóf að gefa út Al- þingisbækur 1912, og eru þegar komnar af þeim niu bindi, en enn er eftir að gefa út af þeim átta bindi, 40 arkir hvert. Sama er s segja um Aliþingisbækurnar og Fornbréfasafnið, að þær eru ís- lenzkri sagnfræðl hinn frjósam- asti ak-ur. Bókmenntafélagið byrjaði að gefa út íslenzka annála 1400— 1800 árið 1922, og eru þegar kom- in ut af þeim 4 heil bindi og 5 hefti af því fimmta. Þessu verki er ólokið, en hversu mikið er eftir af annálum, sem menn hafa hugsað til að taka í þetta safn, veit ég ekki. Um hitt þarf >:kki að villast, að annálasafn þetta hlýtur alltaf að verða mikilsvirði við íslenzkar sögurannsóknir. Loks kem ég að síðustu ábend- ingu minni til þjóðhátíðarnefndar 1974, en hún varðar skjalasöfn- íslenzk,^ önnur en handritastofn- unina. f skjalasöfnum þessum hef ég verið viðloða með annan fót- inn i rösk þrjátíu ár, svo að ég tel mig þar ekki með öllu ókunn- ugan. Skjalasafn Landsibókasafns er geysimikið að vöxtum, og væri með öllu ógerlegt að vinna þar, ef ekki væri til handritaskrá dr. Páls E. Ólafssonar og viðaukar Lárusar H. Blöndals. Handrita- skrá dr. Páls er stórvirki, sem aldrei verður metið svo sem vert væri og skylt. En þrátt fyrir þess- ar skrár skortir enn mikið á, að skráning safnsins sé að öllu leyti komin í það horf, að það sé vís- indamönnum, sem þar vilja starfa, nægilega aðgengilegt. Skráning Þjóðskjalasafns er miklu skemmra á veg komin. Dr. Jón Þorkelsson vann því safni stór- merkilegt starf, og þegar á það er litið, hvað eftir hann liggur af fræðistörfum og vinnu í þágu safnsins, má næstum heita óskilj- anlegt. hvað sá maður hefur kom- izt yfir að gera. Ég tel mig taka vægilega til orða, þegar ég segi, að enn er nær ógerlegt að vinna að vísindastörfum í Þjóðskjala- safni, sökum þess hve skráningu þess hefur seint miðað. Ég get nefnt sem dæmi, að fyrir allmörg- um árum vissi ég, að í Þjóðskjala- safni var allmerkilegt plagg, er varðaði þjóðfundinn 1851. Skjala- verðimir voru allir af vilja gerðir að hjálpa mér til að hafa upp á því, en þeim bara lánaðist það ekki Nú þurfti ég ekki á plaggi þessu að halda í svipinn, enda kom það sér betur, þvi að þrjú ár liðu frá því að ég hóf að leita að því og þangað til það barst upp í hendur mér og þá fyrir hreina tilviljun. Það þarf ekki að vera neitt launungarmál, að í skrifborði mínu hafa í allmörg ár legið aðdráttar- föng að allstóru riti um síðasta ævisprett Jóns Sigurðssonar for- seta, eða nánar til tekið um ör- skotshelgina að því marki að við fengum stjórnarbótina 1874. Þessi aðdráttarföng eru að verulegu leyti nýjar heimildir, sem enginn veit deili á, en ég hef á snuddi mínu á söfnum hér og erlendis hirt eins og upp af götu minni. En vegna þess að ég hef verið að sinna öðru starfi, sem ég tel mikils verðara að gera skil, hafa aðdrátt- arföngin um störf Jóns legið ó- snertí Og hamingjan má vita, hvort mér endist heilsa og ævi til að telgja til þann efnivið. Nú er mér fullkunnugt um það, að dr. Finnbogi Guðmundsson, landskjalavörður og Stefán Péturs son, þjóðskjalavörður, hafa ríkan skilning á þeirri brýnu nauðsyn að koma skráningu safna sinna í sem bezt horf, en til þess að það geti gerzt á sem skemmstum tíma.brest- ur sennil. hvort tveggja aðstöðu og fjármagn. Sjálfur hefur Stefán Pétursson búið svo um bréfasafn Jóns Sigurðssonar að stórsómi er að, en þau lágu undir áföllum, þótt ekki sé um eldri gögn að ræða. í upphafi þes-sa máls var að því vikið, að þjóðhátíðarnefnd 1974 hygðist koma því í kring, að gefið væri út 58 binda ritsafn. Hvort hún ætlar að láta bókaútgefendur standa straum af kostnaði við þá bókaútgáfu eða hvort ríkið á að Framhald á bls. 12.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.