Alþýðublaðið - 15.08.1984, Page 3
Miðvikudagur 15. ágúst 1984
3
r
Astæðulaus ótti
yið Amalgam
Magnús K. Gíslason, yfirtann-
læknir, sendi Alþýðublaðinu eflir-
farandi bréf vegna greinaskrifa í
dagblöðum um skaðsemi tannfyll-
ingarefnisins amalgams:
Undanfarið hafa birst í dagblöð-
unum greinar um skaðsemi tann-
fyllingarefnisins amalgams.
Til að koma í veg fyrir misskiln-
ing og hræðslu, sem af þessum
skrifum getur Ieitt, telur heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytið
nauðsynlegt að taka eftirfarandi
fram:
Amalgam er blanda af silfri, tini
og fleiri efnum, sem eftir að hafa
verið hrært saman við kvikasilfur,
myndar hart silfurlitað efni. Það
hefur þá eiginleika er gera það í
flestum tilfellum langhentugasta
tannfyllingarefnið sem völ er á fyrir
jaxla. Efnið hefur verið notað leng-
ur en nokkuð annað fyllingarefni i
tennur eða í rúm 150 ár. Mikil og
löng reynsla hefur því fengist á
notkun þess.
Auðvitað væri best, ef ekki þyrfti
að setja fyllingarefni í tennur, en á
meðan okkur tekst ekki að koma í
veg fyrir tannskemmdir verður
amalgam enn um sinn í flestum til-
fellum besta tannfyllingaefnið. Við
getum verið óhrædd við að nota
það, enda hefur það fáa ókosti eða
aukaverkanir.
Eftir að blandan hefur harðnað
er ekki talin hætta á að hin ýmsu
efni, sem eru í henni geti leyst upp
í svo miklu magni að af því geti staf-
að kvikasilfurseitrun eða hættuleg-
ir rafstraumar eins og sumir hafa
viljað halda fram.
Meiri likur eru á að kvikasilfur
geti valdið skaða á starfsfólki tann-
læknastofa á meðan verið er að
hræra amalgamið. Með sífellt vand-
aðri vinnuaðferðum hefur sú
hætta, sem af því gæti stafað,
minnkað.
í munni flestra mun ætíð vera
smárafstraumur sem getur aukist
t.d. þegar sett er nú amalgamfylling
við hliðina á gulli. Mestur er
straumurinn á meðan amalgamfyll-
ingin er að harðna, eða fyrstu 24
tímana.
Óþægindi, sem af þessu gætu
stafað fyrir sjúklinginn er þó hægt
að rninnka með því að lakka fletina
eða pússa vel fyllingarnar. Með
bættri tækni við gerð uppbygginga
með amalgami hefur aftur á móti
þörfin fyrir gulluppbyggingar
minnkað mikið undanfarin ár og
þar með hugsanleg óþægindi vegna
rafstraums í munni.
Það er þó samdóma álit flestra
sem rannsakað hafa þessa raf-
strauma, að þeir séu ekki hættuleg-
ir heilsu viðkomandi einstaklings.
Ekki hefur verið sýnt fram á slikt og
óþægindi sem þeir hafa verið taldir
valdir að, hafa sýnt sig að hafa aðr-
ar orsakir.
Ofnæmi vegna amalgams þekk-
ist, en er ákaflega sjaldgæft.
Reynt hefur verið að nota tvö
önnur efni í staðinn fyrir amalgam,
svonefnd plastefni og gull.
Á vegum sænsku heilbrigðis-
stjórnarinnar var gerð athugun á
því hvort hægt væri að nota svo-
nefnd plastefni í staðinn fyrir amal-
gam.
Professor Lars Granath sá um
rannsóknina í samvinnu við amer-
íska, norska og sænska sérfræð-
inga. Þegar niðurstöðurnar voru
birtar í febrúar s.l. kom í ljós að það
reyndist ekki hægt.
Áætlað er að fyrst eftir 10-20 ár
megi búast við að þessi efni hafi
náð sömu gæðum og amalgamið.
Helstu ókostir plastfyllinganna
eru taldir, að þær geta breyst í lögun
og slitnað og því erfitt að fá vand-
aða varanlega snertifleti, sem eru
mjög mikilvægir. Einnig er hætta á
að smábil verði á milli tannarinnar
og plastfyllingarinnar, ekki síst
vegna þess hve erfitt er að vinna
efnið svo að vel fari við erfiðar að-
stæður. Á það ekki síst við um
þurrkun tannarinnar áður en fyll-
ingin er sett í, sem er nauðsynleg til
að fyllingin falli vel að tönninni.
Hér er aðeins verið að bera saman
gæði amalgamfyllinga, en þær eru
nær eingöngu settar í jaxla,'og svo-
nefndra plastfyllinga.
Góður árangur hefur aftur á
móti náðst við notkun plastfyllinga
í framtennur, sem kemur til af því
að þar eru fyllingarnar yfirleitt
minni og auðveldara að vinna þær.
Helstu ókostirnar við að nota
gull í staðinn fyrir amalgam, sem
tannfyllingarefni, eru hve dýrt það
er og kostnaðarsamt í vinnslu.
Einnig verður oftast að fórna meiru
af sjálfri tönninni við að koma fyrir
gulluppbyggingum heldur en þegar
amalgam er notað.
Niðurstaða er sú að við þurfum
ekki að óttast það amalgam sem er
í ntunni okkar og útlit er fyrir að við
verðum að bíða enn í 10-20 ár þar til
á markaðinn komi jafnvönduð
efni, sem falli betur inn í litasam-
setningu tannanna, en litur amal-
gam fyllinganná er þeirra ókostur.
Tekið saman af Magnúsi R. Gísla-
syni, yfirtannlækni.
Sóley, hinn nýstárlegi stóll
Sóley vekur
heimsathygli
SÓLEY — stóll Valdimars Harð-
arsonar arkitekts — hef ur vakið svo
niikla athygli víða um Iönd, frá því
að hann var fyrst sýndur opinber-
lega fyrir rösklega hálfu ári, að ljóst
er, að Valdimar hefur nú haslað sér
völl sem virtur hönnuður á alþjóð-
legum vettvangi. Stóll Valdintars
hefur verið sýndur á þremur
stærstu húsgagnasýningum heims
og tugir erlendra biaða og tímarita
hafa birt greinar unt hann.
Fyrst var stóllinn sýndur á al-
þjóðlegri húsgagnasýningu í Köln í
Vestur-Þýskalandi í janúar á þessu
ári og síðan á alþjóðasýningunt I
London og Chicago í júní I sumar.
í haust verður Sóley á alþjóðlegri
húsgagnasýningu í Köln.
Á þriðja tug blaða og timarita
hafa þegar fjallað um Sóley. Hvar-
vetna er i þessunt greinum farið lof-
samlegum orðum um Sóley fyrir
nýstárlega hönnun ogglæsilegt útlit
og mikið notagildi.
Stóllinn verður seldur I a.m.k.
nítján löndum víða um heim.
Þeirra á meðal eru Vestur-Þýska-
Dregið í Happdrætti Sjálfsbjargar
Hinn 9. júlí síðastliðinn var dreg-
ið í Happdrætti Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra. Aðalvinn-
ingurinn, bifreið af gerðinni Mitsu-
bishi Space Wagon, árgerð 1984,
kom á miða númer 49176.
Miðinn reyndist vera i eigu Arnar
Jenssonar og Rögnu Bjarkar Þor-
valdardóttur, Vesturbergi 138,
Reykjavík.
Meðfylgjandi mynd sýnir Vikar
Davíðsson, gjaldkera landssam-
bandsins, afhenda Arnari og
Rögnu bifreiðina, 26. júlí s.l.
land, Bretland, Frakkland, Italia,
Belgía, Sviss, Austurríki, Svíþjóð,
Noregur, Finnland og Danmörk og
þessa dagana er verið að kynna
hann á íslandi með sýningu í Epal,
Síðumúla 20 í Reykjavík. Sóley er
ennfremur kominn á markað í
Bandaríkjunum, Kanada og Japan.
Sala er nú að hefjast af krafti og
eru nú framleiddir nokkur þúsund
stólar á mánuði. Búist er við því, að
framleiðsla og sala eigi þó enn eftir
að aukast, því að samkvæmt
reynslu framleiðandans líða að
jafnaði unt tvö ár, frá því að kynn-
ing hefst, þar til verulegur skriður
kcmst á söluna.
Fyrirtækið, sem framleiðir Sóley,
er vestur-þýskt. Þetta fyrirtæki,
Kusch og Co., er eitt.af tíu stærstu
fyrirtækjum i vestur-þýskum hús-
gagnaiðnaði.
Kusch og Co. framleiðir einkum
húsgögn til ýmissa opinberra nota,
svo sem skrifstofuhúsgögn og borð
og stóla til notkunar i samkomusöl-
unt og veitingahúsum. Öll húsgögn
frá þessu fyrirtæki eiga það sam-
fnerkt að vera í hæsta gæðaflokki
og gildir það jafnt um efnisgæði og
hönnun.
Hugmyndin að Sóley kviknaði
1979, á námsárum Valdimars í
Lundi í Svíþjóð. Eftir þrotlausar
eigin tilraunir með stólinn í nokkur
ár, sýndi Valdimar íslenskum Irant-
leiðendum frumgerð hans, en þeir
reyndustekkihafaáhuga. Valdimar
hafði hins vegar þá trú á Sóley, að
hann vildi ekki gefast upp við svo
búið. Hann sendi því skeyti til Diet-
er Kusch, eiganda og framkvæmda-
stjóra Kusch og Co. í Vestur-Þýska-
landi, þar sem hann spurði, hvort
fyrirtækið hefði áhuga á stólnum.
Ástæðan fyrir því, að Valdimar leit-
aði til þessa fyrirtækis var sú, að
húsgögn frá því höfðu vakið athygli
hans á sýningum, sem hann hafði
sótt erlendis, og hann taldi sig þar
hafa séð, að forsvarsmenn þess
myndu vera óragir við að koma með
nýjungar á markað.
Það varð svo úr, að Valdimar fór
utan I janúar 1983 með frumgerð
Sóleyjar I pakka undir hendinni.
Dieter Kusch hafði ekki fyrr séð
stólinn en hann kvaðst fús.til þess
að hefja framleiðslu á honum og
var samið um framleiðslurétt á
staðnum. Jafnframt var ákveðið,
að stóllinn skyldi fyrst sýndur á al-
þjóðlegu húsgagnasýningunni I
Köln ári síðar, þ.e. í janúar á þessu
ári.
j : 1 \ UJ ~—.
Valdimar Harðarson, arkitekt,
hönnuður klappstólsins Sóley
Þegar var hafist handa um það i
verksmiðjum fyrirtækisins í Vestur-
Þýskalandi að þróa stólinn og fín-
slipa ýmis atriði í gerð hans. Um
eins árs skeið Itafa einn til tveir
starfsmenn Kusch og Co. unnið að
•þessu verki í samvinnu við Valdi-
ntar.
Auk þróunarstarfsins og þess
kostnaðar sem því fylgdi, þurfti að
láta smiða sérstaka vél til þess að
búa til stálgrindina í Sóley. Þessi vél
ein kostaði jafnvirði um tólf mil-
jóna islenskra króna. Alls nam
kostnaður fyrirtækisins vegna Sól-
eyjar 15 til 18 milljónum króna,
áður en hægt var að byrja fram-
leiðslu og sölu. Eins og Ijóst er af
þessu væntir vestur-þýska fyrirtæk-
ið sér mikils af Valdimar.
Valdimar hefur að undanförnu
unnið að felliborði, sem nota á með
Sóley. Sú vinna er nú á lokastigi og
er búist við því, að borðið verði til-
búið til frantleiðslu í haust eða í
byrjun næsta árs. Seint á næsta ári
er einnig væntanlegur á markað nýr
stóll eftir Valdimar, sem Kusch og
Co. mun lika framleiða. Auk þess
hefur fyrirtækið farið þess á leit við
Valdimar, að hann taki að sér ýmis
verkefni önnur á vegum þess.
Sumarferð
jafnaðarmanna
25. ágúst
Á fundi formanna flokksfélaga,
FUJ félaga og kvenfélaga Alþýðu-
flokksins í Reykjavík og á Reykja-
nesi, sem haldinn var í Keflavík sl.
fimmtudag var ákveðið að efna til
sameiginlegs sumarferðalags Al-
þýðuflokksfólks í þessum kjör-
dæmurn tveimur. Sett var á laggirn-
ar nefnd, sem þessa dagana vinnur
að undirbúningi ferðarinnar.
Þegar liggur fyrir að sumarferðin
verður farin þann 25. ágúst næst-
komandi, sem er laugardagur. Á-
formað er að ferðast verði um Suð-
urnesin. Allar nánari upplýsingar á
flokksskrifstofunni í síma 29244.