Alþýðublaðið - 24.08.1984, Side 2
Föstudagur 24. ágúst 1984
?
■RITSTJÓRNARGREINÍ .. ....... ..........
Alþýðubandalagið fyrr og nú
Alþýðubandalagið er sá flokkur islenskur
sem ábyrgðarlausastur er. í áróðrinum eru öll
brögð leyfileg þar á bæ. Tilgangurinn helgar
meðalið. Kinnroðalaust ganga forystumenn Al-
þýðubandalagsins fram fyrir skjöldu o.g gagn-
rýna harölega og með þungum áherslum verk
núverandi ríkisstjórnar í efnahags- og kjara-
málum, enda þótt aðeins séu liðin nokkur
misseri frá því Alþýðubandalagið sjálft sat í rík-
isstjórn og greip til sömu og svipaðra aðgerða.
Er ekki vert að Alþýðubandalagsmenn rifji
aðeins upp „frægðarferilinn" ( rikisstjórn
Gunnars Thoroddsen áðuren lengraer haldið?
Skyldi íslenskt launafólk sakna tímabilsins
1980-1983? Skyldi það minnast þess tíma sem
ára uppgangs og framþróunar (Islensku þjóð-
lífi?
Nei, hann er ekki glæsilegur stjórnarferillinn
sem Alþýðubandalagið getur státað sig af.
Þrátt fyrir góðarytri aöstæður’80og ’81 þáskil-
aði það séralls ekki I betri kjörum fyrir almenn-
ing né heldur stöðugra efnahagsástandi.
Þegar ríkisstjórn sjálfstæðismanna, Fram-
sóknarflokks og Alþýðubandalagsins fór frá í
maí í fyrra var verðbólgan í kringum 130%. Kjör
launafólks voru að vonum lök við þær aðstæð-
ur, því launin fylgdu ekki verðlagsþróun —
langt því frá. Það var undantekning fremur en
regla i stjórnarsetu Alþýðubandalagsins að
verðbætur væru greiddar á laun eins og um-
samið var milli aðila vinnumarkaðarins. Ekki
sjaldnar en 14 sinnum á valdatima Alþýðu-
bandalagsins ( rfkisstjórn voru launin skert
með einhliða ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalags-
ins var félagsmáiaráðherra í jöeirri ríkisstjórn
sem hér er gerð að umtalsefni. Hann stóð á
rústum hins opinbera húsnæðislánakerfis,
þegar hann lét af því embætti fyrir ári síðan eft-
irþriggjaára ráðherrasetu. Hlutfall húsnæðis-
lánanna hafði hrokkið niður í 12% af raunvirði
staðalíbúða og hafði aldrei áður verið jafnlágt.
SvavarGestsson hefurekki beinlínis miklavið-
spyrnu, þegar hann nú gengur fram fyrir
skjöldu og gagnrýnirnúverandi rfkisstjórn fyrir
lakaframmistöðu í húsnæðismálunum. Víst er
það rétt að núverandi rlkisstjórn hefur svikið
flest þau loforö sem hún gaf um róttækarend-
urbæturáhúsnæðismálunum, en þaðerengin
staða fyrir formann Alþýðubandalagsíns að
gagnrýna það háttalag. Hann fór nákvæmlega
eins að, þegar hann sat sjálfur í rlkisstjórn.
Hjörleifur Guttormsson safnaði skýrslum
og álitsgerðum þann tima er hann sat f ráðu-
neytinu. Þær skýrslur, þau nefndaálit, eru vafa-
iaust til ennþá. En skýrslubunkinn leiddi ekki
til hækkunar raforkuverðs hjá ÍSAL. Þær urðu
ekki til þess aðframsækin iðnaðaruppbygging
ætti sér stað. Pappírsflóðið I iðnaðarráðuneyt-
inu, þegar Hjörleifur Guttormsson sat þar á
veldisstóli, leiddi ekki til eins eða neins.
Ragnar Arnalds fyrrum fjármálaráðherra var
klókur þegar hann lagði fram fjárlagafrumvörp
sfn. Að sumu leyti litu þau ekki illa út á pappirn-
um. En í framkvæmd gengu fjáriögin aidrei
upp. Þau stóðust engan veginn. Voru byggð á
sandi. Hallinn á rfkissjóði var gegndarlaus í tfð
Ragnars Arnalds f fjármálaráðuneytinu.
Þannig má rekja lengi þann þráð er Alþýöu-
bandalagsmenn ófu, þegar þeir fóru með völd
í ríkisstjórninni 1980-1983. Þeir hafa ekki af
miklu aö státa. Sú rfkisstjórn hefur sennilega
verið sú næstversta sem við íslendingar höf-
um haft um langt árabil. Aöeins núverandi
stjórn, ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar
skákar henni f því tilliti.
Þessi orð eru hér ekki sett á blað til að bera
blak af stjórnarháttum núverandi ríkisstjórnar.
Langt þvf frá. Hins vegar er vert að almenning-
ur átti sig á því að Alþýðubandalagið hefur ekki
úr háum söðli að detta, þegar foringjar þess
hrópa á torgum og gagnrýna hitt og heimta
þetta. Þeirfengu sitt tækifæri í fyrri ríkisstjórn.
Þvf tækifæri klúðruðu þeir.
—GÁS.
Kjarneðlisfrœðingur heldur erindi:_
Mengun af völdum
kjarnorkuslyss
Föstudaginn 24. ágúst kl. 18.00
mun kjarneðlisfræðingurinn Dr.
Michio Kaku frá Bandaríkjunum
halda erindi í Ráðstefnusal Hótels
Loftleiða. Erindið nefnist
„MENGUN AF VÖLDUM
KJARNORKUSLYSS" og verður
flutt á ensku. Erindið er flutt í
tengslum við friðarráðstefnuna
sem haldin er á Hótel Loftleiðum
dagana 24r26. ágúst á vegum frið-
arhreyfinga frá Noregi, Danmörku,
Bretlandi og íslandi.
Dr. Kaku er prófessor í kjarneðl-
isfræði við Háskóla New York
borgar. Hann hefur ritað fjölda
fræðilegra greina í bækur og tíma-
rit og haldið erindi og fyrirlestra á
Álver________________________1
slíkum rekstri. í sama streng tók
forsætisráðherra á þriðjudaginn,
þegar hann tók við undirskriftum
andstæðinga álversins.
Óþarfi er að rekja hér rök og
gagnrök í þessu álversmáli. Þeim
hafa verið gerð góð skil í fjölmiðl-
um, m.a. hefur Jórunn Sæmunds-
dóttir bæjarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins á Akureyri rætt þessi mál hér í
blaðinu út frá sínu sjónarmiði, en
hún styður uppsetningu álvers og
byggir fyrst og fremst á atvinnu-
sjónarmiðum afstöðu sína; segir
nauðsynlegt að hleypa auknum
krafti i atvinnulíf svæðisins. Eins
og kunnugt er hefur atvinnuástand
verið með lakasta móti fyrir norðan
um nokkurt skeið og hefur orðið
vart brottflutnings í bænum vegna
þess ástands.
Það er athugunarefni, hvort ekki
sé nauðsyn á allsherjaratkvæða-
greiðslu á Akureyri og því svæði,
sem hlut á að máli, hvað varðar
þetta álitamál. Undirskriftalistar
segja ákveðið, en þó ekki nærri alla
söguna. Ef vilji íbúanna á svæðinu
skiptir sköpum í þessu máli, eins og
forráðamenn Alcan og forsætisráð-
herra hafa látið í veðri vaka, hví þá
ekki að spyrja íbúa svæðisins álits í
allsherjar könnun — leynilegri at-
kvæðagreiðslu um mál þetta?
eðlisfræðiþingum og við háskóla
víða um heim.
Samtök íslenskra eðlisfræðinga
gegn kjarnorkuvá hvetja félaga
samtakanna og aðra sem áhuga
hafa til þess að fjölmenna á erindið.
ÖKU-
LJOSIINI
Ökuljósin
kosta lítið og þvi
er um að gera að
spara þau ekki í ryki og
dimmviðri eða þegar
skyggja tekur. Best af
öllu er aö aka ávallt
með ökuljósum.
||^ðferðar^
Kröfugerð BSRB:___________
Dæmi um launakjör
BiFREIÐAEETIRLITSMENN. 12.
Mánaóarlaun: 14.141
Krafa BSRU: 18.383
lfl. VERÐIAGSEFTIRLIT. 14.
Mánaöarlaun: 15.311
Krafa BSRB: 19.904
lfl.
LAXELDISMAÐUR. 6. lfl.
fÉnaöarlaun: 11.581
Krafa BSRB: 15.055
f Félagstíðindum Starfsmannafélags ríkisstofnana, sem kom út 16. ágúst sl., eru tekin dœmi um launakjör
opinberra starfsmanna og er þar jafnframt tekið fram hversu mikið laun þessa starfsstétta hœkka, nái
kröfur BSRB, sem Albert býsnast nú mikið yfir, fram að ganga. Tæpast verða þetta taldar óeðlilega háar
kröfur. Við birtum hér mynd af síðu úr Félagstíðindunum, svo lesendur geti sjálfir dœmt.
TÆKNITEIKNARI. 10. lfl.
Mánaöarlaun: 13.o72
Krafa BSRB: 16.993
AFGREIÐSLUMAÐUR. 9. lfl.
Mánaóarlaun: 12.787
Krafa BSRB: 16.623
ÞTOTTAMAÐUR. 5. lfl.
Mánaóarlaun: 11.358
Krafa BSRB: 14.765
RDNTGtl'JTÆKNIR. 13. lfl.
Mánaóarlaun: 14.681
Krafa BSRB: 19.085
RITARI/GAGNASKRANING. 8 lfl. AÐSTOÐARMAÐUR. 5. lfl.
Mánaóarlaun: 12.460 ítínaöarlaun: 11.358
Krafa BSRB: 16.198 Krafa BSR3: 14.765