Alþýðublaðið - 08.09.1984, Síða 1
Hvernig fer nú fyrir því unga.
fólki, sem með stórhug hefur
ráðist í að koma yfir sig þaki?
Hefur það reist sér hurðarás um
öxl?[)
Útlán stöðvuð:
Dómsdagur
skuldunauta
Laugardagur 8. september 1984
181. tbl. 65. arg.
Bankarnir hafa nú tekið upp harða stefnu í útlánamálum sínum.
Þar sem staða viðskiptabankanna er nú verri en hún hefur verið í
marga áratugi ætla þeir að taka fyrir svo til öll útlán, nema til at-
vinnuveganna. Auk þess hyggjast þeir herða innheimtuaðgerðir sín-
ar, en mjög erfiðlega hefur gengið að fá lán greidd upp á umsömd-
um tíma.
Þessar aðgerðir koma í kjölfar
þess að skuldir viðskiptabankanna
við Seðalbankann hafa aukist
mjög. Um síðustu mánaðamót
námu skuldir þeirra við Seðlabank-
ann og erlendis rúmlega 3,4 mill-
jörðum. Var aukningin um 600
milljónir frá mánaðamótunum á
undan.
Það eru Utvegsbankinn og Bún-
aðarbankinn sem verst eru staddir.
Hlutfallslega skuldar Útvegsbank-
inn mest, 47,9% af innlánum bank-
ans, eða 993 milljónir króna.
Landsbankinn er þó með hæstu
skuldina, einn milljarð og 659 mill-
jónir króna, en það er þó ekki nema
21,4% af innlánum bankans.
Koma blöðin ekki
út í næstu viku?
Verkfall bókagerðarmanna á mánudag
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma, hefur verkfall bókagerðar-
manna, sem að öllum líkindum
skellur á á miðnætti aðfararnætur
mánudagsins, þau áhrif að dagblöð
munu ekki koma út í næstu viku, og
munu þau liggja niðrt þar til semst
með bókagerðarmönnum og prent-
smiðjueigendum.
Hafði sáttasemjari fund með
deiluaðilum sl. fimmtudag og var
hann árangurslaus. Nýr fundur er
boðaður í dag, en svo mikið virðist
bera á milli með deiluaðilum að litl-
ar líkur eru taldar á því að semjist.
Þetta tölublað Alþýðublaðsins er
því ef að líkum lætur, síðasta tölu-
blaðið sem þú, lesandi góður, held-
ur milli handa þér um óákveðinn
tíma.
Verslunarbankinn og Iðnaðar-
bankinn eru með bestu stöðuna.
Verslunarbankinn skuldaði bara 26
milljónir um síðustu mánaðamót
eða 3% af innlánum og Iðnaðar-
bankinn, sem er næst best staddur,
skuldaði 109 milljónir sem sam-
svara 7,1% af innlánum.
Alþýðubankinn stendur líka
nokkuð vel gagnvart lánadrottnum
sínum, skuldar hann 37 mílljónir,
eða 8,1% af innlánum.
Þó svo að bankarnir keppist við
að bjóða sem hagstæðasta vexti á
innlán, nú þegar vaxtafrelsið er orð-
ið algert, hefur það ekki orðið til
þess að innlán hafi aukist sem
skyldi. Því þó svo að einhver aukn-
ing hafi orðið á innlánum þá hafa
útlánin aukist hlutfallslega mun
meira.
Mest hefur innlánsaukningin
orðið hjá Iðnaðarbankanum, en
samtímis eru þeir með hæstu út-
lánsaukninguna. Hafa innlán auk-
ist um 65,2% en útlán um 75,1%.
Næst mesta innlánsaukningin er
hjá Verslunarbankanum eða
53,2%, hinsvegar eru þeir með næst
minnstu útlánsaukninguna eða
48,9%.
Það er Landsbankinn sem hefur
minnstu útlánsaukninguna eða
38,6% og hann er með næst
minnstu innlánsaukninguna, 29%.
Minnsta innlánsaukningin er hjá
‘Frámhald á 6 síðu
Fj allið tók
joðsótt “ ““
Eftir ntikið japl, jaml og fuöur
þótti formannapakki Þorsteins
Pálssonar og Steingríms Hcr-
mannssonar loks vatnsheldur,
þannig að þeir hættu á blaða-
mannafund, þar sem opinberað var
innihald hins nýja stjórnarsátt-
mála. Sá blaðamannafundur var
haldinn um miðjan dag í gær.
En vegna þess hve vinnslu Al-
þýðublaðsins lýkur snemma er
blaðinu ekki unnt að greina frá
skýringum málsvara ríkisstjórnar-
innar á einstökum atriðum pakk-
ans.
Ljóst má vera með hliðsjón af at-
burðum liðinna daga, að alls eng-
inn einhugur er um ágæti niður-
staðna Steingríms og Þorsteins.
Sérstaklega mun bullandi ágrein-
ingur um einstök atriði, þá sérstak-
' Framhald á 6 slðu
SU N N UDAGSLEIÐARI
„Helsi" frjálshyggjunnar
Heimsókn Milton Friedman til íslands vakti
mikla athygli af ýmsum orsökum. Kenningar
Friedman um markaöshyggjuna og frelsið eru
íslendingum kunnar, þótt fylgismenn þeirra
hér á landi séu fáir. En þeir sem trúaá boðskap
Friedman, frjálshyggjuhópur innan Sjálfstæð-
isflokksins, hafa tekið þessar kennisetningar
svo bókstaflega, að hvert orð af vörum leiötog-
ans er þeim sem óskrifuð lög. Sömuleiðis er
Milton Friedman nánast I guðatölu hjá fylgis-
mönnum hans hér á landi. Hverju spori meist-
arans er fylgt til hins Itrasta.
Því verður ekki á móti mælt að Milton Fried-
man er um margt áheyrilegur. Það fengu sjón-
varpsáhorfendur að heyra á dögunum, þegar
Friedman sat fyrir svörum í sjónvarpssal og
ræddi kenningar sínar við þrjá íslenska þjóðfé-
lagsfræðinga. Friedman ereinkar laginn við að
gera flókna hluti einfalda og gerir það einatt
með þvl að krydda þá með skýrum dæmum úr
hinu daglega lífi.
Það breytir því þó ekki, að hið blinda frelsi
markaðshyggjunnar er stórháskalegt. Maður-
inn bakvið kenningarnar virtist einkar viðfelld-
inn og jafnvel skemmtilegur, en kenningar
hans eru á hinn bóginn ávlsun á misrétti og
ójöfnuð. Þessu tvennu verðurfólk að geraskýr-
an greinarmun á.
Víst hljómar það vel, þegar menn tala um
nauðsyn á auknu frelsi hér og auknu frelsi þar.
Allir vilja halda boðum og bönnum f lágmarki.
En menn skulu minnast þess að æði oft er
stutt bilið á milli frelsis og helsis. Frelsiö getur
og hefur snúist upp í andhverfu sína.
Sumirfæðast með silfurskeið i munninum.
Aðrir fá aldrei magafylli. Skyldi frelsiö vera hið
sama hjá milljónamæringnum I Bandarlkjun-
um og atvinnulausum verkamanninum i Bret-
landi? Og hvert skyldi frelsið vera hjá nýfæddu
barninu í Afríku, sem sér ekki aðra framtíð, ef
um framtíð verður að ræða, en hungur og ör-
birgð?
Frelsi markaðshyggjunnar er frelsi fjár-
magnseigenda til aukins gróða. Og hvaðan
skyldi sá aukni gróði koma? Jú, frá launafólk-
inu, því fólki er verðmætin skapar með vinnu-
framlagi sínu.
Frelsi markaðarins byggir á þvi að allt sé falt
fyrir peninga — allt eigi að seljast. En frelsið til
að kaupaereinvörðungu hjá þeim sem pening-
ana eiga. Þeir hinir mörgu sem ekki ráða yfir
fjármagninu getaekki keypt sérfrelsið. Þjóðfé-
lagsleg staða þpirra skapar þeim helsi í veröld
markaðshyggjunnar.
Jafnaðarmenn vilja eftir mætti skapavþá að-
stöðu, að sem flestir eigi jaf na möguleika á því
að koma sér áfram I lífinu eins og það er kallað.
Það eigi því ekki að skipta máli hvort nýfæddur
þjóðfélagsþegn er sonur margmilljónera eða
fátæks verkamanns. Möguleikartil menntunar
og eðlilegs uþpvaxtareigi í öllum aðalatriðum
að vera þeir sömu. Þess vegna t.a.m. verður að
stýra þjóðarverðmætum þannig, að allir þjóð-
félagsþegnar fái möguleika á að mennta sig;
fái lágmarksveganesti frámeðbræðrum slnum
á leið út í hið'miskunnarlausa líf fullorðna
fólksins. Sömuleiðis er það skoðun jafnaðar-
manna, að það sé skyldáþjóðfélagsins að búa
þannig um hnúta, að fólk þurfi ekki að kvíðaell-
inni út frá efnahagslegum forsendum. Jafn- >
framt eigi félagsleg aðstoð allra þjóðfélags-
þegna að tryggja ákveðið öryggi; öryggi fyrir þá
sem sjúkir eru eða geía ekki af einni eða ann-
arri skýranlegri ástæðu séð sjálfum sérog sín-
um farborða.
Vill fólk leggja af atvinnuleysisbætur? Vill
fólk að aðeins þeir ríku geti sent börn sin í
skóla? Á það að fara alfarið eftir efnahag
manna hvort fólki er kleift að leggjast á sjúkra-
hús vegna lasleika? — Þettaeru nokkur þau at-
riði sem frjálshyggjan fjallar um.
Alþýðublaðið hefur áður lýst andstöðu sinni
við hina kaldrifjuðu og miskunnarlausu pólitfk,
sem kennd hefur verið við frjálsa markaðs-
hyggju. Sú pólitík framkallar ójöfnuð og órétt-
læti.
—GÁS.