Alþýðublaðið - 10.11.1984, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 10.11.1984, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 10. nóvember 1984 rRITSTJÓRNARGREIN Hvar er herferðin gegn skattsvikum? A síðasta þingi náðist fram meirihluti fyrir tveimur tillög- um alþýðuflokksmannaer lutu að herferð gegn skattsvikum. Opinberlega er viðurkennt að skattundandráttur nemi millj- örðum króna á ári hverju. Þannig leiddu alþýðuflokks- menn að þvi Ifkur að framhjá rlkissjóði færi vegna skatt- svika upphæð sem næmi hart nær þriðjungi fjárlaga, en mið- aðviðfjárlög 1984erhérum að ræða yfir 5 milljarða króna og eru söluskattsvik undanskilin. Samþykktar tillögur alþýðu- flokksmanna lutu annars veg- ar að rannsókn á umfangi skattsvikaog hins vegarað aö- gerðum stjórnvalda gegn skattsvikum. Fyrir fáeinum dögum lagði Jóhanna Sigurð- ardóttir fyrir fjármálaráðherra og dómsmálaráðherra fyrir- spurn um afdrif þessara til- lagna. í þeim umræðum komu fram merkilegar uppiýsingar sem ekki verður horft framhjá. Hjá embætti skattrannsókn- arstjóra hafa þær upplýsingar fengist að samkvæmt fram- töldum tekjum launþega á ár- inu 1983 hafi launatekjur 133 þúsund launþega numiöalls rúmlega 26 milljörðum króna. Það gera að meðaltali um 195 þúsund krónur í árstekjur. Þeg- ar hins vegar reiknuð laun ein- staklinga við eigin atvinnu- rekstur eru skoðuð kemur í Ijós að rúmlega 21 þúsund ein- staklingar hafi talið fram um 2.5 milljarða króna. Það gera að meðaltali um 116 þúsund krónur ( árstekjur. Samkvæmt þessu hafa launþegar talið fram að meðaltali um 70% hærri tekjur en einstakiingar i eigin atvinnurekstri. Munurinn er reyndar meiri ef aðeins eru tekrir inn í dæmið giftir karlmenn. Þannig reynast meðallaun þeirra ( launþegastéttum vera á árinu 1983 um 309 þúsund krónur, en reiknuö laun giftra karla í eigin atvinnurekstri að meðaltali um 157 þúsund krónur. Með öðrum orðum er munurinn þarna orðinn hart nær tvöfaldur. Þessar tölur hljóta að sýna okkur að ekki er allt með felldu i skattamáium þjóðarinnar. Leiddar hafa verið ilkur að þvi að um 10—11% af þjóðartekj- um séu sviknar undan skatti. Þó stöndum viö frammi fyrir þvi aó mikill misbrestur er á þvi að skattrannsóknir séu Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í STYKKIS- HOLMSVEG, Vogsbotn — Stykkishólmur. Helstu magntölur: Lengd ................................... 3,2 km. Fylling og burðarlag................... 28000 m3 Verkinu skal lokið 10. maí 1985. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins, Borg- artúni 7, Reykjavík og Borgarbraut 66, Borgarnesi f rá og með 13. nóv. 1984. Skila skal tilboði fyrir kl. 14:00 hinn 26. nóv. 1984. Vegamálastjóri. Rannsóknarstofnun Fiskiðnaðarins óskar að ráða útibússtjóra á Neskaupstað frá og. með áramótum. Menntun í efnafræði, efnaverkfræði eða mat- vælafræði áskilin. Upplýsingar veitir forstjóri í síma 20240. ALÞÝÐUFLOKKSINS Aðalfundur Aðalfundur Alþýðuflokksins í Njarðvfk, verður haldinn í Stapa, litla sal, laugardaginn 10. nóvem- ber 1984, kl. 14:00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á flokksþing. 3. Umræður um bæjarmál. 4. Önnur mál. Stjórnin. Borgarmálaráð Alþýðuflokksins í Reykjavík Borgarmálaráð er hvatt saman til fundar að Austur- stræti 16 efstu hæð, þriðjudaginn 13. nóv. n.k. kl. 17.00. Vinsamlegast mætið stundvislega. Formaður. Óður steinsins Nk. mánudag, 12. nóvember, verður flutt í Norræna húsinu verk- ið ÓÐUR STEINSINS fyrir píanó, upplestur og litskyggnur. Jónas Ingimundarsson leikur á píanó tón- list Atla Heimis Sveinssonar, Sig- rún Björnsdóttir les upp ljóð Krist- jáns frá Djúpalæk og sýndar verða litskyggnur Ágústar Jónssonar af steinþynnum. Verkið er tilraun til að fella sam- an tónlist, ljóðlist og myndlist og er hugsað sem ein heild. Kveikjan að því voru ljósmyndir Ágústar Jóns- sonar af örþunnum sneiðum, sem Kristján frá Djúpalæk orti Ijóð við, eitt um hverja mynd, alls 30 ljóð. Atli Heimir Sveinsson samdi síðan píanólög við ljóðin og myndirnar. ÓÐUR STEINSINS var frum- flutt á Akureyri 8. okt. 1983 og skömmu síðar var það flutt í Nor- ræna húsinu í Reykjavík og víðar um landið. Sl. sumar hefur Jónas Ingimundarson einnig flutt það er- lendis: — I hinu nýja og glæsilega Norðurlandahúsi í Færeyjum, þar sem færeyska leikkonan Beritta Mohr las ljóðin á íslensku, og í Fin- landia-húsinu í Helsinki, en þar las Borgar Garðarsson upp ljóðin í sænskri þýðingu. Báðar þessar ferðir voru farnar fyrir tilstilli Nor- ræna hússins í Reykjavík. í júlí sl. var verkið flutt á ráðstefnu EPTA — Sambands píanóleikara í Evrópu — en þar voru ljóðin lesin í enskri þýðingu af Jónínu Ólafsdóttur, ís- lenskri leikkonu sem starfar í Lon- don. Verkinu var hvarvetna vel tek- ið og vakti verðskuldaða athygli. Flutningurinn í Norræna húsinu er sá 8. í röðinni og hefst hann kl. 20.30. Tökum að okkur hverskonar verkefni í setningu, umbrot og plötugerð, svo sem: Blöð í dagblaðaformi Tímarit Bækur o.m.fl. Ármúla 38 — Sími 81866 sem skyldi. Þannig hefur kom- iö fram aö innan við 1% af framtölum félaga og einstakl- inga (atvinnurekstri hljóti Itar- lega skoðun skattyfirvalda. í urrrræöunum á Alþingi varð fátt um svör hjá fjármála- ráðherra, aö öðru leyti en því að hann dró i efa þessar niöur- stööur þó hann viðurkenndi aö þarna væri brotalöm sem þyrfti aö athuga. Hins vegar kemurlljósaðenginn pólitísk- ur vilji er fyrir því innan ríkis- stjórnarinnar aö taka þessi mál öll sérstaklega fyrir. Þannig kom fram I máli dóms- málaráðherra þegar hann svar- aöi öörum fyrirspurnum Jóhönnu Sigurðardóttur, aó vlö undirbúning fjárlagafrum- varpsins heföi nánast öllum tilmælum um aukið fjármagn og aukinn mannaflatil eflingar skattrannsókna veriö vísað frá. Þrátt fyrir að átak í skattsvika- málum gæti fært rlkissjóöi marga milljarða króna upp í fjárlagagötin margfrægu virð- ist enginn pólitískur vilji vera fyrir hendi hjá stjórnarherrum landsins. Þeir kjósa fremur aö lækkalaun, skeraniðurfélags- lega þjónustu, níöast á sjúkl- ingum og kaffæra landsmenn í erlendum iántökum, en að sauma aö skattsvikurum þessa lands. fg. Félagsfundur verður haldinn í Iðnó sunnudaginn 11. nóv. kl. 14.00. Fundarefni: Kj arasam n i n garn i r. Stjórn Iðju. Útboð Rafmagnsveitur rfkisins óska eftir tilboðum f eftirfar- andi: RARIK 84019 raflínuvír 320 km. RARIK 84020 Þverslár 1070 stk. Opnunardagur: þriðjudagur 11. desember 1984 kl. 14.00 Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og veröa þau opnuö á sama staö aö viðstöddum þeim bjóöendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 12. nóvember 1984 og kosta kr. 200,00 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík. Hugmyndasamkeppni um skipulag Víðistaðasvæðis Hafnarfjarðarbær auglýsir hér með hug- myndasamkeppni um skipulag Víðistaða- svæðis. Keppnin fer fram eftir samkeppnisreglum Arkitektafélags íslands, þátttökurétt hafa all- ir íslenskir ríkisborgarar og erlendir ríkis- borgarar sem búsettir eru á íslandi og hafa hér fasta atvinnu. Tilgangur þessarar hugmyndasamkeppni er að fá fram heildarskipulag Viðistaðasvæðis sem miði aðallegaað því að svæðiðverði nýtt sem íþrótta- og útivistarsvæði fyrir almenn- ing. Heildarverðlaunafé er kr. 250.000 og innkaup fyrir allt að kr. 65.000. Dómnefnd skipa: Sigþór Jóhannesson, verkfræðingur, for- maður, Gunnar S. Óskarsson, arkitekt, ritari, Bjarni Snæbjörnsson, arkitekt, Einar E. Sæmundsen, landslagsarkitekt og Snorri Jónsson, fulltrúi. Keppnisgögn eru afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar, Þórhalli Þórhallssyni, Freyju- götu 41 (Ásmundarsal), 101 Reykjavík, sími 11465 og heimasimi 16788. Fresturtil að skilatillögum rennurút 31. janú- ar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.