Alþýðublaðið - 10.11.1984, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 10.11.1984, Blaðsíða 4
Útgefandi: Blað h.f. Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guómundur Árni Stefánsson. Ritstjórn: Kriðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson. Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir. Auglýsingar: Eva Guðmundsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð. Sími:81866. Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38. Laugardagur 10. nóvember 1984 Prentun: Blaðaprent, Siðumúla 12. alþýðu- inni’irij Askriftarsíminn er 81866 Friðsamlegt málæði eða uppgjör? Hvað gerist á ASI-þingi: 35. þing Alþýðusambands íslands er framundan. Það verður haldið dagana 26r30. nóvember, en sem kunnugt er eru þessi þing haldin á fjögurra ára fresti. Rétt til setu hafa um 500 fulltrúar. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá síðasta Alþýðusambands- þingi árið 1980. Það árið kom til valda ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens og í skugga hennar féllust í faðma innan verkalýðs- hreyfingarinnar alþýðubandalagsmenn og sjálfstæðismenn. Út- koman varð sú að Asmundur Stefánsson var kjörinn forseti Al- þýðusambandsins en Björn Þórhallsson varaforseti, en hann er sem kunnugt er sjálfstæðismaður. Frá síðasta þingi Alþýðusambands íslands, árið 1980. Á þessum fjórum árum hefur það gerst að skipt hefur verið um ríkisstjórn og nú situr við völd ein hatrammasta ríkisstjórn sem verka- lýðshreyfingin hefur þurft að glíma við. í upphafi ferils ríkisstjórnar- innar voru helgustu réttindi verka- lýðshreyfingarinnar afnumin með einu pennastriki, samningsréttur- inn var látinn fjúka og laun máttu ekki lengur vera tryggð gegn verð- hækkunum. Síðan hefur kaup- máttur launa sigið þannig að hann hefur verið færður áratugi aftur í tímann. Þessi mál öll verða vafa- laust mjög til umræðu á komandi Alþýðusambandsþingi, en ekki síð- ur nýgerðir samningar ASÍ og VSÍ, sem eru mjög umdeildir og færðu fram allt aðra útkomu en vonast var eftir og stefnt að. Þó samið hafi ver- ið um vænar launahækkanir, um 24% á samningstímabilinu, liggur fyrir það sem margir óttast: Að þetta verði allt saman tekið aftur með stjórnvaldsaðgerðum. „Málæði“ sagði einn viðmæl- enda Alþýðublaðsins úr forystu verkalýðshreyfingarinnar er hann var spurður hvað hann héldi að myndi einkenna komandi þing ASÍ. „Ég hygg að menn rifji upp þró- un launamálanna á þessum fjórum árum og komist vafalaust að þeirri niðurstöðu að lítið hafi áunnist. Kjaramálin verða auðvitað stærsta málið, en þess fyrir utan á ég von á því að framhaldssagan góða, skipu- lagsmálin, skipi veglegan sess nú sem áður. Menn hafa undanfarna áratugi verið sammála um að það þurfi að koma til breytinga, en um leið hafa menn verið sammála um að halda í hið „gamla góða“ kerfi, hvernig sem útskýra má þessa þver- sögn. En vel á minnst, það er alveg útilokað að mögulegar breytingar verði í anda tillagna Bandalags jafnaðarmanna, þær eru þess eðlis að veikja stöðu verkalýðshreyfing- arinnar. Til eru ýmsar leiðir er gætu styrkt hreyfinguna, stærri heildir og staðbundnari til dæmis, en þá þannig að dragi úr miðstýringunni í Reykjavik. Nú, menn hljóta að skoða stefnu- skrána vel. Ég á nú ekki von á því að mikið verði rætt um pólitíska stöðu hreyfingarinnar, það er eins og að minnast á snöru í hengds manns húsi. Ég á ekki von á því að valda- hlutföllin breytist mikið, það er helst að búast megi við því að menntamönnum fjölgi á toppnum. Ég á sem sé von á friðsamlegu mál- æði og það kæmi mér á óvart ef um átök yrði að ræða“ Fleiri viðæmlendur blaðsins tóku undir það að ekki væri líklegt að til átaka kæmi um embætti, þó menn kynnu sjálfsagt að deila um ýmis mál. Skipulagsmálin voru þó mjög ofarlega í hugum manna og einn viðmælandi taldi alls ekki ólíklegt að rykið yrði dustað af þeirri tillögu sem áður hefur komið fram, að varaforsetar sambandsins yrðu tveir. „Ég hygg að nú sé mikill vilji til breytinga og þá á þeim nót- um sem samþykktar voru 1958. Kjaramálin verða auðvitað mjög til umræðu og reikna ég með að fram komi mikil umræða, þannig vildu iðnaðarmenn ekki skrifa undir síð- asta samning vegna óánægju með hann, þó þeir hafi tekið fullan þátt í viðræðunum" „Það þyrfti svo sannarlega að breyta til á toppnum. Mér hefur aldrei fundist rétt að hafa Björn Þórhallsson í lykilembætti á vegum sambandsins, ég Iit á hann sem at- vinnurekanda. En ég á ekki von á því að þetta verði átakaþing. Ég hygg að menn reyni að halda sínu fólki fyrst og fremst," sagði einn viðmælenda blaðsins. Sá átti von á því að starfsgreinaskiptingin yrði mikið mál á þinginu. Það var mál manna að kjaramál- in og skipulagsmálin myndu skipa stærsta sessinn á þinginu. Kjara- málin væru nú mjög viðkvæm inn- an hreyfingarinnar. Ýmsir óhressir „Þeir hjá Verkamannasamband- inu eru mjög óhressir um þessar mundir og margir óánægðir með að hinn nýi samningur skuli vera nán- ast bundinn til áramóta, 1985. Ófaglærðir eru óhressir með hversu fagf élögin hafa sýnt lítinn skilning á sínum kjörum, að þau hafi nánast í engu hjálpað til við að breyta launahlutföllunum innan hreyfing- arinnar. Það hefur því miður ekki komist á að Alþýðusambandið hafi mótað ákveðna og skýra launa- málastefnu, heldur hafa menn verið að semja í einskonar frumskógi þar sem hver hefur tekið það sem hann er í stöðu til að taka“ sagði einn for- ystumaður í hreyfingunni. Sá átti þó ekki von á miklum breytingum á forystu sambandsins, en lagði þó áherslu á að nú væru miklir svipti- vindar í þjóðfélaginu og aldrei að vita um endanlega útkomu. Þegar hafa verið samþykkt í mið- stjórn ASÍ drög að dagskrá þings- ins. Af mörgu er að taka. Á fyrsta degi flytur Ásmundur Stefánsson skýrslu forseta, en sama dag er ætl- unin meðal annars að fjalla um tölvumál og vinnuverndarmál. Á öðrum degi hefst fyrsta umræðan um kjaramál, atvinnu- og efna- hagsmál og þann dag verða lífeyris- málin einnig tekin fyrir. Það er síð- an miðvikudaginn 28. nóvember sem forseta- og varaforsetakjör fer fram, kosningar í miðstjórn og stjórn Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu. Þann dag verður einnig fjallað um fræðslu- og menningarmál, atvinnulýðræði, málefni aldraðra og fatlaðra og fleira. Daginn eftir verður kosið í sambandsstjórn ASÍ og skipulags- nefnd og siðasta daginn fer fram önnur umræða um kjaramál, at- vinnu- og efnahagsmál með meiru. Til sölu eru: tvær 40.8m2 einstaklingsíbúðir tvær 60.1 m2 2ja herbergja íbúðir fjórar 66.4m2 2ja herbergja íbúðir þrjátíu 70.0m2 2ja herbergja íbúðir sex 89.0m2 3ja herbergja íbúðir tíu 98.6m2 3ja herbergja íbúðir sex 99.3m2 3ja herbergja íbúðir Hér er um að ræða netto stærðir íbúða, án hlutdeildar í sameign. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur auglýsir: Til sölu 60 íbúðir fyrir aldraða félagsmenn VR við Hvassaleiti 56-58. Þeir félagsmenn VR sem orðnir eru 63 ára eiga rétt á að kaupa íbúð, þó þannig að fé- lagar 67 ára og eldri eiga forgangsrétt á íbúðunum. Miðað er við að þessum aldurs- mörkum sé náð um áramótin 1985/1986. Þeim félagsmönnum, sem áhuga hafa á að kaupa þessar íbúðir, er bent á að koma á skrifstofu félagsins, í Húsi verslunarinnar 8. hæð, og kynna sér teikningar og fá upp- lýsingar um verð íbúðanna. Skilafrestur umsókna er til 7. desembern.k.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.