Alþýðublaðið - 13.11.1984, Blaðsíða 1
Formannskjör á flokksþingi Alþýðuflokksins
Jón Baldvin í
formannsf rambo ð
Þriðjudagur 13. nóvember 1984
197. tbl. 65. árg.
Jón Baldvin Hannibalsson al-
þingismaður hefur ákveðið að gefa
Kjartan sækist
eftir endurkjöri
„í lýðræðislegum flokki eins og
Alþýðuflokknum koma vitanlega
fram mismunandi sjónarmið,
bæði hvað varðar áherslur í stefnu-
miðum og eins gagnvart þeim
mönnum er veljast til trúnaðar-
starfa. Slík dæmi eru gerð upp á
flokksþingum. Það er hlutverk
flokksþinga" sagði Kjartan Jó-
hannsson formaður Alþýðuflokks-
ins í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
Kjartan sagði að framboð Jóns
Baldvins Hannibalssonar til for-
manns hefði ekki komið sér sér-
staklega á óvart. „Það breytir í engu
þeirri skoðun minni, að ég sé reiðu-
búinn.til að gegna stöðu formanns
flokksins áfram. Á það mun reyna
á flokksþinginu, hvað flokksþing-
fulltrúar telja farsælast og árang-
ursríkast fyrir Alþýðuflokkinn. Jón
Baldvin metur framboð sitt þannig
að það geti gert flokknum gagn.
Flokksþingið mun kveða upp sinn
dóm“
Síðan sagði Kjartan Jóhannsson:
„Ég og margir flokksmenn erum
þeirrar skoðunar að réttara sé að
snúa sér að öðrum aðkallandi verk-
efnum í flokksstarfi og stefnumót-
un, frekar en að skipta um for-
mann. Ákveðin endurnýjun á for-
ystusveit stjórnmálaflokka er út af
fyrir sig sjálfsögð, en á móti kemur
að ýmsir ókostir fylgja of örum
umskipturn í þeim efnum. Með
þessi sjónarmið að baki hef ég
ákveðið að gefa kost á mér áframý
sagði Kjartan.
Ströng dagskrá á flokks-
þingi Alþýðuflokksins
Flokksþing Alþýðuflokksins
hefst næstkomandi föstudag með
setningu í Gamla bíói kl. 17. Þar
verður fluttsamfelld dagskrá.gestir
flytja ávörp og formaður flokksins,
Kjartan Jóhannsson, flytur setn-
ingarræðu.
Eftir kvöldmat flyst þingið að
Hótel Loftleiðum og hefst þar að
nýju kl. 20:30. Eftir kosningu for-
seta og ritara þingsins, svo og
starfsnefnda þess, verða flutt
ávörp fyrir hönd Sambands Al-
þýðuflokkskvenna og sambands
ungra jafnaðarmanna. Að því
loknu verða skýrslur framkvæmda-
stjórnar og gjaldkera til umfjöllun-
ar.
Á laugardeginum, 17. nóvember,
hefst þingfundur kl. 9, en eftir há-
degi verður starfað í þingnefndum.
Um klukkan 17 er gert ráð fyrir
kosningum. Þá fer fram kjör til for-
manns Alþýðuflokksins, varafor-
manns, ritara, gjaldkera og for-
manns framkvæmdastjórnar. Um
kvöldið verður síðan flokksþings-
hóf í Víkingasal.
Þingfundi verður síðan fram-
haldið klukkan 10 á sunnudeginum
Kennarar safna
fj öldauppsögnum
Á fulltrúaþingi Kennarasam-
bands Islands sl. vor var gerð sam-
þykkt um að Kennarsambandið
safnaði uppsögnum kennara um
allt land ef hlutur kennara yrði ekki
bcettur í kjarasamningunum nú í
haust. Það var augljóst, strax að
afloknum aðalkjarasamningi
BSRB og ríkisins, að kennarar voru
ekkisáttir með hlutskiptisitt. Laug-
ardaginn 10. nóvember varþvi sam-
þykkt á fundi fulltrúaráðs KI að
fela stjórn sambandsins að safna
þegar í stað uppsagnarbréfum frá
kennurum og Ijúka því fyrir 24.
nóvember.
Fyrr í haust fór fram könnun á
vegum kennarasamtakanna á því
hver yrði þátttaka þeirra í allsherj-
aruppsögnum og í þeirri könnun
kom í ljós mjög mikil samstaða.
Með þessum fjöldauppsögnum
ætla kennarar að knýja á um 1)
Bætt kjör kennara, 2) Endurmat á
störfum kennara með tilliti til
menntunar og ábyrgðar, 3) Lög-
verndun starfsheitisins kennari og
4) Sjálfstæðan samningsrétt fyrir
stéttarfélög kennara.
í fréttatilkynningu frá fulltrúa-
ráðinu segir að fulltrúaráðið telji að
í nýgerðum aðalkjarasamningi
BSRB og ríkisins hafi ekki náðst
leiðrétting á kjörum kennara og því
neyðist kennarastéttin til að grípa til
svo alvarlegra aðgerða sem upp-
sagnir eru.
Fulltrúaráðið kemur aftur saman
sunnudaginn 25. nóvember og þá
verður tekin ákvörðun um hvort
uppsagnirnar verði lagðar fram 1.
desember.
Verði úr að kennarar segi upp 1.
desember kemur sú uppsögn til
framkvæmda 1. mars, því uppsagn-
arfrestur er þrír mánuðir hjá kenn-
urum einsog öðrum opinberum
starfsmönnum. Mun þá kennsla
leggjast niður í öllum skólum. Nú
hefur ríkið heimild til að fram-
lengja uppsagnartímann um þrjá
mánuði þegar um fjöldauppsagnir
er að ræða. Alþýðublaðið hefur
hins vegar hlerað að kennarar muni
hundsa slíka framlengingu, enda
verði uppsagnirnar vita máttlausar
komi þær ekki til framkvæmda fyrr
en í lok skólaársins.
Það er því allt útlit fyrir að skóla-
hald verði með minnsta móti þetta
skólaár, því verkfall BSRB gerði
það að verkum að stór hluti nem-
enda missti úr allan októbermánuð
og taki stjórnvöld ekki sjálfum sér
kverkatak og komi til móts við rétt-
mætar kröfur kennara, blasir sú
hætta við að kennsla leggist niður í
og hefst með kosningu 6 fulltrúa í
framkvæmdastjórn flokksins. Því
næst hefjast almennar umræður
um álit starfsnefnda . Um klukkan
15 fer fram kosning til flokksstjórn-
ar. Kjörnir verða 30 fulltrúar í
flokksstjórn, en hineinstöku kjör-
dæmisráð hafa að undanförnu kos-
ið alls 31 fulltrúa á fundum sínum í
flokksstjórnina. Einnig fer fram
kjör til verkalýðsmálanefndar
flokksins.
Að kosningum afstöðnum heldur
almenn umræða áfram og afgreidd-
ar verða ályktanir flokksþingsins.
Þingslit verða síðan á óákveðnum
tíma á sunnudagskvöldinu.
Meðal þeirra gesta er ávarpa
þingið við setningarathöfnina í
Gamla bíói, er forseti Alþýðusam-
bands íslands, Ásmundur Stefáns-
son.
f stuttu viðtali við Kristínu Guð-
mundsdóttur framkvæmdastjóra
Alþýðuflokksins kom fram að
viðamikill undirbúningur liggur að
baki þessa flokksþings. Sagðist hún
eiga von á frjórri og málefnalegri
umræðu á þinginu. Um 250 fulltrú-
ar munu sækja þingið.
Eins og fram kemur annars stað-
ar í blaðinu, þá Iiggur það fyrir að
tveir aðilar hafa boðið sig fram til
formanns Alþýðuflokksins. Það
eru Kjartan Jóhannsson og Jón
Baldvin Hannibalsson. Þá hefur
Jóhanna Sigurðardóttir lýst fram-
Framhald á bls. 3
kost á sér í formannskjör Alþýðu-
flokksins, en það fer fram á 42.
flokksþingi flokksins um næstu
helgi.
1 samtali við Alþýðublaðið um
þessa ákvörðun sagði Jón Baldvin
að hann fyrir sitt leyti kviði því ekki
að framboð sitt til formanns myndi
valda átökum er yrði flokknum til
skaða.
„Ég minni á, að þegar núverandi
formaður bauð sig fram fyrir fjór-
um árum gegn Benedikt Gröndal,
lagði hann áherslu á að ekki væri
um ágreiningsatriði að ræða, held-
ur væri framboð hans persónulegt.
Að í lýðræðislegum flokki gætu
menn ekkert haft á móti því að fram
færi lýðræðislegt val. Ég er að vísu
ekki sammála því að kjósa eigi bara
til þess að kjósa. En að mínu mati
búum við nú við gerbreyttar að-
stæður. Fram hafa farið ítarlegar
umræður í flokknum um stefnu,
stöðu og starf flokksins. Vegna þess
hversu illa er komið fyrir flokkn-
um er augljóst að eitthvað er að.
Það er hreyfing innan flokksins
sem telur að breytingar séu nauð-
synlegar.
Mitt framboð gefur mönnum
kost á að fylgja eftir þessum kröf-
um um breytingar. Mitt framboð er
málefnalegt, ekki persónulegt og
það er við þessar aðstæður sem ég
tel eðlilegt að fram fari kosning, er
snúist um hvort tveggja menn og
málefni" sagði Jón.
Jón Baldvin tilkynnti þessa
ákvörðun sína á fundi með alþýðu-
flokksfólki í félagsmiðstöð jafnað-
armanna síðastliðinn laugardag.
Þar kynnti hann einnig fréttatil-
kynningu um ástæður framboðs-
ins, en þar segir:
„Ég tilkynni hér með þá ákvörð-
un mína, að gefa kost á mér við for-
mannskjör á flokksþingi Alþýðu-
flokksins. Ákvörðun þessi hefur
verið tilkynnt Kjartani Jóhanns-
syni, formanni Alþýðuflokksins.
1. Alþýðuflokkurinn hefur að
undanförnu tapað fylgi og áhrif-
um í þjóðfélaginu. Jafnaðar-
mönnum er það sérstakt á-
hyggjuefni, að flokkurinn hefur
ekki náð þeim árangri í stjórnar-
andstöðu, sem efni standa til.
2. Alþýðuflokkurinn gerir strangar
kröfur til annarra um árangur í
starfi. Við flytjum vantraust á
ríkisstjórn, sem skilar ekki
árangri. Við gerum sömu kröfur
í atvinnulífinu. Við hljótum að
gera sömu kröfur til sjálfra okk-
ar. Ekki minni.
Nái ég kjöri mun ég taka af öll
tvímæli um stefnu og stöðu Al-
þýðuflokksins í íslenskum stjórn-
málum. Til þess að ekkert fari milli
mála og flokksmenn og kjósendur
velkist ekki í vafa um, hver sú stefna
er, skal eftirfarandi tekið fram:
1. Alþýðuflokkurinn á að hasla sér
völl afdráttarlaust vinstra megin
við miðju í hinu íslenska flokka-
kerfi.
2. Við eigum að gera íslendingum
ljóst að við erum róttækur um-
bótaflokkur í efnahags- og fé-
lagsmálum og i stjórnsýslu.
3. Við eigum að vera íhaldssamir á
farsæla og ábyrga stefnu í örygg-
is- og varnarmálum, — stefnu,
sem forystumenn flokksins frá
fyrri tíð áttu drjúgan hlut í að
móta og nýtur stuðnings yfir-
gnæfandi meirihluta þjóðarinn-
ar.
4. Undir minni forystu mun Al-
Framhald á bls. 2
Magnús H. gefur
ekki kost á sér
„Ástæðan fyrir því að ég gef ekki
kost á mér til endurkjörs í varafor-
mannsembættið er sú og sú ein að
ég er í þannig stöðu að ég get ekki
af neinu viti sinnt þessu starfi, bú-
andi og starfandi í Vestmannaeyj-
um“, sagði Magnús H. Magnússon
í samtali við Alþýðublaðið um þá
ákvörðun sína að gefa ekki kost á
sér áfram á komandi flokksþingi.
Magnús sagði að það væri miður
að hann gæti ekki sinnt þessu sem
skyldi, en það væri staðreynd að þó
hann vildi halda hlut dreifbýlisins
sem mestum þá gæfi það auga leið
að varaformaður þarf að mæta á
marga fundi, allt að 3 fundi viku-
lega yfir vetrartímann, en hver þess-
ara funda taki 1—2 vinnudaga. Það
væri einfaldlega of mikið.
Aðspurður um flokksþingið og
væntanlegt formannskjör sagði
Magnús:
„Ég vona að hvor sem það verður
sem tapar, þá taki hann því vel og
íþróttamannslega og að það verði
engin eftirköst. Það vill brenna við
að menn taki ósigri ekki nógu vel,
en ef menn verða sáttir við úrslitin
þá er ekki ástæða til að vera svart-
sýnn. Ég tel nú ekki rétt af mér að
lýsa yfir opinberlega stuðningi mín-
um við ákveðinn frambjóðanda í
kjörinu til formanns", sagði
Magnús.
Jóhanna í kjöri
til varaformanns
Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður tilkynnti á fundi með full-
trúum Reykvíkinga á flokksþingi
Alþýðuflokksins síðastliðinn laug-
ardag, að hún gæfi kost á sér í kjör
til varaformannsembættis flokks-
ins.
í samtali við Alþýðublaðið sagði
Jóhanna að það lægi nú fyrir að nú-
verandi varaformaður, Magnús H.
Magnússon myndi ekki gefa kost á
sér áfram.
„Undanfarnar vikur hef ég feng-
ið fjölmargar áskoranir og hvatn-
ingu um að gefa kost á mér í for-
ystusveit Alþýðuflokksins og ég hef
talið rétt að skorast ekki undan
ábyrgð í þessum efnum. Ég hef
íhugað þessi mál vel að undanförnu
og mér fannst það réttur vettvangur
að tilkynna þessa ákvörðun mína á
fundi með flokksþingsfulltrúum
Reykvíkinga síðastliðinn laugar-
dag“, sagði Jóhanna.