Alþýðublaðið - 13.11.1984, Blaðsíða 2
2
Þriðjudagur 13. nóvember 1984
-RITSTJÓRNARGREIN—'■ l»l" ,
Kosningar til formanns
Það liggur nú fyrir aö kosningar munu fara fram til umræður upp á sfðkastið um það hvernig snúa beri flokkanna um að mikill styrkur yrði f þvl að fá Alþýð-
formanns Alþýðuflokksins á flokksþinglnu um þeirri þróun við. Mikil málefnaumræða hefur farið flokkinn inn ( rfkisstjórnina sýna að ríkisstjórnin,
næstu helgi. Núverandi formaður, Kjartan Jóhanns-
son^hefurlýstþví yfiraðhann muni leítaeftirendur-
‘ kjöri. Þá hefur Jón Baldvin Hannibalsson þingmað-
ur Alþýðuflokksins í Reykjavfk gert opinbert að hann
bjóði sig fram til formanns.
Þess bera að geta að kjör til formanns Alþýðu-
flokksins eróhlutbundið, þannig að strangt til tekið
eru allir flokksmenn í framboði. Fyrir hinu er þó
hefð, að ákveðnir aðilar hafa fyrirfram lýst yfir fram-
boði. Svo er nú.
Andstæðingar Alþýóuflokksins hafa á slðustu vik-
um lagt sig f Ifma um það að láta svo llta út að deil-
urog illindi séu milii hópa í Alþýðuflokknum. Aliur
sá fréttafiutningur pólitfskra andstæðinga hefur
verið út f hött og byggður á Gróusögum.
Vissulega hafa Alþýðuflokksmenn áhyggjur af
stöðu flokksins eins og hún hefur birst f nýlegum
skoðanakönnunum. í flokknum hafa verið miklar
og ræddar ymsar hugmyndir ( þvf sambandi.
Kosningar f opnum og lýðræðislegum stjórn-
málasamtökum eru eðliiegar. Því er langurvegurfrá
þvf aó sú staðreynd að kosningar fara fram á milli
Kjartans Jóhannssonar og Jóns Baldvins Hanni-
balssonar á fiokksþinginu, sé merki þess að djúp-
stæður klofningur sé á ferðinni f flokknum. Vitan-
lega eru menn ekki ævinlega sammála um öll á-
hersluatríði f stefnu flokksins eða leiðir að markinu.
Sömuleiðis getur fólk greint á um það hvaða ein-
staklingar eiga aó fara með forystu f það og það
skiptið. Það væri f raun óeðlilegt ef svo væri ekki.
Andstæöingar flokksins hafa reynt að koma þvf inn
hjá fólki aó Alþýðuflokkurinn standi einkar veikum
fótum nú. Þær fullyrðingar koma ekki heim og sam-
an við þær fréttir að stjórnarflokkarnir vilja fá Al-
þýðuflokkinn inn I rikisstjórnina til að efla hana og
styrkja. Vfirlýsingar forystumanna beggja stjórnar-
sem stendur æði höllum fæti, sér Iffsljós f þvf að
eflastjórninameð þátttökcrAlþýðuflokksins. Hift er
svo annað mái að formleg tilboð I þessa veru hafa
ekki borist alþýðuflokksmönnum og formaöur
flokksins hefur kveðið á um að Alþýðuflokkurinn
færi ekki inn f rfkisstjórnina miðað við núverandi stfl
hennar og stefnu.
Alþýðublaðið vill undirstrika að á flokksþinginu
um næstu helgi mun fara fram ítarleg málefnaum-
ræða. Þar munu 250 fulltrúar koma saman og marka
starfið og stefnuna til næstu tveggja ára. Kosningar
til formanns eða annarra trúnaðarstarfa eru hluti af
þeirra heildarúttekt, þar sem flokksfóik horfir um
öxlogmeturreynslu liðinnaáraogekkisfðurmarkar
spor til framtfðar til eflingar jafnaðarstefnunni og
um leið til heilbrigðari og réttlátari þjóðfélagsgerðar
hérálandi.
- GAS.
Tiikynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina ágúst, sept-
ember og október er 15. nóvember n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Fteykjavíktollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytiö.
Jón Baldvin 1
þýðuflokkurinn vísa á bug öllum
kenningum um Alþýðubanda-
lagið sem sameiningar- eða for-
ystuafl vinstri manna, þó ekki
væri nema vegna hörmulegrar
reynslu þjóðarinnar af ríkis-
stjórnarþáitlöku þess flokks ár-
um saman.
5. Undir minni forystu mun Al-
þýðuflokkurinn leita samstarfs
um að mynda forystuafl jafnað-
armanna og frjálslyndra afla
vinstra megin við miðju í íslensk-
um stjórnmálum. Markmiðið er
að auka áhrif jafnaðarstefnunn-
Heilsuræktarnámskeið Y.R.
Streita - fyrirbygging og meðferd
Starfsstöður og líkamsbeiting
Leiðbeinandi: Dr. Eiríkur Örn Arnarson
Til hvers?
Tilgangur námskeiðsins er að upp-
lýsa hverjir eru helstu streituvaldar
daglegs lífs, hver eru viðbrögð lík-
ama og hugar við streitu, veita
upplýsingar um fyrirbyggjandi að-
gerðir og meðferð streitu.
Hvað er gert?
M.a. verður leiðbeint um hvernig
bregðast má við streitu og kennd
verður slökun.
Hverjir geta verið með?
Námskeiðið er ætlað ölium félagsmönnum VR úr
öllum starfsgreinum.
Hvenær?
Námskeiðið er 14 stundir alls og fer
fram laugardagana 17. nóv. og 24.
nóv. kl. 10.00-17.00 báða dagana.
Leikfími á vinnustaö
Leiðbeinandi: Þórey Guðmundsdóttir, leikfimikennari
Til hvers?
Tilgangur námskeiðsins
er að auðvelda fólki að
láta sér líða vel líkam-
lega, við vinnu sína.
Hvað er gert?
Kenndar verða léttar
líkamsæfingar, sem
hægt er að stunda á
vinnustað, í sæti sínu
eða standandi. Einnig
er fræðsla um vöðva-
byggingu líkamans.
Hverjir geta verið með?
Námskeiðið er ætlað öllum félagsmönnum VR úr
öllum starfsgreinum.
Hvenær?
6 stundir alls, mánudaginn 19. nóv., miðvikud. 21.
nóv. og fimmtudaginn 22. nóv. kl. 10.00-12.00 f.h.
Leiðbeinendur: Unnur Guttormsdóttir, sjúkraþjálfari
Anna Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari
Til hvers?
Tilgangur námskeiðsins er að
draga úr þreytu og vöðvaverkjum
vegna of mikils álags á líkamann
við dagleg störf.
Hvað er gert?
Kenndar verða starfsstöður og lík-
amsbeiting, ásamt léttum, styrkj-
andi, liðkandi og slakandi æf-
ingum.
Hverjir geta verið með?
Námskeiðið er ætlað öllum félagsmönnum VR sem
vinna sitjandi störf.
Hvenær?
10 stundir alls, kennt verður tvisvar í
viku á þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 17.00-19.00 í fimm skipti alls og
hefst þriðjudaginn 20. nóvember.
Næring og fæöuval
Leiðbeinandi: Dr. Laufey Steingrímsdóttir
Til hvers?
ITilgangur námskeiðsins er
að leiðbeina fólki um val
réttrar fæðutegundar til
neyslu yfir starfsdaginn.
Hvað er gert?
Fjallað verður um nær-
ingarþörf einstaklingsins,
næringargildi ýmissa fæðu-
tégunda og neysluþörf lík-
amans.
Hverjir geta verið með?
Námskeiðið er ætlað öllum félags-
mönnum VR úr öllum starfsgreinum.
Hvenær?
4 stundir alls, kennsla fer fram mánudaginn 19.
nóvember og þriðjudaginn 20. nóvember kl. 20.00-
22.00.
Hægt er að sækja eitt eða fleiri námskeið
samtímis.
Sjúkrasjóður VR stendur fyrir öllum þessum
námskeiðum og þau eru endurgjaldslaus fyrír
félagsmenn Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur.
Námskeiðin eru haldin í húsakynnum VR í
Húsi verslunarínnar á 9. hæð.
Látið skrá ykkur strax í síma 68-71-00 því
þátttaka er takmörkuð.
ar og jafnaðarmanna á stjórn
landsins.
6. Undir minni forystu mun Al-
þýðuflokkurinn taka af tvímæli
um, að við erum ekki gamaldags
kerfisflokkur, heldur róttækur
umbótaflokkur, sem vill breyta
þjóðfélaginu í átt til valddreif-
ingar og virkara lýðræðis, —
gegn miðstjórnarvaldi og ríkis-
forsjá. Alþýðuflokkurinn mun
lýsa sig reiðubúinn til samstarfs
um stjórn landsins með þeim öfl-
um, sem vilja leggja þessari
stefnu lið.
Ég hef fullan hug á að hrinda í
framkvæmd nýjum hugmyndum
um róttækar breytingar á vinnu-
brögðum í innra starfi fiokksins:
Upplýsingastreymi innan flokks,
útgáfu- og útbreiðslumálum,
fræðslu- og uppeldisstarfi og fjár-
öflun.
Gerð verður nánari grein fyrir
þessum málum á flokksþingií*
í samtali við Alþýðublaðið sagði
Jón Baldvin enn fremur að hann
þekkti engan alþýðufiokksmann
sem nú gæti mætt til flokksþings til
að staðfesta með ánægju óbreytt
ástand, þegar flokkurinn væri bú-
inn að tapa 2 af hverjum 3 kjósend-
um sínum.
„Menn fara ekki á flokksþing til
þess að kveða upp dauðadóm yfir
sjálfum sér. Ég held að það sé út-
breidd skoðun innan flokksins að
nú séu seinustu forvöð til að snúa
vörn í sókn!‘
Hvað er í þvi sambandi mikil-
vægast að þínu mati?
„Þetta gerist ekki nema með rót-
tækum breytingum, afdráttalausari
stefnu, virkari þátttöku flokks-
manna, gerbreytingum á innra
starfi, uppstokkun á útgáfumálum
flokksins og sérstaklega er nauð-
synlegt að skipuleggja strax uppeld-
is- og fræðslustarf með ungu fólki.“
í ljósi alls þess, hverja telur þú
möguleika þína til sigurs?
„Ég vil svara þessu sem svo að ég
renni blint í sjóinn með það. Fram-
boð mitt er fyrst og fremst málefna-
legt, ég kem til með að taka úrslit-
unum með bros á vör á hvorn veg
sem þau fara. Ef menn óttast átök
og illindi þá verða þau ekki af minni
hálfu“ sagði Jón Baldvin að lok-
um.
Listaverkakort
frá Listasafni
íslands
Undanfarin 20 ár hefur Listasafn
íslands látið gera eftirprentanir af
verkum íslenskra myndlistarmanna
í eigu safnsins og eru þau tilvalin
sem jólakort.
Nú eru nýkomin út þrjú litprent-
uð kort á tvöfaldan karton af eftir-
töldum verkum:
Flugþrá, 1935-54, eftir Jóhannes
S. Kjarval, Tveir sjómenn á báti,
eftir Gunnlaug Scheving, Á hest-
baki, 1978, Louísu Matthíasdóttur.
Kortin sem eru mjög vönduð að
allri gerð eru til sölu í safninu.
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félags-
fund um nýgerðan kjarasamning á Hótel Sögu
(Átthagasal) miðvikudaginn 14. nóvember kl.
20:30.
Dagskrá:
Nýr kjarasamningur
Félagsmenn hvattir til að fjölmenna.
Verið virk í V.R.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir októbermánuð er 15.
nóvember. Ber þá að skila skattinum til inn-
heimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.