Alþýðublaðið - 23.11.1984, Qupperneq 3
Föstudagur 23. nóvember 1984
3
Fiskur hækkað um
10% á 3 mánuðum
í október hækkaði vísitala fram-
færslukostnaðar um 1,28%. 0,3%
af hækkuninni er vegna húsnæðis-
liðs, 0,5% vegna hækkunar á ýmissi
þjónustu og 0,5% vegna hækkunar
á vörum.
Siðast var vísitalan reiknuð lög-
formlega í ágústbyrjun, var hún þá
í 108,35 stigum og hefur hækkað í
nóvemberbyrjun í 112,22 stig, eða
um 3,10%.
Mest hefur hækkunin orðið á
fiski eða um 10%, kjörvörur hafa
hinsvegar hækkað um 6,6%. Kart-
Hvað vill fé-
lagshyggjufólk
Fyrir nokkrum mánuðum efndi
hópur fólks til ráðstefnu i Gerðu-
bergi um efnið: „ísland: velferðar-
ríki fyrir hvern?“. Ráðstefnan þótti
takast vel en þar var m. a. sýnt fram
á að hér á landi er við lýði velferðar-
kerfi fyrirtækjanna fremur en vel-
ferðarríki launafólks.
Sami hópur boðar nú til ráð-
stefnu um efnið: „Hvað vill félags-
hyggjufólk?“. Umræða um þessa
spurningu hlýtur að teljast mjög
tímabær nú þegar ríkisstjórnar-
flokkarnir eiga í vök að verjast og
augu fólks beinast að stjórnarand-
stöðuflokkunum. Víða er spurt:
Hvaða valkost hafa félagshyggju-
öflin sameiginlega fram að færa?
Dagskrá ráðstefnunnar er þann-
ig:
Framsöguræður:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir/
Kristín Astgeirsdóttir: Félags-
hyggja andspænis auðhyggju. Mar-
grét Björnsdóttir: Þurfa utanríkis-
mál að sundra félagshyggjufólki? -
Stefán Benediktsson: Bandalag
jafnaðarmanna og félagshyggja. -
Guðmundur Árni Stefánsson: -
Margir flokkar — ein stefna?
Umræöur:
Ráðstefnustjóri: Ögmundur
Jónasson.
Á ráðstefnunni verður lögð fram
tillaga um að stofna samstarfs-
nefnd félagshyggjufólks. Ráðstefn-
an hefst kl. 13.30 að Hótel Borg,
laugardaginn 24. nóvember og er
öllum opin. Þátttökugjald er 50
krónur.
Magnús 1
asta degi allt næsta ár. Sú upphæð
mun jafngilda 4700 árslaunum
verkafólks. Útgjaidaliðir fjár-
lagafrumvarps núverandi stjórnar
eru hinir sömu og áður. Fjárfest-
ingin í sama farvegi. Þessi stjórn
er bara að tala um að breyta. í
raun er hún ekki að breyta neinu.
Á nýafstöðnu flokksþingi,
samþykkti Alþýðuflokksfólk
stefnuyfirlýsingu sem m.a. fjallar
um atvinnu og efnahagsmál. Sú
yfirlýsing felur í sér ferskar og rót-
tækar umbótatillögur, tillögur
sem sanna að einnig hér á landi
eru jafnaðarmenn sér meðvitandi
um það, að velferðarþjóðfélag
verður ekki reist og fær ekki stað-
ist til lengdar nema stoðir þess, at-
vinnustarfsemi og verðmæta-
sköpun, séu ófúnar og reistar á
traustum grunni. Þessa stefnuyf-
irlýsingu, sem er svar við ákalli
alls hugsandi fólks um betri
stjórnarhætti, munum við kynna
unt land allt á næstu vikum. — Ég
hvet þjóðina til að hlusta vell
Ég sagði í upphafi máls míns að
við stæðum á tvennum tímamót-
um. Um hin efnalegu hef ég þegar
rætt. Hin eru pólitísk.
Við erum nú að kynnast við-
horfum — stjórnarstefnu — sent
ber meiri keim af íhaldssemi og
hægri öfgum en við höfum átt að
venjast í þessu landi. Við höfum
horft upp á lifeyri öryrkja og aldr-
aðra stórlega skertan, jafnvel
meira en sem nemur hinni al-
mennu kjaraskerðingu, og
greiðslur sjúkra fyrir lyf og lækn-
ishjálp margfaldaðar. Til að spara
útgjöld þeim ríkissjóði, sem á
sama tíma hafði ráð á að lækka
skatta af skrifstofuhúsnæði og
verslunarhöllum.
Var það ekki nægilegt, hæst-
virtur forsætisráðherra, að elli- og
örorkulífeyrisþegar og aðrir sem
við knöppust kjör búa, hafa axlað
byrðar a.m.k. til jafns við aðra,
hlutfallslega, þurfti einnig að 4-5-
Lögtök
Eftir kröfu Tollstjórans í Reykjavík og aö undan-
gengnum úrskuröi veröa lögtök látin fram fara án
frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en ábyrgö
ríkissjóðs, að áttadögum liðnum frá birtingu aug-
lýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Söluskatti fyrir apríl, maí, júní, júlí, ágúst og
september 1984; svo og söluskattshækkunum
álögöum 16. maí 1984 — 20. nóv. 1984; vörugjaldi
af innlendri framleiðslu fyrir apríl, maí, júní, júlí,
ágúst og sept. 1984; mælagjaldi af dísilbifreiöum,
gjaldföllnu 11. júní og 11. okt. 1984; svo og launa-
skatti fyrir áriö 1983.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík
20. nóvember 1984.
fz s
•==7 Utboö
dagheimili
Hafnarfjarðarbær leitar tilboöa í byggingu dag-
heimilisdeildar viö Leikskólann Smárabaröi 1.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6, gegn 2000 kr. skilatrygg-
ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 4. des. kl. 11.
Bæjarverkfræðingur.
öflur og vörur unnar úr þeim, eru
einu matvörurnar, sem hafa lækk-
að í verði, um heil 20%. Almennt
hafa matvörur hækkað um 3,5%.
Drykkjarvörur og tóbak hafa al-
mennt hækkað um 7,1%. Mest er
hækkunin á áfengi eða 9,4%, tóbak
hefur hækkað um 6,5%.
Tvennslags þjónusta hefur staðið
í stað, en það er rat'magn og sími.
Þessar tölur eru reiknaðar út frá
því að vísitala framfærslukostnað-
ar hafi verið í 100 stigum í febrúar-
byrjun i ár. í nóvemberbyrjun var
hún komin upp í 112 stig. Á þessurn
níu mánuðum hefur vísitala fram-
færslukostnaðar því hækkað um
ein 12%. Mest hefur hækkunin ver-
ið í heilsuvernd, eða ein 40%.
falda lyfja- og Iækniskostnað,
sem harðast kemur niður á þessu
sama fólki?
Við höfum séð kaupmátt launa
keyrðan niður með valdboði og
skattbyrði launafólks þyngda á
meðan bönkum og eignafólki
voru réttar digrar ívilnanir. Við
horfum á skattsvikin vaða uppi,
en ungu fólki úthýst af húsnæðis-
markaðinum. Við höfum séð rík-
isvaldið magna kjaradeilur með
óbilgirni og þjösnaskap. Séð það
hóta launafólki og reyna að kúga
það til hiýðni.
Það er sannfæring mín, að ef
atvinnurekendur hefðu gengið að
mjög hóflegum kröfum Verka-
mannasambandsins s.l. sumar og
ef ríkisstjórnin hefði þá haft
ákveðnar og útreiknaðar tillögur
um alvöru skattalækkun — þá
hefðu náðst skynsamlegir samn-
ingar á vinnumarkaðinum —
samningar sem hefðu tryggt
áframhaldandi hjöðnun verð-
bólgu — og þá hefði líklega ekki
kornið til neinna verkfalla.
Þessu tækifæri var gloprað nið-
ur fyrir klaufaskap og hroka-
gikkshátt nokkurra markaðs-
hyggjupostula Sjálfstæðisflokks-
ins og ístöðuleysi framsóknar-
manna. Því fór sem fór.
Og nú síðast höfum við séð rík-
isstjórnina hirða af fólki i einni
svipan árangur langrar kjarabar-
áttu áður en blekið á samningun-
um var þornað. Áður en komin
var til greiðslu ein króna af um-
sömdum kjarabótum.
Þessi afstaða er okkur fram-
andi, íslendingum, því að okkar
stjórnmálahefð er af allt öðrum
toga. Hér á landi hafa ríkt viðhorf
samhjálpar og félagshyggju allt
frá setningu elstu laga á Islandi á
þjóðveldisöld. Þau viðhorf hafa
átt hljómgrunn í öllum stjórn-
málaflokkum og hjá öllum þeim
stjórnmálamönnum sem þjóðin
telur til mikilhæfra Ieiðtoga
sinna.
Mér eru minnisstæð ummæli í
ræðu, sem Gunnar heitinn Thor-
oddsen flutti um stefnu Sjálf-
stæðisflokksins árið 1976 er hann
sagði: „Frelsisþráin og sjálfstæð-
iskenndin annars vegar og félags-
lyndi og gagnkvæm samhjálp
hins vegar, hafa einkennt íslensku
þjóðina, íslendingseðlið, alla
stundí'
Hér kveður við annan tón en
þegar nú tala hinir nýju markaðs-
hyggjupostular þessa sama
flokks. Einnig hér eru tímamót.
Nýir siðir banka á dyr. Það hill-
ir undir stefnu sem er ófélagslynd
og andstæð samhjálpinni. Skipt-
ingu fólksins auðuga og snauða.
Stjórnmálamenn með annars
konar „íslendingseðli" en Gunn-
ar Thoroddsen talaði um.
í þessu máli þarf þjóðin að taka
afstöðu. Afstöðu til grundvallar-
lífsviðhorfa og til þess gæti komið
fyrr en varir, því að þessi ríkis-
stjórn verður ekki ellidauð. Segla-
búnaður hennar er nú brotinn.
Stefnahennarer strand. Þóer það
verst að hún hefur misboðið rétt-
lætiskennd okkar.
Ég þakka þeim sem hlýddu.
Magnús J. Magnússon og Daníel Þorsteinsson í hlutverkum sínum.
Leikfélag Selfoss frumsýnir:
„Sem yður þóknast“
Leikfélag Selfoss frumsýnir
gamanleikinn „Sem yður þóknast“
eftir William Shakespeare,
sunnudagskvöldiö 25. nóvember,
kl. 21.00, í Selfossbíói.
Leikstjóri er Arnar Jónsson leik-
ari, og leikmynd er unnin af Ólafi
Th. Ólafssyni. Æfingar hafa staðið
yfir síðan í byrjun október. Leikur-
inn fjallar um ástir og öfund sem
fléttast saman og skapar flókna at-
burðarás, sern að lokum leysist far-
sællega eins og í öllum góðum
gamanleikjum. Leikarar í sýning-
unni eru 18 og fara nokkrir þeirra
með fleiri en eitt hlutverk, en alls
starfa 30 manns að sýningunni.
Næstu sýningar verða þriðjudag-
inn 27. nóvember og föstudaginn
30. nóveniber og hefjast báðar kl.
21.00.
Luc 4
leiðslukerfinu okkar sem rekja má
áratugi aftur í tímann. Þrisvar sinn-
um höfum við orðið að fella gengið
og þá aðallega vegna viðskiptasam-
vinnu okkar við Evrópulönd, en í
fyrsta skiptið vegna viðskilnaðar
síðustu stjórnar. Vegna þessara
erfiðleika höfum við þurft að skera
niður útgjöldin og taka upp nýja
verðlags- og launastefnu.
Kerfisumbætur
Frá því við jafnaðarmenn kom-
um til valda höfum við lagt ríkulega
áherslu á kerfisumbætur, annars
vegar þjóðnýtingu og hins vegar
valddreifingu. Við þjóðnýttum 9
stór iðnfyrirtæki og alla bankana.
Valddreifingin er í okkar hugum
mjög mikilvæg, en Frakkland hefur
verið mjög miðstýrt land. Við höf-
um skapað nýtt fyrirkomulag varð-
andi vald fylkja, sveitarfélaga og
smærri eininga. Það er okkar
reynsla að valddreifingin hafi hjálp-
að okkur að glíma við efnahags-
vandann, með því að gera „grasræt-
urnar“ virkari við sín hversdagslegu
vandamál.
Við höfum beitt okkur fyrir fé-
lagslegri löggjöf og vil ég þá sér-
staklega nefna rétt starfsmanna
innan fyrirtækjanna til áhrifa á
stefnumörkun og ákvarðanatöku. í
því sambandi er vinnuveitendum
gert að skyldu að halda viðræðu-
fundi við launþegana, bæði í einka-
fyrirtækjum og hjá hinu opinbera.
Við höfum beitt okkur fyrir
mörgurn umbótum a sviði dóms-
mála og má þar nefna að við höfum
afnumið dauðarefsinguna og einn-
ig höfum við lagt af ýmsa sérdóm-
stóla sem fyrir hendi voru. Þá má
nefna að við höfum heimilað inn-
flytjendahópum að stofna með sér
samtök, en í mörgum löndum er
slíkt bannað.
Fóstureyðingar
í Frakklandi voru fóstureyðingar
gerðar löglegar fyrir tæpum átatug,
en við höfum breytt lögunum á þá
leið að nú tekur almannatrygginga-
kerfið þátt í kostnaðinum. Við telj-
um þetta mjög mikilvægt, því um
var að ræða ójafnrétti gagnvart hin-
um efnaminni, því fóstureyðingar
eru dýrar.
Einnig finnst okkur mjög mikil-
væg sú breyting sem við höfum
staðið að, að við höfum sett i lög
takmörk fyrir einokunarmyndun á
sviði fjölmiðla og höfurn gert það
að skyldu að þeir séu opnir hvað
varðar eignarhaldið. Þannig er nú
mjög erfitt fyrir einstaklinga t. d.
að kaupa upp heilu dagblöðin.
Það hefur verið meginstefna hjá
jafnaðarmönnum að þrátt fyrir
efnahagslega erfiðleika höfum við
gætt þess vandlega að vernda kjör
hinna lægst launuðu og með
strangri stefnu gegn verðbólgu höf-
um við lagt okkur í líma að vernda
kaupmáttinn almennt.
Vegur Jafnaðarmannaflokksins í
Frakídandi hefur vaxið mjög síð-
ustu árin. Flokkur okkar er í raun-
inni mjög nýr, það má segja að
hann hafi fæðst árið 1971, en allt
frá miðjum sjötta áratugnum hefur
vinstri hreyfingin í landinu verið
mjög klofin og það af mörgum á-
stæðum. 1 forsetakosningunum ár-
ið 1969 fékk frambjóðandi jafnað-
armanna þannig aðeins örfá pró-
sent atkvæða. En árið 1971 hófst
mikil uppbygging með ítarlegri
áætlun um aukinn hlut flokksins. Á
10 árum tókst okkur þetta svo vel að
við fórum úr því að hafa lítið fylgi
upp í það að ná meirihluta á þing-
inu.
Hægri sveifla
Um þessar mundir búum við eins
og jafnaðarmenn í allri Evrópu við
það, að í gangi er viss hægrisveifla.
Hugmyndir hinna nýju frjálshyggju -
afla eru reyndar ekki nýjar af
nálinni, þær felast í að koma aftur
á rottuhlaupi (Rat-race) á sviði fé-
lagsmála, almannatrygginga, á
markaðinum og svo framvegis.
Gagnvart þessu verðum við sósíal-
istar og jafnaðarmenn að byggja
upp nýjan samstöðugrunn, enda er-
um við mun betur en frjálshyggju-
postularnir til þess failnir að snúa
til baka hinni efnahagslegu og fé-
lagslegu kreppu sem við búum við.
Ég hef ekki trú á því að hægri öflun-
um takist að ógna okkur meó
sinni afturhaldssömu hugmynda-
fræði, sérstaklega ef okkur jafnað-
armönnum í samvinnu við verka-
lýðshreyfinguna tekst að byggja
upp nýja samstöðumöguleika. Það
mun verða eitt af mikilvægustu verk-
efnum okkar í framtíðinni að
kljást við þær breytingar sem óhjá-
kvæmilega munu fylgja örri tækni-
þróun og nýjum framleiðsluhátt-
um. Þessi þróun gæti hvoru tveggja
orðið til góðs eða ills, efnahagslega
jafnt sem hvað varðar mannrétt-
indi. Við verðum hvoru tveggja að
tileinka okkur nýja tækni um leið
og við reynum að hafa stjórn á
henni“, sagði Luc.