Alþýðublaðið - 19.12.1984, Side 4
alþýðu-
LnFTnTTM
Miövikudagur 19. desember 1984
Útgefandi: Bla«5 h.f.
Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Cuómundur Árni Stefánsson.
Ritstjórn: Friórik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Frióþjófsson.
Skrifstofa: Uelgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir.
Auglýsingar: Eva Guðniundsdóttir.
Kitstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð.
Sími:81866.
Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38.
Prentun: Klaðaprent, Síðiimúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Byggingarsjöður ríkisins og verkamanna:
Fjárvöntun alls um
1400 milljón krónur
Einn alvarlcgasti þáttur fjárlaga-
frumvarps ríkisstjórnarinnar er
ákaflega slæm staöa húsnæðis-
málakerfisins. Ljóst er að slaða
býggingarsjóða ríkisins og verka-
manna mun enn versna frá því sem
er ef stefna rikisstjórnarinnar helst
óbreytt og var þó staðan orðin nógu
slæm fyrir.
I umræðum á Alþingi um fjár-
lagafrumvarpið tók Jóhanna
Sigurðardóttir, varaformaður Al-
þýðuflokksins, til máls. Hún fjall-
aði nokkuð um breytingartillögur
sínar og annarra, sem fela í sér auk-
in framlög til aðgerða gegn fíkni-
efnanotkun, sem og um aukin
framlög til franrkvæmdasjóðs fatl-
aðra, en hún fór sérstaklega ítarlega
út í fjárhagsstöðu og fjárvöntun
byggingarsjóðanna. Eftirfarandi
samantekt er byggð á þvi sem fram
kom í máli Jóhönnu.
Fjárlögin og
byggingarsjóðirnir.
í fjárlögum fyrir árið 1985 er gert
ráð fyrir eftirfarandi framlögum:
Úr ríkissjóði 550 milljónir, tekin
lán 1092 milljónir kr. í fjárlögum er
gert ráð fyrir að til ráðstöfunar sé á
árinu 1985 um 1 nrilljarður króna. í
útlánaáætlun Húsnæðisstofnunar
ríkisins frá því 7. nóv. 1984 varðandi
Byggingarsjóð ríkisins er gert ráð
fyrir að lánveitingar fyrir árið 1984
verði 2221 milljón kr., þar af vegna
nýbygginga 1084 milljónir tæpar og
vegna eldri íbúða 665 milljónir kr.
Til útborgunar á næsta ári vegna
eldri íbúða samkvæmt áætlun Hús-
næðisstofnunar rikisins eru 705,5
milljónir vegna 3080 íbúða, þar af
158 milljónir vegna 820 íbúða, sem
er hali yfirstandandi árs eða um-
sóknir sem frestað hefur verið fram
á árið 1985. Þessar áætlanir eru eins
og áætlanir um nýbyggingar
miðaðar við að 2221 milljón sé til
ráðstöfunar en ekki 1,6 milljarðar
eins og fjárlögin gera ráð fyrir. For-
sendur um fjölda byggingarlána
eru eftirfarandi:
Lánveitingar verði svipaðar og
undanfarin ár, en áætlað er að veita
lán til 1100 nýrra íbúða fokheldar á
tímabilinu okt. 1984 til sept. 1985.
Engir nýir framkvæmdasamningar
verði gerðir við byggingaraðila
annarra en þeirra sem byggja sölu-
íbúðir fyrir aldraða. Lánveitingar
til nýbygginga eru samtals um 1084
milljónir og skiptast þannig: 395
milljónir vegna fyrsta hluta, 728,8
milljónir vegna 2. og 3. hluta eða
samtals vegna nýbygginga 1123,8
milljónir kr. Aö auki þarf á næstu 4
mánuðum að borga upp lán sem
tekið var hjá Seðlabankanum, sem
nemur 270 milljónum, sem endur-
greiðast eiga á þessu og næsta ári.
Hér er um að ræða lán til þess að
hægt væri að standa við skuldbind-
ingar þessa árs til lántakana en
verulegur dráttur hefur orðið á lán-
veitingum til þeirra. Auk þess
skuldar Byggingarsjóður ríkisins 67
milljónir kr., sem ríkissjóður lánaði
vegna afborgana og vaxta af lífeyr-
issjóðum sem væntanlega verður
tekið af fjárveitingum þessa árs.
Lífeyrissjóðirnir.
í frumvarpinu er eins og áður
sagði gert ráð fyrir lánsfé að upp-
hæð 1092 milljónir kr. í Byggingar-
sjóð ríkisins. Lán frá lífeyrissjóðun-
um, ef gerð er nokkur grein fyrir
því, þá hafa lífeyrissjóðirnir keypt
af Byggingarsjóði ríkisins frá 1.
janúar 1984 til 30. nóvember 1984,
eða á 11 mánaða tímabili, fyrir 276
milljónir af 525 milljónum kr. sem
áætlað var í lánsfjáráætlun eða
52,6% af upphæðinni. Enn á því
eftir að skila sér nær helmingur
upphæöarinnar eða um 250 millj-
ónir af því sem gert var ráð fyrir að
fá að fjármagni frá lífeyrissjóðun-
um skv. lánsfjáráætlun yfirstand-
andi árs.
Á árinu 1983 keyptu lífeyrissjóð-
irnir af Byggingarsjóði ríkisins fyrir
321 milljón eða 83,4% af þeirri
upphæð, sem lánsfjáráætlun þess
árs gerði ráð fyrir. Ljóst má því vera
að ef enn vantar 250 milljónir upp
á frá lífeyrissjóðunum, að þá mun
það fé örugglega ekki skila sér eins
og ráð er fyrir gert, enda þurfti
Byggingarsjóður rikisins að taka
lán hjá Seðlabanka til að geta stað-
ið við sínar skuldbindingar. Lánsfé
er nú áætlað í fjárlögum 1092 millj-
ónir kr., en í áætlun frá Húsnæðis-
stofnun er gert ráð fyrir að 857
milljónir komi frá lifeyrissjóðun-
um, sem er rúmlega 63% hækkun
milli ára og 235 milljónir komi frá
Atvinnuleysistryggingasjóði. Ovar-
legt er að ætla með að nokkurt
komi frá Atvinnuleysistrygginga-
sjóði ekki síst þegar tekið er tillit til
þess að í lánsfjáráætlun fyrir árið
1984 var gert ráð fyrir að Atvinnu-
leysistryggingasjóður keypti
skuldabréf af Byggingarsjóði ríkis-
ins fyrir 115 milljónir, en nú þegar
árið er nær á enda hafa einungis
skilaö sér tæpar 16 milljónir kr.
Mikil fjárvöntun.
í áætlun Húsnæðisstofnunar
ríkisins er gert ráð fyrir að fjárvönt-
un verði 657 milljónir miðað við
forsendur fjárlagafrumvarpsins og
þær áætlanir um lánveitingar sem
Húsnæðisstofnun ríkisins hefur
gert en útlánaáætlun hennar hljóð-
ar upp á 2221 milljón kr. Til ráð-
stöfunar samkvæmt fjárlögum í
áætlun Húsnæðisstofnunar er 1564
milljónir og mismunurinn er því
657 milljónir kr. fjárvöntun. Fjár-
vöntunin er þó í raun mun meiri því
óvarlegt er að reikna með hærri
upphæð í lántökur eða frá lífeyris-
sjóðunum en nemur 600 milljónum
— og er það þó sennilega of hátt
áætlað — en ekki tæpum 1100
milljónum eins og fjárlög gera ráð
fyrir. Ekki er hægt að búast við
neinu lánsfé úr Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði. Fjárvöntun yrði þá
miðad við útlánaáætlun Húsnæðis-
stofnunar um 1075 milljónir kr., en
það er sú upphæð sem þingmenn
Alþýðuflokksins leggja til að bætist
við í Byggingarsjóð ríkisins. Að
auki má benda á að samkvæmt lög-
um um Húsnæðisstofnun ríkisins á
fjár í Byggingarsjóð ríkisins m. a.
að afla með framlagi ríkissjóðs
samkvæmt fjárlögum sem nemur
eigi lægri fjárhæð en 40% af sam-
þykktri útlánaáætlun sjóðsins við-
komandi árs, sem samþykkt er af
félagsmálaráðherra og fjármála-
ráðherra. Ef miðað er við útlánaá-
ætlun sem fram kemur í fjárlögum,
1600 milljónir kr., þá ætti að vera á
fjárlögum 640 miiljónir í stað 550
milljóna kr. — fjárvöntun því 90
milljónir kr. Ef miðað er við útlána-
áætlun Húsnæðisstofnunar, sem er
2,2 milljarðar, ættu að koma á fjár-
lögum 888 milljónir í stað 550 millj-
óna. Mismunurinn er því 338 millj-
ónir miðað við útlánaáætlun Hús-
næðisstofnunar.
Byggingarsjóður
verkamanna.
í áætlun Húsnæðisstofnunar
ríkisins varðandi Byggingarsjóð
verkamanna frá 22. maí kemur
fram, að hjá Húsnæðismálastjórn
Iiggi fyrir óafgreiddar umsóknir frá
l. ágúst 1983 vegna 379 íbúða í
verkamannabústöðum. Að auki er
gert ráð fyrir að umsóknir vegna
framkvæmda ársins 1985 verði
500—600. Samtals má því áætla að
umsóknir fyrir árið 1985 verði ekki
færri en 900. Að auki Iiggja fyrir
unrsóknir vegna þegar gerðra samn-
inga vegna 350 íbúða sem verða
með áframhaldandi framkvæmd-
um 1985. í áætlun Húsnæðisstofn-
unar er gert ráð fyrir eftirfarandi
útlánum úr Byggingarsjóði verka-
manna: Vegna þegar gerðra samn-
inga 350 íbúðir, 155 millj. kr. Vegna
nýrra samninga er gert ráð fyrir af-
greiðslu á 510 umsóknum af þeim
900 umsóknum, sem ráð er fyrir
gert að liggi fyrir á árinu 1985, en
það eru þá 370 millj. kr. Útstreymi
vegna endursölu íbúða er ráð fyrir
gert að verði 110 millj. kr. Heildar-
útlán því samtals 635 millj. kr. og er
sú upphæð miðuð við verðlag 1.
júní 1984. Miðað við verðlagsþróun
á næsta ári má gera ráð fyrir að
þessi upphæð verði um 800 millj.
kr. Á fjárlögum er gert ráð fyrir að
til ráðstöfunar verði 605 milljónir
kr. Fjárvönlun skv. ofangreindu í
Byggingarsjóð verkamanna er því
190 milljónir kr. í þessum áætlun-
um Húsnæðisstofnunar ríkisins er
ekki gert ráð fyrir neinum lánveit-
ingum til Búseta. Húsnæðisstofnun
hefur þó borist 10. júlí beiðni frá
Búseta um lán til byggingar 56
íbúða á árinu 1985 og í DV er frá því
greint að tvö Búsetafélög til viðbót-
ar hafi sótt um lán, þ. e. á Akureyri
12 íbúðir og á Sclfossi 8 íbúðir eða
samtals 76 íbúðir. Ef reikna á með
að hægt verði að fullnægja þeim
umsóknum sem liggja fyrir frá Bú-
setafélögum má gera ráð fyrir að
sjóðurinn þurfi til ráðstöfunar til
viðbótar við þessar 800 milljónir a.
m. k. 110 milljónir. Heildarfjár-
vöntun í Byggingarsjóð verka-
manna er því um 305 milljónir ef
standa á við áætiun Húsnæðis-
stofnunarinnar og að veita Búseta-
félögum fyrirgreiðslu. Samtals er
því fjárvöntun í Byggingarsjóð
ríkisins og Byggingarsjóð verka-
manna 1375 milljónir kr.
Tillögur Alþýðuflokksins.
Tillaga Alþýðuflokksins nú við
fjárlagaafgreiðslu í báða sjóðina,
er aukning um 1.475 milljónir kr.
frá því sem fjárlagafrumvarpið ger-
ir ráð fyrir. Miðað við þessar fjár-
lagatölur væri í fyrsta lagi hægt að
standa við tillögu Húsnæðisstofn-
unar um lánveitingar úr Byggingar-
sjóði verkamanna, að auki að veita
Búsetaréttarfélögum umbeðin lán
og því til viðbótar, þá er nærri lagi
að í heild á næsta ári verði hægt að
fjármagna úr Byggingarsjóði
verkamanna 1/3 af árlegri íbúða-
þörf eins og ráð er fyrir gert í lögum
um Húsnæðisstofnun.
Varðandi Byggingarsjóð rikisins
er tillaga Alþýðuflokksins að dreg-
ið verði verulega úr lántökuþörf
sjóðsins sem í raun er orðin svo
mikil að að óbreyttu stefnir í gjald-
þrot sjóðsins. í öðru lagi er hægt
miðað við þessa fjárveitingu að
greiða skuldina við Seðlabanka og
standa við útlánaáætlun Húsnæð-
isstofnunar, sem er miðuð við 1.100
nýbyggingarlán og 3.080 lánveiting-
ar vegna kaupa á eldri íbúðumí'
Á nokkrum dögum hefur skipt um veðurhér, á suðvesturhorninu. 1'allt haust hefur jörð haldist auð og vorurtt
við á Alþýðublaðinu farin að óttast um aðþetta áriðyrðu ekkihvítjól. Veðurguðirnir voruþó okkur hliðholl-
irog breidduyfir jörðina hvíta vœrðarvoð. Þessarimyndsmellti blaðamaður Alþýðublaðsins af sl. mánudag
á Laugaveginum, en þá börðust vegfarendur ígegnum hríðarkófið.