Tíminn - 26.05.1967, Blaðsíða 3

Tíminn - 26.05.1967, Blaðsíða 3
15 ÞRIÐJUDAGUR 23. maí 1967. TÍMINN I 6 I AF SJONARHOLI ISLEND- INGS í BANDARÍKJUNUM Góð spretta fyrir westan Camp Hill. Þið þarna uppi á íslandi, sem aUtaf eruð að haela ykikur af því, að hafa grænasta gras- ið í hcimi, haldið auðvitað, að hér í Amerík'U sé ekkert nema malbik, skítur og giæpamenn á hverju götuhorni. Þarna skjátlast ykikur náttúrlega iia. Verandi sjálfur uppalinn á mal bikinu í Reykjavík, þá hefi ég lært meira um gras og gras- rækt síðan ég kom hér vestur, heldur en á öllum árum mín- um á Fróni. Heima á íslandi hélt ég ein- faldlega, að gras væri gras. Það var grænt (grænast í heiimi) og það óx á jörðunni. Jú, ég hafði tekið eftir því, að sumt gras var sléttara en ann- að. Ef 'það ýair mjög óslétt, var það stundum kailað hunda þúfur. Smári var lítoa í grasi, alltaf þar velkominn, og mað- ur leitaði að fjögurra laufa. Fíflar voru aufúsugestir á vorin og feikn failegir. Þeir voru líka bráðnauðsynlegir því mjólkin þeinra var eina vörtumeðalið, sem ég man eftir. Og maður var alitaf með vörtur. Svo voru líka ílustrá, sem maður Sleit, lét í lófann og blés í. Þá kom mitoið ýlf- ur. Ég var sérfræðingur í svo- leiðis bljómiist. Þetta voru nú mín grasvísir .ii. Ég varð etoki var við nein vandræði með slátt á grasi kringum íbúðarhús. Mér virt- ist, að gamlir menn með ljái væru alltaf komnir á vettvang, boðnir og búnir til að slá gras- ið, troða því í strigapoka, o^g hverfa síðan. Sem sagt, ailt átoafLega auðveit og einfalt. Það er nú eitthvað annað hérna í Ameríku. Hér er mjög flókið að hirða grasbiett fyrir framan hús. Ég hef stundum haldið, að það væri nærri því eins enfitt og að vera alvöru- bóndi. En við, grassérfræðing- ar úíhverfa stórborga Ame- rítou, erum náttúrLega etotoert nema piatbændur. í Ameríku er ekki alit gras gras. Það reynir að leyna á sér með því að vera grænt, en jafnvel piatbændur geta séð við því. ílustrá og simári, sem mér þótti reglulega vænt um heima, eru nú óvinir mínir. Fíflar eru rifnir upp, hivar sem þeir finnast. Hér þekkir eng- inn fíflamjólk, enda heid ég amerísikir krakkar hafi engar vörtur. Það, sem voðalegast er að hafa á sinni lóð, er hér toail- að torabbagras. Ég man ékki eftir svoieiðis á íslandi, nema mér hafi bara fundizt það vera alveg eð'liLegt. Krabbagras er eins og lítil hundaþúfa, sem hefir gleymt að rísa á fætur. Grasið bara vex í hring, í staðinn fyrir út um al'lt, eins og almennilegt gras gerir. í byrjun apríl byrjar mað- ur að spranga kringum húsið með hendur í buxnavösunum, hnusa út í loftið og gá, nvort nokkur vorlykt sé kornin. Svo athuigar mlaður, hvort helvítis kra'bbinn sé nokkuð farinn að bæra á sér í lóðinni. Fyrsti fífiHinn er rifinn upp með rót- um og hent í öskutunnuna. Maður spjallar við nágrannann. Hans spretta hefði verið léleg í fyrra. Hann hefir þegar tek- ið jarðvegsisýnishorn, og sér- fræðingar segja, að moldin sé of súr. Hann er því búinn að kaupa tivo poka af fcattoi og bæta í. Langt fram eftir apríl held- ur maður áfram að ráðgast við aðra platbændur um, hvaða á- burð skuli kaupa og hvaða ill- gresiseyði. Einn af löndunum hafði keypt svonefndan eitur- staf í fyrra. Þetta var plast- hóltour, sem maður fyliti með fljótandi fíflaieitri. Var síðan gengið um lóðina, og fiflunum lógað samvizkuilaust með þvi að þrýsta á gikk og gefa eibur- sprautu! Á smára og ilustrá dugar ekkert nema sérstakur illgres- iseyðir, sem borinn er á með dreifara. Svo má ekki gleyma ýmsum bætiednum og fjörefn- um, sem nauðsynlegt er að gefa lóðinni sinni, a.m.k. ann- að hivert vor. Á manni að geta tekizt að gera grasið eins mjúkt undir fæti og fínasta gólfteppi. Slátturinn sjá'lfur er mikið fyrirtæki. Það þarf vélar. Flest ar eru með benzínmótor, stór- bættulegar viðvaningum, ein- ungis öruggar í höndum þaul- vanra platbænda. Sumar vél- arnar eru með drifi, og er oft spaugilegt að sjá þær með platbónda hangandi aftan í sér. Mikið eru nú að ryðja sér til rúms dveng-trafctorar, sem maður getur setið á. Lat- ir platbændur telja kellum sin um trú um, að þeir geti feng- ið slag af að ýta alvöru siláttu- vél á undan' sér um flötina, svo þeir kaupa sér svona trak- tor, og sitja svo í makindum meðan þeir slá. Við hinir ýtum hreystilega hóstandi skellinöðruvélunum á undan otokur, og öndum djúpt að oktour i'lmi grassins, bíohd- uðum benzínreyk. Á laugar- dögum er mikill hávaði í ö'll- um platbændunum við láttinn. Það er kaillað söngur úthverf- anna. Fyrir fslending, sem vill vera reglulega nærgætinn við nágranna sína í Ameríku, er bezt að slá milli kl. 11 og 12 á sunnudögum, því þá eru þeir aillir i kirkju. Sumir eru iðnari að slá en aðrir. í oktoar hverfi var mað- ur, sem átti failegasta blett- inn, enda var hann al'ltaf eitt- hvað að dunda við hann. Einu sinni sá ég hann liggja á mag- anum og ncyta burtu ílustrá með flísaföng. Hann sló lífca oftar en nokkur annar. í fyrra- sumar fékk hann hjartásLag við sláttinn og dó. Það var ekkert slegið í hverfinu í viku á eftir. Á sumrin er oft hroðalega heitt, og þá þarf mifcinn kjark til að leggja í slátt. Verður maður fieikilega þyrstur, og þarf a^ iáta færa sér drukk út á engjar. Einn landanna hér mæiir lóð sína í flöskum. Það tekur hann átta ölflöskur að sLá blettinn á heitum sumar- degi. í mitolum þurrki dregur úr sprettu og þá brennur gras- ið fljótt, nema vöfcvað sé á næstum hverjum degit Sumir platbændur gefast upp, og af- saka sig með því, að vatnið sé of dýrt til að vökva svona mik ið. Þeir toafa líka málshætt í Ameríku, sem er svona: Ef grasið er grænna hjá nágrann- anurn, geturðu líka verið viss um, að vatnsreikningurinn hans er toærri. Hvernig er það annars með yktour þarna heima? Hafið þið borgað himnaföðurnum nokkurn vatnsreikning nýleiga? MINNING Sigþrúður Guðnadóttir Þann 29. f. m. andaðist að heim ili sínu, Gýgjarhólskoti í Bisk- upstungum, Sigþrúður Guðnadótt- ir, húsfreyja þar. Banamein henn ar var hjartaslag. Útför hennar fór fram frá Haukadal 6. maí að viðstöddu miklu fjölmenni. Sigþrúður var fædd 8. okt. 1896 að Þjórsárholti í Gnúpverjaihreppi. Voru foreldrar hennar Helga Gísladóttir og síðari maður henn ar Guðni Diðriksson er þar bjuggu og voru af traustum bændaættum úr Árnesþingi. Tveggja ára að aldri, fluttist Sigþrúður með foreldrum sínum ásamt þrem hálfsystkinum, af fyrra hjónabandi Helgu, að Gýgjárhóli í Biskupstungum. Þar bjuggu foreldrar hennar stórbúi um margra ára skeið. Þau eignuð ust saman 8 börn, svo heimilið var mannmargt, og rómað fyrir glað værð og myndarskap. Móður sína missti Sigþrúður 1915, og bjó fað ir hennar eftir það með stjúp- dóttur sinni Margréti, unz hann andaðist 1940. Sigþrúður ólst því upp í stór- um og glæsilegum systkinahópi, en skyndilegra dró harmaský fyr- ir sólu. Hinn voðalegi gestur, ,,Hvíti dauðinn“, sótti heim þessa glöðu og frjálslyndu fjölskyldu og lagði í gröfina 3 bræður henn ar í blóma lífsins. Það lætur að líkum, hvílíkt feikna áfall þetta var fyrir heim ilið, og hve djúp sár það skildi eft ir í hinni öru og viðkvæmu ungl- ingslund. En aldrei er svo svart yfir sorgarranni að ei geti birt fyrir eilífa trú“, og svo iór nér. Tíminn lagði hér á líknarhendur og græddi sárin. Sigþrúður naut ágætrar fræðslu í uppvexti eftir því sem þá gerðist og stundaði auk þess nám i saumi og nannyrðum í Reykjavík. Árið 1927 giftist Sigþrúður eftirlifandi manni sínum Karli Jónssyni í Efstadal, í Laugardal, og hóf þar búskap sama ár. Var öldruð móðir Karls hjá þeim til dauðadags, og naut frábærrar umhyggju tengda dóttur sinnar, sem hún taldi, að komið hefði sem sólargeisli inn á það heimili. Með frábærr atorku og fyrir- hyggju blómgaðist efnahagur þeirra hjóna og barnahópurinn stækkaði, en blessun fylgdi barni hverju svo að allt stóð traustum fótum. Naut Sigþrúður virðingar sam- býlisfólks og sveitunga í Laugar- dal, sem entist ævilangrar vin- áttu. Frá Efstadal fluttu þau hjón 1943 að Gýgjarhólskoti í Biskups- tungum og keyptu þá jörð stuttu síðar. Var það þá lítið býli og um- brotalaust. Þessu býli, hafa þau breytt í eina glæsilegustu bújörð þessarar sveitar, hvað ræktun og húsakost allan áhrærir. Og er hér löng landnámssaga sögð í fáum orðum Það iætur að líkum, að j vinnudagur húsmóðurinnar, með slíkum umsvifum, og stóran barna jhóp, hefur oft verið langur. Árla risið og seint gengiö til hvílu. Þó var Sigþrúður ekki heilsusterk, einkum hin síðari ár, en frábær starfsgleði og áhugi létti henni starfið. Þeim hjónum varð 9 barna auðið og eru þau. Jón bóndi í Gýgjarhólskoti, Helga húsfreyja að Gýgjarhóli, Guðrún húsfreyja að Miðdalskoti, Guðni fulltr. hjá Bifreiðaeftirl. ríkisins, Ingimar raffr. Kópavogi, Margrét húsfr. að Skipholti, Arnór stúdent og bóndi Bóli, Gunnar stud mag. Reykjavík, og ólöf húsfreyja Selfossi. Öll eru börn þeirra hjóna mjög góðum gáfum gædd og mannvæn leg. Sigþrúður var svipmikil kona, hafði glóbjart og mikið hár, og öll bar hún merki um sterkan persónuleika. Hún var gáfuð og minnið frábært. Hún átti mjög létt með að orða hugsanir sínar og j minnist ég þess, að hún eitt sinn ' á góðra vina fundi, flutti í hálfa klst tölu blaðalaust með ! þeim ágætum, að hverjum þing- ] skörungi hefði mátt vera sómi að- 1 í einkalífi var Sigþrúður mikil 1 gæfukona. Hún átti góðan eigin mann. sem hún naut ástríkrar sam vistar með í tæp 40 ár. Og hún Raforkumál á Alþingi Stjórnarliðið felldi tillögur Fram- i sóknarmanna. j Eins og áður hefur verið frá skýrt, fluttu fulltrúar Framsóknar flokksins í fjárhagsnefnd neðri I deildar Alþingis, þeir Skúli Guð- ! mundsson og Einar Ágústsson, til- 1 lögur um raforkumál í sambandi ■ við stjórnarfrv. um orkumál. Tillögurnar voru m. a. þessar: 1 Tillaga um að á árunum 1967 ,—1969 skuli leggja raflínur frá ! rafmagnsveitum ríkisins til allra jheimila, sem ekki hafa áður feng ,ið rafmagn frá samveitum eða j sérstökum vatnsaflsstöðvum, þar • sem meðallínulend milli býla er j 2 km eða minni. ! 2. Tillaga um að fyrir 1. nóv. ‘ næstk. skuli gera kostnaðaráætlan ! ir um raflínulagnir frá rafmagns- : veitum ríkisins um þær byggðir, þar sem meöallínulengd milli I býla er 2—2,5 km og 2,5 — 3 km. átti miklu barnaláni að fagna, naut vináttu og virðingar allra er henni kynntust, og hélt reisn sinni örlát húsmóðir til hinztu stundar. Og þótt ástvinum hennar, þyki að vonum höggvið þungt, þar sem hún er kölluð svo sviplega á braut, þá er það „huggun harmi gegn“ að vita að burtförL. var henni hæg, og að hún er á und- an farin „meira að starfa guðs um geim“. ! Ég kveð þig svo kæra vinkona með þakklæti frá okkur hjónum fyrir aralanga vináttu. Eiginmanni isvo og ástvinum hennar bið ég 1 blessunar guðs Sigurður Jónsson. — Þessar áætlanir þarf að gera til undirbúnings ákvörðunum um það,, að hve miklu leyti raforku þörfinni verði fullnægt með raf- línum frá samveitum. 3. Tillaga um að fyrir 1. nóv. ■ næstk. verði gerðar tillögur „m ; uppsetningu dísilstöðva til raf- : magnsframleiðslu á þeim heim- iilum, sem eru svo mjög afskekkt, i að ekki þykir fært að leggja til 1 þeirra raflínur frá samveitum, og ekki hafa hagstæð skilyrði til vatns • aflsvirkjunar. Séu tillögurnar «ið ;það miðaðar, að notendur slíkra j stöðva njóti ekki minni stuðnings j af opinþerri hálfu en þeir, sem ; fá rafmagn frá samveitum. ; Atkvæði um framannefndar til- ■: lögur voru greidd í neðri deild 10. ; apríl. Þar greiddu allir þingmenn i stjórnarflokkanna, 21 að tölu, at- 1 kvæði gegn tillögunum og felldu ! þær. Þegar orkulagafrv. kom til efri j deildar, fluttu fulltrúar Framsókn arfl. í fjártoagsnefnd þeirrar þing déildar, Helgi Bergs og Karl Kristjánsson, samihljóða til- lögur um raforkumálin. En þar fór á sömu leið- Stjórnarliðið felldi þær.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.